Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.04.2009 at 10:48 #645742
Grímur, þetta er sniðugt
Það væri afar áhugavert að sjá myndir af þessu hjá þér Grímur, ekki síður hvernig reynslan er af notkun á þessu, og hvort einhverjir annmarkar eru á notkun á þessu.
Á sumum túrbínum smitar smurningsolíu inní kalda kuðunginn og millikæli… Er slíkt vandamál hjá þér?
þarf olíuskilju á loftslönguna?
Er mikið vandaverk að koma nipplinum fyrir?Elvar
29.12.2008 at 14:36 #635708Ég get tekið undir gagnrýni Ágústs.
Í grunninn þykir mér þó kerfið vera undarlega skilgreint að fara eftir síðasta tölustaf bílnúmers. Hvað með þá sem eru með einkanúmer?
Svo með þessa tölustafi þeir eru nú bara tíu stafirnir sem koma til greina í aftasta sæti bílnúmersins, hins vegar eru mánuðirnir tólf í árinu. Þýðir þetta þá að það eru engir bílar sem eiga að skoðast síðustu tvo mánuði ársins. Fljótt á litið lítur þetta út sem óhagræði fyrir skoðunarstöðvarnar, nær væri að reyna að hafa færri skoðanir á sumrin á meðan sumarfrí starsmanna eiga sér stað.Ég myndi þyggja greinagóða lýsingu á því vanrækslugjaldi sem á að leggja á bíleigendur til að geta myndað mér skoðun á því hvort það sé gáfulegt eða ekki. Ég er í raun að segja að gjaldið hefur verið mjög illa kynnt fyrir almenningi.
Kveðja
Elvar nöldrari
05.11.2008 at 15:03 #632248Þú verður að útskýra þetta betur. Þetta "hljómar" eins og ekkert sé bilað en samt er eitthvað að.
Hvernig lýsir þetta sér.
Ég giska út í loftið á að barkinn sé farinn í sundur.Kveðja
Elvar
10.08.2008 at 00:28 #626958hefur einhver sett inverterinn í húddið?
Mér finnst það einmitt mest spennandi staðurinn því þá eru stuttir kapplar og maður heyrir ekki suðið í viftunni. Rakinn er hins vegar vandamál.
Getur skapast hætta af rakanum?
Er einhver með tillögu að lausn til að verjast raka í húddinu?Elvar
07.08.2008 at 01:09 #202751Sælir,
Mig vantar hugmynd að snyrtilegum frágangi á inverter fyrir minni 220volta raftæki.
Ég vil geta stungið í samband úr framsæti að minnsta kosti einu tæki.
-Er í lagi að setja inverter inní lokað rými, t.d. hanskahólfEf einhver á myndir þá langar mig í ábendingar.
Elvar
04.07.2008 at 14:34 #625452það reyndist vera slitnir stýrisendar. Það skrítna var að hoppið byrjaði bara einn daginn og hvarf jafn snögglega og það kom þegar ég skipti um stýrisendana.
Elvar
29.06.2008 at 23:19 #625140Ég á golf sem hegðar sér á svipaðan hátt bara ekki svona öfgakenndur eins og þú lýsir. Bara svona smá upp og niður í hægaganginum. Bensíneyðsla er innan eðlilegra marka og í samræmi við þyngd bensínfóts. Virðist hins vegar vera viljugur í að drepa á sér í bakkgír af einhverjum undarlegum ástæðum:) Ég fylgist með þessum þræði til að komast að hinu sanna.
Vona að þú náir árangri á sem ódýrastan hátt.
Elvar
20.06.2008 at 11:56 #624620Það er nú óvirðing við hilux að kalla hann landbúnaðartæki.
Elvar
20.06.2008 at 10:58 #624616Það væri gaman að sjá samanburð á
lengd á milli hjóla
þyngd á fram og afturás
beygjudradíus
eyðslu
stærð orginal eldsneytistanks.Sem fyrrum eigandi L200 þá sat maður ekki eins beint fram með lappirnar eins og í sambærilegri árgerð af hilux þe. ’94
Elvar
09.06.2008 at 13:41 #624144þetta er samsetning sem passar frekar illa saman. Af þeirri einföldu ástæðu að ekki næst nægjanleg orka úr solarsellunni sem skilar t.d. 75w við bestu skilyrði. Þó svo að orkunni sé safnað saman inná rafgeima, þá kemur að því að gangsetja hitara sem er 220v 1,8kw… Þú þarft inverter sem er stór og dýr. inverter sem þolir 1.0 kw kostaði í fyrra milli 30 og 40 þúsund, stærri inverter er enn dýrari.
Gefum okkur að þetta sé allt leyst og hitarinn fari í gang. Þú þarft mjög mikið geymslurími fyrir rafgeyma því þeir þurfa að geta geymt mikið af orku. Niðurstaðan er að ódýrara er að nota gas og það tekur minna pláss þegar upp er staðið og er eflaust léttaraGóðar stundir
Elvar
05.03.2008 at 00:37 #616526tankurinn orðinn fullur og barnabílstólar í bílnum ásamt tengdamömmuboxi og öðru drasli…
Hins vegar finnst mér forvitnilegra hvað liggur að baki? hvað er tækninefnd að spá???
Elvar
18.02.2008 at 17:49 #614558Hvers vegna loftpúða fyrir fellihýsi?
Ég skil vel loftpúða undir bíl sem hefur breytilega þyngd eftir farangursmagni. Er það svo með fellihýsið að það er breytileg þynd? Hvaða eiginleikum er verið að falast eftir?
Fljótt á litið hefði mér dottið í hug gormar sem eru mátulega stífir.Kveðja
Elvar
11.02.2008 at 01:08 #613696Var að horfa á þetta. Þetta var ágætis skemmtun.
Mér fannst nú vanta aðeins uppá að segja meira frá hvernig bílnum var breytt. T.d. hefði verið gaman að sjá svona bíl við hlið óbreytts bíls. Búið að styrkja fjöðrunina, jú fínt en ég tók ekki eftir því að það kæmi fram hvað var gert til að styrkja fjöðrunina.
Það hefði líka mátt vera lýsing á því frá þeim hvernig upplifun það er að vera í fullbreyttum fjallabíl.Hljóðgæði þáttarins voru mjög vafasöm (eins og í mörgu amatör jeppamyndbandinu) en þetta eru sérfræðingar í þáttagerð. Þeir fá falleinkun!
Samanburður á þyngd búnaðar hundamannsins og jeppakallanna hefði verið skemmtilegur en það er nú önnur saga.
Kveðja
Elvar
30.01.2008 at 15:09 #612252Fjallagalli er svolítið vítt hugtak. Hef grun um að þú sért að tala um fatnað.
Ef þetta er 66° galli þá getur haft samband við 66° í garðabænum, þar var gallinn bættur og endursaumaður fyrir dóttur mína.
Annars ættir þú að tala við einhverja saumakonuna, t.d. er fyrirtæki í Faxafeni fyrir ofan ísbúðina sem er í saumaviðgerðum. Þar hef ég fengið skipt um rennilás í flíspeysu.Ef hugtakið fjallagalli nær yfir ökutæki þá vísa ég á eitthvert bílaverkstæði
Elvar
14.01.2008 at 16:41 #603310Veit einhver hver hugsunin er um hvernig skuli meðhöndla slóða sem munu gleymst í þessu verkefni. Sama á við um nýja slóða sem ekki hafa verið fundnir upp enn.
Ef ég hef skilið þráðinn rétt þá er mikilvægt að allir slóðar verði með strax í upphafi. Er það af því að ekki verður hægt að setja gleymdu slóðana inn í síðar? Það hlýtur að þurfa að viðhalda skráningu á þessu kerfi. Ég auglýsi hér með eftir aðferðafræðinni sem ætlunin er að nota.
Kveðja
Elvar
07.01.2008 at 16:27 #609314Segir ekki aðferðin allt um hvernig verkstæðið framkvæmir sína vinnu:)
Ég held að það komi hvorki mér né þér við hvernig fyrirtæki leysa sín verkefni.
Það er hins vegar mitt mál ef ég ætla að kaupa breytan bíl að ég skoði hvernig honum er breytt.
Ég held að þó svo að bíll sé merktur breytingaverkstæðinu X þá er það ekki endilega gæðamerki. Gæðin takmarkast nákvæmlega við eintakið sem þú ert að skoða.
Kveðja
Elvar
28.12.2007 at 14:14 #607836Sælir,
Ég á til rafmagnsteikningar um eldri árgerð uþb. 1994.
Ef þú vilt fá það þá er það velkomið.
Hringdu í mig S: 693 5352Kveðja
Elvar
28.12.2007 at 14:03 #607888Sælir,
Mér sýnist að þetta sé að einhverju leiti spurning um hvernig gagnrýnin er sett fram. Það hefði mátt vanda það örlítið betur. Aðalatriðið er að það verður að vera heimilt að ræða um efni blaðsins. Mér líst betur á að umræðan fari fram þar sem allir félagsmenn sjá heldur en að byggja upp eitthvað baknag. Önnur leið hefði verið að setja sig beint í samband við ritnefndLeiðbeiningar um gagnrýni:
Ágætis aðferð er að setja fram gagnrýni í þessari röð Hrós – Gagnrýni – Hvatning.
Svo bara að passa að orða þetta kurteislega og hnitmiðað.Kveðja
Elvar (siðatemjari)
20.12.2007 at 00:44 #605624– Mér þykir Hlynur óþarflega fyrirfram svartsýnn á webasto. Vel má vera að hagkvæmast af öllu sé að gera upp gömlu vélina. Þá er það niðurstaða sem sem vonandi er tekin eftir vitrænan samanburð sem byggist ekki á sleggjudómum.
Það er ekki beint vitrænt að bera saman eyðslu 35 kw miðstöðvar við eitthvað annað þegar til umræðu er 13 kw miðstöð.– Það er talsverður munur á rútu og húsi. Rútan er ekki einangruð á sama hátt og Setrið.
– Ég held að vitræn orkuþörf til kyndinar verður ekki metin nema með málsetningum hússins.
– Einar Það væri gaman að fá link á vindrellurnar sem eru notaðar af veðurstofunni.
Kveðja
Elvar
18.12.2007 at 15:42 #605594Sælir
Mér finnst hugmyndin góð af því að hún hljómar sem ódýr lausn. Vitum við um einhvern aðila sem notar td. Webasto miðstöð til að hita hús.
Hver er áætlaður endingartími svona olíumiðstöðvar miðað við notkun í Setrinu?
Elvar
-
AuthorReplies