FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,901 through 1,920 (of 2,171 total)
← 1 … 95 96 97 … 109 →
  • Author
    Replies
  • 04.03.2003 at 09:50 #469776
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    [url=http://klaki.net/gutti/03mar02.html:19wsqsyc]Hér[/url:19wsqsyc] eru myndir sem teknar voru sunnudaginn 2/3 í nágrenni Heklu.

    -Einar





    03.03.2003 at 15:10 #469944
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Hversu algengt er það að loftlæsingar frjósi fastar?





    03.03.2003 at 09:37 #469550
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég vil taka undur það sem Björn Þorri segir. Gerði góðan túr á sunnudaginn fyrir austan Heklu. Fórum upp frá Keldum og
    fylgdum Hekluveginum sem umhversinefndin stikaði haustið 2001.

    Fyrir ofan 650m hæð var allt á kafi í snjó, þar sást ekki í eina einustu stiku. Fórum norður á Dómadalsleið austan Hestöldu, þar var þröngt á stöku stað. Urðum varir við krapa í c.a. 600 hæð sunnan Vatnafjalla og norðan við Mundafell.

    -Einar





    03.03.2003 at 09:30 #469760
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í a.m.k. sumum bílum eru mótstaða raðtengd við háspennukeflið. Í startinu er tengt framhjá þessari mótstöðu. Það þarf því ekki að vera neitt óeðlilegt við að á háspennukeflinu mælist undir 12 voltum. Ég lenti einu sinni á því að þessi mótstaða brann yfir, þá rauk bíllinn í gang en drap á sér um leið og hætt var að starta.

    Þetta hljómar líkt lélegu sambandi, t.d. jarðtengu frá geymi. Það mætti reyna að finna hvort það eru merki um hita eitt hversstaðar í rás milli startara og geymis.





    28.02.2003 at 21:13 #469360
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þegar Stalín var upp á sitt besta í Sovét, þá voru framfarir mældar með þungaiðnaði og stóriðju. Flestir vita hvar það endaði. Stóriðjueinstefna íslenskra stjórnmálamanna hefur lengi minnt mig á iðnvæðingu Stalíns.





    28.02.2003 at 13:39 #469652
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef aldrei ekið á ís þarna, nema kannske yfir ána sem rennur í vatnið. Ég hef staðið í þeirri meiningu að vatnsborðið fari ekki svo hátt að ekki sé hægt að komast gömlu leiðina án þess að fara út á ísinn, en myndirnar benda til annars.
    Eitt af því sem byrjendur í vetrarferðum læra er að besta leiðin inn á hálendið af suðvesturhorninu er frá Gjábakkavegi um Bragabót.
    Líklega væri ekki vitlaust að taka saman upplýsingar um leiðir fyrir byrjendur og setja á áberandi stað á vefnum. Þetta er eitt af því sem þar ætti heima.





    28.02.2003 at 01:33 #469644
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Sandkluftavatn hefur ekki afrennsli á yfirborði, en í það rennur á sem getur orðið talsvert vatnsmikil í rigningatíð. Vegna þessa getur hæð vatnsborðs sveiflast um marga metra. Seinni hluta sumars verður það oft mjög lítið en þegar mikið rignir að vetrarlagi verður vatnsdýpi á veginum meðfram vatninu oft hátt á annan meter.

    Nú er Uxahryggjavegur vestan vatnsins, en lá austan þess fyrir 1980. Gamli vegurinn er heldur skárri á veturna þar sem hann liggur ekki eins nærri vatninu og hliðarhalli er minni. Nýi vegurinn liggur í sneiðingi í brattri hlíð við Meyjarsæti, þar verður oft ófært.

    Það er alls ekki hægt að treysta því að það sé hægt að komast þarna að vetrarlagi.

    -Einar





    27.02.2003 at 14:25 #469570
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Jeep Wrangler og Jeep Cherokee eru um eða innan við 1700kg viktaðir á stórum hjólum. Um 1500 óbreyttir.





    27.02.2003 at 12:43 #469344
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það var sagt frá því í hádegisfréttum í dag, að iðnaðarráðumeytið ætti í viðkvæmum samningaviðræðum við Eftirlistsstofnun EFTA (ESA) um það hvort styrkirnir til Alcoa stæðust reglur Evrópska efnahafssvæðisins. Það virðist ganga erfiðlega að sannfæra ESA um að styrkir til Alcoa standist reglur EEA.

    Það tapa allir á Kárahnjúkavirkjun.

    -Einar





    27.02.2003 at 10:47 #469340
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég er alls ekki á móti álverum eða virkjunum sem slíkum, enda starfaði ég tæpan áratug á Orkustofnun. Ég er á móti því að einstakar atvinnugreinar eða fyrirtæki séu styrkt sérstaklega, t.d. með sér skattalögum og niðurgreiðslum á aðföngum.

    Einnig tel ég að þeir aðilar sem fá að nýta náttúruauðlindir íslendinga eigi að greiða eðlilegt gjald fyrir afnotin
    .
    Ég vil að náttúran sé látin njóta vafans og að henni sé því aðeins raskað, að af því sé ótvíræður hagur.

    Öruggasta að ferðin til að tryggja þetta er að sjálfstæð fyrirtæki sjái um slíkar framkvæmdir, og að þau greiði fyrir afnot af auðlindum og mengun sem þau valda.





    27.02.2003 at 10:16 #469336
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það sem jsk segir hér er að mestu leiti rangt. Þeir óháðu hagfræðingar sem tjáð hafa sig um málið hafa flestir komist að þeirri niðurstöðu að virkjunin sem slík uppfylli ekki þær arðsemiskröfur sem eðlilegt er að gera til slíkra framkvæmda.

    Stjórnarformaður Landsvirkjunar hefur ítrekað viðurkennt að ríkisábyrgðin sé forsenda þess að virkjunin verði byggð. Þær úttektir sem gerðar voru áður en Reykjavíkurborg samþykkti sína ábyrgð, sögðu einfaldlega að það væir ólíklegt að tapið á virkjunni yrði svo mikið að Landsvirkjun kæmist í þrot þessvegna. Þetta byggir á því að Landsvirkjun kemst upp með að láta almenningsveitur borga allt að þrisvar sinnum hærra orkuverð en stóriðjuna.

    Ég efast ekki um það að Norðurál og stækkunin í Straumsvík hafi verið hagkvæmar sem slíkar, vegna þess að þar fékkst loksins markaður fyrir rafmagn frá virkjunum á Þjórsársvæðinu og Blöndu, sem byggðar voru mörgum árum áður, og enginn kaupandi hafði fundist að.





    27.02.2003 at 08:21 #469328
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er í dag sem gengið verður frá Hlemmi klukkan 5.

    Það er vissulega merkilegt hversu stuðningsmönnum áformaðra náttúruspjalla norðan Vatnajökuls, er illa við alla umfjölln og umræðu um þetta og skyld mál.

    Það hefur komið fram í fréttum undanfarnar vikur að vaxtahækkanir sem Seðlabankinn mun standa fyrir, til að draga úr verðbólgu vegna framkvæmda tengdra Káranjúkavirkjun, munu bitna harðast á fyrirtækjum sem eru í alþjóðlegri samkeppni.

    Þetta mun skerða lífskjör á Íslandi til framtíðar, mun meira en sem nemur ávinningnum af álframleiðslu fyrir austan.

    Það tapa allir á Kárahnjúkavirkjun.

    -Einar





    26.02.2003 at 11:15 #469390
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þeir gerast málefnalegir, talsmenn Toy umboðsins. 120 = 90.





    26.02.2003 at 09:11 #469384
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er tómt bull að 80% þeirra bíla sem notaðir séu í fjallaferðir séu seldar af Toyota umboðinu.

    Fyrir um það bil 5 árum var nærri því helmingur þeirra bíla sem maður sá á fjöllum af tegundinni Toyota, en margir þeirra voru fluttir inn framhjá umboðinu, t.d. flestir 4runner bílar eldri en 90.

    Síðan hefur hlutfall Toy bíla á fjöllum lækkað verulega. T.d. held ég að um eða innan við þriðjungur þeirra bíla sem voru [url=http://klaki.net/gutti/0302:1hqhreps]Þjófahrauni[/url:1hqhreps] á laugardaginn var, hafi verið Toyotur.





    25.02.2003 at 10:39 #469190
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef þessi kona hefði verið á strigaskóm og jeppa hefði hún uppfylt skilyrðin sem Muffin taldu upp hér að ofan, til að verða rukkuð. Ég get alveg tekið undir það að þetta sé til skammar.





    25.02.2003 at 09:04 #469184
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Mennirnir sem urðu kveikjan að þessum þræði voru villtir. Merkingar á Íslenskum þjóðvegum eru alveg fáránlega lélegar, numer vega eru aðens merkt á vegamótum.
    Fyrir nokkrum árum það var kona úti vegna þess að hún ætlaði að aka Kjósarskarð en fór inn á Uxahryggjaleið. Ef þessi kona hefði haft farsíma, hvað ætli sveitin hans Muffins hefði sett upp fyrir að aðstoða hana?





    25.02.2003 at 05:36 #469180
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Mér kom það á óvart, sem kom fram hjá Muffin hér að ofan, að til væru björgunarsveitir sem rukkuðu þá sem sýndu af sér, að mati björgunarsveitarinnar, skort á fyrirhyggju.
    Nú er það svo að hægt væri að komast hjá flestum þeim uppákomum þar sem menn þurfa að fá aðstoð, með meiri fyrirhyggju, hér er stigsmunur en ekki eðlis.

    Það hefur mátt heyra í fréttum og lesa hér á spjállinu fréttir af ótal ferðalögum, mörg tengd klúbbnum, sem menn hafa lagt í, án þess að taka tillit til veðurspáa. Samanber spaugstofuna um síðustu helgi. Verður ekki næst hjá þessari björgunarsveit að rukka þá sem ákveða ferðir löngu fyirirfram, og breyta áætlunum ekki, þegar í ljós kemur að það verður ekkert ferðaveður?

    Mér sýnist að hér þurfi Landsbjörg að taka til í sínum málum.





    25.02.2003 at 05:36 #469178
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Mér kom það á óvart, sem kom fram hjá Muffin hér að ofan, að til væru björgunarsveitir sem rukkuðu þá sem sýndu af sér, að mati björgunarsveitarinnar, skort á fyrirhyggju.
    Nú er það svo að hægt væri að komast hjá flestum þeim uppákomum þar sem menn þurfa að fá aðstoð, með meiri fyrirhyggju, hér er stigsmunur en ekki eðlis.

    Það hefur mátt heyra í fréttum og lesa hér á spjállinu fréttir af ótal ferðalögum, mörg tengd klúbbnum, sem menn hafa lagt í, án þess að taka tillit til veðurspáa. Samanber spaugstofuna um síðustu helgi. Verður ekki næst hjá þessari björgunarsveit að rukka þá sem ákveða ferðir löngu fyirirfram, og breyta áætlunum ekki, þegar í ljós kemur að það verður ekkert ferðaveður?

    Mér sýnist að hér þurfi Landsbjörg að taka til í sínum málum.





    24.02.2003 at 00:06 #468968
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    [url=http://klaki.net/gutti/0302.html:2wie2c61]Myndir frá Þjófahrauni[/url:2wie2c61] þann 22. febrúar eru á vefnum. Krapi leyndist sumstaðar í lægðum, en auðvelt var að krækja framhjá.
    Sjá líka [url=http://www.f4x4.is/faerd/Index.asp:2wie2c61]"færð á Hálendinu".[/url:2wie2c61]
    -Einar





    23.02.2003 at 14:07 #469054
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég skil ekki hvers vegna menn vilja hafa mun á dempun sundur og saman. Ef það er munur, þá leiðir það til þess að bíllinn hækkar eða lækkar á ósléttum vegi. Mjúk fjöðrun, eins og loftpúðar geta verið, er viðkvæmari fyrir þessu en stíf fjöðrun.

    Ég er mjög sáttur við dempunina hjá mér, ég hef ekki orðið var við að bíllinn lyfti sér á holóttum vegum eða þvottabrettum eins búast mætti við ef samslagið væri meira dempað en sundurslagið. Til að fá betri dempun þá þyrfti hún að vera stillanleg eftir aðstæðum, meiri á úrhleyptu en kannske aðeins mýkri með fullum þrýstingi í dekkjum.

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,901 through 1,920 (of 2,171 total)
← 1 … 95 96 97 … 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.