FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Emil Borg

Emil Borg

Profile picture of Emil Borg
Virkur síðast fyrir 10 years, 6 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 241 through 260 (of 446 total)
← 1 … 12 13 14 … 23 →
  • Author
    Replies
  • 02.12.2003 at 10:38 #481822
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Ja, það er gott að sjá að mönnum hefur ekki leiðst um síðustu helgi, þó hún hafi verið löng.

    En Georg.
    Getur verið að það segi eitthvað um akstursstílinn þegar kóarinn vill fara að keyra sjálfur? Ég bara spyr????

    Emil





    12.11.2003 at 10:36 #480306
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll.

    Ef þú ert með Bronco ’66 og orginal hásingar, þá ertu með 9" að aftan, og dana 30 að framan.

    9" er til með tveimur misstórum legum, og þú ert örugglega með minni legurnar sem eru veiki punkturinn í hásingunni. Þú þarft að hugsa vel um þær. Öxlarnir eru 28 rillu, og geta brotnað, sérstaklega ef þeir hafa særst við að skipta um legu.

    Dana 30 framhásingin er ekki mög sterk. Það er ekki mikið vandamál að brjóta hana, og þú ert mikið betur settur með dana 44 sem passar beint í. Á hana má svo setja diskabremsur í stað skálabremsanna sem eru orginal. þá ferðu loksins að geta treyst því að geta stoppað þegar þú vilt.

    Kv.
    Emil Borg





    09.11.2003 at 22:26 #479956
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir strákar.

    Ég er aldeilis yfir mig hissa á hvernig þessi þráður hefur þróast. Það sem byrjaði sem málefnaleg umræða hefur þróast í skítkast og vitleysu.

    Mér sýnist sumir enn vera á þeim buxunum að það séu tóm leiðindi að vilja ekki taka lítið breytta bíla með í vetrarferðir. það er augljóst að þeir sem þannig skrifa og hugsa hafa ekki komið upp á hálendið að vetri til. Og í endan á nóvember er kominn vetur til fjalla. Eins og þið auðvitað vitið er allra veðra von á okkar fagra landi. Það getur skollið á glórulaus stórhríð fyrirvaralaust, og snjað getur gríðarlega á stuttum tíma. Við þær aðstæður er ekki nóg að vera á jeppa sem eins og "Klakinn" orðar það, "ætti að geta farið ansi langt". Það er hreinlega alls ekki nóg. Það þarf að vera á bíl sem kemst alla leið. Og það hefur reynslan sýnt að bílar á stórum dekkjum gera.

    Ég gleymi trúlega aldrei ferð sem ég fór ásamt mörgum öðrum í október fyrir mörgum árum. Tilgangur ferðarinnar var að fara með dýnur í Setrið. Til stóð að koma heim á sunnudagskvöld, en þegar lagt var af stað heim skall á snælduvitlaust veður, sem var svo slæmt að við urðum að stoppa þar sem við vorum, og komumst ekki útúr bílunum í 16 tíma. Þegar veðrinu slotaði var auðvitað allt á kafi í snjó, og erfitt færi. Við komum í bæinn á þriðjudagsmorgunn, ef ég man rétt. Það var mikil mildi að allir í hópnum voru vel búnir og drifu vel.
    Þetta er auðvitað ýkt dæmi, en þetta getur alltaf gerst.

    Ég bauð mig í gær fram til aðstoðar við dag fyrir lítði breytta bíla, og það stendur enn. Mín hugmynd er að það það verði með stuttum fyrirvara hóað saman í leikferð, t.d. upp að Langjökli, eða á annað svæði ekki of langt frá bænum. Þar mætti prófa bíla og menn, og þá kæmi í ljós hvers bílarnir eru megnugir. En takið eftir einu. Ég sagði "til aðstoðar" en ekki að ég ætlaði að sjá um dæmið. það er í raun svosem ekkert að sjá um. Það þarf ekki annað en að einhver, t.d. Jóhannes vinur okkar, setji þráð á netið, og þeir mæti sem geta. Það er ekki ólíklegt að ég og jafnvel mínir félagara gætum eitthvað lært af þessu, og allavega deilt vitneskju okkar með öðrum. Og ekki yrði ég hissa ef að viss "dama" mætti á svæðið og miðlaði af visku sinni og fegurð.

    Ég var að kíkja yfir þráðinn og las það sem Kjartan var að skrifa. Ekki gæti ég verið meira sammála. Sjálfur kynntist ég klúbbnum fyrir tilviljun í vinnuferð. Og 15 árum seinna get ég fullyrt að ég hef ekki kynnst skemmtilegra fólki, og stundað meira gefandi félagsstarf en í þessum klúbb. Þó hef ég verið jeppalaus ca. helming tímans síðan þá.
    Auðvitað hafa ekki allir sömu skoðun á öllum hlutum, en skárra væri það nú.

    Jæja, það nennir enginn að lesa þetta ef ég skrifa meira.

    Bestu kveðjur,
    Emil Borg





    08.11.2003 at 21:27 #479892
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir strákar.

    Það er alltaf að koma upp öðru hverju þessi umræða um því við gerum ekkert fyrir bíla á 30" – 33" dekkjum, og þá sérstaklega á veturna.

    Það er alls ekki mannvonnska, mannfyrirlitning eða stórmennskustælar af okkur að vilja ekki taka bíla á "pínu litlum dekkjum" í vetrarferðir. Staðreyndin er einfaldlega sú að til að ferðast á snjó þarf flot, og það einfaldlega næst ekki nema með stærri dekkjum. Þetta segir sig sjálft, er það ekki? Þegar lofti er hleypt úr dekki sem er 31" hátt, verður ekki stór flötur sem snertir jörðina. Ef dekkið aftur á móti er 38" hátt, og á jafn hárri felgu sem er u.þ.b. helmingi breiðari, verður snertiflötur dekksins margfalt meiri, og það er jú það sem við þörfnumst til að geta ekið á jafn mjúku undirlagi og snjórinn er.
    Það geta komið þeir dagar að færi sé svo hart að ekki þurfi stærri dekk en þetta, en það er ekki algengt.

    Hugmyndin um að hafa dag fyrir ykkur á litlu dekkjunum er mjög góð, og ég býð mig fram sem aðstoðarmann við hana þegar vorar og veðurspá er góð.

    Með fjallakveðju,
    Emil Borg á 38" dekkjum





    05.11.2003 at 15:38 #479714
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Af hvaða plánetu komið þið? Að halda því fram að gamall riðgaður Hilux sé ekki flottur. Ég á ekki til orð.
    Og mér finnst þessi Jeep alls ekki ljótur. Verður örugglega flottur á 38".
    Segir þetta kanski meira um mig en ykkur?

    Emil





    31.10.2003 at 16:48 #479382
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Vals.

    Þetta er merkilegt að heyra, og virðist vera fyrirtaks mælar.
    Ertu til í að deyla með okkur hvað þú borgaðir fyrir dýrðina?

    Emil





    30.10.2003 at 15:48 #479280
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir allir.

    það er rétt að ég og félagi Eyþór Guðnason munum sjá um Setursferðina.

    Um ferðatilhögun er það að segja, að við ætlum að láta líða ca. 2 vikur áður en við ákveðum hana, því við lifum í voninni um að það snjói á þeim tíma.

    Áhugasamir endilega sendið mér tölvupóst á emil.borg@isl.is
    (Gott væri að fá uppl. um bíltegund og dekkjastærð)
    Einnig munum við reyna að vera til viðtals á fimmtudagskvöldum í Mörkinni.

    Emil Borg





    29.10.2003 at 13:54 #479336
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    það er hægt að importa kortin beint. Ég man ekki aðferðina, en hún á að vera augljós. Þetta er akkúrat ekkert mál.

    Emil





    24.10.2003 at 11:50 #479006
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir allir.

    Ég er nú ekki frá því að þessi umræða um "litlu" dekkin eigi fyllilega rétt á sér. Trúlega er alltof algeng afstaða að ekki sé hægt að ferðast á minni dekkjum en 38".

    Það er auðvitað hægt að komast mjög langt á minni dekkjum, og stundum alla leið, en eins og margoft hefur komið fram, gengur það ekki alltaf. Mér sýnist málið vera í þessu eins og öðru, að velja sér ferðafélaga á svipuðu róli og maður er sjálfur. Auðvitað er ekki spennandi fyrir hóp bíla á 44" dekkjum, með 300hp. að dröslast með 33" dísel patrol. Það mundi heldur betur draga úr ferðahraðanum. En hópur af 33" og 35" bílum velur sér færð og leiðir við hæfi.

    Það getur líka verið að við séum alltof fastir í að hugsa um vetrarferðir. Á sumrin kemst 33" bíll trúlega allt, og það er fullt af fólki sem ekki vill ferðast á veturna. Það eru auðvitað nokkrar ferðir á vegum klúbbsins á hverju sumri, t.d. vinnuferðir sem eru kanski ekki spennandi sem jeppaferð, en þvi betri til að kynnast félögum, stikuferð, o.f. En kanski þarf klúbburinn að standa fyrir fleiri hreinræktuðum jeppaferðum að sumri til.

    Varðandi þáttöku í félaginu, er það mín skoðun að það sé ekki spurning að það borgi sig fyrir okkur, hvort sem við erum á 33" eða 44" dekkjum. Ekki aðeins fjárhagslega, heldur kemur styrkur þess og stærð sér vel fyrir okkur alla og starfi klúbbsins br án efa að þakka því að við yfir höfuð meigum í dag aka um á breyttum jeppum.

    Emil Borg





    24.10.2003 at 09:05 #478970
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir allir.

    Getur verið strákar að þið hafið ekki lesið hvað Pétur (Wrongler) skrifaði???

    Hann segist vera í grundvallaratriðum ánægður með bílinn, og ekki ætla að smíða jöklabíl.

    Þið megið heldur ekki gleyma því að það er engin skilda að allir jeppar séu á 38" dekkjum. Menn meiga jú hafa þetta eins og þeir vilja.

    Því sýnist mér Pétur, að það sem þig vanti sé mýkri fjöðrun. þá eru gormarnir auðvitað mjög góður kostur. Og einnig góðir demparar. Ef þú ert til í talsverðar breytingar, þá væri örugglega vænlegur kostur að færa afturhásinguna aðeins aftur. Við það fengirðu betri aksturseiginleika.

    Svo eru það drifin.
    Mér lýst vel á loftlæsinguna að framan, en er ekki eins hrifinn af Nospin að aftan. Ég hef átt 2 bíla með þeim gæðabúnaði að aftan. Annar var Bronco, og hinn Toyota. Broncoinn var mun styttri á milli hjóla, og hann var mjög leiðinlegur í hálku. Hafði þá leiðinlegu áráttu að vilja skjóta afturendanum útundan sér, og vildi helst alltaf keyra beint áfram. Toyotan en miklu skárri með það að gera. Reglulega koma svo smellir úr læsingunni þannig að maður heldur að hjólin séu að detta undan.
    Ekki skilja það svo að ég sé á móti Nospin. Alls ekki. Þetta er nokkuð ódýr læsing, og klikkar aldrei. Hún hefur bara nokkra ókosti, og sérstaklega í stuttum bílum sem eru notaðir daglega á malbikinu.
    Mín niðurstaða er því, ef þú getur, settu þá ARB í báðar hásingar.

    Og diskabremsurnar.
    Menn hafa notað bremsudiska úr Lada Sport, og dælur úr Subaru. Það mun vera lang ódýrasti kosturinn, og hefur virkað mjög vel.

    Emil Borg





    23.10.2003 at 12:58 #478442
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Strákar,

    vitið þið til þess að svona rampur sé til hér á klakanum?
    Það væri nú gaman að prófa.

    Emil





    22.10.2003 at 16:53 #478334
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    …. sástu nú í gegnum mig.

    Emil





    22.10.2003 at 12:50 #478372
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Úbbs..

    Ég ætlaði að gera link á þetta:

    http://www.geocities.com/MotorCity/Pit/ … gines.html

    Emil.





    22.10.2003 at 12:49 #478370
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    [HTML_END_DOCUMENT][url=] eru upplýsingar um vélar frá Toyota

    Emil[/url]





    22.10.2003 at 11:26 #478326
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Hjörtur.

    Mér finnst þetta ekki spurning. Eins og þú segir sjálfur er bíllinn stór og þungur. Því þarf hann stór dekk. Ég man allar þessar mótbárur fyrir 44" dekkjunum á sínum tíma. Það átti enginn bíll að þola þau. þú veist nú sjálfur af reynslunni hvernig það er.

    Ég er ekki í vafa um að þessi 49" dekk virka undir stórum bíl. Það eru trúlega vandamál sem þarf að yfirstíga, eins og t.d. að passa að trukkurinn verði ekki of breiður. (max 250cm)Dekkin eru örugglega með þykkar og stífar hliðar, en það verður örugglega ekki vandamál með 3t+ ofan á þeim. Og felgustærðin, ekki hef ég áhyggjur af því. Ég efast ekki um að þessi öflugi bíll, með öflugum hásingum þoli dekkin.

    Að mínu áliti er þetta bara spurning um hvort þú sért tilbúinn til að vera fyrstur til að prófa. það getur verið erfitt, en einhver þarf að byrja. Ef dekkin eru ekki að virka eins og þú villt, má alltaf fara niður í "litlu" 44" dekkin.
    Og vertu viss um að flestir þeir sem eru neikvæðir í garð þessara dekkja eru menn sem eru í dag á "hrikalegum" 44" bílum, og óttast að þinn verði miklu flottari.

    Emil Borg





    21.10.2003 at 14:36 #477048
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Ég þekki þessa bíla ekki nema af góðu. Góðir í umgengni, eyða skaplega og fara vel með farþega.

    En það virðist vera algengt að tölvurnar í þeim bili. Ef leitað er á netinu virðist það ekki vera spurning hvort, heldur hvenær tölvan bilar. Hún kostar kr. 120.000.- í Heklu, en tæplega kr. 50.000.- hjá vöku.

    Emil





    16.10.2003 at 13:20 #478130
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Nýliðaferð á Hofsjökul…
    Já, einmitt. Ertu þá að hugsa um "Survival of the fittest"
    Þeir sem komast uppúr sprungunum eru hæfir í ferðir. Er það málið?

    Ég held að einmitt orðið "Nýliðaferð" feli það í sér að farin sé ferð sem er ekki mjög erfið. Maður byrjar jú að hjóla með hjálpardekkjum, en ekki á einhjóli.
    Er ekki tilgangur þessara ferða að á hættulausan og nokkuð auðveldan hátt verði byrjendum kennd grunnatriði í ferðamennsku, eins og hvernig ber að hleypa úr lofti, draga fastan bíl og þessháttar, en ekki að æða með þá á sprungusvæði, eða á staði þar sem ferðamennskan krefst kunnáttu og reynslu?
    Eða er það bara ég sem hef skilið þetta svona? Ég er auðvitað mjög Heimsgur.

    Emil Borg
    Heimsgur #313





    15.10.2003 at 10:10 #478074
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Ef einhvern vantar, þá er ég afbraggðs hárgeiðslumaður. T.d. raka ég skallann á sjálfum mér reglulega.
    Svo á ég gamal koppafeiti úr driflokum sem má bera í hár þeirra sem það hafa, og greiða í allar áttir. Ég hef frétt að í driflokufeiti séu efni sem örva kynkvöt kvenna. Verst ég hef ekki hár til að prufa það sjálfur.

    Emil.





    15.10.2003 at 10:04 #478080
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    KREML

    Ég þakka traustið sem þú berð til okkar í rafvirkjastétt.

    tbergland,
    þú þarft að finna hvort straumurinn kemst að mótornum eða ekki. Það geturðu mælt í tenginu sem fer inná hann. Ef þú átt ekki mæli geturðu notað 12v. peru með tveimur vírum. Inn á mótorinnn er alltaf fastur straumur. það er til að hann fari til baka eftir að þú slekkur á þurkunum. Ef þú færð ekki straum inná hann, er eitthvað að lögninni. Ef öryggið er í lagi, þarftu að reyna að finna vírana sem liggja frá rofanum og í þurkumótorinn. Oft er nauðsynlegt að hafa teikningar til þess, en stundum er hægt að rekja sig eftir vírunum.
    En byrjaðu á að athuga öryggið, og um leið hvort það geti verið sambandsleysi í tengingunum við það.

    Emil





    13.10.2003 at 22:56 #477380
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Bjarni.

    Stór dekk, stórir kubbar….





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 241 through 260 (of 446 total)
← 1 … 12 13 14 … 23 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.