Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.11.2006 at 09:28 #568876
Ég verð nú bara að vera sammála Atla sem hóf þennan þráð. það eru allt of margir sem ættu að skammast sín fyrir hvernig þeir haga sér. Auðvitað er flestir vel hugsandi, en hinir eru samt allt of margir.
Ég sé dæmi um þetta á hverjum morgni þegar ég fer að heiman. Í mínu næsta nágreiini er einhver á 38" bíl sem fer að stytta sér leið yfir tún og gangstéttar um leið og snjór fellur. Hann gerir þetta allan veturinn ef snjór er á jörð og eingöngu til að stytta sér ferðina um ca. 200m.
En eins og máltækið segir, fólk er fífl.Emil
14.11.2006 at 15:38 #567968Ég er einn þeirra sem fékk boð um að taka þátt. það var fyrir tilviljun sem ég leit á netfangið sem pósturinn var sendur frá, enda lítur maður ekki alltaf á netföng sendanda, sérstaklega ef maður telur sig þekkja hann.
Hluti kannanarinnar er þannig að hreinskilin svör geta komið sér illa fyrir þá sem svara. Eflaust er hægt að rekja svörin til þáttakenda frá þessari síðu sem þau vistast á.
Mig grunar svosem hverjir standi að þessari hörmung og efast ekki um að þeir muni nota niðutstöðurnar í neikvæðum tilgangi.
Ég legg því til að sett verði frétt á forsíðu vefsins sem vari við þessu, en ekki verði látið nægja að hafa umræðu í lokuðum þræði.Emil Borg
08.11.2006 at 13:09 #566812Ég tek undir með þeim sem segja að þetta hafi verið frábærlega vel heppnuð árshátíð.
Það voru margir flottir, en án efa nokkrir flottastir eins og sést [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=folk/4888:1sj9ng4d][b:1sj9ng4d]hér[/b:1sj9ng4d][/url:1sj9ng4d]Kv.
Emil Borg
Heimsgir hf #313
08.11.2006 at 12:51 #567118Sælir
Eitt af mínum störfum undanfarin ár hefur verið ráðgjöf og sala á eftirlitsmyndavélum, þar með talið vefmyndavélum.
Ég fullyrði að klúbbinn langar ekket til að fara út í það vesen sem er að koma upp vél í Setrinu. það er svo miklu meira mál heldur en að setja upp myndavél og tölvu. T.d. þarf mjög stöðugt rafmagn fyrir bæði tækin og það er ekki til staðar í Setrinu.[HTML_END_DOCUMENT]
En þið spyrjið um vefmyndavélar. Hér eru nokkrar, að vísu flestar í byggð.Akraneshöfn
http://www.tolva.is/template5.asp?pageid=48Eskifjörður
http://fjardabyggd.is/Forsida/Vefmyndav … view.aspx?.Lýsuhólsskóli
http://lysuholsskoli.ismennt.is/nymynd/sudur.htmReyðarfjörður
http://fjardabyggd.is/Forsida/Vefmyndav … view.aspx?.Skíðamiðstöðin Oddsskarði
http://fjardabyggd.is/Forsida/Vefmyndav … view.aspx?.Hlíðarfjall
http://www3.akureyri.is/daglegt-lif/uti … idarfjall/Akureyri
http://www3.akureyri.is/vefmyndavelMenntaskólinn Akureyri
http://www.ma.is/myndavel.htmBolungarvík
http://webcam.is/CMS/bolungarvik/is/index.phpVestmannaeyjabær
http://www.xtreme.is/vestmannaeyjar.is/?p=100&i=567Stykkishólmur
http://www.stykk.is/webcam.htmlSandgerði
http://sandgerdi.is/Vefmyndavel/Siglufjörður
http://157.157.117.55/~sksiglo/sksiglo/page.php?1Og loks er hér síða Sigga storms með tenglum á slatta af vélum.
http://www.vedurehf.is/vefmyndavelar.htm
04.11.2006 at 17:00 #566462Nú eru bara 2 tímar og 15 mínútur…….
Skildi það vera flugeldasýning??
04.11.2006 at 14:10 #566456Ætli það verði kanski hópknús????
Það er ekki gott að segja, en þú villt klárlega ekki missa af því.
Ekki Þú heldur Eyþór vinur minn.
03.11.2006 at 20:17 #198880Stundvíslega kl. 19.15 á morgun, laugardag verður uppákoma fyrir utan Örkina.
Is it a bird?
Is it að plane??
Is it a …….???Þú villt örugglega ekki missa af þessu.
20.10.2006 at 10:52 #563286Uss….
það er ekki nokkur spurning um að ég er lang flottastur þessa dagana. Yfir hverjum öðrum hefur verið kvartað í útvarpinu fyrir að leggja heilu byggðarlögin í eyði með menguðum útblæstri??
Ég bara spyr.Emil
Heimsgir hf #313
21.09.2006 at 17:04 #560940Loksins var mín getið í fjölmiðlum.
Þegar ég var að keyra heim úr vinnunni áðan sá ég þennan líka ljóta durg á eftir mér. Því brá ég á það ráð að skóta út dálitlu huliðsskýi til að fela hann og vermda samborgara mína fyrir þessri sjón. Trúlega hefur hann ekki skilið sneiðina og talið þetta vera sjónmengun.
Þessi huliðsreykur er búnaður sem þarf að vera í hverjum bíl, en ég veit að þið bensínkarlar þekkið ekki notagildi hans. Ég held að þetta sé eitthvað sem Hjálparsveit klúbbsins ætti að skoða ef menn vilja færa út kvíarnar og hjálpa fleirum en félögum sem hafa komist í hann krappann á fjöllum.En Gundur. Það er Heimsgir hf. en ekki Heimskir hf.
Kv.
Emil Borg
02.08.2006 at 08:41 #557236Uss…
Þeir áttu aldrei neinn séns í okkur þessir Flugsveitarmenn. Það er ekki nóg að eiga skellinöðrur, flottar skyrtur og fullt af dóti. Ó nei. Ekki aldeilis.
Emil
Heimsgir hf. #313
Forystusauður
31.07.2006 at 09:39 #557062Sæll Davíð
það er lang líklegast að kolin í alternatornum séu búin. Þau rétt ná sambandi til að hlaða öðru hvoru og sérstaklega við hristing. Það borgar sig að kíkja á þau. En þú skalt líka mæla spennuna sem alternatorinn er að gefa út. (mælir spennuna á geyminum með bílinn í gangi) Það gæti verið að sepnnustillirinn í alternatornum sé farinn fyrst þú ert að fá mikla spanskgrænu.
Kv
Emil
18.07.2006 at 09:34 #556548Sæl og takk fyrir undirtektirnar.
Góður maður bauðst til að draga fyrir okkur dótið þannig að því er reddað.Kv.
Emil
17.07.2006 at 13:46 #556542Sæll Lúther
Ég er búinn að redda drætti fyrir hann.
Emil
17.07.2006 at 12:29 #198259Sæl öll
Er einhver sem getur tekið að sér að draga kerru með tjaldi og fjöðrunarrampinum norður í Víðidal á föstudaginn?
Það eru svo margir með tjöldin hangandi aftan í bílunum að það er leitun að einhverjum sem er „bara“ með bílinn.
Ef einhver hefur tök á að draga þetta norður fyrir okkur má hann hafa samband við mig í tölvupósti á emil.borg@nyherji.is
13.07.2006 at 07:57 #556108Sjá fréttina hér á forsíðunni.
Kv.
Emil
03.07.2006 at 08:14 #554412Jú, það er komin nánari dagskrá.
Á fösudeginum verður ekki skipulöggð dagskrá þar sem fólk verður að mæta á svæðið og koma sér fyrir.
Á laugardeginum verður margt til dægrastyttingar. Bíltúr undir leiðsögn heimamanna, fjöðrunarrampurinn okkar verður á staðnum, hægt er að fara í gönguferðir, hestaleiga er á staðnum (eða mjög nærri), gufa og heitir pottar eru á svæðinu, farið verður í leiki, kvöldvaka verður og ýmislegt fleira.
Athugið að matur verður ekki sameiginlegur og því þarf hver að sjá um sig.Til að skoða frekar hvað svæðið býður upp á má skoða [url=http://notendur.centrum.is/~daeli/:10tp616p][b:10tp616p]heimasíðu[/b:10tp616p][/url:10tp616p] staðarins
Kv.
Emil
13.06.2006 at 08:19 #554408Hæ hó
Það verða nokkur gengi sem sjá um sumarhátíðina í þetta skiptið. Þau eru
Utangarðsmenn,
[url=http://this.is/rotta/:3sjndsk6][b:3sjndsk6]Rottugengið[/b:3sjndsk6][/url:3sjndsk6]
[url=http://heimsgir.org/:3sjndsk6][b:3sjndsk6]Heimsgir hf[/b:3sjndsk6][/url:3sjndsk6]
[b:3sjndsk6][url=http://this.is/rotta/album.php?p=3&bigP&flk=56&imgID=1438:3sjndsk6]Flugsveitin EJS[/url:3sjndsk6][/b:3sjndsk6],
[url=http://gemlingarnir.com/:3sjndsk6][b:3sjndsk6]Gemlingarnir[/b:3sjndsk6][/url:3sjndsk6]
og einhverjir fleiri sem ég man ekki eftir í augnablikinu. Heimamenn í Húnvetningadeild taka auðvitað stóran þátt í þessu öllu saman.
Hátíðin verður haldin á tjaldstæðinu við Dæli í Víðidal helgina 21 – 23 júlí og undirbúningur er í fullum gangi. Dagskrá er að fæðast og verður auðvitað kynnt þegar nær dregur.Kv.
Emil
07.03.2006 at 11:49 #545776það er er örugglega ekki Landcruiser stýrissýstem sem er sýnt á seinni myndinni. Litli krúserinn er með millibilsstöngina fyrir aftan hásinguna. það er fyrirtaks sýstem, en hefur þann galla að þá er drifið með yfirliggjandi pinnjón, en hlutfallið í það er ca. helmingi dýrara en í undirliggjandi.
Mér sýnist vænlegasti kosturinn að nota maskínu úr klafabíl og kaupa arminn hjá Árna BrynjólfsKv.
Emil
02.03.2006 at 07:51 #197453Til þess að það fari örugglega ekki framhjá neinum set ég þetta hér, en ekki bara sem frétt.
Vegna óviðráðanlegra ástæðna frestast fundurinn sem vera átti á mánudaginn kemur, 6. mars um eina viku, eða til mánudagsins 13. mars.
Kveðja,
Stjórnin.
20.02.2006 at 15:05 #543488Sæll Gísli
Þú átt alla mína samúð. Ég þekki af reynslunni að þetta er skelfileg reynsla. það sem öllu máli skiptir er að þið sluppuð heilir, því járnið má alltaf bæta eða skipta út.
Ég vil nota tækifærið til að koma enn einu sinni á framfæri þeirri skoðun minni að veltigrindur skuli vera í hverjum breyttum jeppa. Mér þætti vænt um að þú myndir kaupa smá rörbút fyrir lítilræðið sem ég laggði til í sjóðinn.Kveðja,
Emil og Hjördís
-
AuthorReplies