Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.11.2007 at 16:59 #201134
Mig langar til þess að vekja athygli þá því að frestur til þess að senda Skipulagsstofnun athugasemdir vegna umhverfismats fyrir virkjun í austanverðum Henglinum og á Ölkelduhálsi, rennur út á morgun.
Sjá frétt frétt á vef SkipulagsstofnunarÞað er mín skoðun að með þessari framkvæmd, ef af verður, þá verði rústað einu flottasta útivistarsvæði á landinu. Mér finnst það ekki í lagi að eyðileggja nátturuperlur, bara vegna þess að þær eru í nágrenni Höfðuborgarsvæðisins.
-Einar
08.11.2007 at 16:29 #602082Ég verð í Mörkinni milli hálf níu og hálf tíu í kvöld, ef menn vilja ræða eitthvað sem við kemur ferðinni (t.d. dekkjastærð).
-Einar
08.11.2007 at 14:15 #602080Nú hafa nýliðar á 5 bílum skráð sig í ferðina. Skráning er rafræn og þátttakendalistinn uppfærist samstundis. Hvorttveggja er [b:36885ml2][url=http://klaki.net/gutti/strutur:36885ml2]á vefsíðu ferðarinnar[/url:36885ml2][/b:36885ml2]
-Einar
07.11.2007 at 11:31 #602420Þeir sem eru með leyfi radíó áhugamanna (eins og t.d. Tryggvi) fá undanþágu frá kröfu um CE merkingu til þess að flytja inn búnað til þess að nota í starfsemi sem fellur undir þær reglur sem gilda um starfsemi radíóáhugamanna.
-Einar
06.11.2007 at 16:57 #602074Þú getur sett þau inn sjálfur, en ég er búinn að því. Ef fleiri en ein skráning eru sama félagsnúmeri, þá gildir sú síðasta. Því ættu menn að uppfæra skráninguna t.d. ef eitthvað breytist varðandi farþega.
-Einar
06.11.2007 at 16:42 #602068Er ekki skemmtilegra að ferðafélagarnir viti hvað grislingarnir heita? Hugmyndin er að menn [url=http://klaki.net/gutti/strutur/list.html:cxvnhai8]prenti þetta[/url:cxvnhai8] út og taki með sér. Það gegur líka verið öryggisatriði að þekkja gsm númer allra sem eru í ferðinni. Þetta getur skipt máli ef menn af eitthverjum ástæðum verða [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=ferdir/4906:cxvnhai8]viðskila við hópinn.[/url:cxvnhai8]
-Einar
06.11.2007 at 10:05 #602062–
06.11.2007 at 10:01 #602060Þeir sem hafa áhuga á þessari ferð eru beðnir að fylla út [b:207w4ht5][url=http://eik.klaki.net/cgi/strutur:207w4ht5]þetta eyðublað[/url:207w4ht5][/b:207w4ht5]
Hægt er að skoða skráningar [b:207w4ht5][url=http://klaki.net/gutti/strutur/list.html:207w4ht5]hér[/url:207w4ht5][/b:207w4ht5]-Einar
05.11.2007 at 16:10 #601808Drullutjakkar eru fjölhæf og öflug verkfæri. Af þessu leiðir að þeir eru vandmeðfarnir. Ég fer aldrei á jeppa á fjöll án þess að hafa skóflu og drullutjakk meðferðis, og tjakkurinn er ekki bara til þess að losa bíl úr festum.
Ég var á fjöllum um helgina. Þar háttaði viða þannig til að ár sem að jafnaði eru ekki til vandræða að vetri til, voru uppbólgnar og á ótraustum ís. Það er oft tímafrekt, og mikið púl, að brjóta ís af ám en getur forðað ennþá meiri töfum og jafnvel tjóni og slysum. Oft þarf líka að snúa við eða finna aðra leið.
-Einar
01.11.2007 at 10:03 #201083Helgina 24-25 nóvember verður farin nýliðaferð í Strútsskála á Mælifellssandi. Fararstjórar verða Einar Kjartansson og Bessi Aðalsteinsson.. Skráningar eyðublað verður sett á vefinn fljótlega eftir helgi. Þátttökugjald verður líklega kr. 4000 á mann auk 1000 krónu staðfestingargjalds á hvern bíl. Fjöldi þátttakenda takmarkast við 10 bíla.
Ef veður og færi leyfa, verður farið yfir Mýrdalsjökul. Kröfur um bíla og búnað verða svipaðar og var í þessari ferð í Setrið.
-Einar
31.10.2007 at 22:20 #601358[url=http://www.vmmotori.it/en/01/01/dettAutoOggi.jsp?autoId=57]
Dísel vélin [/url] sem boðin er Wrangler jeppum í Evrópu er frá VM Motori. Þessi vél er lík vélinni sem boðin er í Jeep [url=http://www.vmmotori.it/en/01/01/dettAutoOggi.jsp?autoId=42:1918hfpd]Liberty/Cherokee[/url:1918hfpd], bæði vestan hafs og austan.-Einar
31.10.2007 at 10:49 #601546Ég fékk mér einu sinni Lock-right læsingu í Isuzu Trooper. Hún virkaði afskaplega vel á snjó og í torfærum, en entist mjög illa í þungum snjóakstri. Læsingin var með 2 ára ábyrgð, eftir að hún var búinn að sleikja tennurnar 3 sinnum gafst ég upp. Ég veit dæmi þess að Lockright læsingar hafa brotið framdrif í Toyota.
Ég myndi frekar fá mér limited slip læsingu. Þar gera mest af því sem læsing þarf að gera, án þess að vera til leiðinda á malbiki, og endast þokkalega, ef passað er að nota rétta olíu.
-Einar
26.10.2007 at 09:04 #600820Það á ekki að þurfa að hreyfa pinjóninn þegar skipt er um læsingu, það er mikið einfaldara að stilla drifið, þegar bara þarf að stilla bakslagið á kambinum og álagið á hliðarlegurnar, en þegar líka þarf að stilla pinjóninn, eins og þegar skipt er um hlutföll.
Gagnstætt því sem margir halda, þá gerir limited-slip læsing, sem er í lagi, mjög mikið gagn í snjóakstri. Limited slip læsingar nota ýmist diska, skátennt tannhjól (torsen) eða keilu kúplingar.
Allar vinna þær þannig að ákveðið hlutfall af átaki þess hjóls sem hefur minna viðnám, flyst yfir á hitt hjólið. Í snjó dugar þetta yfirleitt til þess að koma í veg fyrir að bíllinn spóli bara á öðru hjólinu. Ef annað hjólið hefur nánast ekkert grip, t.d. ef það er á glæra svelli, eða á lofti, þá gera svona læsingar þó lítið gagn. Þá er þó oft hægt að bjarga málnum með því að bremsa aðeins. þá myndast mótstaða sem verður til þess að átak flyst á það hjól sem hefur grip.
Helsti ókosturinn við limited slip læsingar, er að þær eru alltaf á, sem er oft mikill
ókostur í hálku.-Einar
23.10.2007 at 09:28 #599594Það voru á síðunni svokölluð "comment spam" merkt tveim notendum, öll frá því seamma í sumar. Þar af voru 10 merkt notandanum elawley en 99 voru frá jordanhenry66. Ég er búinn að eyða þessum færslum og bannfæra notendurna. Það væri vel þegið ef menn létu mig vita ef þeir verða varir við meira af þessu.
-Einar
23.10.2007 at 03:27 #599590Vegasafnið [url=http://vegir.klaki.net/vegir:6j9ot84f]http://vegir.klaki.net/vegir[/url:6j9ot84f] er nú aðgengilegt.
Þetta komst í lag efitr að gagnagrunnur var settur upp á ný af öryggisafriti. Ekki er fundin skýring á biluninni, hugsanlega er þetta afleiðing af árás, eða eitthverskonar forritunarvillu.-Einar
19.10.2007 at 15:58 #600498Væntanlega geta bjorgunarsveitirnar notað hluta að hagnaði flugeldasölu eitt árið til þess fjármagna innkaup næsta árs. Þessar reglur ættu ekki að breyta neinu, nema þess séu dæmi að það sé halli á flugeldasölunni.
-Einar
16.10.2007 at 21:15 #600064Ég spurði Freysa eitthverntíma um þetta próf. Ef ég man rétt þá voru það bílar sem settir voru á 33" dekk og útstæðar felgur, án hækkunar, sem reyndust eitthvað stöðugri í "statísku prófi". Þetta átti ekki við um 38" breytta jeppa. Þar sem nær allir 38" breyttir bílar hafa verið hækkaðir um a.m.k. 5-10 sm, þá er nokkuð víst að þeir eru allir verulega valtari en óbreyttir.
Ég veit það af reynslu, að minn bíll er miklu valtari en óbreyttur, er hann þó mun lægri en flestir þeir breyttu bílar sem menn eru að nota í vetrarferðum.
Það er líka vert að hafa í huga, að bílar verða valtari þegar hleypt er úr.-Einar
15.10.2007 at 08:20 #598596Tetra fárið herjar víðar en á Íslandi. [b:3bqyns0o][url=http://politiken.dk/indland/article394013.ece:3bqyns0o]Í þessari frétt[/url:3bqyns0o][/b:3bqyns0o] er fjallað um mál dansks sjúkraflutingamanns sem var rekinn fyrir að segja frá því þegar eginleikarTetra áttu þátt í tveimur dauðsföllum.
– Einar
12.10.2007 at 09:54 #599624Það virðist vera að þau dekk sem best henta fyrir snjó akstur séu í reynd framleidd sérstaklega fyrri Íslendinga. Þetta á að sjálfsögðu við um AT405 dekkin, en líka um 38" Mudderinn og 44" Dick Cepek. Þessi tvö síðasttöldu virðast þola miklu betur en önnur dekk, að ekið sé á þeim með lítið loft. Þetta stafar líklega af því að þau eru þunn, því veita þau minni mótstöðu sem þýðir að þau hitna minna og sóa minni orku en flest eða öll þau dekk önnur sem menn hafa prófað hér.
[url=http://www.mickeythompsontires.com/truck.php?item=BajaBelted:3gumbel0]Micikey Thompson Baja Belted[/url:3gumbel0] er dekk sem væri áhugavert að prófa í snjónum. Þessi dekk virðast vera álíka létt byggð og DC 44" dekkin, miklu mun léttari en t.d. 46" dekkin frá MT.-Einar
11.10.2007 at 16:04 #594076Það fara ekki allir sömu leið inn á vefinn. Þess vegna er óþolandi að vera með misvísandi upplýsingar á vefnum. Ég fer nú orðið beint inn á spjallið, það er vegna þess að forsíðan og fréttirnar hafa verið tiltölulega statískar, enda eru mjög fáir sem hafa leyfi til þess að setja efni þar inn.
Á ekki að laga atburðatalið ?
-Einar
-
AuthorReplies