Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.02.2005 at 16:49 #515948
Mér finnst eins og einhvertíman hafi ég séð valmöguleika um hvaða villur þú viljir sjá.
Minnir að þetta var í [HTML_END_DOCUMENT].
Gangi þér vel.
Elvar
08.02.2005 at 13:38 #516056Sælir,
Var að skoða myndaalbúm "totiG" og þar er magnað tæki í smíðum. Undir einni myndinni er skrifað að stífur séu úr ryðfríu efni. Nú spyr ég af því að mig langar að vita og alls ekki má taka þetta sem gagnrýni.
Er ryðfrítt efni rétta efnið í svona smíði, þá er ég að hugsa um að ryðfrítt efni er yfirleitt stökkara.?
Hvaða efnisþykkt er lágmark í svona smíði úr ryðfríu?Kveðja
Elvar
08.02.2005 at 10:03 #516238Sá hleðslutæki í verkfæralagernum fyrir einhverjum mánuðum síðan á innan við 5 þús. veit ekki um nánari eiginleika
Elvar
07.02.2005 at 16:32 #516028Mér sýnist nánast ekkert vera eftir að gera við þennan bíl, ja nema þá helst að bóna hann
Gangi þér vel
Elvar
05.02.2005 at 10:25 #195416Fastur og félagar voru að yfirgefa Hrauneyjar rétt í þessu.
Gengið var eiturhresst eftir ljómandi gistingu í Árnesi í handarkrikanum á AtlaE
Elvar
04.02.2005 at 13:27 #515356Hversu öflug þarf tölvan að vera fyrir þennan fídus.
Elvar
02.02.2005 at 14:56 #515348Er þetta þess virði að fá sér? Með öðrum orðum eru gögn um hæðarlínur nógu nákvæmar þannig að þetta kemur að gagni?
Er komin einhver reynsla á þennan þrívíddar-fídus?
Elvar
02.02.2005 at 13:13 #195393Sá í myndaalbúminu hans Benedikts skemmtilegt og jafnvel gagnlegt kort sem er í þrývídd.
Í hvaða forriti er þetta gert og hvernig er þetta gert?
Kveðja
Elvar
01.02.2005 at 08:44 #515224Getur verið að þyngd bíls skipti máli. Ég er með bíl nálægt 2 tonnum og er með 20-22 pund.
Elvar
31.01.2005 at 11:56 #515114Sælir,
einhverstaðar hér á vefnum var mikið diskúterað um fjöðrunarkerfi, heilar hásingar og klafa.
Niðurstaðan var þessi eins og ég túlkaði hana.
Klafar töldust góðir á malbiki þar sem þeir gera bílinn rásfastari en hásing.
Hásing taldist betri í erfiðum torfærum t.d. krapa þar sem hásingin hleypir krapanum meira yfir sig. klafabíll ryður á undan sér og sest svo með framendan uppá hraukinn og festist frekar en bíll með rör.Góðar stundir
Elvar
31.01.2005 at 11:27 #515212Sjá má færð á hálendinu [url=http://www.f4x4.is/faerd/:m1ob2vuz]Hér[/url:m1ob2vuz]
Linkur á þetta er einnig á forsíðu, gott ef menn setja upplýsingar um færi þarna. Svona þræðir týnast yfirleitt fljótt.
Kveðja
Elvar
26.01.2005 at 14:50 #514374Ég verð nú að viðurkenna að ég skil ekki öll hugtökin sem eru notuð á þessum þræði og hefði ég mest gagn af því að fá útskýringu á mannamáli (og á íslensku) hvað þessi hugtök þýða.
– fyllingargráða
– skerhornMér sýnist þetta séu þau lykilhugtök sem hiclonar eru að nota til að útskýra hvers vegna hiclone virkar vel.
Verð nú að segja það hiclonum til framdráttar að skilafresturinn er góð viðskiptaaðferð og ættu fleiri söluaðilar að gera slíkt hið sama ég tala nú ekki um kvikmyndahúsin sem sýna stundum svo lélegar myndir að ég vil fá endurgreiðslu.
Elvar
25.01.2005 at 12:21 #514634Mig grunar að þetta sé nú oft á tíðum spurning um forgangsröðun. Nefdu mér þann jeppamann sem er með allt dótið í bílnum sem hann mögulega gæti langað í. Jú það er nú alltaf þannig að mann langar í eitthvað meira….
Mig grunar að svona stjórntæki er ekki svo gríðarlega ofarlega á listanum því menn sjá ekki þörfina. Svo treysta menn ekki á þessar tölvur alveg endalaust því þær geta alltaf bilað.
Gefum okkur að þú sért kominn með hitaskynjara frá öllum mögulegum þáttum bílsins td. hiti í skiptingu, millikassa framdrifi, afturdrifi. og svo framvegis. Hvernig ertu betur settur með að hafa þessar upplýsingar í tölvunni?
Elvar
25.01.2005 at 00:20 #514508Ég hef spilað aðeins á geymana hjá mér í nokkrum stuttum æfingum og hef ekki orðið var við að geymarnir hafi verið að klárast eitthvað sérstaklega í þessu stuttu æfingum mínum. Einu sinni var jú eitthvað sambandsleysi en það kláraði ekki geymana.
En það er örugglega hægt að kaupa misgóða geyma…
Elvar
24.01.2005 at 14:33 #514482Granigaml segir svo til allt sem segja þarf, en sértu að spá í vetrarferðir og ert á 35" þá þarftu að vera tilbúinn að nota spotta nokkuð reglulega.
Elvar
21.01.2005 at 16:14 #514052Ég er með árgerð 94 og hann á að ganga á 750 snúningum. Það stendur á miða inní húddinu.
Elvar
13.01.2005 at 15:25 #513386Emil Borg steig í pontu á síðasta félagsfundi og útskýrði málið einhvernvegin með þessum hætti:
Í hvert skipti sem notandi skráir sig inn verður til ný gagnagrunnstenging sem síðan er ekki lokað með eðlilegum hætti þegar session rennur út. Þetta veldur því að tengingarnar hrannast upp og svo kemur að því að serverinn ræður ekki við meir og þá þarf að endurræsa hann handvirkt.
Ég geri ráð fyrir að þetta standi til bóta með nýjum vef sem Castor menn skila af sér á þessu ári.
Kveðja
Elvar
10.01.2005 at 15:38 #466084Ég hélt ég væri að fara að lesa eitthvað stórskemmtilegt um rallið en svo snýst þetta spjall um að búa til hinar ýmsu útgáfur af því að búa til linka. Svo endar þetta í að einhverjir kunningjar eru farnir að spjalla um að svara tölvupóstinum sínum. Hvar endar þetta rugl
Kveðjur
Elvar
10.01.2005 at 10:47 #513140Sæll Maddi,
Ég á til spotta handa þér.
Hringdu bara í mig, 6935352.Elvar
04.01.2005 at 22:38 #512296það hefur nú verið talað um svipað áður [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=896:3trbt26f]hér[/url:3trbt26f].
Engin merkileg niðurstaða þarna en svona eitthvað til að sulla með í þessum þræði.
Elvar
-
AuthorReplies