Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.10.2004 at 23:18 #506814
Nú fer ekki á milli mála hvar þú átt að þurka handklæðið. Þú gætir meira að segja tengt vatnið á vélinni í gegnum rörið þá er þetta sko farið að gera gagn.
Að öllu gríni slepptu þá er þetta fín lausn hjá þér, ekki skaðar að hún virðist ódýr í krónum talið.
Elvar
25.10.2004 at 23:15 #507032Þú ert hugsanlega að græða einhver hestöfl við þetta, þe. þá fer ekki orka vélarinnar í að snúa spaðanum heldur eyðist af geyminum, en þá þarf líka alternatorinn að hafa undan þessu.
Elvar
25.10.2004 at 23:11 #507050Mig minnir að ég hafi keypt beyjanlegan stút úr málmi hjá Esso fyrir tveim árum. Hringdu í þá og spurðu.
Elvar
25.10.2004 at 16:02 #506864Auðvitað segirðu snjóakkeri af því að þú átt svoleiðis Ég hefði sagt spil af því ég á svoleiðis.
Dynex
Gps með litlum skjá og tölva EÐA gps með litaskjá
25.10.2004 at 09:03 #506820Loftpúðar
boddíhækkun eða klippa mikið úr
22.10.2004 at 15:23 #506630Fastur,
enga vitleysu í því að gera kröfur um aðbúnað. Þú gætir nú haft vit á því að breiða yfir þig hárið ef þér er kalt á meðan þú sefur.Elvar
ps. þú gæri líka tekið lokk úr hala þínum og troðið í vindgatið.
20.10.2004 at 08:45 #506376Sæll,
Hvað með handkastara? Það getur verið ágætur kostur að vera með öflugan handkastara. Kostar 5-10 sinnum minna, getur farið með hann frá bílnum og auðveldara að komast inní bílskúr.
Gangi þér vel.
Elvar
18.10.2004 at 15:02 #506310Sæll Atli,
Eins og þú veist tekur því varla að vera að prútta um hálfan kassa af bjór til eða frá. Þannig að þér er óhætt að gefa mér tvær kippur, þú lætur skera helminginn af dekkjunum í strimla og prófar svo að keyra aðeins. Ef þér líkar við þetta máttu fara aftur í gegnum ferlið og þú færir mér þá væntanlega tvær kippur í leiðinni
Án gríns
Vertu ekki að hika við þetta, skelltu þessu í gegnum flipaskuðinn og fáðu þér örlítið minni bjór á kvöldin í smá tíma og þér mun líka vel.Kveðja
Elvar
17.10.2004 at 22:33 #506252Sælir
Getur verið að það sé ekki leyfilegt að hafa logandi ljós í gangbrettum?
Elvar
17.10.2004 at 22:28 #506290Sælir,
Ég man ekki betur en það fylgdi eitthvað test með Visual Series (Navtrek) þar sem þú gast prófað samskiptin og séð hvort tækið sé að senda gögn.
Testið sýndi gögnin sem koma inná serialportið.
Ég var í vandræðum með með gamla tölvu, var með win 98 á henni og aldrei var hægt að koma samskiptunu á hreint. Tækið byrjaði að senda gögn en tölvan hætti að móttaka eftir stutta stund. Ég skipti um stýrikerfi, fór í Win 2000 og þá rúllaði þetta í gegn.
Nú svo er náttúrulega bara að veiða upplýsingar uppúr þjónustuaðila tækjanna og fá að vita hvort það þurfi að stilla tækið eitthvað sérstaklega.
Upload/download fídusinn….
Getur verið að það þurfi einhvern spes driver fyrir þetta.Þegar þú finnur útúr þessu þá kannski missir þú lausnina inná þennan þráð.
Gangi þér vel
Elvar
21.09.2004 at 12:36 #506108Þetta getur ekki komist í framkvæmd af skynsemisástæðum. Má benda á að önnur faratæki sem taka jafn mikið eða meira pláss eru oft á tíðum meira umhverfismengandi og valda meira sliti á vegum.
Dæmi: Gröfur, vörubílar, flutningabílar.
Það þarf engan geimvísindamann til að "reikna" út að þessi hugmynd er heimskuleg og vanhugsuð. Þetta væri náttúrulega liður í því að aðstoða við að murka lífið úr miðbænum. Sem mér skilst að eigi nú þegar undir högg að sækja.
Ég trúi því amk. að leyft verði áfram að aka um á jeppum í Kópavogi og þar með Smáralindinni.Elvar
14.09.2004 at 08:59 #505732Hefur einhver séð þetta ágæta farartæki eftir að þessi mynd var tekin? Ekki vera svo viss umm að farartækinu hefur verið komið til byggða. Farartækið hvílir kannski lúin bein á botni sprungu.
Svartsýniskveðjur
Elvar
08.09.2004 at 09:47 #505496Sælir,
Ég þekki ekkert inná þessa vél sem þú ert með en ég hef heyrt að hvítan reyk má stundum rekja til þess að eitthvað vatn komist inná vélina. Til að fullvissa þig um það áður en þú leggur í mikla vinnu við að skipta um hedpakkningu þá skaltu opna lofthreinsarann og kanna hvort þar sé raki.
Önnur merki um að hedpakkning sé farin ættu að vera td. að hann dælir vatninu af sér eða eitthvað þess háttar.
Annars getur þú breytt þér í mink til að komast að í þessum þrengslum.
Gangi þér vel
Elvar
06.09.2004 at 16:11 #194612Lyklar að skálanum eru nú í öryggishólfi og er hægt að nálgast talnarunu til að opna öryggishólfið. Mér finnst þetta skemmtileg tilraun og áhugavert að sjá hvernig þetta mun koma út.
Mig langaði bara að forvitnast um það hvort þeir aðilar sem maður þarf að hringja í eru nánast alltaf við síman og hvort nöfn þeirra og símanúmer eru aðgengileg við hurðina á skálanum.
Með von um að skálagjöld innheimtist vel í framhaldinu.
Kveðja
Elvar Níelsson
03.09.2004 at 14:13 #505300Sælir
Það er líka fyrirtæki í Kópavoginum við hliðiná Toyota sem er að fást við þetta. Ég trúi ekki öðru en að þeir sem eru að selja þetta geti gefið upplýsingar um hvort þetta rispist.
Hef heyrt tölur í kringum 30 þús í fólksbíl ódýrast.
Sömu leiðis hef ég heyrt að rúður sem eru til hliðar við sæti bílstjóra (bæði vinstri og hægri) þegar sætið er í öftustu stöðu megi ekki vera með filmum. Hins vegar má vera með litað gler, skrítið en svona er það.
Ég held að það borgi sig að fá fagaðila til að setja filmur í, prófaði nefnilega sjálfur með speglafilmu um daginn í tvær rúður að vísu var ég að flýta mér soldið að þessu og þetta er ekki eins auðvelt og maður gæti haldið.Best er að taka rúðurnar úr til að filman leggist vel.
En ef þú ætlar að setja þetta sjálfur í þá er ein regla og hún er að þú átt að strjúka filmuna frá miðju gleri og út að kanti, þe. ýta loftbólum undan með mjúkri sköfu sem rispar ekki filmuna.Vona að þetta hjálpi eitthvað og gangi þér vel.
Elvar
02.09.2004 at 16:42 #505260Annar mótor er nauðsynlegur eins og þú bendir á og auka millikassi er að ég held æskilegur líka, amk. ef vel á að vera. Orginal 2,4 dísilhrossið er of mátlaust enda dugar rétt svo til að snúa 38 tommunni.
Miðað við það sem menn hafa sagt um patrol á 44 versus 38 er að það sé mikill munur. Ég get ekki annað en ímyndað mér að munurinn sé sambærilegur óháð bíltegund.
Hvaða mótor ert þú annars að hugsa um?
kveðja
Elvar
04.08.2004 at 16:23 #505092Sælir félagar,
Bílaleigan Atlas-Greiði ehf benti mér á góðan mann sem á svona bíl. Sími 5653800
Kann ekki við að gefa upp beint númer til eiganda bílsins en þeir á bílaleigunni vita allt um málið.
Samdi við eiganda bílsins um afnot, reykjavík – stykkishólmur – reykjavík
Gott og sanngjarnt verð.Kveðja Elvar
27.07.2004 at 14:38 #505086Leigði mér pallbíl sérhæfðan til bílaflutninga. Búinn að sækja jeppann.
Pallbíll mun hentugri en kerra sem er uppá von og óvon hvort bíllinn passar uppá kerruna, spurning hvort bíllinn sem dregur þoli álagið ásamt því sem krókurinn er sjaldnast í réttri hæð fyrir tveggja hásinga kerrur.
Mæli með pallbíl frekar en kerru.
Kveðjur
Elvar
26.07.2004 at 12:08 #194577Mig vantar kerru til að flytja breyttan jeppa á.
Búinn að prófa þessa aðila: byko, húsasmiðjan, nokkrar bílaleigur, Sindri, kraftvélarGóðar hugmyndir vel þegnar.
Elvar
gsm 693 5252
16.06.2004 at 09:56 #503870Ég kannast ekki við að hafa ekið þessu apparati, þar var bara "hjá már" eins og stendur í póstinum.
Hringdu í mig ef þú vilt bulla Fastur.
Elvar
-
AuthorReplies