Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.03.2004 at 04:44 #499992
Var Vesturlandseildin ekki í Setrinu? Gátu þeir ekki hjálpað neitt upp á sakirnar? Eða voru þeir kannske veðurtepptir í skálanum og heita pottinum?
-Einar
24.03.2004 at 04:44 #492736Var Vesturlandseildin ekki í Setrinu? Gátu þeir ekki hjálpað neitt upp á sakirnar? Eða voru þeir kannske veðurtepptir í skálanum og heita pottinum?
-Einar
21.03.2004 at 12:49 #492613Er eitthvað vitað um hvar þetta gerðist? Það er ekki mikið um hengjur á norðan og vestantil á Vatnajökli, fyrir utan þekkta staði eins og Grímsfjall, Pálsfjall og Skaftárkatlana.
-Einar
21.03.2004 at 12:49 #499871Er eitthvað vitað um hvar þetta gerðist? Það er ekki mikið um hengjur á norðan og vestantil á Vatnajökli, fyrir utan þekkta staði eins og Grímsfjall, Pálsfjall og Skaftárkatlana.
-Einar
18.03.2004 at 15:43 #499117Nú er efri hlut Esjunnar orðinn hvítur á litinn og jörð hvít í [url=http://www.mmedia.is/~essoblaf/blafjoll.jpg:27xa2qk8]Bljáfjöllum[/url:27xa2qk8]
-Einar
18.03.2004 at 15:43 #491866Nú er efri hlut Esjunnar orðinn hvítur á litinn og jörð hvít í [url=http://www.mmedia.is/~essoblaf/blafjoll.jpg:27xa2qk8]Bljáfjöllum[/url:27xa2qk8]
-Einar
18.03.2004 at 11:58 #499087Gæti ekki verið meira sammál Birni Þorra!
Annars er ennþá smávegis snjór [url=http://www.mountainfriends.com/html/ajse.html:2xdqiyvu]innan borgarmarkanna.[/url:2xdqiyvu]-Einar
18.03.2004 at 11:58 #491850Gæti ekki verið meira sammál Birni Þorra!
Annars er ennþá smávegis snjór [url=http://www.mountainfriends.com/html/ajse.html:2xdqiyvu]innan borgarmarkanna.[/url:2xdqiyvu]-Einar
18.03.2004 at 09:39 #498929Mig minnir að ég hefi lesið það eitthvern tíma, að það sé hægt að stilla virkni diskalæsinga með því að blanda sjálfskiptivökva við gírolíuna. Þetta hefur væntanlega áhrif á núningsstuðulinn milli diskanna, sem hefur mest að segja við mikið álag. Mér kæmi ekki á óvart þó með þessu móti væri hægt að fá sambærilega virkni og með 100% læsingu, en ég hef ekki prófað þetta.
Skinnur undir diska eða gorma, hefur mest að segja við lítið álag, t.d. eitt hjól er tjakkað upp.
-Einar
18.03.2004 at 09:39 #491770Mig minnir að ég hefi lesið það eitthvern tíma, að það sé hægt að stilla virkni diskalæsinga með því að blanda sjálfskiptivökva við gírolíuna. Þetta hefur væntanlega áhrif á núningsstuðulinn milli diskanna, sem hefur mest að segja við mikið álag. Mér kæmi ekki á óvart þó með þessu móti væri hægt að fá sambærilega virkni og með 100% læsingu, en ég hef ekki prófað þetta.
Skinnur undir diska eða gorma, hefur mest að segja við lítið álag, t.d. eitt hjól er tjakkað upp.
-Einar
16.03.2004 at 14:30 #498664Nú er komið frost á hálendinu og ekkert nema norðanátt og meira frost í spánum. Væntanlega verður öll drulla orðin gaddfrosin um helgina, ef hún er það ekki nú þegar.
Þeir sem hyggja á ferðalög um Fjallabak, t.d. í Landmannalaugar, um helgina, ættu að tala við Gylfa Júlíusson rekstarstjóra Vegagerðarinnar í Vík. (s 522100, 4871216, 8938520 eða 8538520).
Ef starfsmenn Vegagerðarinnar standa fyrir tilefnislausum lokunum, þá held ég þeir geti talist brotlegir gegn meðalhófsreglu stjórsnsýslulaga.-Einar
16.03.2004 at 14:30 #491634Nú er komið frost á hálendinu og ekkert nema norðanátt og meira frost í spánum. Væntanlega verður öll drulla orðin gaddfrosin um helgina, ef hún er það ekki nú þegar.
Þeir sem hyggja á ferðalög um Fjallabak, t.d. í Landmannalaugar, um helgina, ættu að tala við Gylfa Júlíusson rekstarstjóra Vegagerðarinnar í Vík. (s 522100, 4871216, 8938520 eða 8538520).
Ef starfsmenn Vegagerðarinnar standa fyrir tilefnislausum lokunum, þá held ég þeir geti talist brotlegir gegn meðalhófsreglu stjórsnsýslulaga.-Einar
15.03.2004 at 17:12 #498586Þegar ég hef breytt mínum bílum hef ég skipt orginal samsláttarpúðunum út fyrir svokallaða benz púða sem fást í Bílanausti fyrir lítinn pening.
-Einar
15.03.2004 at 17:12 #491594Þegar ég hef breytt mínum bílum hef ég skipt orginal samsláttarpúðunum út fyrir svokallaða benz púða sem fást í Bílanausti fyrir lítinn pening.
-Einar
15.03.2004 at 09:22 #497032Samkvæmt [url=http://www.vedur.is/vedrid/vedursparit.html:ychsou8h]veðurspáriti veðurstofunnar[/url:ychsou8h] lítur út fyrir að það verði bjart og kalt um um næstu helgi. Vegagerðin hefur ekki bannað umferð um vegi sem tengjast Landsvirkjun, t.d. Línuveginn og Kvíslaveituveginn, né leiðina inn í Jökulheima. En þeir eru mað bann á að fara Dómadalsleiðina og inn í Landmannalaugar. Það þyrfti að tala við Vegagerðina og komast að því hvort þeir ætla að halda þessum bönnum til streitu þrátt fyrir að spáð sé hægt kólnandi og að mestu þurru veðri næstu daga.
Ég kannaði aðstaæður í Esjunni í gær, þar er mjög lítil drulla og minni snjór en hég hef áður séð þar í þessum mánuði.
-Einar
15.03.2004 at 09:22 #490450Samkvæmt [url=http://www.vedur.is/vedrid/vedursparit.html:ychsou8h]veðurspáriti veðurstofunnar[/url:ychsou8h] lítur út fyrir að það verði bjart og kalt um um næstu helgi. Vegagerðin hefur ekki bannað umferð um vegi sem tengjast Landsvirkjun, t.d. Línuveginn og Kvíslaveituveginn, né leiðina inn í Jökulheima. En þeir eru mað bann á að fara Dómadalsleiðina og inn í Landmannalaugar. Það þyrfti að tala við Vegagerðina og komast að því hvort þeir ætla að halda þessum bönnum til streitu þrátt fyrir að spáð sé hægt kólnandi og að mestu þurru veðri næstu daga.
Ég kannaði aðstaæður í Esjunni í gær, þar er mjög lítil drulla og minni snjór en hég hef áður séð þar í þessum mánuði.
-Einar
14.03.2004 at 16:00 #498460Mudderinn er bestur í þessari stærð, gott grip og það fer minni orka í að bæla og snúa hjólunum en með efnismeiri dekkjum. En þessir bílar eru einfaldlega of þungir til að fljóta almennilega í snjó á 38" dekkjum, skipir ekki máli hvað dekkið heitir.
-Einar
14.03.2004 at 16:00 #491530Mudderinn er bestur í þessari stærð, gott grip og það fer minni orka í að bæla og snúa hjólunum en með efnismeiri dekkjum. En þessir bílar eru einfaldlega of þungir til að fljóta almennilega í snjó á 38" dekkjum, skipir ekki máli hvað dekkið heitir.
-Einar
14.03.2004 at 00:40 #491502[url=http://www.klaki.net/~um44/jokh01/gps.html:2ml5cmpl]Hér eru gps[/url:2ml5cmpl] gögn sem notuð voru í nýliðaferð i desember 2001. Vegna vaxandi jarðhita þarf að sýna varúð austan Grímsfjalls og rétt vestan við skálann. Leiðir sem notaðar voru fyrir gosið í desember liggja t.d. yfir jarðhitagjótur.
-Einar
14.03.2004 at 00:40 #498400[url=http://www.klaki.net/~um44/jokh01/gps.html:2ml5cmpl]Hér eru gps[/url:2ml5cmpl] gögn sem notuð voru í nýliðaferð i desember 2001. Vegna vaxandi jarðhita þarf að sýna varúð austan Grímsfjalls og rétt vestan við skálann. Leiðir sem notaðar voru fyrir gosið í desember liggja t.d. yfir jarðhitagjótur.
-Einar
-
AuthorReplies