FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,801 through 1,820 (of 2,171 total)
← 1 … 90 91 92 … 109 →
  • Author
    Replies
  • 10.10.2003 at 17:22 #477704
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ekki skoða [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=582:3iennugj]þennan spjallþráð[/url:3iennugj] 😉





    09.10.2003 at 15:00 #477626
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Willys nafnið hefur ekki verið notað af framleiðendum Jeep bíla síðan 1963. Þar sem CJ-7 varð fyrst til 1976, þá er það sér-íslensk málvenja að kalla Jeep CJ-7 Willys. Sjá t.d. [url=http://www.jjournal.net/jeep/history/:1lk0om9r]þessa síðu[/url:1lk0om9r]

    -Eik





    09.10.2003 at 13:16 #476750
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Samkvæmt mælingum Veðurstfofunnar, er snjódýpt við Setrið rúmlega 20 sentimetrar:
    [img:2xp3mj7e]http://www.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/setur/snd_1d.gif[/img:2xp3mj7e]
    En það spáð að það hlýni um helgina þannig að það er hætt við því að þessi snjór verði fljótur að fara.

    -Einar





    09.10.2003 at 13:09 #477606
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er grundvallaratriði að þverstífan sé samsíða togstönginni sem tengir stýrisvélina við hægra framhjólið,
    annars beygir bíllinn í hvert sinn sem ekið er yfir ójöfnur.

    Það er einfaldast að rétta hásinguna af þannig að bæði hjólin standi jafnlangt út undan bílnum, með því að bora nýtt gat fyrir boltann sem festir þverstífuna við hásinguna. Ég gerði þetta á mínum bíl en hann var hækkaður um ca. 10 cm.
    Ég efast um að það þurfi að gera þetta á bíl sem er aðeins hækkaður um 5 cm. Ef hækkað er meira en 10 sm getur þurft að gera breytingar á stýrisgangi, samanber [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=199:2deyac50]þenna spjall þráð[/url:2deyac50] Ef hallanum á togstönginni er breytt, þá þarf líka að breyta þverstífunni til að þær haldist samsíða.





    07.10.2003 at 16:26 #477532
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ár geta orðið slæmir faratálmar þegar þær er að leggja, þá myndast oft grunnstingull (ís sem festist við botninn) sem hækkar vatnsborðið og getur orðið til þess að smá sprænur verða ófærar.
    Seinna hluta vetrar eru árnar fyrir norðan Hofsjökul ekki farartálmar, þá eru þær allar undir ís og snjó. Þó geta verið afætur í nágrenni við Ströngukvísl.

    -Einar





    06.10.2003 at 10:50 #477410
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Er eitthver ástæða til að hylma yfir svona frammistöðu ?

    -Einar





    04.10.2003 at 10:39 #477388
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Mest af snjónum sem var um síðustu helgi tók upp í vikunni en nú er farið að snjóa aftur, og það lítur út áframhaldandi [url=http://www.vedur.is/vedrid/vedursparit.html:118x3mg9]snjókomu.[/url:118x3mg9]
    Þessi mynd snýnir snjódýpt í veiðivatnahrauni:
    [img:118x3mg9]http://www.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/veivh/snd_1d.gif[/img:118x3mg9]

    -Einar





    02.10.2003 at 10:33 #477298
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    [url=http://gps.faa.gov/Programs/WAAS/waas.htm:3n0fe2s3]WAAS[/url:3n0fe2s3] er kerfi fyrir GPS leiðréttingar sem sendir leiðréttingarnar um gerfitungl.





    01.10.2003 at 18:41 #477224
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Á bíl með 4 link (5-link) má stilla spindilhalla með því að stytta eða lengja stífur eða færa til stífufestingar. Ef það þarf að breyta spindilhalla óháð halla á pinjón, þá gæti þruft að snúa liðhúsum.
    Í flestum þeim tilfellum sem ég þekki til, þá hafa svona einkenni orsakast af sliti í stýrisendum, spindilkúlum, hjólalegum eða stífufóðringum. Einnig gæti svona stafað lélegum festingum á stýrisvél.





    01.10.2003 at 15:15 #477212
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er ekki til enfalt svar við þessari spurningu.
    Þau hlutföll sem til eru, eru 3.07, 3.55, 3.73, 4.10, 4.55 og 4.88.
    Beinskiptir bílar með 4 lítra vél koma orignal með 3.07 en
    sjálfkiptir með 3.55. Ef þú vilt fá réttan hraðamæli fyrir 33" tommu dekk þá myndu 3.73 passa (3.07*33/27=3.75). (Ég get látið þig fá slík hlutföll á góðum kjörum!). Ef þú vilt fá sömu gírun á 38" dekkjum og orginal sjálfskptur bíll, þá er
    4.88 nærri lagi (3.55*38/27=5.0). Það er hætt við því að bíllinn verði óþarflega lágt gíraður í þjóðvegaakstri á 33" dekkjunum með 4.88 hlutföllum.





    30.09.2003 at 11:07 #476722
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég efast um að það verði til bóta að setja ræsi í veginn meðfram Þórisvatni. Ræsin munu ekki duga til að koma í veg fyrir að vatn renni yfir veginn seinnihluta vetrar, og grafi skörð í hann. Slík skörð geta verið mun varasamari en þessi gömlu góðu sem við þekkjum svo vel.

    Skarð sem er metri að dýpt og metri á breidd er getur verið mun hættulegra að lægð sem er 2 metra djúp en 20 metra breið.

    Það er oft góður kostur að aka eftir sjálfri Ósöldunni, milli vegarins og vatnsins, þar er maður alveg laus við allt vatnssullið. Í lélegu skyggni myndi ég þó miklu frekar fara Búðarhálsinn.

    -Einar





    30.09.2003 at 10:54 #477110
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það þarf um það bil 4 sinnum meiri olíu, ef olía er notuð til þess að búa til rafmagn sem síðan er notað til upphitunar, heldur en ef olían er notuð beint til kyndingar.
    Ef rafstöðin er vatnskæld er hinsvegar tilvalið að nota kælivatnið til kyndingar, þar sem megnið af orkunni endar þar.

    – Einar





    06.08.2003 at 13:13 #475286
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef hægt er fá pláss fyrir dekkin með því að skera úr, þá er það besti kosturinn. Boddy hækkun breytir þyngdarpuntki, fjöðrun og aksturseginleikum minna en grindarhækkum, og er því æskilegri. Reynslan hefur sýnt að það þarf að færa a.m.k. tvær boddy festingar fyrir bæði hús og pall, upp til að til að boddýið juðist ekki til hliðanna sem getur valið því að boddýið springur undan klossunum, þegar hækkað er á boddýi.

    Mér finnst líklegt að það sé hægt að koma 33" dekkjum undir þennan bíl án hækkunar, ef það þarf að hækka bílinn upp, þá þarf ekki að hækka svona mikið.





    01.08.2003 at 12:08 #475140
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Suzuki fox er með niðurfærslu í millikassanum sem bætist við niðurfærsluna í drifinu. Það þarf að taka tillit til þessa þegar verið er bera saman hlutföll á bílum með hefðbundna kassa þar sem drifskapt er beintengt við vél í 4 gír í hádadrifinu (3 gír á sjálfskiptum).





    31.07.2003 at 12:12 #475134
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þú hefðir fengið betra verð hjá mér Andri, orginal hlutföllin í mínum voru 3.73 og nú gera núna ekkert nema taka pláss í bílskúrnum.





    29.07.2003 at 14:05 #475126
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Jeep TJ er "normal rotation" að framan en styttri pinjón en algengast er í dana 30. Því passa ekki framhlutföll úr öðrum algengum útgáfum af dana 30.





    29.07.2003 at 13:36 #475122
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Verðlisti yfir hlutföll í Jeep TJ er m.a. á [url=http://www.rocky-road.com/jeepdrive.html:1y90qr7w]þessari síðu[/url:1y90qr7w]. Ef þú ert með 4 lítra vél þarf líklega að skipta um [i:1y90qr7w]carrier[/i:1y90qr7w]. Ég keypti mín hlutföll úti, ég veit ekki hvað af þessu fæst hér en ég myndi byrja á að athuga Jeppaþjónustuna Ljónstöðum s 482 2858.





    29.07.2003 at 09:47 #475102
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Síðustu 15 árin hefur [url=http://www.os.is/vatnam/vatnam04.html:3c4c16li]Orkustofnun[/url:3c4c16li] farið 2-4 leiðangra ár hvert til mælinga á Höfsjökli. Yfirleitt er gert út frá Ingólfsskála, vegurinn frá skálanum að jökli hefur verið notaður í sumar og haust leiðöngrum. Leiðin upp Sátujökul fyrir sunnan Ingólfskála er mjög góð, hóflegur bratti og engar sprungur fyrir utan fá afmarkaða sprungukolla sem auðvelt er að varast.





    26.07.2003 at 02:32 #475052
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Fyrir 3-4 árum var gríðarlega mikið selt af nýjum Trooperum. Þetta var m.a. vegna þess að Isuzu var á undan Toyota og Nissan með "common-rail" díselvélar. Ef maður ber saman ’99 árgerð að Trooper og Toyota Barbí (LC-90), þá var Trooperinn á mun betra verði og með miklu aflmeiri vél. Á þeim tíma var tiltölulega morgum barbí krúserum breytt fyrir 38" dekk, þó þeir bílar hafi reynst veikbygðir. Meðal annars hafa framdrif, millikassar og fjöðrunarkerfið að framan, gefið sig. Ég veit um svona bíl þar sem allt þetta fór.
    Aftur á móti hefur heyrst lítið af bilunum í Trooperum. Það eina sem ég man eftir er að glóðarkerti hafa farið.





    04.07.2003 at 15:14 #474636
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Fyrir tveim árum breytti ég jeppanum mínum, þar sem afturfjaðrir voru orðnar sligaðar og bognar fór ég út í það að setja loftpúða að aftan. Að framan setti ég lengri gorma. Nú eru gormarnir farnir að sligast meðan loftpúðarnir virka eins og draumur í dós. Eg er með tvo bíla núna, á hinum bílnum hafa báðir framgormarnir brotnað. Því er ég alvarlega að hugsa um að henda þessum gormum og setja loftpúða líka að framan. Loftpúðar eru að koma í stað fjaðra og gorma í rútum, vörubílum og nú nýverið í vönduðustu jeppunum. Ef þess er gætt að ekkert nuttist utan í púðana, þá endast þeir.

    Mig mynnir að þegar var farið með LandCrusera á Suðurskautslandið, þá hafi gormarnir sífellt verið að brotna.

    Einar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,801 through 1,820 (of 2,171 total)
← 1 … 90 91 92 … 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.