FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,841 through 1,860 (of 2,171 total)
← 1 … 92 93 94 … 109 →
  • Author
    Replies
  • 21.05.2003 at 12:15 #473512
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef gengið þessa þrjá jökla sem Guðmundur nefnir. Ég hef ekki orðið var við að bílar eða för eftir þá hafi truflað ferðafélaga mína þá eða þegar við gegnum á Heklu og hittum hóp jeppa á tindinum.
    Ég er algerlega ósammála því að það sé þörf á að takmarka bíla umferð á Öræfajökul. Þar háttar þannig til að jeppar komast ekki að Virkisjökulsleiðinni, sem er stysta og líklega mest notaða gönguleiðin.

    Ef mönnum finnst svo leiðinlegt eða erfitt að ganga á fjöll að þeir þola ekki tilhugsunina um að það sé hægt að komast upp með minni fyrirhöfn, þá geta þeir hinir sömu einfaldlega fundið aðra staði til að labba, lang flest þeirra fjalla sem menn eru að ganga á eru þannig að þar er ekki fært fyrir bíla.

    Á Snæfellsjökli hafa orðið árekstrar m.a. vegna þrengsla. Jeppamenn hafa orðið fyrir áreitni en eftir því sem ég best veit, hefur dregið úr því, fyrir tilstuðlan þjóðgarðsvarðar.

    -Einar





    21.05.2003 at 08:50 #473434
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég er forvitinn að fræðast meira um þau tilfelli þar sem festingar á stýrismaskínu hafa gefið sig, sérstaklega hvort stýrisarmi hefur verið breytt og hvernig felgur hafa verið notaðar (breidd og staðsetning miðju).

    Eg er með XJ á 36" dekkjum. Ég hef ekki orðið var við neitt los á stýrismaskínunni, en ég hef ekkert breytt stýrisgangi og er með 10" innvíðar felgur. Bíllinn er mjög góður í stýri, nánast eins og hann var fyrir breytingar.

    Ég hef velt því fyrir mér að minnka hallann á stýrisstöngum með því að færa sjálfa stýrisvélina neðar og að gera samsvarandi breytingu á þverstífunni í hásinguna. Ætli eitthver hafi prófað þetta?





    21.05.2003 at 08:00 #473500
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Hér að ofan segir Björn Þorri orðrétt:

    [i:3mn7b0ro] Aðeins til umhugsunar: Í 24. gr. reglugerðarinnar er sagt að hver sem brjóti gegn ákvæðum hennar skuli sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Sektir skuli renna í ríkissjóð og að með mál skv. greininni skuli fara skv. reglum um meðferð opinberra mála sbr. lög nr. 19/1991. Ef þú ferð á jökulinn um helgina Skúli og telur þig ekki þurfa leyfi, einhver kærir þig til lögreglu, þá leiða ofangreind ákvæði til þess að þér verður refsað skv. þessu ákvæði…[/i:3mn7b0ro]

    Hér fullyrðir hann með öðrum orðum að kæra frá einhverjum leiði skilyrðislaust til refsingar. Eins og dæmin sem Hlynur nefnir hér að ofan sýna, er langt í frá að 100% kæra leiði til sakfellingar. Ég man raunar ekki til þess að hafa heyrt dæmi um að kæra vegna utanvegaaksturs hafi leitt til sakfellingar þannig að hlutfall refsinga á móti kærum er líklega nærri 0%.

    Mér finnst það vera umhugsunarefni hvaða hvatir liggja að baki svona málflutningi, því Björn Þorri veit örugglega betur.





    21.05.2003 at 07:48 #473584
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    26-28 pund er næstum örugglega of hár þrýstingur sem veldur því að dekkin slitna meira í miðjunni en á köntunum. Hvaða þrýstingur er bestur fer eftir því hvort verið er að horfa á eldsneytiseyðslu, dekkjaslit eða þægindi og aksturseginleika.

    Líklega verður eyðslan því minni sem meira loft er í dekkjunum, efri mörk þrýsings samkvæmt framleiðanda eru líklega 35 pund. Á dekkjunum stendur líka hvað dekkin eiga að geta borið við þennan þrýsting, oft er það um 1000-1100 kg á dekk. Nú er heildarþungi per hjól oft á bilinu 400-600 kg. Ef þrýstingur er valinn í hlutfalli við þyngd gefur það gildi á bilinu 15-20 pund.

    Nú eru menn oftast að nota breiðri felgur en framleiðandinn mælir með (10"). Það leiðir liklega til aukins slits á köntunum, sem hægt er að leiðrétta með því að nota aðeins meiri þrýsting. Til að sja hvernig álagið dreyfist á banann er hægt að gera strik með krít eða límbandi og athuga síðan hvort það þurkast fyrr út á köntunum eða miðjunni.





    20.05.2003 at 14:51 #473480
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í síðasta pistli sínum kemur Björn Þorri inn á hina raunverulegu ástæðu fyrir árásum sínum á umhverfisnefndina. Hann virðist óttast að umfjöllun um skipulagsmál hálendisins innan klúbbsins, kunni að leiða til niðurstaða sem eru honum (eða umbjóðendum hans) ekki að skapi.

    Meðal þess sem fellur undir skipulagsmál hálendisins eru friðlýsingar og þjóðgarðar en einnig framkvæmdir eins og vegagerð, línulagnir og orkuver. Björn telur að klúbburinn megi alls ekki tjá sig um sum þessara mála, hann hótaði t.d. að segja sig úr klúbbnum, á fundi með stjórn og nefndum klúbbsins síðastliðinn fimmtudag. Mér er raunar ekki ljóst hvar Björn dregur mörkin en þó virðist ekki mega segja neitt sem ekki hentar Landsvirkjun.

    Mín skoðun er sú að klúbburinn eigi að halda áfram að vinna að því að við og börnin okkar eigum þess kost, framvegis sem hingað til, að ferðast og njóta óspilltrar náttúru á hálendi Íslands.

    -Einar Kjartansson





    20.05.2003 at 07:38 #473462
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef lögskýringar Björns Þorra stæðust, hvernig ætli standi á því að fangelsin séu ekki full af fólki sem hefur brotið gegn aksturbanni í [url=http://www.natturuvernd.is/3_Fridlysingar/Tjodgardar/Jokulsargljufur/3_2_1_Regluged_Skaftafell.htm:egwdl9kd]ASkaftafells þjóðgarði[/url:egwdl9kd], en Grímsvötn og Grímsfjall eru innan þjóðgarðsins. Ellefta grein þeirrar reglugerðar hljóðar svo:
    [i:egwdl9kd]Umferð á vélknúnum ökutækjum í þjóðgarðinum er ferðamönnum aðeins heimil á vegum og bílastæðum neðan við Skaftafellsbrekkur.[/i:egwdl9kd]

    16 grein þessara sömu reglugerðar er svohljóðandi:
    [i:egwdl9kd]Náttúrufræðilegar rannsóknir í þjóðgarðinum eru háðar leyfi [Náttúruverndar ríkisins].[/i:egwdl9kd]

    Þetta er nánast sama orðlag og notað er um akstur á Snæfellsjökli. Ég hef ekki orðið var við að náttúrufræðingar hafi túlkað þetta sem bann við rannsóknum.

    Að öllu gamani slepptu, þá tel ég mjög mikilvægt að við fáum fulltrúa í ráðgjafarnefndir vegna bæði Vatnajökulsþjóðgarðs og áformaðs þjóðgarðs milli Þingvalla og Langjökuls. Það verður auðveldara ef við höldum áfram að njóta velvilja annara samtaka þeirra sem hafa áhuga á útivist og náttúrvernd. Það stuðlar ekki að slíku, ef menn sjá óvini og samsæri í öllum hornum.

    -Einar Kjartansson





    17.05.2003 at 14:59 #473412
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég held að það sé ekki endilega rétt sem Snorri segir, að það sé meiri hætta á að úrklipping veiki burðarvirki á "grindarlausum" bílum. Boddíið er nefninlega líka hluti að burðarvirki flestra bíla sem eru með sjálfstæða grind. Þetta sést m.a. hve mikil hreyfing er milli húss og palls á pallbílum.
    Þetta, eins og fleira, fer eftir því hvernig bíllinn er hannaður en ekki bara hvort grindin er soðin föst við boddíið eða tengd við það með gúmípúðum.

    Ég er ekki sérfróður um viðgerðir á tjónabílum, en mér hefur samt skilist að með nútíma tækjum sé síst meira mál að lagfæra "unibody" bíla en þá sem eru með aðskilinni grind.

    -Einar





    16.05.2003 at 16:05 #473400
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Helsti kosturinn við að taka hluta af burðarvirki bílsins og aðskija það frá boddiinu með gúmipúðum er betri hljóðeinangurn. Ókosturinn er að fyrir sama styrk, þá verður bíllinn þyngri. Gott dæmi um þetta eru Jeep XJ (cherokee) og
    Jeep YJ (Wrangler). Þessir bílar eru með sama kram. YJ er með aðskilda grind en XJ ekki. Þessir bílar eru næstum jafn þungir þó XJ sé með miklu stærri yfirbyggingu.

    Það er oft auðveldara að breyta bíl sem er með sjálfstæða grind, það er hægt að lyfta boddíinu og ef fjöðrunarbúnaði er breytt, þá er oftast auðveldara að festa stífur og þess háttar við bílinn. Þetta er ekki einhlítt, t.d. virðist vera miklu meira mál að koma 38" dekkjum undir Toyota Land Cruiser 120 heldur en Cherockee eða Pajero.





    15.05.2003 at 22:58 #473370
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þegar stórt er spurt er ….
    Flestir amerískir jeppar eru með framdrif frá Dana, margir eru líka með afturdrif frá Dana. Flestir aðrir framleiðendur nota drif sem eru sérstök fyrir viðkomandi framleiðanda. Þvermál kambsins í drifinu gefur vísbendingu um [i:1du8uf5o]stærð[/i:1du8uf5o] drifsins og er oft notað til að auðkenna ólík drif, t.d. Ford 8.8" eða Ford 9".
    Dana 30 er mjög algengt að framdrif, er t.d. notað í flestum Jeep og Musso. Flestir Jeep Cherokee, Grand Cherokee og Wrangler eru með Dana 35C að aftan. Dana 44 var m.a. notað að framan í Bronco eftir 74, Scout, bæði framan og aftan, Musso að aftan o.s.frv.
    [url=http://www.offroaders.com/info/tech-corner/facts/axles/axle.htm:1du8uf5o]Hér er upptalning[/url:1du8uf5o] á gerðum drifa í mörgum jeppum.
    Það er margt fleira en gerð drifsins sem getur skipt máli, t.d. hvort öxlar eru fljótandi, bil milli hjóla og staðsetning drifkúlu.

    -Einar





    14.05.2003 at 13:11 #473354
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Samkvæmt [url=http://www3.vegag.is/faerd/island1.html:1ofb776j]Vegagerðinni[/url:1ofb776j] er sumarfæri á Kaldadal.





    14.05.2003 at 12:10 #473076
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    [url=http://sonja.richter.org/Iceland2002.htm:3vkwcqbp]Sonja Richter[/url:3vkwcqbp] er með nokkrar ferðasögur á vefnum, með enskum texta, m.a. úr [url]kvennaferðinni 2002[/url]





    14.05.2003 at 07:45 #473306
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Húsið heitir Skessuskjól, eftir þremur öndvegis konuum sem notðu það sem bækistöð við rannsóknir á jarðfræði svæðisins.

    -Einar





    20.04.2003 at 08:43 #472608
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Gerði góða ferð í [url=http://klaki.net/gutti/03apr17.html:2icexay1]Hrafntinnusker[/url:2icexay1] á skírdag og föstudaginn langa.

    -Einar





    16.04.2003 at 11:53 #471404
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Er það þá rétt skilið samkvæmt þessu að tjón sem verður þegar bíll fer niður um ís, eða við að fara yfir óbrúaðar ár, sé alltaf ótryggt?





    15.04.2003 at 13:28 #472494
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er ekki nýtilkomið að það sé dýrt að versla í Bílanausti. Þetta er ennþá tilfinnalegra eftir að þeir yfirtóku flesta samkeppnisaðilana einsog Háberg og Fjöðrina.
    Þetta þýðir þó ekki að menn eigi að versla við umboðin, því þau stunda það flest að vera með allt aðra álagningu á því sem líklegt er að fáist annarsstaðar en því sem menn verða að kaupa af þeim.
    Þess vegna er mikilvægt að menn versli annarstaðar eins og kostur er, því ef samkeppnin hverfur þá mun varahlutaverð hjá umboðunum snarhækka.
    Ég kaupi bremsuhluti í Stillingu, legur og þess háttar í SKF eða Fálkanum o.s.frv.





    15.04.2003 at 13:16 #472422
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Allir þeir sem ferðast á jeppum um Ísland njóta góðs af starfi klúbbsins. Þó ég er búin að greiða félagsgjald til klúbbsins undanfarin 12 ár, þá truflar þetta mig ekki. Ég sé ekki að það sé félaginu til framdráttar að takmarka aðgang að vefsíðunni.
    Ég tel þó að það væri til bóta að gera kröfu um að þeir sem taka þátt í umræðum á spjallinu þurfi að gefa upp rétt nafn.
    Þetta er framkvæmanlegt með svipuðu móti og gert er í [url=http://www.islendingabok.is/IServlets/index.jsp:2ycgrze4]Íslendingabók[/url:2ycgrze4] það er að segja að menn sækja um notendanafn og aðgangsorð á síðunni og fá svo aðgangsorðið sent í pósti samkvæmt félagatali eða þjóðskrá.

    Varðandi [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=1334#8441:2ycgrze4]VHF, þá tilgangslaust[/url:2ycgrze4] að halda leyndum upplýsingum um tíðnir. Einungis félagsmenn meiga senda á þeim tíðnum sem klúbbnum hefur verið úthlutað en það getur hver sem hlustað.
    Þegar menn nota VHF verða þeir að gera ráð fyrir því að hver sem er geti heyrt það sem sagt er. Sérstaklega á þetta við um endurvparpa rásirnar.





    12.04.2003 at 16:13 #472288
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég notað vélarolíu úr lítill smurkönnu. Gaf dælunni eitt eða tvö skot, fyrir lengri ferðir. Það gerðist tvisvar að ég gleymdi dælunni í gangi í nokkra tíma, án þess að hún skaðaðist.
    Ég efast um að það sé til bóta að vera með þennan þrýstiloka. Hann eykur mótstöðu og hitamyndum í dælunni.

    -Einar





    12.04.2003 at 02:01 #472284
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er eðlilegt að svona dælur hitni, loft hitnar við samþjöppun, því meira sem meira er þjappað. Ég notaði aircondition dælu í 6 ár án vandkvæða.
    Ég gaf henni smuringu með því að setja smá olíu á inntakið annaðslagið. Ég held ég hafi eitthvern tíman gefið henni Militec, veit ekki hvort það breytti neinu.

    -Einar





    11.04.2003 at 15:22 #472346
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Á [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=1306:2njzdt93]þesum þræði[/url:2njzdt93] er sýnt hvernig hægt er að vísa í síður af spjallinu.

    -Einar





    09.04.2003 at 14:30 #472202
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég lenti í því fyrir nokkrum árum að nýju reiðhjóli var stolið frá syni mínum. Hjólið var læst inni í garði, lásinn var klipptur í sundur. Lögreglan neitað að skipta sér af málinu. Þeir sögðu að þetta væri nytjastuldur.

    Nú eru kosningar í vændum. Hvernig væri að koma þeim skilaboðum til frambjóðenda að það sé þörf (betri) löggæslu.

    Ég hef átt mjög takmörkuð samskipti við Lögregluna í Reykjavík, en niðurstaðan af þeim er í stuttu máli, að ef það á að koma eitthverju skikki á málin á þeim bæ, væri vænlegast að reka allt liðið og byrja upp á nýtt.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,841 through 1,860 (of 2,171 total)
← 1 … 92 93 94 … 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.