Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.06.2009 at 14:49 #648832
Sæll Sveinbjörn.
Ég get örugglega reddað þér. Sláðu á þráðinn.
Emil
10.06.2009 at 08:25 #648778Ég vil óska vefnefnd til hamingju með nýja vefinn. Mér þykir hann flottur.
Mér þótti hann heldur litlaus þegar ég leit á hann fyrst, en eftir að hafa opnað hann í fáein skipti er ég mjög ánægður. Hann er líka í samræmi við flesta þá vefi sem ég les að staðaldri.
það eru augljóslega ókláruð mál sem þarf að laga, en ég treysti því að verkið verði klárað með glæsibrag.það veit ég af biturri reynslu að það er ekki auðvelt verk að skipta út vef eins og okkar, en eins og einhverjir muna kanski var ég í eldlínunni við síðustu vefskipti. Sá vefur varð aldrei það undra tól sem hann átti að verða, en ég bind miklar vonir við að þessi standi undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar.
Munið bara að þeir sem að þessu koma eru að gera það í sjálfboðavinnu, meðfram annari vinnu og fjölskyldu, þannig að þeir geta tæplega unnið í þessu allan sólarhringinn.Með kveðju,
Emil Borg
05.06.2009 at 08:20 #648038Sæll Sigurður
Fáðu þér USB í serial breyti. Þeir eru reyndar ekki allir eins og virka ekki allir með GPS tækjum. Ég er með í sölu hjá mér breyta sem hafa alltaf virkað. Þú getur komið við og prófað ef þú ert á ferðinni. Ég er með opið til kl. 16.00 í dag.
Nýherji – Tölvulagnir
Köllunarklettsvegi 2
104 Rv.Kv. Emil Borg
18.05.2009 at 11:38 #647816Lella, getur nokkuð verið að það hafi rúllað kókdós undir bensíngjöfina og þú sért ekki á meiri hraða en 40?
En að öllu gamni slepptu myndi ég reyna að finna hvort þetta sé ekki sambandsleysi. T.d. hvort ekki vanti jarðsamband á mælaborðið.
Emil
17.05.2009 at 20:46 #647686Ég efast ekki um að það sé gott að versla við Paulsen, en fyrir helgina hringdi ég í þá og bað um verð í bremsudisk í fólksbílinn minn. Mér var gefið upp tæplega 4.500.- kr. fyrir parið sem er miklu betra verð en á öðrum stöðum. Þegar ég svo fór á staðinn að ná í diskana stóðst þetta ekki. Þá var verðið rúmlega 8.000.- fyrir parið sem er svipað verð og hjá öðrum.
Vonandi er mitt dæmi einsdæmi.Emil Borg
17.05.2009 at 20:41 #647786Sæll Lalli
Prófaðu að tala við Gretti vatnskassa. það er ekki ólíklegt að þau geti reddað þessu fyrir þig.
Emil Borg
05.05.2009 at 12:51 #647006Skrítið Agnes, því það kom til mín fyrir helgina. Er ekki líklegt að Íslandspóstur sé eitthvað að klikka?
Ég heyrði einmitt í morgun dæmi um að þeir sendu ekki frá sér aðalfundarboð í öðru félagi, sem kom til þeirra tímanlega.Fyrir fáum árum kom upp sú staða hjá okkur að fundarboðið barst ekki öllum snemma. þá var miðað við dagsetningu kvittunar sem pósturinn gaf út við móttöku, en sú dagsetning var innan þess ramma sem lögin kváðu um.
Emil
05.05.2009 at 12:34 #647002Sæl öll
Er það ekki örugglega rétt skilið hjá mér að þessi nýju lög verði löggð fram sem ein heild?
Þ.e. það verði ekki kosið um einstaka breytingu, heldur allt eða ekkrt?Emil Borg
11.03.2009 at 14:59 #204017Sælir félagar
Ég var beðinn um að setja þetta hér inn fyrir góðan mann. Ég gleymdi reyndar að spyrja um hvar þjófnaðurinn átti sér stað, en dekkjum og felgum var stolið af bílnum hans.
Ef þið vitið eitthvað um málið, hafið endilega samband við Sigurbjörn, sjons@mmedia.isHér er bíllinn dekkjalaus
Og svona líta felgurnar út
Kveðja,
Emil
04.03.2009 at 17:03 #642282Takk fyrir þetta Freyr.
Hvar skildi maður fá þetta efni? Kanski hjá AT??
Emil
04.03.2009 at 11:04 #642276Takk fyrir ábendingarnar strákar.
Ég fór að Googla og fann þar tekið fram að Motorplast er einmitt ekki ætlað á mótorhjól. Ég verð bara að vera duglegur við þvottinn, en eins og þið getið kanski ímyndað ykkur er ferlegt að ná tjörudrullunni úr raufunum á mótornum.
Góður bursti og tjöruhreinsir er trúlega eina vitið.Emil
03.03.2009 at 12:54 #642268Takk fyrir svörin strákar
Ég hefði kanski átt að taka það fram að ég er ekki að fara að sprauta í húddið á bílnum mínum, heldur á mótorinn í mótorhjólinu mínu. Ég nota það eins og hægt er á þessum árstíma, en það safnast ótrúlega mikil tjara og drulla á mótorinn þegar maður er á götunum. Það er vel þess virði að finna efni sem heldur henni frá að einhverju leiti, því það er hörmung að ná þessu af loftkældum mótor. Það má vel vera að WD40 geri gagn. Ég þarf bara að prófa það og ætla líka að horfa betur í kringum mig eftir Motorplastinu. Kanski hef ég bara ekki leitað á réttum stöðum.
Emil
03.03.2009 at 11:33 #203951Sælir spekingar
Hér í denn var til efni frá Sonax sem hét örugglega Motorplast. Því var sprautað yfir t.d. vélina, sem þá leit út eins og ný. Einnig var þá mun skárra að þrífa hana næst.
Ég hef ekki séð þetta efni undanfarið, en vitið þið hvort það fáist enn, eða eitthvað sambærilegt??Kv.
Emil Borg
28.02.2009 at 14:13 #640656Ég er algerlega sammála Barböru um að vefnefnd ætti að svara þessari fyrirspurn. Ég mynni líka á að langlundargeðið var nú ekki í fyrirrúmi hjá sumum núverandi vefnefndarmönnum við síðustu vefskipti. En það er kanski ekki sama hvoru megin við borðið maður situr??
Emil Borg
24.02.2009 at 21:16 #641872En strákar. Ef á að nota aftari kassann í akstri, hver á þá að skipta um gír??
Aftursætisfarþeginn? Það hlítur að vera því stöngin kemur upp aftan við framsæti, nema smíðuð sé heljarinnar færsla á hana. Ekki að það megi ekki.Emil
24.02.2009 at 10:12 #641784Sæll Haffi
Ég er með samskonar bíl með sömu bilun. Mér dettur ekki annað í hug en að mottan sé biluð þó ég hafi aldrei gefið mér tíma til að athuga það.
Emil
18.02.2009 at 10:07 #641222Já, Eyþór.
það er ekki alltaf sama hvoru megin við borðið maður situr…..Emil
17.02.2009 at 22:47 #203840Sælir félagar
.
Akkúrat núna er undirbúningsnefndin fyrir kvennaferðina að funda hér heima hjá mér. Ég hef „óhjákvæmilega“ hlerað eitthvað af undirbúningnum, og mögulega gæti eitthvað af því lekið út, ef vel er að mér farið.
Það er kanski gott að vita fyrir ykkur sem jafnvel þurfið eitthvað af upplýsingum, að Toyeroinn minn vantar ný dekk, það þarf að klára bremsur og að mála smávegis. Einnig þarf að skipta um bensíndælu í fólksbílnum.
.
Með bestu kveðju,
Emil
01.02.2009 at 18:42 #639618Sæll Heiðar
Jú, 600w er algert bruðl fyrir þetta sem þú þarft. 150w er svona í lægri kantinum en myndi sleppa. Þú þarfti ekki að fara mikið hærra en það.
Kv.
Emil
01.02.2009 at 18:21 #639614Sælir allir
Ég tek undir það að það borgar sig örugglega ekki að kaupa ódýrasta Inverterinn. Þeir ódýru hafa verið gjarnir á að blia og einnig hafa þeir oft hitnað gríðarlega.
En til hvers 600w? Ég sé nú ekki beint tilgang með því. 200 – 300w er yfirdrifið til að keyra fartölvu og öll helstu hleðslutæki og það mest af því á sama tíma. Mín skoðun er sú að ef á að fara í stóran Inverter, þurfi að fara í allavega 1000w til að geta keyrt t.d. lítil handverkfæri. 600w duga varla til þess, jafnvel þó verkfærið sé stimplað 500 – 600w. Það virðist sjaldan vera sama watt og watt í þessum efnum. En auðvitað geta menn svo haft einhverjar sérstakar þarfir fyrir þetta afl.
Agnar bendir á Inverter sem er til hjá Nýherja. Hann er 300w og getur gefið peek 500w ef ég man rétt. Þeir hafa komið vel út og talsvert verið selt af þeim.
.En annað. Ég get ekki verið sammála þessu nafni áriðill. Auðvitað býr tækið til riðstraum, en það gerir miklu meira. það breytir spennunni frá 12 í 220v. og býr til einhverskonar sínusbylgju. (sem er reyndar kassalaaga, ekki að það skipti neinu máli) Þetta nafn segir ekki nema helminginn af sannleikanum.
.Kv.
Emil Borg
-
AuthorReplies