FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Elvar Níelsson

Elvar Níelsson

Profile picture of Elvar Níelsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 350 total)
← 1 … 5 6 7 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 11.03.2005 at 08:45 #518600
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Bara svona til gamans af því að auðvelt er að draga ályktanir þá má finna það út að hættulegt sé að aka þessum tiltekna bíl af því að þetta hefur gerst tvisvar undir honum.

    Já hvar er tækninefndin :)

    Elvar





    07.03.2005 at 09:27 #518286
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    kjaftasaga sem ég heyrði útí bæ, sel hana ekki dýrar en ég stal henni.

    Fyrir mánuðum síðan var hópur löggæslumanna sem vildu sporna gegn hraðakstri á Reykjanesbrautinn og var þeirra tillaga þeirra að setja upp hraðamyndavélar sambærilegar við þær sem eru í hvalfjarðargöngunum. Þannig mætti senda þeim sem keyrðu of hratt sjálfkrafa rukkun fyrir of hraðan akstur.

    Ekki var hljómgrunnur fyrir þessari hugmynd af einhverjum ástæðum og kunna að vera nokkur sjónarmið í því.
    T.d. þessar sem mér dettur strax í hug
    1. Einungis afmarkaður hópur landsmanna undir eftirliti, þe. þeir sem eiga leið um Reykjanesbrautina.
    2. Löggæslumennirnir vildu fá hlutdeild í sektargreiðslunni, sem þýddi í raun og veru einkavæddar löggur.

    Mér persónulega lýst illa á þá hugmynd að setja GPS tæki í bíla til að sjá um skattgreiðslu skv. notkun af gatnakerfinu. Ef það væri raunverulega hugmyndin væri réttast að láta skrá niður kílómetratöluna á ökumælinum þegar bíllinn fer í gegnum skoðun. Það er mun einfaldara og ódýrara heldur en dýr búnaður.

    Kveðja
    Elvar





    05.03.2005 at 18:30 #518128
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    smá pæling:

    þú getur náttúrulega athugað með að flytja vél, skiptingu, millikassa og hásingar yfir í súkkuna úr sérokí dótinu.

    Nú svo ef þú ert meira hrifinn af innréttingunni úr cherokíinum en ekki ánægður með vélina vegna eyðslu þá getur þú flutt vél, gírkassa, millikassa og jafnvel hásingar úr súkkunni í sérokíinn…

    Mín helsta niðurstaða er sú að hér er augljóslega um stórspennandi möguleika að ræða og ekki láta nokkurn mann segja þér að það séu einhver ljón í veginum.

    Gangi þér vel með það sem þú tekur þér fyrir hendur
    Elvar





    26.02.2005 at 00:14 #517954
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    …. á Hofsjökli?

    Elvar





    24.02.2005 at 11:00 #517666
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Hvernig datt þér þetta í hug, Ég á ekki til orð….

    Elvar





    23.02.2005 at 15:08 #517600
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Ég fékk mér labbitúr vestaní Henglinum um síðustu helgi og það er ekki nægur snjór til að keyra akkúrat þar, líklega aðeins meira uppá hellisheiðinni en ekki til að keyra eitthvað mikið.

    Elvar





    23.02.2005 at 13:03 #517592
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Stilltu tækið á nmea samskipti ef þú ert að nota visual series (navtrek). Með forritinu fylgir einnig forrit sem heitir porttest og ætti að finnast undir start programs visual series…. Þetta forrit sýnir þér hvernig samskiptin ganga fyrir sig og ættu þau að vera mjög regluleg.
    Visual series forritið þarftu einnig að stilla á rétt port. Þ.e. undir tools options …

    Held þú stillir tækið á garmin samskipti ef þú ert að nota mapsource.

    Gangi þér vel.
    Elvar





    21.02.2005 at 11:53 #517254
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Getur ekki verið að græna öfundin er frekar græn sjóveiki útaf frystitogaranum :)

    Hvernig er að fá þjónustu við þessa bíla, þe. þegar eitthvað bilar. Og hver er bilanatíðnin?

    Kveðjur
    Elvar





    18.02.2005 at 15:51 #517132
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Er hægt að reikna út og reka putta uppí loftið, spá og spekúlera mjög vísindalega og fá út niðurstöðu sem segir okkur hvort er hagkvæmara í krónum og félagslega talið að vera í núverandi stöðu með húsnæðismálin eða stefna á kaup á húsnæði eða a byggja?

    Hefur húsnæðisnefndin safnað saman einhverjum forsendum? sem þarf inní svona útreikning?

    pælingakveðjur
    Elvar





    18.02.2005 at 13:27 #517128
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Er nauðsyn að byggja?

    Má kannski ræða hvaða ókosti núverandi húsnæði býr yfir og augljóst er að nýtt húsnæði myndi leysa betur.

    En hvað með ókosti sem nýtt húsnæði gæti haft í för með sér.

    Þegar ég pæli aðeins í þessu þá myndi ég hafa mestar áhyggjur af því að nýtt húsnæði væri tekið í notkun svo löngu á eftir áætlun að sumir væru orðnir mjög súrir :)

    Kveðja
    Elvar





    16.02.2005 at 13:24 #516884
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Þú talar um að hafa barka uppað hvalbak til að skutla á þegar á hólminn er komið. Ég mæli með því að ganga þokkalega frá slíkum barka og hafa hann stöðugt tengdann þannig að þegar á hólminn er komið skiptir ekki máli hvort það gleymist að setja barkann á eða ekki. Nú svo getur litla sprænan sem þú ætlar að keyra yfir líka verið dýpri en þig hefði getað grunað, annað eins hefur gerst :)

    Elvar





    16.02.2005 at 13:19 #517086
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Ég skil ekki umræðuna Jón,
    Þarna er linkur á húsnæði en hvað ertu að gefa í skyn? Ertu að meina að 4×4 kaupi húsnæðið og veiti þér aðgang. Ég get ekki séð að umræða skaði nokkurn mann. Hins vegar geta ákvarðanir skaðað einhvern.

    Haltu umræðunni gangandi.
    Elvar





    16.02.2005 at 09:22 #516878
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Hvalbak, þá er ég að meina skilrúmið sem er á milli farþegarýmis og vélarsals.

    Kveðja
    Elvar





    15.02.2005 at 17:13 #516872
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Patrolsvekkir, það má vel vera að það sé innistæða fyrir því, það fer þannig orð af súkkunni, ef rétta færið er til staðar þá fer súkkan allt þegar aðrir fara ekkert :)
    Held reyndar að þetta átti nú aðalega við fox og svo hefðbundnu vitöruna.

    Hvað er grand vitaran annars í kg talið?
    31" breyting þyngir ekki mikið.

    Ef þú ert að spá í að færa loftinntakið þá eru að ég held þrjár lausnir í stöðunni.
    1. Setja barka uppað hvalbak
    2. gera gat á hvalbak og taka loft innanúr bíl, tengir svo barkann þegar á þarf að halda. (t.d áður en þú keyrir yfir "þórsmerkurár")
    3. Setja snorkel utaná bílinn sem liggur með gluggapósti.

    Kveðja
    Elvar





    15.02.2005 at 16:28 #516866
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Sæll Benni og aðrir,

    Ég persónulega tel ekki grand vitara á 31" vera færan í snjóakstur eftir að hafa prófað sjálfur slíkan bíltúr um síðustu helgi, 31" einfaldlega ekki nóg til að láta hann fljóta. Vel má vera að 33" komist af án hlutfalla en ég get ekki ýmindað mér að 35" sé að koma vel út án hlutfalla. Auðvitað er 35" bíll ökufær í snjó án hlutfalla en hann mun aldrei verða til afreka þannig í sæmilega erfiðu færi. Enda grunar mig að upphaflegur ritari þessar þráðar hafi ekki verið að spá í þannig breytingu.
    Það er vissulega rétt hjá þér að ekki er verið að finna upp hjólið við breytingar á þessum bíl, og ekki er mikið vit í því að ferðast einbíla. Sérstaklega ekki á þau svæði sem maður þekkir ekkert.

    En eins og ég benti á þá eru þetta eflaust fínir sumarbílar (en ég átti að bæta við að ég miðaði við 31" breytinguna).

    Af því að ég man ekki hvar loftinntakið er á þessum bílum þá getur þú kannski komið með uppástungu um breytingu á slíku ef þess er þörf til að gera bíl "Þórmerkurfæran"

    Góðar stundir
    Elvar





    15.02.2005 at 15:07 #516862
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Af því að ég fiktaði í svona bíl um daginn þá get ég sagt þér nokkrar staðreyndir um breytingu á svona tæki:

    Upphækkunarsett í umboðinu kostar uþb. 20þús
    Gormar að framan í bílnum eru mjög stífir og þarf öflugar gormaklemmur til að klemma saman amk. ef bíllinn er með diesel vél.
    Leiðbeiningar um hækkunina er hægt að fá í umboðinu. Þe. hvaða hlutur á að fara hvar.
    Það borgar sig að kaupa grunn og lakk á sprautubrúsa og tektílryðvörn til að ryðverja viðeigandi hluti úr upphækkunarsetti.
    Annars á þér að nægja nokkrir fastir lyklar og topplyklasett ásamt tjakk til að gera þetta.

    Með þessari hækkun kemur þú dekkjum sem eru 30 – 31" undir bílinn og getur þá farið út að keyra. Ef þú kaupir dekk og þokkalegar álfelgur þá kostar það ca 130þús.

    Ef þú ætlar í stærri breytingu þá þarftu brettakanta með viðeigandi úrklippingu og gangbretti. Það er að öllum líkindum soldið vandaverk að föndra svoleiðis ef vel á að vera ásamt suðuvinnu. Þá þarftu líklega að skipta um drifhlutföll. Ég þekki ekkki hvað fæst í þessa bíla en þú getur skoðað það í umboðinu.

    Og hvernig reynist svo farartækið eftir svona breytingu. Jú ef þú ætlar að keyra í snjó þá þarftu annan bíl til að draga þig og ekki gera ráð fyrir langferð því þú verður oft fastur. Önnur aðferð er að hafa nóg þrek til að moka. Ég er hins vegar viss um að svona bíll virkar vel í sumarakstri eða með 35" breytingu.

    Gangi þér vel
    Elvar





    09.02.2005 at 16:05 #516364
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Þetta er eitthvað sem neytendasamtökin ættu að svara.

    Í flókinni viðgerð geta verið mörg atriði sem geta haft áhrif á viðgerðina. Mig grunar að sönnunarbyrðin sé hjá neytandanum um að sýna fram á að viðgerðin hafi verið ófullnægjandi og enginn hlutur hafi haft áhrif á sem ekki var gert við.

    Gangi þér vel
    Elvar





    09.02.2005 at 14:20 #516288
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Ef útreikningur Sigga_F reynist réttur þá finnst mér verð í kringum 30 þús nokkuð mikið, en vera má að það sé ekki óeðlilegt ef talan er rökstudd. Ég tek fram að ég er sjálfur á nýjum dekkjum og því ekki með í pakkanum.

    Það er eðlilegt að þeir sem flytja inn fái eitthvað fyrir sinn snúð. Það sem innflytjandi á hins vegar að borga endanlegum neytendum fyrir er þessi gríðarlega viðskiptavild sem felst í því að geta selt í kringum 200 stk á einu bretti og finnst mér það ekki vera sérstaklega lítil viðskipti. Sérstaklega þegar tekið er með í reikninginn að viðkomandi nær sjálfsagt nánast öllum viðskiptum við umfelgun líka og ekki er það ókeypis. Hvernig greiðir innflytjandi fyrir viðskiptavildina…. með betra verði og hóflegri álagningu.

    Gefum okkur að umfelgun með jafnvægisstillingu kosti 10 þús miðað við 4 dekk undir bíl og verð á dekk sé 25 þús. og fjöldi dekkja sé 200. þá er heildar pakkinn á þessu 5,5 milljónir.
    Sé verðið á hvert stykki hins vegar 30 þús þá er verð heildarpakkans 6,5 milljónir

    Hvað finnst mönnum eðlilegt að innflutningsaðili fái útúr þessu?

    Er ekki eðlilegt að innflutninsaðili leggi spilin á borðið og segi frá því sem hann ætlar að ná útúr þessu.

    Gangi ykkur vel að kaupa dekk og megi verðið vera sem sanngjarnast

    Kveðja
    Elvar





    09.02.2005 at 09:09 #515950
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Eitthvað hefur fyrri póstur skolast til og þar var slys.
    Ég vildi sagt hafa:

    Minnir að þetta var í tools – options

    Gangi þér vel
    Elvar





    08.02.2005 at 16:51 #516060
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Ætli svona stykki nái nokkuð að bæla dekkin fyrr en í 2 pundum.

    Elvar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 350 total)
← 1 … 5 6 7 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.