Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.01.2005 at 13:03 #512360
Ég fékk á tilfinninguna að þú værir að spá í svona hvaða lögmál gilda almennt um ljós og kastara ég veit svosem ekki mikið um þetta en samt….
Í grófum dráttum:
Þokuljós staðsett neðarlega framan á bílnum, lýsa stutt en eru með breiðum geisla. Gjarnan gult ljós.Aðrir kastarar
oftast hvítt ljós, sumir með gult, enn aðrir með blátt. Sýnist á öllu að tískubilgjur stjórni því mest hvað menn eru með. Svo er mismunandi hvort kastarar dreifa ljósinu eða ekki.Varðandi stærðir og tegundir af perum hef ég ekki hundsvit.
En gangi þér nú vel.
Elvar
30.12.2004 at 11:12 #511914Sælir,
Gaman að heyra tölur í efri kanntinum.
Ein besta réttlætingin á eyðslu sem ég hef heyrt var á þann veg. Ónefndur aðili á stórum bensínbín leiddi hóp minni bíla á Hveravelli í þungu færi. Þegar þangað var komið var viðkomandi spurður um kostnað við eyðsluna í þessari leið, en bíllinn hafði drukkið marga lítra af bensíni og ljóst að raunverulegur kostnaður var þó nokkur, þá var svarið á þessa leið. Ég keyrði hingað FRÍTT því ég borga ekki þungaskatt og á afgang.
Spræni nú hver sem betur getur.
Eyðslukveðjur
Elvar
29.12.2004 at 09:15 #511904Þessu hefur verið svarað á nokkrum þráðum hér áður og heyrst hafa tölur niður í 8 lítra á hundraði eða eitthvað sambærilegt. Þessu trúir náttúrulega enginn en hefur talsvert skemmtigildi því þá sér maður hver þarf að réttlæta eyðsluna fyrir t.d. sjálfum sér eða buddunni. Í þessari umræðu má finna menn sem einnig hafa gaman af almennri sprænukeppni, að vísu snýst þessi keppni um að pissa lítið en mjórri og langri bunu :=)
Mér er sama hvað menn bulla um eyðslu sinna bíla hér, þú munt ekki fá heiðarlegt svar við þessari spurningu og menn virðast vera duglegir að rúnna af tölur til að hagræða úrslitum eða þá kunna ekki að reikna og hvað þá nú að mæla.
Eyðslukveðjur
Elvar
26.12.2004 at 15:14 #511700Hvernig er það með þessar toyotu vélar. Ef Bíllinn verður olílaus með öllu, eða skipt um hráolíusíu, er olíverkið þess umkomið að lofttæma lagnir að spíssunum.
Skv. því sem ég hef skilið á mönnum þarf á sumum bílum að losa einn spíssinn úr og handdæla olíunni þar til lögnin er búin að tæma sig.
Elvar
20.12.2004 at 23:09 #511350Sæll,
Ég hélt þú værir að grínast þar til ég skoðaði myndaalbúmið þitt. Þetta virðist vera græja sem getur flotið vel.
Á sínum tíma voru menn soldið að setja B20 vél úr volvo beint ofaní húddið því það passaði mjög vel. En þú ert hvort eð er að spá í eitthvað miklu aflmeira þannig að ég verð nú að segja ég á varla til orð yfir því hvað búið er að smíða ofaní þennan bíl.
Á 44", hvernig er hann að virka, er hann nógu þungur til að bæla dekkin?
Gangi þér vel meða ákvarðanatöku um framhaldið
Elvar
20.12.2004 at 22:55 #511334Algeng stærð áriðla fyrir tölvur er 150 W og virkar fínt. Ég veit hins vegar ekki með með áriðla uppá 50 W hvort það dugir. Gaman að vita hvað hægt er að komast af með litla græju.
Elvar
17.12.2004 at 13:42 #511222Það sem ég skil ekki
Ef maður setur eitthvað inní dekkið, vatn eða salla eða notar umrædda hringi með kvikasilfri. Hvernig hegðar þetta dót sér til að virka sem jafnvægisstilling?Ég sé þetta svona fyrir mér og lýsi því með dæmi
– Frekar lélegt dekk sem kalla má hoppidekk er látið snúast á 60 – 100 km hraða. Sett í það tvö glös af vatni blandað með frostlegi. Ég hefði haldið að vatnið myndi setjast útí banann á dekkinu og safnast sérstaklega þar fyrir sem dekkið bólgnar út og valda þar meiri þyngd og restin af vatninu dreifist um önnur svæði inní dekkinu. Þar sem meiri þyngd er kominn á þann stað í dekkinu sem veldur hoppinu veldur það öflugri hopp-eiginlekum dekksins.Meiri pælingar
Mér hefur verið sagt að þessi stóru dekk almennt eru örlítið egg-laga frekar en kringlótt.
Má draga þá ályktun að líklega má finna tvo bolla í hverju dekki um það bil álíka stóra beint á móti hvor öðrum og eiga þar með að vega upp kastið í dekkinu?????Kveðja
Elvar
16.12.2004 at 15:39 #511208Lallirafn, ég sá nú dekkin hjá þér um daginn manstu og ég myndi bara afskrifa þau. Gatslitið eins og þú segir og það liggur við að hægt sé að lesa morgunblaðið í gegnum gúmmípjötlurnar.
Elvar
14.12.2004 at 12:02 #511020Sæll,
12,13,14 tommu felgur, þitt er valið mátturinn og dýrðin og kastar hér upp vinsælu umræðuefni. Það er mismunandi hvað menn eru með breiðar felgur. Á norður og austurlandi eru menn mikið til á breiðari felgum en á suðurlandi. Vestfyrðina þekki ég ekki. Ástæðan er að því er mér sýnist tilkomin af tísku, trú og snjóalögum.
Breiðari felgur fara að jafnaði verr með hjólalegur en ég hef ekki heyrt menn kvarta undan því sérstaklega, þannig að ég held að endingarmunurinn sé ekki mikill. Svo eru felgur jú mismunandi, sumar innvíðar og aðrar ekki. Þumalputtinn segir að því meira vogarafl sem skapast á leguna vegna stærri felgu hlýtur að slíta þessu meira.
Svo er náttúrulega maggi felgubreitir í Axlarhöfði sem getur gefið þér viðmuðunarverð á þetta.
Gangi þér vel
Elvar
13.12.2004 at 10:51 #510888Sælir,
Þetta er ágæt umræða.
Skúli bendir réttilega á að klúbburinn er í raun og veru með góða vöru, þe. viðskiptavild félagsmanna.Ég vil taka það fram strax að ég er ekki að gagnrýna þá sem hafa staðið í því að afla afslátta fyrir félagið, í raun kann ég þeim bestu þakkir fyrir. Tilgangur minn er sá að skapa umræðu um afsláttarkjör félagsmanna hjá fyrirtæjum.
Viðskiptavild félagsmanna mætti bjóða fyrirtækjum til sölu í því formi að gera okkur tilboð í tilteknar vörur sem ekki er hægt að kaupa sem einstaklingur á sambærilegu verði í ákveðinn tíma bæði fyrir og eftir að tilboðinu lýkur. Það ætti að koma í veg fyrir að utanfélagsmenn séu að fá jafn mikinn eða meiri afsláttt. Fyrirtækið ætti að ná inn tekjum á magninu. Félagið fær fleiri félagsmenn í klúbbinn fyrir vikið.
Tilboð sem eru virk mætti kunngera á heimasíðu klúbbsins og í blaðinu og jafnvel í skjáauglýsingum í sjónvarpi.
Félagsmanni finnst það pínulítið ósanngjarnt ef honum er boðin vara á sérstöku tilboði til félagsmanna þegar hver sem er getur keypt sömu vöru á sama eða betra verði hjá sama fyrirtæki.
Fyrirtæki sem eru uppvís að slíkri hegðun eiga ekki skilið að vera talin upp á afsláttarmiða klúbbsins.Frekari umræðu óskað
Elvar
10.12.2004 at 12:01 #510730Já þetta er fyndið
GAÞ, ég verð nú að viðurkenna að ég hef litla hugmynd um hvað þú meinar. Ég bara skil ekki hugtökin sem þú ert að nota. Ef það eru til einhver íslensk heiti á þessum pælingum eða jafnvel ófagmannlegar útskýringar á þessum pælingum þá er það amk. í áttina.
Nú svo ef þú veist um bækling sem útskýrir þessi hugtök þá er það ekki svo vitlaust að benda á hann svo maður hafi eitthvað til að styðjast við.
Annars kemur KGB og setur LSD í tankinn hjá þér
Elvar
06.12.2004 at 13:31 #510300Svona græja var í eigu fjölskyldunnar um tíma þar til hún bilaði. Reyndar hafði hún lítið sem ekkert virkað fram að þeim tíma. Ég held ég mæli með góðum ullasokkum eða batteríshituðum skíðaskóm eins og voru til í gamla daga.
Gangi þér vel.
Elvar
06.12.2004 at 12:28 #485088Sæll Hvati,
Góð rök, og vel fram sett. Ég trúi því að við erum báðir að hugsa um hvernig koma megi í veg fyrir að fólk fari án þess að greiða fyrir þjónustuna. Einhverrra hluta vegna virðist núverandi kerfi ekki ganga nógu vel upp. Varla væri þessi umræða í gangi ef svo væri.
Þessar 7000 krónur eru tilkomnar með núverandi kerfi. Það er spurning hvort annað kerfi myndi afla meiri tekna. Ég væri óhræddur við að prófa annað kerfi.
Vera má að einhverjir verði í vandræðum en það verður þá bara að taka því. Vandræðin eru kannski vegna ónógs undirbúnings ferðarinnar.
Ég reyndar trúi á þessa talnalásalausn, sérstaklega þar sem er andyri og lásinn verður ekki fyrir mikilli veðrun. Ég tala nú ekki um eins og í Árbúðum þar sem opið er inn og hægt að komast í flet án þess að fara alla leið inn. Ég sé nú kannski fyrir mér að skipt sé um tölur einu sinni í mánuði í þessum skálum þó svo að það sé betra að hafa það örar.
Nú eru Skagfyrðingarnir að prófa talnalás í Skiptabakkaskála eftir því sem ég hef komist næst. Ég bíð spenntur eftir niðurstöðum frá þeim. Hingað til hef ég hvorki heyrt jákvætt né neikvætt um það.
06.12.2004 at 11:31 #510294Sæll,
Má ég gerast svo frakkur að spyrja til hvers á að nota hitarann?
Elvar
06.12.2004 at 08:58 #510320Sælir félagar,
Ég hélt að þeir sem notuðu kústsköft væru bara þeir sem eru með plasttopp á bílnum.
Elvar
04.12.2004 at 11:49 #510240að þú þurfir að stilla tækið, þe. stilla á nmea.
Sjálfur þekki ég ekki magellan tækin neitt sérstaklega.Ég trúi ekki öðru en það sé hægt að finna leiðbeinigar um þetta á google.
Ef þú ert að nota Visual Series (Navtrek) þá fylgir með forrit til að testa samskiptin við serialportið, það kemur undir starthnappinum í windows.
Kveðja
Elvar
04.12.2004 at 11:45 #485084Hvati, þú fullyrðir að það er heilmargt sem mælir á móti lokun skálanna.
Viltu ekki telja þau atriði upp svona til að glöggva þetta fyrir okkur hinum sem finnst hið eðlilegast mál að læsa skálunum. Það má vel vera að öll þau rök koma fram í þræðinum hér á undan en ég sá bara ekki öll rökin í hraðlestrinum mínum í gegnum þráðinn.Ég gat þó lesið á milli línanna að nokkuð sterk rök til lokunar voru að "þá þarf ekki að greiða skálagjöld ef enginn veit að ég er að nota aðstöðuna". Þetta er skoðun sem einhverjir aðhyllast og augljóslega er ekki hljómgrunnur fyrir meðal félagsmanna.
Upptalning á þeim rökum sem mæla gegn lokun skálanna er gott innlegg og hvet ég þig til að koma þeim sjónarmiðum á framfæri með skýrum hætti.
Kveðja
Elvar
03.12.2004 at 15:56 #510222Stál og stansar eru að fást við þessa hluti, eflsaust fleiri.
Elvar
03.12.2004 at 14:43 #510220Hvort þú þurfir að skipta út öllu dótinu eða bara dragliðnum fer væntanlega eftir því hvernig samsetningar eru á skaftinu og hvernig liðir. Auðveldast, fljótlegast er að láta fagaðila gera þetta og brosa svo þegar þú borgar fyrir þjónustuna.
Þú getur væntanlega sjálfur rifið skaftið úr.
Kveðja
Elvar
30.11.2004 at 22:08 #510024sæll.
Það fyrsta sem mér hefði dottið í hug er að dæla vatni í gegnum elementin. Þ.e. losa slöngurnar sem tengjast væntantanlega einhverstaðar við hvalbakinn og nota venjulega garðslöngu í verkið.
Það getur vel verið að þetta sé vitlaus aðferð en þetta dettur mér strax í hug.
Elvar
-
AuthorReplies