Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.01.2006 at 22:10 #539434
Sæl öll.
Það er kanski ekki úr vegi að seta hér inn reglur um dekkjastærðir í vetrarferðum sem hafa verið í gildi í ferðum klúbbsins í nokkur ár. þær eru:
Bíll undir 1500 kg þarf 35" dekk.
Bíl 1500 – 2200 kg þarf 36" dekk.
Bíll 2200 – 2600 kg þarf 38" dekk.
Bíll yfir 2600 kg þarf 44" dekk.Þetta eru þær dekkjastærðir sem áralöng reynsla sýnir að reynist best við flestar aðstæður. Fararstjórum er heimilt að víkja frá reglunum, en það er þeirra ákvörðun fyrir hverja ferð fyrir sig.
Kv.
Emil Borg
10.01.2006 at 12:34 #538230Sælir allir.
Ég ætla ekki að tjá mig um lögmæti auka stöðuljósa eða þess að keyra með hlífalausa kastara.
En það er alveg skýrt og ljóst að rauð ljós meiga ekki vera framan á bíl. Rauð ljós meiga aldrei vera nema að aftan. Þau tákna eins og þið vitið afturenda á ökutæki, en ekki framenda.Kv.
Emil
29.10.2005 at 16:03 #530206Sko. Þessi aumingja Flugsveit. Hvað þarf marga svona litla jeppa í 1000 hestöfl? Ekki færri en 6stk. sýnist mér. En lítið til okkar Heimsgra. Hvað þurfum við marga jeppa til að ná þessum eftirsóttu 1000 hö? Ekki fleiri en 3stk. Og það jafnvel þó minn sé ekki nema 97 2/3 hestöfl.
En svo er það annað. Það er svo lítið gagn að jeppunum þeirra í Flugsveitinni þessa dagana að fréttst hefur að þeir þurfi að sameinast í einn jeppa til að komast á árshátíðina í kvöld. Er eitthvað til í því?Heimsgar kveðjur,
Emil, forystusauður
07.10.2005 at 13:35 #196414Sælir félagar.
Í gær var mér sögð saga sem ég má til með að deila með ykkur.
Það gerðist í ferð sem farin var um daginn og nokkuð hefur verið fjallað um, að jeppi, illa búinn til snjóaksturs festist. Annar jeppi í ferðinni, nýlegur dýr og vel búinn, tók að sér að draga hann úr festunni. Ekki vildi betur til en svo að það réttist úr króknum á þeim fasta og tógið kom af fullu afli í dráttarbílinn, braut í honum afturrúðu og skemmdi öftustu hurðina töluvert. Auðvitað var öllum brugðið við þetta óhapp, en eigandi fasta bílsins taldi sig eiga góða að í tryggingum og lofaði allri aðstoð. Segir nú ekki meira af ferðinni annað en það að teppi var sett fyrir brotna afturgluggann og ferðin kláruð.
Snemma á mánudagsmorgni eftir ferðina berst eigendum dráttarbílsins tölvupóstur frá þeim fasta. Í honum segir að hann hafi haft samband við sitt tryggingarfélag. Þar hafi honum verið sagt að öll ábyrgð í tilfellum sem þessum sé á hendi þess sem dregur. Því telji hann sig lausan allra mála og að málinu sé lokið af sínu leiti.Þetta þykir mér alveg lygileg saga og myndi ekki trúa nema af þeirri einföldu ástæðu að góðir kunningjar mínir eru tengdir málinu. Hvað fær menn til að haga sér svona? Þiggja aðstoð frá öðrum, verða valdur að tjóni upp á hundruðir þúsunda og víkja sér svo algerlega undan ábyrgð? Eru menn algerlega frosnir í höfðinu?
Ég skrifa þetta til að vekja ykkur til umhugsunar um hvort við þurfum að fara að haga okkur öðruvísi en hingað til þegar að því kemur að draga einhverja sem við ekki þekkjum þeim mun betur. Þurfum við að taka upp sið sem eitthvað var um fyrir nokkrum árum að láta þá sem þurfa drátt undirrita yfirlýsingu þess efnis að þeir séu ábyrgir fyrir þeim skemmdum sem af drættinum gætu hlotist? Auðvitað þarf líka að hugsa um að tjónið gæti verið á hinn veginn. Gömul drusla gæti tekið að sér að draga nýjan, flottan bíl. Stuðurinn gæti flogið af í heilu lagi og lent í framrúðunni á þeim flotta. Hver er þá ábyrgur?
Ég segi nú ekki annað en það að FÓLK ER FÍFL
Emil Borg
#R-33
02.05.2005 at 22:00 #522044Sæll Ragnar.
Þú þarft ekki að eyða auglýsingunni því hún gerir það sjálfkrafa eftir ákveðinn tíma. þess í stað getur þú farið inn í hana, valið að breyta henni og "falið" hana. Þá sést hún ekki þar til hún svo eyðist sjálfkrafa
Kveðja,
Emil Borg
02.05.2005 at 21:57 #195900Sælir félagar.
Það hafa margir ykkar lent í því að hafa eingöngu fengið aðgang að spjallinu, en ekki auglýsingum og myndaalbúminu. Ástæðan er í flestum tilfellum sú að nýskraningin hefur ekki heppnast, eða ekki verið gerð sem skildi. Margir slepptu því að haka við að þeir séu félagsmenn og gáfu því ekki upp félagsnúmer eða kennitölu. Nú hefur verið bætt við þeim valmöguleika í „mínar upplýsingar“ að leiðrétta skráninguna. Einnig er kominn þar möguleiki til að tengja sig við efni af gamla vefnum.
Ég hvet ykkur til að nýta þessa möguleika og fá þar með þau réttindi sem ykkur ber.
Ef það koma upp vandamál við þessar aðgerðir, eins og t.d. að þau skilaboð komi að félagsnúmer og kennitala passi ekki saman, sendið okkur endilega póst á webmaster@f4x4.isMeð kveðju,
Emil Borg
15.04.2005 at 20:42 #521192Af hverju heitir heita vatnið, heita vatnið?
Nú, eitthvað varð það að heta vatniðEmil
13.04.2005 at 15:34 #521076Sælir allir.
Við vorum ekki búin að átta okkur á þessu vandamáli fyrr en nú. Vefsmiðurinn er kominn með þetta til sín og lagar fyrir okkur.
Keðja,
Emil
13.04.2005 at 12:59 #521044Lögin má nálgast á .PDF formi í bókasafninu (eða þeim vísi af því sem nú er í notkun). Bókasafnið er undir Fróðleik
Emil
13.04.2005 at 10:15 #520974Sælir félagar.
Það er ekki nokkur spurning að nýji vefurinn okkar fór ekki jafn vel af stað og ætlast var til. Nokkuð hefur verið um villuboð og svo hrundi auglýsingakerfið um síðustu helgi fyrir alger mistök. Það komu einnig upp nokkur ófyrirséð vandamál. Stærst þeirra eru innskráningarnar, eða réttara sagt nýskráningarnar.
Ótrúlegur fjöldi notenda hefur nýskráð sig án þess að gefa upp félagsnúmer. Það gerist þannig að ekki er hakað við [b:3c06tfy9]ÉG ER FÉLAGSMAÐUR[/b:3c06tfy9] og þá komast menn hjá því að gefa upp félagsnúmer. Okkur óraði ekki fyrir því að innsláttur félagsnúmer gæti verið vandamál, en alls hafa tæplega [b:3c06tfy9]180 manns[/b:3c06tfy9] farið þessa leið. Það veldur því að kerfið álítur að þessir menn séu ekki félagar í klúbbnum og veitir þeim því ekki full réttindi.
Pælingin er sú að einungis félagsmenn hafi rét til að setja inn auglýsingar og myndir, en utanfelagsmenn sem fá hjá okkur sérstakan aðgang geti tekið þátt í spjallinu. Þegar menn nýskrá sig án þess að gefa upp félagsnúmer eru þeir taldir utanfélagsmenn og fá því eingöngu aðgang að spjallinu.
Þetta er mál sem verður leyst. Settur verður inn sá möguleiki að endurtaka skráninguna, eða með öðrum hætti að gera mönnum kleyft að bæta þessum liðum við sem upp á vantar. Það mun einnig leysa þann vanda að fyrri innlegg hafa ekki alltaf fylgt mönnum frá gamla vefnum, en það er einnig afleiðing þess að ekki er hakað í rétta reiti í nýskráningunni. Lausn á þessu ætti að vera komin í gagnið um eða eftir helgina og verður þá tilkynnt sérstaklega.
Nokkrir hafa verið að kvarta hér á spjallinu yfir villuboðum sem koma upp hjá þeim. Ég vil biðja þá sem í því lenda að senda okkur þær villur, því þær koma vefsmiðunum að miklu gagni. Best er að senda vefstjóra póst á netfangið webmaster@f4x4.is en það má finna undir liðnum [b:3c06tfy9]Hafa samband[/b:3c06tfy9]
Með kveðju,
Emil Borg
07.04.2005 at 20:10 #520796Sælir allir.
Þetta er eitt þeirra verkefna sem bíður okkar. Við munum að sjálfsöggðu setja allar þessar upplýsingar og meira til á vefinn á næstu vikum.
Varðandi félagatal á vefnum, þá hefur það komið til umræðu. Við höfum þó ekki viljað fara í það vegna hættu á því að upplýsingarnar verði notaðar til að senda félögum ruslpóst og fleira þess háttar.
Með kveðju,
Emil
06.04.2005 at 19:04 #520628Sælir allir.
Það er fínt að sjá að hér eru að koma fram mjög gagnlegar og góðar ábendingar.
það eiga eftir að verða nokkrar breytingar á myndaalbúminu. Efst munu byrtast þrjár nýjustu myndirnar og framan við hvert albúm mun verða mynd úr því. Einnig hef ég stungið upp á að efst verði stafrófið og þá megi smella á hvern staf til að fara í albúm notenda sem hafa þá upphafsstafi. Þá er hann Helgi snillingur líka að skoða þann möguleika að leitin virki á notendanöfn ásamt öðru.
Kv.
Emil
01.04.2005 at 23:36 #520296Sæll Erlingur.
það er vandlifað í þessum heimi. Eitt þeirra vandamála sem sum okkar þurfa að búa við er að hafa ekki fullkomið vald á stafsetningunni á okkar ástkæra tungumáli. þar sem þú ert sérstaklega að finna að því sem ég skrifaði verð ég bara að svara því til að mér eru takmörk sett í réttritun og sértaklega í "y" reglum, enda bara iðnaðarmaður. En ég treysti því nú að þú sem aðrir skiljið hvað ég meina þó stöku orð séu örítið rangt stafsett. En ég er sammála þér í því að vanda skal málfar og ritun sem mest. En mér vitandi eru ekki til forrit sem hjálpa okkur í réttritun ef sama orðið er til ritað á fleiri en einn máta. Þú þekkir kanski slíkt? Ef svo er væru ábendingar vel þegnar.
Með kveðju,
Emil Borg
16.03.2005 at 09:55 #518552Sælir félagar.
Ætli það sé ekki best að ég reyni að útskýra þetta aðeins.
Þið reynið svo sjálfir að greina "samhengið á milli raunveruleikans og staðhæfinganna".Það má vel vera að vinnulag okkar í stjórninni varðandi þetta þurfi að endurskoðast. það munum við líka gera nú í vikunni.
Það er rétt sem fram hefur komið að greiðsluseðlar voru sendir út seinna en venjulega. Fyrir því eru ýmsar ástæður eins og samningar við Skeljung, útgáfa kortanna sem við notum sem félagsskýrteini og fleira. M.a. þess vegna var Setrið sent til allra félaga í janúar og febrúar, en að öllu jöfnu eru eingöngu þeir sem hafa greitt sem fá þau blöð.
En það kemur mér á óvart að það sé ekki forráðamönnum deildanna ljóst að þær þurfi að senda okkur lista yfir þá félaga sem hafa greitt gjöldin. það er nú ekki eins og þetta sé í fyrsta skipti sem þetta fer fram. Og svo hafa flestar deildir sent okkur þessa lista óumbeðnar.
En hvað um það. Til að leysa þetta mál munum við breggðast við með því að senda Setrið út sem fyrst. Límmiðar verða prentaðir í kvöld, þannig að blaðið fer í póst á morgun eða föstudag.
Kveðja,
Emil Borg
10.03.2005 at 15:10 #518532Sælir félagar.
Þetta á sér þá skýringu að nú er Setrið aðeins sent þeim sem hafa greitt félagsgjaldið. það hafa því miður ekki allar deildir sent inn lista yfir þá félaga sem hafa greitt hjá þeim og því höfum við ekki sent þeim Setrið. Við eigum þó von á að þettá klárist í þessari viku og þá verður Setrið auðvitað sent þeim sem hafa greitt.
Kveðja,
Emil
24.02.2005 at 15:21 #517720Þar klikaði ég. skráði mig inn á röngu nafni.
Þið hafið vonandi ekki tekið þessu illa.Emil
24.02.2005 at 15:08 #517718Þar klikaði ég. skráði mig inn á röngu nafni.
Þið hafið vonandi ekki tekið þessu illa.Emil
24.02.2005 at 15:05 #517716Ussussuss…. Það er greinilegt að þið karlar eru algerlega búnir að missa tökin. Þið eigið alla mína samúð. Þið hljótið að vera illa vaxnir niður eða eitthvað. Þvoið þið kanski upp líka? Þetta hefst upp úr öllu þessu jafnréttisbulli. Það er auðvitað löngu sannað að við karlar erum konum fremri. Þetta hefur mín viðurkennt fyrir löngu og er sátt við það og alveg hætt að nöldra þegar ég bið hana að færa mér öl út í skúr.
Skál,
Tryggvi
24.02.2005 at 14:29 #517714Sælar allar.
Ég hef nú verið svo heppinn að fá að fylgjast "lítillega" með undurbúningi ferðarinnar. það er nú svo komið að ég dauð öfunda ykkur af henni, og væri meira en til í að vera að fara í þessari líka frábæru verðurpá. Í ykkar sporum myndi ég leita vel í bílunum áður en þið farið. Það er aldrei að vita nema það leynist eins og einn karl undi teppi eða í tengdamömmuboxi, sem þá héti reyndar eiginmannabox.
Ferðakveðja,
Emil
11.02.2005 at 13:58 #516492Ég á ekki til aukatekið orð.
Hvernig datt þér í hug Einar að setja link á nýja vefinn hér. Þetta er fyrir fáa útvalda á meðan á vinnuferlinu stendur. Þetta veit ég að þú veist. Hvernig heldurðu að það sé að vinna vefinn með alla félaga okkar skoðandi hann á meðan? Nú þurfum við að fá slóðinni breitt svo það verði vinnufriður.Emil
-
AuthorReplies