FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 3 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,361 through 1,380 (of 2,171 total)
← 1 … 68 69 70 … 109 →
  • Author
    Replies
  • 03.12.2004 at 06:57 #509954
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=4143:99p0j36g]þennan þráð[/url:99p0j36g] vantar slatta færslum, m.a. frá mér, Skúla og Rúnari.
    [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=4140:99p0j36g]Hér[/url:99p0j36g] vantar a.m.k. 7 færslur. Ég hef líka tekið eftir því að auglýsingar hafa horfið, annars hef ég lítið fylgst með þeim eftir að Castor menn byrjuðu að krukka í hana.





    02.12.2004 at 22:42 #510174
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Gps tæki virka allstaðar í heiminum, óháð því hvar þau eru keypt. Ef tækið er með innbyggðum kortum, þá geta kortin verið breytileg eftir því hvar tækið er selt. Þau gps tæki sem hef notað hafa flest verið keypt í USA.

    -Einar





    02.12.2004 at 22:39 #510168
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Vélin hjá mér skalf og nötraði undir álagi á lágum snúningi (<2000), mér var ráðlagt hjá Kistufelli að setja bætiefni í eldsneytið, síðan hefur mikið dregið úr þessum titringi.

    -Einar





    02.12.2004 at 13:44 #510010
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er spáð ferkar kólnandi fram að helgi og það virðist yfirleitt hafa verið frost til fjalla þegar rigndi í Reykjavík í gær. Svona er umhorfs í Bláfjöllunum:
    [img:1s7uxvt7]http://www.mmedia.is/~essoblaf/blafjoll.jpg[/img:1s7uxvt7]

    -Einar





    02.12.2004 at 05:16 #509942
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þrátt fyrir það að spjallið hafi verið niðri meira og minna síðustu sólarhringana, þá bólar ekkert á efninu frá því á mánudaginn var, t.d. þræðinum sem Skúli sett af stað um nýtt ketilsig SA við skálana á Grímsfjalli.

    -Einar





    02.12.2004 at 05:12 #510124
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er rétt hjá Isan að það er ekki ráðlegt að tengja aðeins við annan geyminn til að ná í 12 volt í bíl með 24 volta kerfi. Varðandi það að leggja mínusinn, þá var fjallað um það [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=4063:1cnxvomi]hér[/url:1cnxvomi].

    -Einar





    01.12.2004 at 10:28 #509938
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Nú er ekki annað að sjá en að vefsíð f4x4 sé flutt úr Tæknigarði til Akureyrar. Reyndar vantar ennþá talsvert í spjallið t.d. þræði sem voru virkir á mánudaginn.

    -Einar





    30.11.2004 at 11:22 #194961
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Spjallið er búið að vera niðri í morgun og megnið af því efni sem kom inn á spjallið í gær virðist vera horfið.
    Á mánudagsfundi í október, og á landsfundi sagði Emil að fyrsta skerfið í endurbótum á vefnum yrði að færa hýsinguna. Nú virðist hafa verið hætt við það þar sem castor piltarnir virðast ekki ráða við að hýsa síðuna, fyrst var sagt að gagnagrunnur síðunnar fynndist ekki en síðan að þetta væri ekki hægt vegna þess að síðan væri í 3 gagnagrunnum.
    Ætla menn að láta við svo búið standa?

    -Einar





    29.11.2004 at 15:48 #509922
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Myndin sem Arnór vísar á sýnir "gömlu" katlana, sá nýji sem Skúli var að vara við er alveg syðst (lengst til vinstri) á myndinni. Gróf hnit á honum gætu verið 6424.1 N, 01714.3 V, Þetta er rúmum km sunnan við hina katlana, hefðbundin akstursleið líklega þarna á milli. Magnús Tumi var búinn að teikna þetta inn á kort, hann gæti gefið nákvæmari hnit.

    Það er ekki ólíklegt að þess ketill hafi dýpkað og stækkað síðan myndirnar voru teknar. Samanburðr á mynd frá [url=http://www.raunvis.hi.is/~mtg/04gv/041107-857mtg.jpg:2l3dzhwy]7. nóvember[/url:2l3dzhwy] og [url=http://www.norvol.hi.is/~fredrik/grimsvotngos2004_3.htm:2l3dzhwy]myndum frá 4. nóvember[/url:2l3dzhwy], bendir til þess að katlarnir í suðausthorni Grímsvatnaöskjunnar hafa stækkað verulega á fáeinum dögum eftir að gosinu lauk.

    -Einar





    29.11.2004 at 13:38 #509916
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þessi ketill er suðaustan við skálana á Grímsfjalli. Líklega er hann rétt sunnan við leiðirnar sem mest hafa verið farnar til austurs frá skálunum. Þarna rétt fyrir norðan (í austur frá skálnunum) eru a.m.k tvö [url=http://www.raunvis.hi.is/~mtg/04gv/041107-857mtg.jpg:2qvisxjw]göt[/url:2qvisxjw] sem ná niður úr jöklinum, þar hafa verið sigkatlar síðan eftir gosið í desember 1998, en þeir stækkuðu í gosinu núna. Úr öðrum þeirra virðist reyndar hafa komið smá gos núna.

    -Einar





    28.11.2004 at 13:47 #509374
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Nú er hægt að [url=http://vegir.klaki.net/vegir/?q=search:3ajrypp4]leita[/url:3ajrypp4] í vegasafninu.

    -Einar





    27.11.2004 at 13:42 #509370
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í [url=http://vegir.klaki.net:/vegir:3gizz1zp]vegasafninu[/url:3gizz1zp]
    eru núna upplýsingar um 188 leiðir. Þær skiptast eftir svæðum
    sem hér segir:

    .A 32
    .B 21
    .C 2
    .D 9
    .F 1
    .G 2
    .H 2
    .I 7
    .K 65
    .L 5
    .M 2
    .N 2
    .R 2
    .S 1
    .T 13
    .U 22

    [HTML_END_DOCUMENT]
    Skipting leiða eftir stofnanda leiðar sést hér:

    9 eik
    3 hlynur
    4 oskar
    18 ingi
    7 skuli
    70 ofsi
    62 ggi
    1 arnor
    14 Olgeir

    Nöfn notenda á vegasíðunni eru oftast þau sömu nema ingi heitir [url=http://www.f4x4.is/notendur/notandi.asp?n=443:3gizz1zp]tingit[/url:3gizz1zp] og Olgeir sem heitir [url=http://www.f4x4.is/notendur/notandi.asp?n=1774:3gizz1zp]Einfari[/url:3gizz1zp] hér á vef 4×4.

    -Einar





    26.11.2004 at 15:28 #509494
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Samkvæmt minni reynslu er það ekki algengt að höfðudælur bili, en þá lýsir það sér oft þannig að pedalinn sígur niður ef staðið er á honum eftir að búið er að pumpa. Það er langlíklegast að þessi einkenni stafi af lofti í kerfinu. Samkvæmt leiðbeiningum framleiðenda á að skipta um bremsuvökva reglulega, ég held að það vanti mkikið upp á að það sé gert.

    -Einar





    26.11.2004 at 14:59 #509524
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Castor kerfið virðist ekki ráða við að sýna tíma fyrir tilkynningar, aðeins dagsetningar, sjá [url=http://www.f4x4.is/tilkynningar/index.asp?ID=502:2fbv49ft]þetta[/url:2fbv49ft] og [url=http://f4x4.castor.is/?file=46:2fbv49ft]þetta.[/url:2fbv49ft]

    Svo virðast bara útvaldir hafa aðgang því að setja inn tilkyningar, þannig að tilkynningar [url=http://www.f4x4.is/tilkynningar/index.asp?ID=507:2fbv49ft]týnast.[/url:2fbv49ft]

    Það vantar tilfinnnlega "preview" fyrir innlegg, þetta er staðalbúnaður í nútíma kerfum.

    -Einar





    26.11.2004 at 14:57 #509522
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Castor kerfið virðist ekki ráða við að sýna tíma fyrir tilkynningar, aðeins dagsetningar, sjá [url=http://www.f4x4.is/tilkynningar/index.asp?ID=502:25rz61np]þetta[/url:25rz61np] og [HTML_END_DOCUMENT][url=http://f4x4.castor.is/?file=46]þetta.

    Svo virðast bara útvaldir hafa aðgang því að setja inn tilkyningar, þannig að tilkynningar [url=http://www.f4x4.is/tilkynningar/index.asp?ID=507:25rz61np]týnast.[/url:25rz61np]

    -Einar[/url]





    25.11.2004 at 13:30 #509476
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þetta getur hvort sem er stafað af lofti að af því að það þurfi að herða út í ( ef það eru skálar að aftan ).

    Það þarf tvo til að ná lofti af bremsum, einn til að punpa og síðan standa á bremsunni, og annan sem opnar lofttappan, og lokar aftur, meðan staðið er á pedalanum. Það er tappi til að tappa af lofti oftan til á dælum við hvert hjól, það ætti ekki að skipta máli í hvaða röð tappað er af, en ég myndi byrja þar sem síðast hefur verið átt við bremsur.

    -Einar





    25.11.2004 at 09:38 #509464
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Samkvæmt [url=http://www.isuzudealers.com/rodeo/specifications.esl:2ifwjk05]þessu[/url:2ifwjk05] er V6 vélin frá Isuzu með tveim yfirliggjandi knastásum. Þá getur ekki verið að það þurfi að snerta sveifarásinn til þess að laga undirliftur. Ég legg til að þá talir við annan bifvélavirkja. Eins og fram kom að ofan, þá hef ég góða reynslu af Kistufelli í svipuðum málum.

    -Einar





    24.11.2004 at 22:25 #509460
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég lenti í veseni með vökvaundirliftur á VM díselvél í Jeep fyrir tveim árum, ein undirliftu stöngin villtist og fór framhjá vippunni, af þessu hlaust mikill hávaði. Ég dŕó bílinn í Kistufell, þeir könnuðust við einkenninn, settu stöngina í sinn stað, skiptu um olíu á vélinni og settu slurk af sjálfskiptiolíu saman við. Síðan hef ég ekki látið líða meira en 6 mánuði á milli olíuskipta og undirlifturnar hafa verið til friðs.

    -Einar





    24.11.2004 at 19:51 #509424
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er rétt hjá Vals að spurningar Þrastar hafa flestar komið fram áður, en hafi þeim verið svarað meira en að litlu leiti, þá hefur það farið fram hjá mér.
    Annars er ég búinn að finna "work around" fram hjá anmörkum "nýju síðunnar", ég fer einfaldlega beint inn á spjallsíðuna, því fylgir að vísu að ég missi af tilkynningum og aulýsingum, en ekki verður á allt kosið.
    En mér finnst reyndar líka að spjallið sé orðið einhæfara og minna spennandi en það var, mér finnst líklegt að hringlið eigi þátt í því en kannske er þetta eitthvað sem hefði gerst hvort sem er.

    -Einar





    23.11.2004 at 18:13 #509276
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef notað Mitsubishi með sjálfvirkum driflokum. Þær virkuðu þokkalega þangað til það kom að því að rugga í snjó, þá aftengja þær þegar bíllin rennur aftur á bak og reyna að tengjast þegar maður sleppir kúplingunni, sundum koma háværir smellir þegar þær reyna að tengja þegar bíllin spólar undir álagi. Lokunum var skipt út fyrir handvirkar.

    Annar ókostur við sjálfvirkar lokur, er að maður þarf að stoppa til þess að setja í framdrifið, þar sem maður getur aldrei verið viss um að lokurnar séu tengdar. Þegar ekið er á malbiki þar sem skiptast á auðir kaflar og hálkublettir er mikill kostur að geta skipt úr og í framdrifinu á ferð. Það á reyndar að vera hægt að gera þetta með sjálfvirkum lokum, ef bíllinn er í framdrifinu þegar ekið er af stað, og maður hefur hvorki stoppað né bakkað í millitíðinni.

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,361 through 1,380 (of 2,171 total)
← 1 … 68 69 70 … 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.