Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.02.2005 at 13:24 #516488
Sælir allir.
Það er rétt að auðvitað koma ekki allir félagar á fundina á Loftleiðum, og því er ekki nema sjálfsagt að gera grein fyrir stöðunni.
Á janúarfundinum sagði ég að við ættum að fá nýjan vef afhentan um mánaðarmótin jan/feb. Það stóðst, og nú erum við að prófa hann. Hann verður svo settur í loftið innan skamms.
Það hefur verið stofnuð vefnefnd til bráðabyrgða, fram að aðalfundi. Í henni sitja Óskar Erlingsson, Birkir Jónsson (Fastur) og ég sjálfur. Við erum ásamt nokkrum öðrum að prófa vefinn, og erum í nánu samstarfi við Castor strákana sem eru að vinna mjög gott starf fyrir okkur.
Emil
03.02.2005 at 11:49 #515422Sæll Einar.
Þér er alveg óhætt að taka fasta strauminn fyrir útvarpið frá öðrum geyminum. Straumtakan er svo sára lítl að það skiptir engu máli. Þessi straumur er eingöngu til að halda minninu í tækinu gangandi.
Varðandi stærri tæki eins og Inverterinn þinn, þá er allt anað uppi á teningnum. Hann er að taka talsverðan straum, og þá er kolómögulegt að nota annan geyminn. Eins og nafni þinn benti á fá báðir geymarnir alltaf sömu hleðslu, en það er sá sem er með minna rafmangn á sér sem ræður. það þýðir að hinn er alltaf að yfirhlaðast og endist því mun styttra en hann ætti að gera.
Kveðja,
Emil
27.01.2005 at 14:36 #514778Mér þykir dálítið að mér vegið í þessari umræðu. Minnismerki hvað??? Jeppinn minn sem er hreyfður daglega. Eitthvað annað en ?sumir? jeppar ofar á planinu sem virðast hafa staðið í sama stæðinu síðan í haust.
En það líður augljóslega að kvennaferð. Á hverjum morgni heyri ég þegar ég fer útum dyrnar: Emil, farðu varlega með jeppann minn og þvoðu hann áður en þú kemur heim. Og fyrst þú ferð í skúrinn máttu mæla olíuna og bremsuvökvann. Og hvernig er það. Ætlarðu ekki að fara að koma þessum millikæli í bílinn? Þú veist ég þarf að nota hann.
Er ég sá eini sem bý við þetta, eða er svipað uppi á teningnum á fleiri heimilum? Eru þið kynbræður mínir líka úti að bóna?
Kv.
Emil
14.01.2005 at 15:38 #513492Sælir piltar.
Þetta verður auðvitað á nýja vefnum. Og þar erum við komnir langt fram úr ykkur, því myndirnar verða væntanlega 3, valdar af handahófi úr myndaalbúmum.
Emil
04.01.2005 at 10:57 #512368Sælir.
það á að vera allt í lagi með skráningu félaga á netinu.
Ég vil enn og aftur biðja þá sem hafa sent inn skráningu en ekki fengið nein viðbröggð að hafa samband við starfsmann klúbbsins í síma 568-4444 á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 11-14 og þá mun hún kippa mönnum í klúbbinn í hvelli.
Með kveðju,
Emil Borg
08.12.2004 at 11:58 #510472Úps.
þarna varð mér á í messunni. Setti inn mynd af rangri konu. Þetta er hjákonan, en ekki sambýliskonan. Ég ætlaði að halda þessu leyndu fyrir henni, en það tekst varla fyrst ég klúðraði þessu svona.En patrolman. Finnst þér hún ekki bara hugguleg? Engar smá júllur.
Emil
07.12.2004 at 12:03 #510426Sælir.
Ég hef gert við gat á botni olíutanks með Sikaflex. Hreynsaði botninn og smurði yfir. það lak ekki í það rúma ár sem tankurinn var undir. Þegar ég hef smíðað olíutanka hef ég smurt sikaflex yfir allar suður, og andrei fengið leka.
Kv.
Emil
07.12.2004 at 11:05 #510422Sælir piltar
það er rétt að á tímabili var skráningin á netinu ekki að virka, en hún vinnur fínt núna.
Allar skráningar sem hafa borist okkur eru komnar í félagatalið, en þar sem dregist hefur af ýmsum ástæðum að senda út gíróseðla, og okkur láðist að senda öllum nýskráðum tilkynningu, er eðlilegt að menn viti ekki að umsókn þeirra sé komin í kerfið.
En nú eru bjartir tímar framundan. Gíróseðlarnir eru komnir úr prentun, og ættu að berast ykkur öllum á næstu dögum.
Eftir að hafa farið í gegnum listann sé ég að "Draugsi" og "mrbig" eru hvorugur á þeim lista, þannig að ég bið ykkur endilega að skrá ykkur aftur, eða hafa samband við skrifstofuna okkar sem er opin á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 11 og 14, 568-4444.
Bestu kveðjur,
Emil Borg
30.11.2004 at 17:10 #509934Sælir félagar.
Eins og þið hafið kanski tekið eftir er vefurinn nú kominn á annan hýsingaraðila. Þegar flutningurinn átti sér stað var smáræði af efni sem datt út, þ.e. nýjasta spjallið og myndir frá 17.11. Þetta efni er ekki glatað, og verður fært inn seinna í kvöld.
Bestu kveðjur,
Emil
27.11.2004 at 21:24 #509694Sælir.
Það er rétt að þarna varð banaslys. Ekki er enn ljóst hvað gerðist nákvæmlega, annað en það að þarna lét alvanur fjallamaður lífið er hann ók fram af hengju.
Kv,
Emil Borg
26.11.2004 at 14:10 #509520Sæll Hannes.
Þetta er algerlega okkur sem setjum tilkynningarnar inn að kenna. Við reynum að breggðast fyrr við í framtíðinni þannig að fyrirvarinn sé betri.
Kv.
Emil
25.11.2004 at 13:55 #509480Ég kann eina aðferð enn.
Það er að setja yfirþrýsting á forðabúrið. þá þarf ekki annað en að losa loftskúfurnar í dælunum, og bíða þangað til allt loft er horfið. Bara að passa að forðabúrið tæmist ekki.
Ég keypti einhvern tíman sett til að gera þetta. það samanstendur af nokkurm gerðum loka sem passa á flestar gerðir forðabúra, og slöngu sem fer á ventil á dekki. Þetta svínvirkar.
Svo segja einhver fræði sem ég las einhvern tíman, að það skuli alltaf byrja á því hjóli sem er fjærst höfuðdælunni. Sel það ekki mjög dýrt.Kv.
Emil.
23.11.2004 at 08:26 #509336Sæll Þór.
Ég held það hljóti að vera einfaldast fyrir þig að athuga hvort þú færð ekki 12V. mótor á spilið. Ef það er af viðurkenndri gerð er það örugglega hægt. Að breyta 12V. í 24V. fyrir spilið er ekki heppilegt, og kostar örugglega ekki minna en nýtt spil, því það tekur u.þ.b. 150A. sem er gríðarlegur straumur.
Kv.
Emil
19.11.2004 at 12:21 #509052Sæll Birgir.
Þetta er leiðinlegt að lesa. það kom upp vandamál við nýskráningu félaga á netinu sem lýsti sér þannig að skáningarnar bárust okkur í stjórninni ekki, en sá sem skráði sig varð ekki var við nokkur vandamál. Trúlega hefur þín skráning verið ein af þeim.
Ég vil endilega biðja þig að skrá þig aftur, annaðhvort á netinu, eða með því að hringja á skrifstofu klúbbins sem er opin á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 11 og 14.
Greiðsluseðlar verða svo sendir þér sem og öðrum félögum innan fárra daga.
Kveðja,
Emil Borg
18.11.2004 at 11:03 #508930Sælir allir.
Kvaðrat (q) er mælikvarði á gildleika víra. Það er ekki hægt að mæla þetta með skífmáli, því sverleikinn er mismunandi eftir gerð vírsins. T.d. er venjulegur ídráttarvír til notkunar í húsum 1,5q og er stífur einþáttungur. Ef maður skoðar svo 1,5q fjölþættan vír er hann talsvert sverari. Og verður sverari eftir því sem hann er fínþættari.
Í smáspennulögnum eins og í bílum borgar sig alltaf að hafa frekar sverari víra en grennri. Spennufall er meira við lága spennu eins og er í bílum, og það getur valdið t.d. lágum sendistyrk í talstöðvum. Eins er mjög áríðandi að setja öryggi sem næst geyminum, og hafa það alls ekki of stórt. Öryggið má ekki vera stærra en flutningsgeta vírsins, og ekki mikið stærra en tækið þarf. það er t.d. mjög varasamt að hafa spil ekki á öryggjum. Ef bíll með spiltengi lendir í árekstri getur spiltengið skammhelyptst og þar með skammhleypt geyminum sem aftur getur valdið íkveikju eða jafnvel sprengingu. Spil þurfa að hafa ca. 300A. öryggi.
Varðandi lagnir að tækjum er ég ekki alveg sammála því að leggja þurfi báða víra að geymi. Að mínu viti er grindin í jeppunum fyrirtaks leiðari, og hentar fjandi vel til jarðtenginga. Ef orginal raflagnir eru skoðaðar eru jarðtengingar um allan bíl. Reyndar þarf að passa vel að tengingin nái góðu sambandi. það ætti t.d. að vera alger óþarfi að leggja mínus að kösturum frá geymi.
Kveðja,
Emil Borg
15.11.2004 at 11:32 #194850Sælir félagar.
Þar sem töluvert hefur verið rætt og ritað hér um framgang vefsmíðinnar eru nokkur atriði sem ég vil nefna.
Eftir að hafa fengið u.þ.b. 10 tilboð í vefsmíðina tókum við tilboði fyrirtækisins Castor miðlun. Sú ákvörðun var byggð á nokkrum atriðum, t.d. fyrri verkum þeirra, notendaviðmóti vefumsjónarkerfisins sem þeir bjóða, framsetningu tilboðs o.fl. Það sem vóg þó einna þyngst var sú staðreynd að þeir hafa nú þegar smíðað öll þau kerfi sem við þurfum á að halda, þ.e. auglýsinga, spjall og myndaalbúms kerfi, enginn annar sem bauð í verkið hafði gert það. Jafnvel ekki fyrirtæki sem buðu tæplega milljón hærra. Einnig er þetta eina tilboðið sem inniheldur ábyrgð á verkinu.
Þær gagnrýnisraddir hafa verið háværar að starfsmenn Castor séu nýgræðingar í þessum störfum, skólapiltar, hamborgarasteikjarar, blautir bakvið eyrun og algerlega óhæfir í verkið. Ég blæs á þá gagnrýni. Því er ekki að leyna að þeir hafa flestir önnur störf með vefsmíðinni. Eins og bent hefur verið á er t.d. einn þeirra starfsmaður Rúv, og er þar forritari í fullu starfi. Ég sjálfur lít á það sem meðmæli með manninum. Er ekki líklegt að maður sem sér um útsendingarkerfi Rúv sé með eitthvað vit í kollinum? Það tel ég mjög líklegt.
Einnig hefur verið gagnrýnt að verkið taki langan tíma. Í upphafi þessa verks var haldinn fundur með stjórn klúbbsins og vefstjóra. Á þeim fundi kom fram að smíði nýs vefs væri gríðarlega flókin, og tæki líklega uppundir ár að klára verkið, og kostnaður lægi trúlega nærri milljón. M.a. á þeim forsemdum þótti okkur ekki óeðlilegt að taka tilboði sem var með þriggja til sex mánaða verktíma. Ég sjálfur trúi því að við fáum betri vef með því móti heldur en ef skilatími væri t.d. 3 vikur.
Tveir menn hafa sent okkur í stjórn klúbbsins bréf með formlegum athugasemdum við val okkar á vefsmiðum. Það sem stendur upp úr í þeim athugasemdum er sú staðreind að annar þeirra óttast mjög að nýr vefur [HTML_END_DOCUMENT]verði ekki smíðaður í ASP.NET,>/B> en hinn óttast að sama skapi að hann verði smíðaður í ASP.NET. Fyrir mér sannar það að bæði kerfin hafa margt sér til ágætis, en nýji vefurinn er smíðaður í ASP.NET, og XHTML.
Eins og þið hafið tekið eftir er ýmislegt öðru vísi á forsíðu vefsins í dag en áður. Eins og ég hef áður sagt og skrifað er þetta ekki endanlegt útlit. Vefspjall og auglýsingar munu byrtast á forsíðu, en ekki fyrr en nýtt spjallkerfi verður tekið í notkun. Einnig verða fleiri breytingar sem koma í ljós smám saman. Að lokum verður svo tekið í notkun nýtt aðgangsstýrinakerfi.
Varðandi flutning á hýsingunni er eitt sem ég vil nefna. Hana átti að vera löngu búið að flitja. Ástæðan fyrir þeim töfum er sú að hluti gagnagrunnsins sem vefurinn keyrir á finnst ekki. Hver ástæðan er veit ég ekki, og kann ekki að útskíra. Það væri auðvelt að flytja hýsinguna án grunnsins, eða þess hluta hans sem ekki finnst, en við það glötuðust allar þær upplýsingar sem á vefnum eru, og því er það ekki vænlegur kostur.
Að lokum vil ég biðja ykkur að sýna biðlund og þolinmæði. Leifið okkur að klára verkið og gagnrýnið það svo. Gagnrýni er eðlileg og sjálfsögð, en er ekki eðlilegt að geyma hana til verkloka?
02.11.2004 at 19:49 #507686Sælir allir.
Ég vil ítreka það sem kemur fram á forsíðunni að þetta er eingöngu fyrsta breyting af mörgum. Að sjálfsögðu verða spjallþræðirnir hafðir sýnilegir á forsíðunni. Nú eru keyrð saman ný og gömul kerfi, og þau vinna ekki á allan hátt saman.
Gefið okkur smá tíma til að klára þetta verk, en auðvitað eru ábendingar vel þegnar.
kv.
Emil Borg
26.10.2004 at 13:29 #507088Sæll Viðar.
Ég mæli með að þú notir 50q vír í þetta og leggir jörðina alla leið. Ef þú værir á grindarbíl mætti vel nota grindina sem leiðara, en ég mæli með að þú leggir þetta alla leið. Svo þarftu að setja öryggi á þetta.
Sláðu á þráðinn til mín, ég á öryggin.Emil Borg
16.09.2004 at 09:48 #505618Sælir félagar.
Ég hef verið að fylgjast með þessum þræði án þess að blanda mér nokkuð í umræðurnar.
Það hafa komið hér fram fínir punktar og ég ætla aðeins að gera grein fyrir mínum hugsunum varðandi nokkra þeirra. Ég verð nú að viðurkenna að hafa vonast eftir fleiri hugmyndum að efni og uppsetningu en þvi sem er á vefnum í dag.
1)[b:5ag107f5]Vefmyndir í beinni frá félagsfundum. [/b:5ag107f5]Það lýst mér nú ekki á. Þannig vill til að ég vinn við að selja þannig tæki. Þetta er svosem hægt, ef semst við kerfisstjóra fundarstaðarins, en er varla praktískt. Allt sem sagt er á fundinum þyrfti að fara fram gegnum
hlóðnema, og hæpið er að tal myndi skila sér vel.2)[b:5ag107f5]Félagatal á vefnum. [/b:5ag107f5]Það hefur verið rætt um að setja félagatalið á vefinn og hafa það einungis opið félagsmönnum. Um það hefur ekki verið tekin ákvörðun, en ég er sjálfur spenntur fyrir því.
3)[b:5ag107f5]?Nic names?. [/b:5ag107f5]Það er útgangspunktur á nýjum vef að þeir sem taka þátt í spjalli og öðru verði að gefa upp fullt nafn og kennitölu. Þeir geta þó notað ?nick? ef þeir vilja. Ég fyrir mitt leiti er hlyntur þvi að menn geti ráðið hvort fullt nafn þeirra sé rekjanlegt fyrir aðra en vefstjóra. Það er auðvitað rétt að það dettur engum í hug að Bendedikt Magnússon sé hmm, en ef hann vill hafa það þannig, þá hann um það. Mér dettur t.d. í hug að Patrolman væri ekki hrifinn af því að þurfa að hafa sitt rétta nafn aðgengilegt öllum.
4)[b:5ag107f5]Tæknisíður. [/b:5ag107f5]Auðvitað verður hægt að koma upp tæknisíðum. Skárra væri það nú. Trúlega verður aðal málið að fá einhvern til að setja saman efni á þær. Ég get auðvitað skrifað allt um grindarviðgerðir og boddýskipti á Togaogíta sjálfur.
5)[b:5ag107f5]Leitarvél [/b:5ag107f5]verður til staðar. Hversu fullkomin á eftir að koma í ljós. Það má auðvitað leita í gegnum Google, en ég sjálfur get ómögulega munað að til að finna eitthvað á okkar vef þurfi að gera [b:5ag107f5]site:f4x4.is. [/b:5ag107f5]En ég man reyndar aldrei neitt.
6)[b:5ag107f5]Tími á auglýsingum. [/b:5ag107f5]Það verður mögulegt að setja inn myndir með auglýsingum, og myndirnar sjálfar eyðast eftir áhveðinn tíma. Ég sé svosem ekki tilgang í að eyða auglýsingunni sjálfri því hún tekur pínu, pínu lítið pláss. En það má vel athuga það betur.
7)[b:5ag107f5]Spjallþræðir. [/b:5ag107f5]Ég er sammála því að vísun verður að vera til staðar í gamla þræði. Í þeim er gríðarlegur fróðleikur sem ekki má glatast.
8)[b:5ag107f5]Leturgerðir á vefnum.[/b:5ag107f5] Ég er hræddur við að leifa mönnum að ráða letri og litum sjálfir. Hugsið ykkur ef einhverjum ditti í hug að skrifa allt með risavöxnu grænu letri. Ekki spennandi!
Kveðja,
Emil Borg
14.09.2004 at 12:59 #505774Hjá Lögnum og leigu í Borgartúni 33 fást líka Inverterar. Þeir eru 75w og duga fyrir tölvur og flest öll hleðslutæki. Verðið er kr. 5.900.- og græjan lítur [url=http://www.apc.com/resource/include/techspec_index.cfm?base_sku=PNOTEAC75%2DEC:3ehfj83e]svona[/url:3ehfj83e] út.
Emil
-
AuthorReplies