Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.03.2003 at 07:30 #470650
Það er ekki hægt að útskýra vitleysurnar í 250.000 kortunum með mismunandi kortavörpunum, kortin eru einfaldlega illa gerð. Mér hefur reynst betur að nota 500.000 kortin, þó mælikvarðinn sé minni, þá eru kortin oft mun réttari.
Sjókort eru yfirleitt gerð með Merkator vörpun sem gefur fastan mælikvarða við miðbaug. Á okkar breiddargráðum breytist mælikvarðinn á slíkum kortum mjög hratt frá norði til suðurs. Merkator kort eru auðþekkt á því að lengdarbaugar eru samsíða og bæði lengdar- og breiddarbaugar eru beinarlínur.
Mælikvarði á UTM og Lambert vörpunum, eins eru notaðar á kortum sem Landmælingar dreifa, breytist um innan við 0.1% yfir Ísland.
Á Lambert kortum eru lengdarbaugar beinir en breiddarbogar hringlaga. Hvorugt á við um UTM kort, en munur á UTM og Lambert kortum verður ekki sjáanlegur nema farið sé langt frá þeim baugum sem notaðir eru til viðmiðunar. UTM kort af Íslandi eru annað hvort miðuð við 21°V (zone 27) eða 15°V (zone 28).
17.03.2003 at 15:34 #470976Kíktu á [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=168:2mve07yi]Þennan þráð.[/url:2mve07yi]
17.03.2003 at 08:25 #470856Ég veit það af eigin reynslu að gírkassar í 1988 MMC L-300 komu frá verksmiðju með ónýta kúplingslegu, í mínum bíl splundraðist hún í 67.000 km. Samkæmt Heklu var sami kassi notaður í Pajero til 1989. Þjónustu fulltrúi Heklu laug því að mér að eina vandamálið við gírkassa í L300 væri að öndunin stíflaðist sem orsakað það olían færi á yfir á millikassann. Ekkert slíkt gerðist á mínum bíl, það var byrjað að heyrast í þessari legu í 40.000 km.
Hins vegar bauð hann mér að kaupa nýjan kassa á það sem hann kallaði "hagstæðu verði"Fyrir rúmum tveim árum [url=http://www.usatoday.com/money/consumer/autos/mauto778.htm:3at0bzvj]viðurkenndu yfirmenn MMC[/url:3at0bzvj] að fyrir tækið hefði áratugum saman brotið japönsk lög með því að stinga undir stól upplýsingum um framleiðslugalla í bílum sínum.
Það er ekki ástæða til að ætla annað en þessi mál sú komin í betra horf núna.
Ég hef aldri vitað til að það væri nein vandkvæði að setja hvaða 6 gata felgur sem er, undir MMC. Eitt af því sem veldur því að MMC hentar betur til breytinga en Toyota, er að það er hægt að nota innvíðar felgur.
16.03.2003 at 19:16 #470840Það er rétt hjá emil að hleðsla geymisins hefur mest áhrif á spennuna þegar geymirnn er næstum tómur eða fullur. Ef maður mælir spennu á fullhlöðnum rafgeymi, þá mælast oft um eða yfir 13 volt. Ef geymirinn er afhlaðinn með jöfnum straum fellur spennan fljótt í c.a. 12.6 volt, síðan fellur hún hægt niður i um það bil 12 volt en síðan fellur hún hratt.
16.03.2003 at 09:45 #470878Ég hef lengi haldið því fram að ef kunni ekki að bjarga sér einbíla, þá eigi þeir mikið ólært í jeppamennsku.
[url=http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.php?action=collection&albumid=561&collectionid=776:1wp5jvj7]Þeesar[/url:1wp5jvj7] myndir er gott dæmi um hvað hægt er að gera með skóflu, drullutjakki og smá skynsemi. Ég hef oft losað mig úr svipuðum aðstæðum með því að lyfta bílnum og moka snjó undir hjólin og púkka.
[img:1wp5jvj7]http://klaki.net/gutti/03mar02/t/2003_0302_142103.jpg[/img:1wp5jvj7]
Þessi bíll fór niður um [url=http://klaki.net/gutti/03mar02.html:1wp5jvj7]ís[/url:1wp5jvj7] og var pikkfastur þegar byrjað var að tjakka. Vatnið var það djúpt að það þurfti að byrja á að moka og púkka til þess að fá undurstöðu fyrir tjakkinn.
16.03.2003 at 04:10 #470836Einn af þeim þáttum sem hefur áhrif á spennu rafgeymis er hversu mikið geymirinn er hlaðinn. Þetta sér til þess að tveir hliðtengdir geymar fylgjast nokkurn veginn að í hlutfalli við stærð geymanna, bæði í hleðslu og afhleðslu.
Innra viðnám bílgeyma er það lágt að hleðslu ástandið hefur meiri áhrif en straumurinn á spennuna, nema rétt á meðan verið er að starta.Ég hef oft notað rafgeyma til að knýja mælitæki. Þegar geymarnir eru hlaðnir þá er það gert með því að hliðtengja alla rafgeyma og hleðslutæki, þá skiptir ekki máli þó geymarnir og hleðslutækin sé misstór (meðan allt er 12V).
15.03.2003 at 22:00 #470832Innra viðnám rafgeymis er því minna sem geymirinn er stærri og í betra ástandi. Mort snýr þessu öfugt, því eru niðurstöður hans ekki réttar.
15.03.2003 at 09:47 #470822Óli hefur rétt fyrir sér en Emil ekki, það er ekkert sem mælir gegn því að hliðtengja tvo misstóra geyma, ef báðir eru í lagi. Þeir hlaðast og afhlaðast saman.
Það er svo önnur saga, en ein ástæða til að vera með tvo geyma er að hafa einn til vara ef annar afhleðst, t.d. að vera með start á einum geymi og tölvur, útvarp, miðstöð og þess háttar á öðrum. Þá gengur ekki að hliðtengja geymana beint. Ég held að það sé hægt að fá[i:xpf43oiv]reley[/i:xpf43oiv] til að nota í svona, önnur aðferð er að vera með tvo alternatora. Ég hef líka velt því fyrir mér að nota einn alternator en að vera með tvö sett af afriðla díóðum. Þannig er tryggt að maður hafi rafmagn til að starta bílnum þó maður gleymi tölvu eða útvarpi í gangi. Eins væri hægt að tengja geymana handvirkt saman (t.d. með startkapli) þegar þarf að starta dísel vél í kulda eða startgeymirinn verður straumlaus af einhverjum ástæðum.
Ég var með einfalda útfærslu af þessu sem fólst í því að tengja GPS við lítinn geymi sem var hlaðinn gegnum díóðu frá rafkerfi bílsins. Þetta virkaði mjög vel og kom í veg fyrir að GPS tækið truflaðist vegna spennufalls þegar startað var.
14.03.2003 at 14:01 #470786Á [url=http://www.f4x4.is/faerd/Index.asp:1vqy5ams]færðarsíðunni[/url:1vqy5ams] er sagt að 2-3 mars hafi verið 44" skriðgírsfæri, 2 km/kls, á leiðinni frá Hermannaskarði að Grímsfjalli.
14.03.2003 at 09:43 #470762Ég fór umhverfis [url=http://klaki.net/gutti/03mar02.html:2u0i679w]Heklu[/url:2u0i679w] fyrir 2 vikum. Þar var nægur snjór fyrir gönguskíði fyrir ofan 5-600 metra hæð. Ég myndi mæla með því að fara yfir Tungnaá á nýju brúnni og eftir Búðarhálsinum. Þar er tiltölulega stutt og greið leið frá Hrauneyjum upp á hálsinn sem er í ríflega 600 metra hæð.
Ég fór eftir hálsinum í janúar. Þá var mun minni snjór en nú samkævmt snjódýptarmælinum sem er í um það bil 650 m hæð í [url=http://www.vedur.is/ta/eftirlit/veivh/:2u0i679w]Veiðivatnahrauni[/url:2u0i679w]. Þá var snjór uppi á Búðarhálsinum
13.03.2003 at 08:30 #470710Það voru aðrar ástæður en kostnaður sem réðu því að ég setti 36" dekk undir minn bíl í stað 38". Það er ekki mikill verðmunur á 36×14.5 og 38×15.5 mudderum.
Það sem mestu máli skiptir er flotið sem dekkin gefa, en það fer eftir hlutfallinu milli þungans sem hvílir á hverju hjóli og flatarmáli snertiflatar. Minn bíll er það léttur að ég hef svipað flot á 36" eins og t.d Barbí eða Trooper á 38" og talsvert betra en Patrol eða LC-80.
Stærri dekkjum og breiðari felgum fylgir meira álag á legur og stýrisgang og meiri hætta á því að hásingar bogni, ég valdi 36" dekkin fyrst og fremst til þess að draga úr viðhaldi og hættu á bilnum. Brettakantarnir og drifhlutföllin sem ég nota henta jafnvel fyrir 38" og 36". Það kemur vel til greina að fara í 38" þegar kemur að því að endurnýja dekkin en þá stefni ég á að vera búinn að styrkja framhásinguna.
10.03.2003 at 22:42 #470416Mér finnst þetta snúast um það hvort ferðalög um hálendi Íslands eigi að vera aðgengileg sem flestum, eða fyrst og fremst fyrir þá sem hafa aðstöðu til að kaupa (eða láta fyrirtæki kaupa), tæki undir sig sem kosta frá 5 miljónum og uppúr. Fyrir þá síðarnefndu er verð VHF stöðva hégómi, og ekkert mál að henda gamla draslinu sem er ekki lengur í tísku.
VHF kerfið er lokað öðrum en félögum í 4×4, á maður kannske ekkert að vera taka slíka með sér í ferðir?
Það væri líka gaman að fá uppgefið hver heildarkostnaður klúbbsins af VHF endurvörpum sé orðinn, og hver áætlaður rekstarkostnaður kerfisins sé. Ennfremur hvaða áætlanir hafi legið til grundvallar þegar farið var af stað í ævintírið og hvenær og hvernig félagsmenn voru spurðir álits á fjárútlátunum.
Svo er það dæmigert fyrir Björn Þorra að lesa ekki pistlana sem hann snýr útúr. Ábending mín að hægt væri að hringja í 112 án áskriftar átti við gervitunglasímana, notkunar gjöld eru mjög há þar. Notkun NMT síma er hinsvegar mjög ódýr.
-Einar
10.03.2003 at 16:56 #470394CB er ennþá grunn aðferðin til að tala milli bíla, og NMT skásta leiðin til að tala til byggða.
Til að ná til byggða þar sem NMT nær ekki (aðallega í þröngum dölum) þá er hægt að nota gervitunglasíma. Það á að vera hægt að hringja í 112 án þess að vera með áskrift.
VHF stöðvar eru seldar hér á okurverði og það kostar álíka mikið á ári að vera með skráða stöð, eins og fastagjaldið á NMT síma. VHF stöðvar eru seldar á c.a. þreföldu því verði sem þær kosta í USA meðan t.d. farsímar eru á svipuðu verði.
Tetra er dýrt og virkar sumsstaðar.
09.03.2003 at 17:13 #470198Hvað finnst aðstandendum 1000 bíla ferðarinnar um það hvernig til tókst? Veðrið var eins og best verður á kosið, en hvernig var þátttakan? Gerðist eitthvað sem er í frásögur færandi fyrir utan bílveltu Davíðs?
08.03.2003 at 03:14 #470124Ég hef (og mun) alltaf notað stálfelgur. [list:j23e4vha]Kostir stáls:
[*:j23e4vha]Ódýrara[/*:m:j23e4vha][*:j23e4vha]Auðveldara að breyta, bæði að breikka og færa miðju[/*:m:j23e4vha][*:j23e4vha]Bognar ferkar en að brotna, auðveldara að laga[/*:m:j23e4vha][*:j23e4vha]Auðveldara og öruggara að lyfta bílnum með því að setja drullutjakkinn á felguna[/*:m:j23e4vha][/list:u:j23e4vha][list:j23e4vha]Kostir áls:[*:j23e4vha]Sterkara miðaðvið þyngd[/*:m:j23e4vha][*:j23e4vha]Útlit[/*:m:j23e4vha][/list:u:j23e4vha]
Það gilda engar sér reglur um mynstur jeppadekkja, þannig að lágmarkið er sama á og á fólksbílum (c.a. millimeter). Ef ferðast er í góðum hóp, þá skiftir flotið sem dekkin gefa, mestu máli í fjallaferðum, slitin dekk fljóta ekki síður en ný. Það hættulega við slitin dekk er að þeim hættir við að fleyta kerlingar á vatni, eins og gjarnan safnast þar sem eru hjólför í malbiki. Þessi hætta er því meiri sem dekkin eru breiðari og þrýstingur í þeim lægri.
-Einar
06.03.2003 at 04:59 #470026Hvað með Suzuki umboðið og Ræsi. Ræsir er að byrja að selja Jeep og hugsanlega Dodge. Svo má ekki gleyma Bens G og Unimog. Ég held að menn þurfi aðeins að vara sig á einstefnu.
-Einar
05.03.2003 at 14:57 #469998Á vef Novak Conversions eru m.a. upplýsingar um tengingar [url=http://www.novak-adapt.com/knowledge/chevy_small_block_v8.htm:14pbg436]gírkassa[/url:14pbg436] við Chevy Small Block V8. Það fjölbreyttir möguleikar.
-Einar
05.03.2003 at 08:24 #469974Svarið er líklega að finna [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=1015:8h0qmjej]hér[/url:8h0qmjej]
05.03.2003 at 08:23 #469972Svarið er líklega að finna [url]hér[/url]
04.03.2003 at 11:47 #469780Takk fyrir ábendinguna. Ég tók ekki umrædda mynd en þegar ég skoða myndina sé ég ekki mikla hættu á öðru en að takið losni ef strákarnir detta af. En maður fer aldrei of varlega í þessum efnum, samanber [url=http://unnur.klaki.net/mind/entry/1046549275.html:e7mkw0ov]þessa frásögn.[/url:e7mkw0ov]
-
AuthorReplies