Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.05.2004 at 21:17 #502430
Sælir
Ég er með í minni Toyotu afgashitamæli framan við túrbínu. Boraði fyrir skynjaranum í fótinn á túrbínunni uppvið pústgrein. það virðist vera að koma vel út. Einnig setti ég mér til skemmtunar skynjara í soggrein vélarinnar. Er svo með skiptirofa til að skipta á milli skynjara.
Mér hefur verið sagt af fróðum mönnum að varast skuli að hitinn fari mikið yfir 700 gráður nema í stuttan tíma. Ég verð þó að viðurkenna að hafa séð 900 gráður hjá mér, og er ósáttur við það. Þarf greinilega að fara í smá aðgerðir til að laga þetta.
Það getur verið óframkvæmanlegt að koma skynjaranum fyrir nema aftan við túrbínuna, en hitinn mun geta lækkað um allt að 200 gráður við að fara í gegnum hana. Einnig eru allar sveiflur hægari þarna fyrir aftan.
Emil
14.05.2004 at 22:39 #502207Sælir piltar.
Ég er með púða undir mínum að aftan og er afskaplega ánægður með þá. Þegar ég fékk bílinn var annar púðinn ekki alveg rétt stilltur af þannig að dekkið nagaði gat á hann. það er allt viðhaldið sem kerfið hefur þurft. Aldrei hef ég lent í neinu veseni með nippla eða slöngur.
Stýribúnaðurinn verður fljótlega kominn inn í bíl, en eins og er felst hann í tveimur ventlum frami í húddi. það virkar bara ágætlega.Ég hef tekið eftir því að bíllin getur verið svagur. það er miklu meira áberandi ef lítið loft er í púðunum. Þeir einfaldlega virka best í ákveðinni lengd. Af þeirri ástæðu er ég akkúrat núna að lækka hann að aftan til að geta haft meira í púðum.
Kv.
Emil
13.05.2004 at 14:00 #501988Strákar,
sýnið nú aldur og þroska og notið annan vettvang en þennan ef þið þurfið að rífast. þetta er ekki rétti vettvangurinn. þið getið t.d. hitst í Mörkinni í kvöld og útkljáð málin.Emil
29.04.2004 at 22:37 #500457Sælir.
Það er nú ekki hægt annað en að svara þess, þó ég sé ekki tengdur R Sigmundsson á neinn hátt.
Líklega hefur þú verið svo óheppinn að lenda á starfsmanni sem var ekki fullnuma í Garmin fræðum. Hefur kanski verið nýr, eða að leysa af. Ég tek undir það að þaðan á maður ekki að venjast öðru en topp þónustu. Þó er gagnrýni þín á verðið trúlega réttlætanleg. Ef samið er um verð, skal það standa. Ég tel einnig líklegt að þín vankunnátta hafi orsakað það að þú sást ekki strax að þín snúra var tölvutengjanleg. það er nefnilega skýr tengimynd í öllum Garmin handbókum, allavega þeim sem ég hef séð.Þetta að fjargviðrast yfir því að fá vöruna senda í póstkröfu ber vott um algeran þekkingarskort. Dettur þér virkilega í hug að fyrirtækið stofni hvern sem er í reikningsviðskipti bara af því hann býr úti á landi? það mundi ekki gerast í því fyrirtæki sem ég vinn hjá. Venjan er að viðskiptavinur þurfi að sýna einhver viðskipti áður en hann fær lánað. Ef þú vilt hafa annan hátt á greiðslunni ber þér að taka það fram. Megnið af öllum smáhlutum er sent í póstkröfu þó auðvitað hafi það aukinn kostnað í för með sér.
Ég mæli líka með því að næst þegar þú þarft að kvarta yfir þjónustu fyrirtækis leitir þú til þess beint, og athugir hvort ekki liggi eðlilegar ástæður að baki, en notir ekki þessa leið. Þetta er ekki sanngjarnt.
Emil Borg
Reykjavík
29.04.2004 at 17:19 #500609Sælir allir.
Það hefur margt og mikið verið ritað um þessi mál undanfarna daga. Það er kanski að bera í bakkafullan lækinn að bæta við það, en ég ætla samt að skrifa smá.
Ég er sammála Palla að flestu leiti, en vil bæta svolitlu við. Það er ekki rétt að mínu mati að við þurfum aðeins að hafa tvennt í friði. Að fá að breyta jeppum, og fá að ferðast á þeim. Það mikilvægasta að mínu mati er að við þurfum líka að fá að aka á þeim, og þá meina ég ekki bara á fjöllum. Kanski hef ég þó túlkað orð Palla of þröngt.
Margir hafa skrifað mikið um það sem að mínu viti er staðreynd, og það er að breyttir jeppar séu öruggir í umferðinni. Við vitum þetta allir (eða allavega flestir), en það er bara ekki nóg. Orion skýrslan er jú þungt lóð á okkar vogarskál, en mér er til efs að almennur borgari hafi lesið hana. Það er líka staðreynd sem hefur komið hér fram, og skekkir hugsanlega notkunargildi skýrslunnar, og það er það að flestir sem aka breyttum jeppum þekkja þá út og inn, og alla þeirra hegðun, og hafa oftast mikla reynslu af akstri jeppans. Þetta er gott og gilt, en hversu öruggur er jeppinn þegar óvanir aka honum? Er jeppinn þá svo öruggur? Er það eitthvað sem við þurfum að hugsa um?
En aftur að því sem ég var að byrja á áðan. Það er ekki nóg að við jeppamenn vitum að bílarnir okkar séu í lagi. Aðrir þurfa að vita það líka. Því þurfum við að útbreiða boðskapinn með einhverjum hætti. En hvernig? Það er svo annað mál. Mér dettur í hug að sterkur leikur væri að fá óháða rannsókn á aksturseiginleikum bílanna. Ég er ekki að tala um veltupróf, eða þessháttar, en t.d. prófun á stýriseiginleikum, og bremsum, ásamt styrk breyttra hluta. Það er ekki nóg að prófa bremsur í bekk, heldur væri fróðlegt að sjá samanburð, t.d. frá óbreyttum Patrol, og svo á samskonar bíl á 38? dekkjum. Ég held reyndar að 38? bíllinn kæmi betur út úr þannig prófi.
En það er fleira sem þarf að vera í lagi, heldur en að fólk treysti því að jeppinn sem það mætir detti ekki í sundur í næstu holu. Við verðum að vera miklu tillitssamari en við erum. Við þurfum að muna að fólki þykir vont að mæta okkur á þröngum vegum eða götum. Og ekki benda á flutningabíla. Það er ekkert betra að vera tillitslaus þó aðrir séu það líka.
Þá eru það Túrhesta ökumennirnir. Ég er hræddur um að þeir eigi stóran þátt í þvi mótstreymi sem við eigum að mæta. Það er merkileg þessi tímapressa sem þeir eru alltaf í. Mér dettur allavega ekki í hug önnur ástæað fyrir þvi að þeir virðast allt of oft þurfa að aka langt yfir hámarkshraða. Ég lenti sjálfur í því um daginn að vera á leið upp Ártúnsbrekkunu á mínum jeppa, og skyndilega var ég umkringdur herdeild að hvítum Patrolum. Þeir óku fáráðnlega hratt, og skutust um allar akreinar til að komast framúr. Einn þessara bíla var með stóra kerru, en ók ekki hægar en hinir. Ég reiddist heil ósköp yfir þessu aksturlagi sem ekki er til annars en að vala öðrum óþægindum, og skapa andúð á okkur í heild. Gamlar konum á litlum Daihatsu sjá engan mun á túristajeppa og öðrum, og þær eiga líka rétt á að aka um göturnar.
Það er margt fleira sem kemur upp í hugann, en þetta ?smá? sem ég ætlað að skrifa er nú þegar orðið alltof langt.
Við þurfum örugglega að taka hraustlega á þessum málum á næstunni, og við breytum áliti manna ekki á einni nóttu. Þetta mun allt taka tíma. En eitt getum við gert strax, og það er að aka skynsamlega, sýna tillitssemi, og taka tillit til annara í umferðinni. Og eitt enn. Þó aðrir séu ekki endilega til fyrirmyndar í umferðinni eða umgengni um landið, getum við vel verið það.
Baráttukveðjur,
Emil Borg
23.04.2004 at 21:53 #499938Sælir allir.
Mér datt í hug að svipast eftir þessum kröfum sem Frumherji setur fram um sjúkrakassa í breittum jeppum, og sló inn "sjúkrakassi" á finna.is. Ég bara má til með að setja hér smá brot af einu svarinu sem ég fékk.
[b:1isf7uq2]Hvat er ein sjúkrakassi ?[/b:1isf7uq2]
Ein sjúkrakassi er at skilja sum ein felagsskapur, har limirnir hava tikið seg saman, við ávísari upphædd, at tryggja hvørjum øðrum hjálp við sjúku ella barnburð. Hesin felagsskapur bindur seg somuleiðis av nevna seg sjúkrakassa (sygekasse) og at brúka hetta orð í samband við alt virksemi tess.
Limirnir velja eina umboðsnevnd, sum skal sita fyri 4 ár í senn. Umboðsráðið velur síðani eina starvsnevnd og ein formann.
[b:1isf7uq2]Limaskapur[/b:1isf7uq2]
Einhvør, ið er búsettur í Føroyum ella mynstraður við føroyskum skipið, skal, tá ið hann er fyltur 18 ár, ella tá ið hann verður skrásettur í øki sjúkrakassans, vera limur í sjúkrakassanum. Áðrenn ein er fyltur 18 ár, kann ein søkja um upptøku sum limur í sjúkrakassanum.
Við innliman í sjúkrakassanum, kann fráboðast, um ein vil tryggjast sum A-limur ella B-limur. A-limir, hava rætt til ókeypis læknahjálp, ískoyti til tannviðgerð og fysiurgiska viðgerð v.m. eftir nærri ásettum reglum. B-limir, kunnu frítt velja lækna/serlækna og hava rætt til ískoyti frá sjúkrakassanum til lutvísan fulnað av útreiðslum til læknahjálp v.m. eftir nærri ásettum reglum.
kv. Emil.
P.s. Veit einhver hvort hægt er að finna þessar reglur á netinu?
21.04.2004 at 23:09 #194249Sælir allir.
Ég er búinn að vera að leika mér með leitarvélina, þessa hérna sem einhver snillingurinn bjó til. Þetta er hrein snilld. Ég bara má til með að deila þessu með ykkur.
Emil
21.04.2004 at 22:50 #499569Sælir.
Ég er að óathuguðu máli mjög gagnrýninn á þessa aðferð Lats. Eins og Björn Þorri bendir á er komin óeðlileg spenna á fjöðrina, auk þess að kominn er veikur punktur þar sem soðið er við rörið. Þetta er örugglega einn mesti álagsflötur í öllum bílnum, því allt sem hann keyrir yfir og á, lendir jú á framhjólunum. Það þarf að vera óaðfinnanlega gengið frá öllu því sem festir hásingar undir jeppa. það væri óskemmtilegt að missa rörið undan á fullri ferð. Að færa hengslin er líka mjög einföld aðgerð.
Ég þurfti að láta laga mína togstöng, og fékk það gert hjá Stál og Stönsum. Þeir eru toppmenn og sanngjarnir á allan hátt.
Emil
21.04.2004 at 22:40 #499679Sælir allir.
Ég man það þegar ég sé það að það er Framtak sem ég leitaði að. Reyndar tók ég mig til áðan, dró fram lóðboltann og borvélina og galdraði þetta líka fína ljós í mælinn minn frá Landvélum. Ég vissi ekki að þeir ættu olíufyllta mæla. Mér var ekki boðið upp á það þegar ég keypti minn. Hann hefur átt það til að titra dálítið, en það ku vera auðvelt að laga það með því að setja forðabúr á lögnina. Þá verða sveiflurnar hægari í mælinn.
En takk fyrir hrósið varðandi bílinn. Þetta tókst ótrúleg vel, og á ótrúlega skömmum tíma. En ég hafði líka góða hjálp. Það er gott að eiga góða vini. Ég skellti honum á vigt um daginn, og útkoman var mjög ánægjuleg. Hann er 1830kg. eða u.þ.b. 100kg. léttari en hann var með gamla húsinu. Og það má hann Mitsubishi gamli eiga, að hann kann að smíða góð boddý. Þvílíkur munur eða gamli Hiluxinn. Maður situr beinn, og ég er búinn að setjast oftar í aftursætið á þessum tveimur mánuðum sem ég hef átt þetta boddý, heldur en á þeim tæpu þremur árum sem ég átti hitt.
Bestu kveðjur
Emil
21.04.2004 at 12:01 #194247Sælir spekingar.
Mig langar að skipta út boost mælinum sem ég er með. Sá er frá Landvélum og er ekki með ljósi. Ég nenni ekki að mixa það í hann. Ef ég man rétt er einhver hér heima að selja mæla með ljósi á mjög góðu verði. Ég bara man ekki hvar. Getur einhver hjálpað???
Emil
21.04.2004 at 11:53 #499624Teddi, þetta er alger tilviljun. Pajero hlutinn af mínum hefur t.d. nánast ekkert bilað enn.
Emil
07.04.2004 at 15:39 #486854Sæll Tralli.
Ert þú á hvíta bílnum? Ef svo er, þá er þetta glæsilegt tæki. Hvað er hann þungur hjá þér?
Emil
P.s.
Ég get nú farið að blanda mér í þetta pæjuspjall því það er komið pæjuhús á minn Hilux, sjá hér
http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.p … 7&offset=0
06.04.2004 at 10:11 #495989Sæl öll.
Ég er ekki í neinum vafa um að aðstaðan í Mörkinni er félaginu til trafala. Við erum margir sem ekki nennum að fara þangað nema stöku sinnum vegna þessara slöppu aðstæðna sem þar eru. Ég væri ekki hissa á að það væri vilji innan félagsins til að athuga með kaup á hentugu húsnæði, og það væri fróðlegt að sjá könnun hér á vefnum um áhuga manna á því. Sjálfur myndi ég með ánægju leggja hönd á plóginn við standsetningu slíks húsnæðis.
Emil Borg
06.04.2004 at 10:11 #503313Sæl öll.
Ég er ekki í neinum vafa um að aðstaðan í Mörkinni er félaginu til trafala. Við erum margir sem ekki nennum að fara þangað nema stöku sinnum vegna þessara slöppu aðstæðna sem þar eru. Ég væri ekki hissa á að það væri vilji innan félagsins til að athuga með kaup á hentugu húsnæði, og það væri fróðlegt að sjá könnun hér á vefnum um áhuga manna á því. Sjálfur myndi ég með ánægju leggja hönd á plóginn við standsetningu slíks húsnæðis.
Emil Borg
27.03.2004 at 22:18 #194088Sælir strákar.
Þekkir einhver ykkar hvernig snúningshraðamælir á Toyota diesel er tengdur? Þ.e. þegar skynjunin fer fram í olíuverkinu. þarf hann + inn,og sendir signalið út um hinn vírinn? (þeir eru tveir)
Emil
26.03.2004 at 17:13 #500891Sælir allir.
Ég varð fyrir þvi í febrúar að velta mínum jeppa. Hann fór tæpar 4 veltur, og skemmdist mjög mikið. Hann var yfirbyggður hér heima, og í húsinu var mjög mikið af prófílum. Ég tel þá hafa komið í veg fyir að toppurinn færi niður í sæti.
Eftir þessa reynslu er mín skoðun sú að einhverjir bogar skuli vera í þessum jeppum okkar. Ég er ekki að halda því fram að keppnishæft veltibúr þurfi endilega að vera í hverjum bíl, en einhverjir bogar hvort sem þeir eru smíðaðir úr rörum eða jafnvel prófíl. Það er örugglega hægt að koma þeim þokkalega smekklega fyrir þó þeir séu auðvitað ekki eins flottir og fartölvan og öll rafeindatækin. Það er allavega öruggt að í minn jeppa fer einhver grind sem allra fyrst.
Emil Borg
26.03.2004 at 17:13 #493602Sælir allir.
Ég varð fyrir þvi í febrúar að velta mínum jeppa. Hann fór tæpar 4 veltur, og skemmdist mjög mikið. Hann var yfirbyggður hér heima, og í húsinu var mjög mikið af prófílum. Ég tel þá hafa komið í veg fyir að toppurinn færi niður í sæti.
Eftir þessa reynslu er mín skoðun sú að einhverjir bogar skuli vera í þessum jeppum okkar. Ég er ekki að halda því fram að keppnishæft veltibúr þurfi endilega að vera í hverjum bíl, en einhverjir bogar hvort sem þeir eru smíðaðir úr rörum eða jafnvel prófíl. Það er örugglega hægt að koma þeim þokkalega smekklega fyrir þó þeir séu auðvitað ekki eins flottir og fartölvan og öll rafeindatækin. Það er allavega öruggt að í minn jeppa fer einhver grind sem allra fyrst.
Emil Borg
21.03.2004 at 22:43 #499297Ja nú er ég aldeilis feginn að vera með jeppann inni í skúr, og sleppa við öll þessi leiðindi.
Emil
21.03.2004 at 22:43 #492038Ja nú er ég aldeilis feginn að vera með jeppann inni í skúr, og sleppa við öll þessi leiðindi.
Emil
03.03.2004 at 17:39 #496670 -
AuthorReplies