Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.01.2002 at 07:21 #191278
Eru eitthverjar bílaleigur sem hafa breytta jeppa til leigu? Hverjar?
Það væri gaman að frétta af því hvaða reynslu menn hafa af því að leigja jeppa til snjóaksturs.
26.12.2001 at 16:17 #458188Það er nokkuð góð veðurspá nú, þá að að vera frekar hvasst
á fimmtudag og föstudag en lægja á laugardag. Ef það
breytist ekki, þá verður ferðinni tæplega frestað.
En það er ætlunin að fara fleiri ferðir.Ef áhugasamir klúbbfélagar gefa sig fram sem fararstjóra
eða leiðbeinendur, þá umhverfsnefndin aðstoða við skipulagingu.Ábendingar, t.d. um áhugaverða áfangastaði, eru vel þegnar.
22.12.2001 at 10:11 #458184Nú er frost á hálendinu, og spáð vaxandi frosti eins langt
og spar ná (fram á föstudag). Spám ber ekki alveg saman
varðandi úrkomu en það lítur út fyrir snjókum á hálendinu
í dag og aftur á miðvikudag. Nú eru 8 bílar búnir að
melda sig í ferðina, líklega 19 einstaklingar, þannig að
það stefnir í góða nýtingu á skálaplássi.
20.12.2001 at 14:41 #458182Nú eru 21 búnir að skrá sig á póstlistann, þar af
6 bókaðir í Jökulheima. Það er hægt að skoða listann á
http://um44.klaki.net/tengsl.html
Nú er því spáð að það frysti um jólin, kannske snjóar líka
19.12.2001 at 17:02 #458180Líklega er ekki mikill snjór á leiðinni inn í Jökulheima.
Það eru pistlar um fæarð þarna á síðunni
(https://old.f4x4.is/faerd ). En það er snjór á Vatnajökli,
ef það reynist sumarfæri í Jökulheima, þá getur
maður notað það sem eftir dagsins til að skoða snjóinn á
jöklinum. Ef jökullinn reynist greiðfær, þá er möguleiki
að gista á Grímsfjalli.Það virðist fara heldur kólnandi, nú er hiti á þessum
slóðum nærri frostmarkinu spáð kólnandi, a.m.k. næstu
daga. Þetta gæti staðið til bóta.
19.12.2001 at 00:04 #191238Áformað er að fara nýliðaferð á vegum umhverfisnefndar 4×4 í Jökulheima þann
29-30. desember n.k.Gert er ráð fyrir að hópurinn saman í Hrauneyjum klukkan 8:30 að morgni
laugardags. Menn geta valið hvort þeir gista í Hrauneyjum eða vakna snemma. Í
Hrauneyjum er hægt að fylla á eldsneytistanka. Farið veður frá Hrauneyjum
ekki seinna klukkan 9 og ekið framhjá Sigöldu og Vatnsfells virkjunum sem leið
liggur að skála Jöklarannsókarfélagsins í Jökulheimum. Verði færi gott þá verður
tími til að að skoða nágrennið, t.d. aka upp á Tungnárjökul eða um Breiðbak í átt
að Langasjó. Verði færi á Jöklinum sérlega gott, þá er hugsanlegt að fara á
Grímsfjall. Gist veður í Jökulheimum (eða á Grímsfjalli) og haldið heim á
Sunnudeginum.Frekari upplýsingar eru á http://um44.klaki.net
16.12.2001 at 21:19 #458160Þannig var það einusinni en ekki lengur. Nú þarf hvorki að
borga stofngjald né skifta um númer.
16.12.2001 at 08:05 #191235Þeir sem eru með NMT síma í almennri áskrift geta lækkað
mánaðargjaldið um meira en helming með því að breyta
áskriftinni í frístunda áskrift. Einnig lækkar mínútugjaldið
utan vinnutíma. Þetta kostar bara eitt símtal í 800-7000.
Gjaldskráin er á http://www.simi.is/control/index?pid=6534
15.12.2001 at 18:32 #45814415.12.2001 at 18:30 #458142Í síðasta setri er sagt frá nýliðaferðum sem umhverfisnefnd
ætlar að skipuleggja með hjálp netsins og tölvupósts.
Skráining og frekari upplýsingar eru á
03.12.2001 at 16:33 #457610Þar sem ég er með háskólapróf í eðlisfræði, þykist hafa
nægilegt vit á viðfangsefninu til að fullyrða að það
hefur engin áhrif að elsneytiseyðslu eða afl, að hengja
segul á besnínslönguna.Ég get líka tekið undir það að ég man ekki eftir því að hafa
séð svona fáránlegar lygar í auglýsingu áður eins og eru
á þessari vefsíðu eða sem komu fram hjá umræddum aðila á
mánudagsfundi.Það er hægt að kljúfa öll efni með
breytilegu segulsviði af viðeigandi tíðni og styrk, en það
gerist ekkert slíkt þegar fastur segull er hengdur á
eldsneytiskerfið. Búnaður sem notaði breytilegt
segulsvið til að kljúfa eldsneyti væri flókinn og dýr og
myndi nota meiri orku en sem svarar hugsanlegri aukningu á
orkuframleiðslu vélarinnar.
-
AuthorReplies