FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Emil Borg

Emil Borg

Profile picture of Emil Borg
Virkur síðast fyrir 10 years, 5 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 446 total)
← 1 … 4 5 6 … 23 →
  • Author
    Replies
  • 18.07.2007 at 15:04 #593324
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Bjarni Ýktur mætir ásamt fjölskyldu.
    Bjarni Kristinsson mætir líka ásamt sinni ágætu frú Pálínu.

    Emil





    16.07.2007 at 11:06 #593300
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Við hjónaleysin gerum ráð fyrir því að mæta með erfingjann.

    Kv. Emil forystusauður





    29.06.2007 at 13:38 #593042
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Agnar

    Ég trúi því ekki að þú ætlir að láta gera þetta fyrir þig. Maður eins og þú ert ca. hálftíma að gera þetta sjálfur. Svo ertu í húsnæði með ca. 3. rafmenntuðum mönnum sem gætu allavega leiðbeint þér við verkið.

    Emil





    27.06.2007 at 09:53 #592952
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Já, þetta hef ég heyrt um áður.
    Ég þekki allavega 2 með svona bíla og sömu lýsingar. Þetta er ónýtt mælaborð. Allavega annar þeirra sem ég þekki fengu því skipt út í ábyrgð.

    Kv. Emil





    25.05.2007 at 09:39 #591262
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Haukur

    Getur nokkuð verið að þetta stafi af dekkjunum? Ertu nokkuð að keyra á grófum eða slitnum dekkjum? Ef ekki, er öruggt að einhver lega er farin. Þú verður að finna hana sem fyrst til að fyrribyggja frekari skemmdir. Ertu búinn að prófa hvort það sé nokkuð slag í pinnjóninum að aftan? Eða hvort þú sért mögulega alltaf að keyra í framdrifinu?
    Ég er sjálfur á svona bíl og hef sjaldan keyrt hljóðlátari jeppa. það er því öruggt að það er eitthvað að hjá þér sem þú þarft að finna út úr sem fyrst áður en eitthvað stórt skemmist.

    kv.
    Emil Borg





    11.05.2007 at 18:01 #564024
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Ég átti í mörg ár þennan hérna.

    [img:ae30rju2]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/402/2196.jpg[/img:ae30rju2]

    við gengum í gegnum súrt og sætt í mörg ár og mig langaði alltaf til að gera hann svona

    [img:ae30rju2]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/402/2197.jpg[/img:ae30rju2]

    Hann var með 351W, 31. rillu afturhásingu, lengdur á milli hjóla um ca. 40cm. (boddýið var óhreift) og ýmsu öðru. Hann er enn í gangi en er með Explorer boddý í dag.
    það kemur enn fyrir að ég sakni hans, en bara stundum. Og alls ekki þegar ég kaupi dísel olíu og varahluti í Toyeroinn minn, en það er jú örlítið ódýrara.

    Emil Borg





    25.04.2007 at 18:02 #589392
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Haffi

    Ég ráðlegg þér að byrja á því að setja mottu innan í húddið hjá þér. Þær koma orginal í fullt af bílum þannig að það ætti að vera auðvelt að finna svoleiðis mottu. þær gera gríðarlega mikið gagn og örugglega meira gagn til að útiloka vélarhljóð en mottur á öðrum stöðum.

    Kv.
    Emil





    13.04.2007 at 15:31 #587128
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Nei, Bjarni. Það var ekki alveg þannig. Mér sýnist mín komast inn í pústhlutann af þinni.

    Emil





    13.04.2007 at 15:31 #587126
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Mér sýnist mín túrbína vera eins og
    [url=http://http://cgi.ebay.com/ebaymotors/T3-T4-T04E-TURBO-Honda-With-Internal-Wastegate-60-T_W0QQcmdZViewItemQQcategoryZ33742QQihZ020QQitemZ300099329475QQrdZ1:273v7zi1][b:273v7zi1]þessi[/b:273v7zi1][/url:273v7zi1]
    Emil





    13.04.2007 at 15:24 #587122
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Æ, Bazzi. ekki spurja svona erfiðra spurninga.
    Ég var búinn að sjá að það væri rosalega flott að hafa túrbínu sem er T3/T4. Þ.e. stærri þjöppumegin en pústmegin. Þetta eru einhverjar stærðir frá Garret ef ég man rétt. Mér sýnist eftir lestur á netinu að þessi stærð túrbínu sé mikið notuð á vélar af þessari stær. Mér leyst bara vel á þessa og hún kostaði mjööög lítið, þannig að mér fannst í lagi að prófa hvort þetta virkaði. það virðist virka bara vel, en ég er bara búinn að prófa mjög lítið.
    Lenti strax í vandræðum með olíuflæðið að og frá túrbínunni, var með of mikið flæði að og of lítið frá. Það orsakaði leka út í pústið sem myndaði rosalegan hvítan reyk sem lagði heilu hverfin í eyði. það var meira að segja kvartað yfir mér á Bylgjunni. Þetta á að vera komið í lag núna en ég er ekki að keyra bílinn og mun ekki gera það alveg á næstunni.

    emil





    13.04.2007 at 15:04 #587118
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Herra Rúnar, Þessi túrbína er af gerðinni "Noname" og er keypt fyrir ótrúlega fáar krónur á ebay.
    það er rétt að slangan framan í síjunni er öndunin og mér þykir sjálfum sían allt of opin. Þetta var bara lang auðveldast þegar ég var að setja þetta saman. Ég stefni að því að setja hana í hús við tækifæri og langar í rauninni í snorkel. Kanski kemur það seinna.

    Þegar ég setti þessa túrbínu á vélina fór fremsti hluti pústins úr rosalega þröngu gati (ca. 2") og í 3 eða 3,5". Ég bara man ekki hvort það var. Ég er því með fremsta hluta pústsins mjög sveran.

    Herra Bazzi, ha, ha, ha. Þær eru ekki einu sinni líkar…… Ég var með CT20 sem var orðin svo hrikalega slitin að hún blés aldrei meira en 8 psi. jafnvel þó ég lokaði alveg fyrir allar stýringar.

    Emil





    13.04.2007 at 08:54 #587110
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Brynjar

    það eru komnar nokkrar myndir í albúmið mitt sem þú getur kíkt á.

    Emil





    11.04.2007 at 11:42 #587108
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Brynjar

    Villtu ekki kíkja á þetta hjá mér? Er það ekki einfaldast? Ég verð í skúrnum annakvöld, fimmtudagskvöld. Hringdu í mig í 898-8506 ef þú villt kíkja.

    Emil





    11.04.2007 at 11:22 #587104
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir

    Mér þykir þessi skinnu/teina aðferð allt of flókin. Það er mikið einfaldara að fara út í Landvélar og kaupa sér nálaloka og setja hann á slönguna sem stjórnar afgaslokanum. Þetta er aðgerð upp á ca. 1.000.- kr. og er algerlega stillanleg. Virkar eins og lokinn sem ElliOfur bendir á.
    Ísetningin tekur ca. 10 mín. og er alger snilld. Við höfum gert þetta svona félagarnir og reynst vel. Ég sjálfur er að nota boost mæli frá Landvélum (er reyndar ekki hugsaður sem slíkur og ekki sérlega skemmtilegur mælir). Ég á því miður engar myndir af þessu hjá mér, en þetta er afskaplega einfallt í framkvæmd.

    Ég sjálfur hef lengst af verið með gamla mikið slitna 2LT vél og blásið inn á hana 12 Psi. Nú er ég með 2L og blæs ca. 8 psi á hana.

    Kv. Emil





    04.04.2007 at 14:46 #587180
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir allir

    Í fyrra var ákveðið að Setrið kæmi ekki lengur út mánaðarlega, heldur á 4. mánaða fresti. Ástæðan var mikið tap á blaðinu þar sem gríðarlega erfitt hefur verið að selja í það auglýsingar og að fá efni í blaðið. Ennig hefur minna gildi sem upplýsingamiðill en það hafði í denn. Vefsíðan hefur nú að mestu tekið við því hlutverki.

    Þessi breyting var vel kynnt hér á vefnum og á fundum, auk þess sem hún var rædd á landsfundi.

    kv.
    Emil Borg





    04.04.2007 at 14:41 #587210
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir

    Nú verð ég að vera sammála Degi. Ég var að enda við að horfa á þáttinn og verð að viðurkenna að mér fanns Palli komast illa frá þessu. Auðvitað er ekki auðvelt að koma fram í beinni útsendingu í sjónvarpi og augljóst að Runólfur er langtum vanari því.
    En eftir að hafa horft á þáttinn virðist mér að bílarnir okkar flestra séu hættulegir og slæmir í akstri. Eftirlitið sé sama sem ekkert og reglurnar ekki til staðar. Það kom aldrei fram að við höfum strangar reglur til að fara eftir sem mikil vinna hefur farið í að móta á undanförnum árum. Það vantaði ansi mikið upp á að okkar sjónarmið kæmist vel að. Ég geri ráð fyrir því að stress hafi haft mikið að segja, því ég veit vel að Palli veit meira og betur.

    Emil





    04.04.2007 at 14:18 #200069
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir félagar.

    Ég er að velta því fyrir mér að setja diskabremsur að aftan í Hiluxinn minn. Hér áður fyrr voru alltaf notaðar dælur úr Subaru, en nú eru þær ill fáanlegar.
    Ég er því að vellta fyrir mér hvort einhver viti um aðrar dælur sem eru með handbremsu í dælunni. Ég vil síður setja diska með handbremsunni í borðum og vil helst ekki setja handbremsuna á drifskaftið.
    Hefur einhver hugmydir???

    Kv.
    Emil





    31.03.2007 at 12:24 #586632
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir

    Ef vandamálið er það að startarinn snúist lítið þegar vélin er heit er þetta ekki vandamál með snerturnar í startpungnum. Nánast öruggt er að fóðringarnar í endum startarans séu slitnar. Við það fer ankerið (það sem snýst inni í startaranum) að nuddast við sátrið (ytri hlutann). Það er mjög einfalt að laga þetta með því að skipta um fóðringar. Ég myndi í leiðinni skipta um snerturnar, en það er ekki nokkuð mál. Það er alger óþarfi að fara með startarann á verkstæði fyrir þessa viðgerð ef menn geta gert einföldustu viðgerðir.

    Kv.
    Emil





    29.12.2006 at 12:08 #572744
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Nei, það er eingöngu Árni sem smíðar arma í Hiluxinn. En er það ekki alveg nóg? Þetta er listasmíð hjá karlinum.

    Emil





    22.11.2006 at 14:08 #569062
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir allir

    Ég staldraði við það sem Þorvarður Ingi skrifaði, þ.e. að "tengja ólöglega". Eitt aðal markmið klúbbsins okkar er að fá skynsamleg lög fyrir okkur að starfa eftir og að fá félagsmenn sem og aðra til að fara eftir þeim. það hlýtur að vera okkur öllum í hag að svo sé. Ég veit ekki betur en það séu mjög skynsamlegar reglur í gangi varðandi tengingar á aukaljósum. Grunnurinn er sá að stöðuljós verða alltaf að loga til að hægt sé að kveikja á aukaljósum. Það er auðvitað mjög eðlilegt, svo ekki sé hægt að vera með fullt af ljósum að framan, en engin kveikt að aftan.
    Ég hvet ykkur til að kynna ykkur reglurnar sem eru í gildi, en þær má t.d. finna á [url=http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/0/5690ea9f117f81b000256d1d004903cf?OpenDocument:1270k8g1][b:1270k8g1]þessari slóð[/b:1270k8g1][/url:1270k8g1] . Kaflinn um ljósker er nr. 07.01

    Kveðja,
    Emil Borg





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 446 total)
← 1 … 4 5 6 … 23 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.