Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.02.2003 at 16:05 #467858
Hvað var lada sport buin að vera á markaði í mörg ár áður en gormar eða sídrif sáust fyrist á toyotu jeppa?
04.02.2003 at 14:51 #467836Ég er ekki samála því að hlutir séu algerlega óútreiknalegir á fjöllum. Veðrið var algerlega í samræmi við veðurspár, það var búin að vera talsverð úrkoma í vikunni á undan, sem bendir til snjókomu, því meiri sem hærra er farið. Klakksleiðin liggur hæra en aðrar leiðir og þar er líka meira af ám og brekkum á öðrum leiðum.
Mér finnst líka eðlilegt að ætlast til þess að þeir sem skipulggja ferðir á vegum klúbbsins hafi NMT síma númer þeirra sem greiða fyrir þáttöku í ferðinni. Klúbburinn hefur útbúið félagatal sem ætti að vera með í ferðum á vegum klúbbsins.
Sumir virðast halda að ef þeir eru í bíl með Toyota merki á húddinu og 38" dekk, þá komist þeir hvað sem er. Þetta er mikill misskilningur, þegar er mikill nýfallinn snjór þá eru aðstæður oft þannig að engir bílar ráða við þær.
02.02.2003 at 08:09 #467438Hvort var það klukkan 02:30 eða 04:30 sem þeir komu í skála?
Hvað gerir það í klukkutímum?
01.02.2003 at 23:32 #467424Klukkan 11 var vindhraði í Setrinu kominn í tæpa 15m/s (18 í hviðum).
[img:32xb79ie]http://www3.vegag.is/faerd/linurit/vindur091.gif[/img:32xb79ie]
31.01.2003 at 13:30 #467352það er áberandi hjá mörgum þeim sem vilja að virkja sem mest og víðast, að vilja ritskoða umræðu um þessi mál. Það er lítill en hávær hópur innan klúbbins sem er svipaðs sinnis. Ég er sammála Matta um að þarna er um að ræða eitt stærsta hagsmumamál þeirra sem nota jeppa til að ferðast um landið.
Þar sem það er hlutverk klúbbins að gæta hagsmuna okkar, þá kemst hann ekki hjá því að tjá sig, fyrr eða síðar, annars getur hann alt eins lagt sig niður.
31.01.2003 at 06:16 #467312Hluti af pakkanum er að gera stíflu í Þjórsárkvíslum austan friðlandsins og að veita hluta af vatninu í Þjórsárlón og þar með í Kvíslaveitur. Þetta er sagt vera til að draga úr kostnaði við dælingu og til að safna aur. Líklega veldur þetta 10-20% minnkun á rensli við Sóleyjarhöfða frá því sem nú er.
31.01.2003 at 06:09 #467358Mér hefur aldrei dottið í hug að setja annað en stálfelgur undir mína jeppa. Ég hef heldur aldrei verið með soðna kanta, á þeim 12 árum sem ég hef stundað að sleppa lofti úr dekkjum, hef ég tvisvar affelgað, í fyrra skipið í jökulsprungu á Öræfajökli, hitt skiptið við að aka á grjót í Dómadalshrauni.
31.01.2003 at 06:02 #467320Föst "framlegð" gengur ekki á markaði þar sem raunveruleg samkeppni ríkir. Ef ég fer að kaupa dekk, þá skiptir það mig ekki máli hvort það var flutt inn þegar dollarinn var 105 eða 75. Ef það er hægt að útvega dekk sem keypt eru á gengi 80, þá kaupir enginn heilvita maður dekk sem verðlögð eru miðað við hærra gengi.
Hegðun olíufélaganna er til vitnis um það að á þeim markaði er ekki raunveruleg samkeppni.
30.01.2003 at 09:19 #467202Það er áreiðanlega rétt hafa þrýstskynarann sem sjórnar túrbínuinni við soggreinina. Þá truflar þrýstifall í millikæli og slöngum ekki stýringu túrbínunnar. þetta hefur ekkert með hitastig að gera, það verður alltaf eitthvert viðnmám í slöngum og millikæli (þessvegna er reynt að hafa þessar slöngur eins sverar og kostur er).
30.01.2003 at 09:06 #467270Hver var það snéri liðhúsunum fyrir þig, Gunnar?
28.01.2003 at 14:20 #467170Ég held ekki að þetta sé spurning um hvort heldur hvenær.
Það sem helst stendur í vegi fyrir inngöngu nú er gjafakvótakerfið með þeirri forsjárhyggju og handsýringu í sjávarútvegi því fylgja.
Breytingar þær sem orðið hafa vegna EFTA og EES á Íslandi hafa átt stærri hlut í að bæta lífsjkjör hér en öll samanlögð stóriðja. Nú hefur skapast grunvöllur fyrir alvöru inðþróun sem er forsenda þess að það verði lífvænlegt á Íslandi í framtíðinni. Eitt dæmi um svona iðnað er lyfjaframleiðsla, sem hæfði aldrei þróast ef stóriðjuglópar inðanarráðuneytisins hefðu ráðið ferðinni.
Ein af afleiðingum þess að vera utan við EU er að vextir á Íslandi eru miklu hærri en þar sem byggt er á evrunni. Önnur er að þessir stjórnmálamenn sem við álpumst til að kjósa yfir okkur klúðra stjórn efnahagsmála reglulega. Þær sveiflur sem verið hafa í Íslensku efnahagslífi síðan um síðustu Alþingiskosningar er dæmi um afleiðingar af lélegri hagsjórn á Íslandi. Þó ástandið hafi mikið batnað frá því sem var fyrir 20-30 árum síðan, þá gæti það verið miklu betra.
Þetta þýðir að við verðum að halda vöku okkar og sjá til þess að við gleymumst ekki þegar farið verður í aðildarviðræður.
28.01.2003 at 11:15 #467132Ég er sammála þeirri túlkun, sem kom fram í sjónvarpsfréttum í gærköldi, að skýringu á þessu hlýtur að vera að finna hjá ökumönnum. Orsakir langflestra slysa tengjast ökumanninum, ekki ökutækinu.
Það kemur ekki fram hvort bílaleigubílar voru með í úrtakinu. Mér finnst ólíklegt að það myndi breyta niðurstöðunni. Flest slysin í þessari könnun eru innanbæjar, flest banaslys verða hinsvegar þar sem leyfður hámarkshraði er yfir 70 km/klst.
Þar sem munur á slysatíðni breyttra jeppa er enn meiri á vegum úti en innanbæjar, þá er þarna vísbending um að hlutur breyttra jeppa sé enn minni í alvarlegum slysum en öllum óhöppum.
Fjöldi tilfella sem Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur rannsakað, þar sem breyttir jeppar koma við sögu getur passað við þetta en tilvikin eru svo fá að ekki er hægt að draga neinar tölfræðilegar ályktanir.
28.01.2003 at 08:16 #466848Þessi [url=http://www.opussolutions.com/150watt.html:tfapk95g]aflgjafi[/url:tfapk95g] notar 12 (eða 24) volt og er sérstaklega hannaður til notkunar í bíl. Verð er USD 190 (180 án kassa og viftu).
27.01.2003 at 20:07 #467124Skýrslan sem Orion Ráðgjöf gerðu um rannskóknina er [url=http://www.orion.is/jeppar:6t4wwc4r]á netinu[/url:6t4wwc4r].
Ég er búinn að renna lauslega yfir hana. Niðurstaðan er í rauninni ótrúlega hagstæð fyrir breyttu jeppana. Þar kemur fram óverulegur munur á notkun og akstri breyttra og óbreyttra jeppa að því undanskyldu að slysatíðna breyttra jeppa er [b:6t4wwc4r]innan við helmingur[/b:6t4wwc4r] af slysatíðni óbreyttra jeppa. 95% skekkjumörk eru frá 0.236 til 0.436.
27.01.2003 at 08:23 #466448Eins og [url=http://www.vedur.is/ta/eftirlit/setur:3qherf0t]hér má sjá[/url:3qherf0t] heldur áfram að bæta á snjóinn við Setrið þó það rigni í Reykjavík.
26.01.2003 at 14:17 #467018Ég hef notað [url=http://www.anali.demon.co.uk/gardown.htm:3h1vzee6]Gardown[/url:3h1vzee6] til að flytja gögn milli Garmin og tölvu.
[url=http://gpsdrive.kraftvoll.at/index.shtml:3h1vzee6]Gpsdrive[/url:3h1vzee6] inniheldur forit fyrir [url]Linux[/url].
25.01.2003 at 14:34 #466846Kostirnir sem ég sé við að hafa tölvu í bílnum er að fá fyrirhafnarlausa söfnun á öllum trökkum, og þægilegri stýring á loftpúðum. Tölvan og gps tækið yrðu alltaf í bílnum og myndu sjá um að safna trökkum sjálfvirkt. Ennfremur er hægt að nota tölvuna til að spila (þjappaða) tónlist.
Vélbúnaðurinn sem ég myndi nota er ódýrari en notuð ferðatölva, c.a. 20.000 fyrir tölvuna, skjár og harður diskur yrðu notaðir hlutir sem ég á til eða hægt er að fá fyrir lítið.
Ef ég nota 13" vga skjá við tölvuna, þá getur hann verið fastur í bílnum, ég hef ekki áhyggjur af því að honum verði stolið 😉
24.01.2003 at 16:48 #466838Ég fletti upp verði á Compaq TC1000, það reyndist um 1800 dollarar, eða c.a. 6 falt verð VIA EPIC kerfis, án skjás. Ég er ekki tilbúinn að borga svona mikið fyrir skjáinn, enda á ég tvær gamlar ferðatölvur með vel nothæfum skjá. Ég hef líka velt því fyrir mér að nota gamlan 13 tommu VGA skjá sem ég á.
24.01.2003 at 16:43 #466938Það er rétt hjá Emil, að það skptir ekki hvort það er vatn aðrar lofttegundir sem þenjast út í brunahólfi vélarinnar. Raunar er stór hluti af því gasi sem myndar við bennslu á olíu eða bensíni, vatnsgufa. Við þann hita og þrýsting sem er í brunahólfi vélar, er munur á rúmáli vatns og gufu miklu minni en 1:1700.
24.01.2003 at 14:26 #466834Mér sýnist að [url=http://www.mini-itx.com/faq.asp:zezmv03j]tölvan[/url:zezmv03j] sem Arnór vísar á henti mjög vel til að nota í bíl. Velin er með öllum algengum tengingum og getur keyrt bæði Windows and Linux. Hægt er að fá aflgjafa sem fyrir 12 volt og það er hægt að draga úr aflnotkun með því að hægja á vélinni þegar álag er lítið.
[img:zezmv03j]http://www.viaarena.com/htmlimages/epiam%20007.jpg[/img:zezmv03j]
Myndin sýnir tengingar á móðurborðinu.
Verð á móðurborði með örgjörva og kassa með 12 volta aflgjafa er um 130 pund. Hægt er að fara í 1GB í minni. Diska, lyklaborð og þess háttar er hægt að kaupa á [url=http://www.molar.is/listar/partalistinn:zezmv03j]partalistanum[/url:zezmv03j]. Þar sem vélin er með nettengi, er einfalt að nota verðatölv fyrir skjá og lyklaborð.
-
AuthorReplies