Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.10.2007 at 15:49 #594072
Ég skoðaði dagatalið. Þar stendur að það skálanefnd sjái um opið hús í kvöld. Ef mönnum er það offviða að hafa vefinn sjálfum sér samkvæmann, væir þá ekki skynsamlegast að taka burtu þá hluta sem ekki er að marka, t.d. dagatalið?
[url=http://www.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=385:2ft3hvmj]Hér er linkur á frétt.[/url:2ft3hvmj]
-Einar
11.10.2007 at 15:05 #594068Það var mér sagt að í kvöld ætlaði fjarskiptanefnd að standa fyrir kynningu á HF fjarskiptum. Sé reyndar engin merki um þetta hér á síðunni.
[url=http://jeppi.klaki.net/Kallmerki?highlight=%28tf3ek%29:2byy3kee]Sko![/url:2byy3kee]-Einar
11.10.2007 at 14:58 #599572Ég var að kíkja á gripinn, prófaði að endurræsa gagnagrunn og server en án árangurs. Vonandi finnst lausn.
-Einar
09.10.2007 at 02:56 #598946Það er akkurat við þessar aðstæður sem ferðir á jökulum eru hættulegastar, það er nægur snjór til þess að fela sprungur og svelgi, en ekki nægur til þess að hann haldi bílum. Svelgirnir gata verið hennþá hættulegri en sprungurnar, það eru líklega ekki margar sprungur á Langjöklu nægilega stórar til að geta gleypt bíl í heilu lagi, en svelgirnir geta orðið ansi miklir um sig, og þeir eru DJÚPIR.
-Einar
07.10.2007 at 05:03 #598584Það er rétt hjá Degi, að það er mikil óvissa varðandi langdrægni CDMA2000 á 450 MHz og áhrif álags á hana. Ég held samt að það séu yfirgnæfandi líkur á að CMDA2000 kerfið dragi mun lengra en Tetra. Þó markaðshludeild CDMA2000 á heimsvísu sé miklu minni en GSM, þá er sá markaður samt mörg þúsund sinnum stærri en markaðurinn fyrir TETRA. Þetta kemur m.a. fram í verði og rafhlöðu endingu, þar sem TETRA er sambærilegt við farsíma eins og þeir voru fyrir 15 til 20 árum.
Ég held að jeppamenn muni aldrei nota Tetra sem talstöðvar til þess að tala milli bíla í neinum mæli. Ef einn bíll dettur út úr snjónlínu við stðð, þá dettur virkni talstöðvanna niður í að vera sambærileg við PMR 446 stöðvar, sem kosta 20 sinnum minna en Tetra græjurjurnar. Síðan vitum við ekki hvaða áhrif afköst kerfisins og forgangur annara hefur. Það er ekki álitlegt að mega búast við því að missa samband við félagana þegar eitthvað er um að vera "viðbragðs aðilunum", t.d. vegna náttúruhamfara eða heræfinga á vegum Björns Bjarnasonar eða arftaka hans. Ekki má heldur gleyma því að bilanir á rafmagni eða ljósleiðurum geta orðið til þess að kerfin í Skógarhlíðinni detti út að meira eða leiti. Okkur vantar ekki miðstýrðar talstöðvar.Ég segi fyrir mig, að ég verð með VHF, HF og GSM fyrst eftir slökkt verður á NMT. Með HF talstöðinni get ég haft samband við umheiminn hvar sem er, óháð öllum sjónlinum, gervitunglum og ljósleiðurum. Ef enginn er að hlusta innanlands, þá eru allaf þúsundir radíó amatöra að hlusta erlendis. Í neyðar tilfellum er líka hægt að fara inn á rásir sem notaðr eru í skipum og flugvélum, t.d. 121.5 MHz.
Ég býst við því að ég muni fá mér CDMA2000 síma, en það verður ekki fyrr en komin er reynsla á það kerfi.-Einar – R292 / TF3EK
06.10.2007 at 16:45 #598538Eftir 15 mánuði stefnir í að eigum val um a.m.k 7 ólíkar aðferðir til röyggisfjarskipta á fjöllum (HF, VHF, Tetra, CDMA2000, GSM, Globalstar og Iritium). Allar þessar aðferðir hafa sína kosti og galla, engin ein hefur augsljósa yfirburði. Þetta er mikil breyting frá því sem var fyrir c.a. 15 árum, þegar allir notuðu NMT síma. Þegar slökkt verður á NMT kerfinu, þá þurfum við að ákveða hvað við ætlum að nota í staðinn. Þá held ég að það sé betra að vita aðeins um það hvernig kerfin virka við mismunandi aðstæður.
Menn hafa misjafnan smekk, sumir okkar vilja frekar vita meira en minna um það hverig græjurnar sem við notum á fjöllu virka, og jafnvel hversvegna þær virka stundum og stundum ekki. En það er líka vel hægt að ferðast upp um öll fjöll, án þessa vita hver munurinn er á "common rail" og blöndungi.
-Einar R292 / TF3EK
06.10.2007 at 02:13 #598528Kerfið sem á að taka við af NMT heitir [url=http://en.wikipedia.org/wiki/CDMA2000:1g08u7rk]CDMA2000[/url:1g08u7rk] [url=http://en.wikipedia.org/wiki/Evolution-Data_Optimized:1g08u7rk]EV-DO[/url:1g08u7rk] á 450 MHz. Þetta er þriðju kynslóðar kerfi. Þetta kerfi, eins og önnur þriðju kynslóðar símkerfi notar [url=http://en.wikipedia.org/wiki/CDMA:1g08u7rk]CDMA[/url:1g08u7rk] tækni sem þýðir að hver tíðnirás er notuð fyrir mörg sambönd samtímis. Flest annar kynslóðar kerfi, eins og GSM og TETRA nota [url=http://en.wikipedia.org/wiki/Time_division_multiple_access:1g08u7rk]TDMA,[/url:1g08u7rk] þar sem hver rás er notuð fyrir tiltekinn fjölda sambanda, oftast 4-8. Í fyrstu kynslóðar kerfum eins og NMT er notað [url=http://en.wikipedia.org/wiki/Frequency_Division_Multiple_Access:1g08u7rk]FDMA[/url:1g08u7rk], þar sem hvert samand fær sérstaka tíðni, eins og í hefðbundnum talstöðvum.
TDMA aðferðinni fylgir að til þess að ná sambandi þarf síminn að vera innan tiltekinnar vegalengdar frá stöð, sem leiðir af því að hvert samband hefur afmarkaðann tímaglugga. Þetta hámark er 32 km í GSM en 56 í TETRA. Með því að fækka samböndum, þá er hægt að lengja þessa fjarlægð en það er á kostnað afkasta kerfisins. Þannig er Síminn með eina GSM stöð í Vestmannaeyjum þar sem mesta mögulega fjarlægð frá stðð er 64 km.
Þessi fjarlægðar takmörkun er ekki til staðar með CDMA og FDMA.
04.10.2007 at 09:47 #598504Ef það kemur stöð fyrir Tetra á Vaðöldu, þá mun það hjálpa. Það er þó óvíst að það dugi við hús Norrænu Eldfjallastöðvarinnar, í Öskjuopi, þar sem nýbúið er að setja upp jarðskjálftamæli, því þar ber fjöll á milli.
Á þessu stigi er ógerlegt að spá fyrir um hvort kerfið mun dekka landið betur, Tetra eða CDMA450. CDMA450 kerfið er líklega langdrægara en það verða eitthvað fleiri stöðvar í Tetra kerfinu.
Samkvæmt tíðni úthlutun Nordisk Mobil (Símanns), þá verða allar stöðvarnar komnar upp eftir rétt ár, þá verður hægt að meta hvort kerfið verður skárra sem arftaki NMT.Svona lítur [url=http://eik.klaki.net/4×4/cdma450.png:2x3lywvb]útbreyðslukort CDMA450[/url:2x3lywvb] út, samkvæmt tíðniheimildinni.
[img:2x3lywvb]http://eik.klaki.net/4×4/cdma450.png[/img:2x3lywvb]
04.10.2007 at 00:50 #598498Samanburðurinn sem ég var að vísa í var NMT handssími og Tetra handstöð. Þau Tetra tilboð sé hef séð hafa verið í eins Watts handstðvar. Því er þetta sanngjarn samanburður. 56 km takmörkunin á líka við um Tetra bílstöðvarnar.
-Einar
04.10.2007 at 00:33 #598494Það er ekki rétt hjá Snorra að Tetra sé nær því að vera "landsdekkandi" heldur en NMT. Tetra kerfið er mun skammdrægara, bæði vegna innbyggðrar 56 km fjarlægðar takmörkunar og vegna þess að 1 Watt í sendiafli er verulega takmarkandi. Ég var að að spjalla við félaga minn sem hefur verið að vinna á svæðinu fyrir norðan Vatnajökul undanfarið. Þar munar miklu hvað tetra handstöð dregur skemmra en NMT handsími. Það kom ekki fram á fundinum síðastliðinn mánudag, að það stæði til að bæta við Tetra stöðvum á því svæði.
Samkvæmt tíðiúthlutun fyrir CDMA450 kerfið, þá mun það kerfi dekka rúmlega 92% af flatamáli landsins, sem er svipað og NMT kerfið gerir í dag. Það er kerfi sem hannað fyrir almenning, er ekki með harða takmörkun á fjarlægð í stöð og margfalt öflugra til gagnaflutninga. Þar sem það er ennþá rúmt ár þar til slökkt verður á NMT, þá er ástæðulaust að falla núna fyrir Tetra markaðssetningunni.
Það stendur enn að eina aðferðin (fyrir utan Irridium) sem dekkar allt landið, er stuttbylgjan (HF). Í sumar prófuðum við Dagur, TF3DB, á allmörgum stöðum, allsstaðar þar sem prófuðum náðist samband á 80 metrum. Þannig að hlustun á 3633 kHz er vel viðunandi, þó vissulega megi bæta hana.-Einar – R292 / TF3EK
01.10.2007 at 11:56 #598208Klúbburinn er ekki að borga fyrir talstöðvar, hann borgar fyrir afnot af tilteknum tíðnisviðum. Markmið reglnanna er að stuðla að því að þessar tíðnir nýtist félagsmönnum sem best. Það kemur klúbbnum ekki við hvaða upplýsingar eru í minni á eitthverjum græjum, heldur hvernig þessar upplýsingar eru notaðaðar. Ég lít svo á að það þjóni mínum öryggishagsnumum, að það sé sem víðtækust hlustun á rásum 4×4, sérstaklega endurvarparásunum, ég lít líka svo að á það þjóni mínum hagsmunum að aðrir en félagsmenn geti sent á þessum rásum í neyðartilfellum.
Vandamálið er notkun annara en félagsmanna, þegar ekki er um neyð að ræða. Besta leiðin til að ná yfir þetta er að taka up kallmerki, það skapar forsendur til þess að taka á misnotkun.
-Einar – R292 / TF3EK
01.10.2007 at 08:49 #598198Ég er ósamála breytingartillögu Dags við fyrstu greinina, ég tel að klúbburinn eigi ekki blanda sér inn í það hvaða tæki menn nota þegar þeir nota fjarskiptarásir hans. Núverandi sölufyrirkomulag stuðlar fyrst of frems að hárri álagningu og fáránlega háu verði á fjarskipta búnaði. Það þjónar ekki hagsmunum félagsmanna að styrkja það kerfi.
Ef það tekst að koma á notkum kallmerkja, þá er þar komið stjórntæki sem virkar margfalt betur en nokkur tækjalögga, til þess að sporna gegn misnotkun. Til þess að kallmerki virki sem best, er mikilvægt að það komi fram í enda allra samskipta, því það er mjög oft sem klippist framan af sendingum, þegar stöðvar eru á skanni.-Einar – r292 / TF3EK
30.09.2007 at 04:05 #598154Þetta er þarft framtak og löngu tímabært. Sérstaklega held að að 2. greinin sé mikilvæg. Þar vantar þó að ákvæði um að kallmerki sé alltaf sent í lok sendingar, líkt og er í reglum um starfsemi radíóamatöra.
Til þess að önnur og þriðja greinin virki eins og til er ætlast, þá þarf að vera til aðgengilegur isti yfir kallmerki (félagsnúmer). Það þarf að gefa út prentað félagatal, sem menn geta haft í bílunum.
Ég held að það sé líka ástæða til þess gefa kost á að nota önnur kallmerki en félagsnúmer, t.d. væri æskilegt að sama auðkenni væri notað í fjarskiptum og á vefsíðunni.Ég sé ekki þörfina fyrir 9. greinina, þýðir þetta að það þurfi að slökkva á talstöðinni þegar menn eru með video upptökur?
-Einar (R-292 / TF3EK)
28.09.2007 at 10:50 #598030Þær evrópu CB stöðvar sem eru með AM mótnu geta talað við ameríkustöðvur, það eru sömu tíðnir sem notðar eru. Listi yfir tíðnir er t.d. í [url=http://reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/538c26748c8e2a9d00256a07003476bd/313cde6a6cca646400256a0800306280?OpenDocument:18m4v6n8]reglugerðinni[/url:18m4v6n8]
CB stöðvar vinna á stuttbylgjusviðinu, og eru þar af leiðandi í eðlisínu langdrægar. Þegar sólblettavirkni er mikil geta þær auðveldlega náð milli landa. Þetta getur valdið truflunum.
-Einar
27.09.2007 at 08:35 #598020Munurinn á ervrópskum og amerískum CB stöðvum er að þær síðarnefndu vinna aðeins með AM mótun með 4 Watta sendiafli, meðan þar evrópsku meiga nota hvort sem er FM eða AM, með 4 Watta afli á FM en 2,5 á AM. Vegna þess að markaður fyrir CB stöðvar er miklu stærri vestan hafs, þá er hægt að fá amerískar stöðvar á miklu betra verði en þær evrópsku. Allar CB stöðvar sem ég hef átt, hafa verið gerðar fyrir ameríku markað.
-Einar
07.09.2007 at 16:43 #596180Þessir reikningar eru út í loftið. Það er t.d. ekki tekið fram hvort um er að ræða Hummer 1,2 eða 3 og þeir gefa sér að meðalending jeppanna sé þreföld á við fólksbílinn.
Ég er sammála því að þurfi að taka tillit til fleiri þátta en bara eldsneytis eyðslu ef menn ætla að meta áhrif bílavals á umhverfið, en að gefa sér að Hummer (eða wrangler) séu að jafnaði eknir þrefalt meira en bílar sem eyða minna eldsneyti en einfaldlega út hött.-Einar
07.09.2007 at 11:57 #596162Þesser fréttir eru meira og minn tómt bull. Með því að velja forsendur fá menn út þá niðurstöðu sem þeir vilja.
Þarna er Jeep Wrangler tekinn sem dæmi um stóra 8 gata jeppa.
Wranglerinn er og hefur verið einn léttasti jeppinn á markaðinum og hefur aldrei fengist með 8 cylindra vélum.-Einar
01.09.2007 at 14:14 #595824Álplata af þessari stærð ætti að geta verið þokkalegt mótvægi fyrir NMT loftnetið (450 MHz), en hún þarf að vera jarðtengd. VHF og CB loftnetin ættu að geta virkað líka, en það þarf líklega að stilla þau til þess að ná viðunandi aölögun (standbylgju) Það væri ekki verra að jarðtengja báða enda plötunnar.
Það þarf að fá góða tenginu milli skerms sammiðjukaplanna og mótvægis og jarðar.-Einar TF3EK
22.08.2007 at 16:05 #595164Ég tilheyri líklega minnihluta í þessu samhengi, en ég myndi halda mig við 12 tommu felgurnar. Breiðari felgur myndu gefa lítilháttar betra flot, þegar komið niður fyrir 3 psi, en á móti kemur að álag á legur, stýrisgang og hásingar, er miklu meira með breiðum og útstæðum felgum.
Að fara í 44" er aftur allt annað mál, það skilar verulega betri drifgetu í lausum snjó, en kostar helling í auknu viðhaldi og lakari aksturseginleikum á vegum.
-Einar
19.08.2007 at 21:40 #581690Ég keypti Gabriel dempara síðast í Fjöðrinni í Skeifunni. Ef ég man rétt, þá var það eftir að Bílanaust eignaðist Fjöðrina, en áður en þeir lokuðu versluninni. Veit ekki hverjir hafa selt slíka dempara síðan.
-Einar
-
AuthorReplies