FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 241 through 260 (of 2,171 total)
← 1 … 12 13 14 … 109 →
  • Author
    Replies
  • 18.11.2007 at 16:07 #603838
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Fyrir tveim vikum fór ég í ferð á vegum jeppklubbs Útivistar. Í ferðinni bilaði alternator í einum jeppa. Sá keyrði undir eigin vélarafli norður Sprengisand og til Reykjavíkur. Á hálftíma fresti var stoppð og tengdir (sverir) startkaplar milli bíla og hlaðið í rúmar 10 mínútur. Þetta fyrirkomulag hafði meðal annars þann kost að ég fékk kríu á hálftíma fresti, sem létti malbikskeyrsluna verulega.
    Það gengur ekki að hafa ána sem rennur austan undan Loðmundi nafnlausa. Ég legg til að hún verið héðan í frá kölluð Lúddá, til minnis um ævintýri eins félaga okkar þar fyrir ca. 2 árum.

    -Einar





    18.11.2007 at 13:50 #602166
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef sett nokkra GPS punkta inn á [b:291x6suz][url=http://klaki.net/gutti/strutur:291x6suz]heimasíðu ferðarinnar[/url:291x6suz][/b:291x6suz]

    -Einar





    18.11.2007 at 06:29 #602162
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þáttökugjöldin hafa skilað sér mjög vel, þannig að það er ekki víst að þeir tveir sem eru á biðlistanum komist með.

    Veðurhorfur eru góðar, það verður frost til fjalla næstu daga, en það lítur út fyrir að það snjói á föstudag, gangi í stífa norðan átt á laugardag sem síðan gengur niður á sunnudag. Það lítur því út fyrir að við förum um Fljótshlíð og Emstrur á leið inneftir en að það gefi til þess að fara yfir Mýrdalsjökul á heimleiðinni.

    -Einar





    17.11.2007 at 13:28 #603720
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er einmitt ástæðan fyrir yfirburðum 38" mudder og 44" DC dekkjanna í snjóakstri, hvað það er þunnt í þeim. Það er einmitt þynnkan sem gerir það að verkum þau þola að það sé ekið með lítið loft í þeim, án þess að þau ofhitni og eyðileggist, og án þess að þau éti upp óheyrilegt magn af orku og eldsneyti.
    Aðdáendur annara dekkja tala mikið um hvað þau séu góð á malbiki, en þetta eru þau dekk sem hafa reynst best í snjónum. Bíll sem er ekki nema 2.2 tonn að heildarþyngd, er áætlega settur á 38" mudder. Það kemur fyrir að hann væri betur settur á 44 tommum, en það kostar helling í auku viðhaldi og veseni, ásamt lakari aksturseginleikum.

    -Einar





    16.11.2007 at 11:01 #602150
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Hér er nýtt veðurkort fyrir laugardaginn 24.
    [img:2ny4c8js]http://klaki.net/gutti/strutur/vedur24-11-9.png[/img:2ny4c8js]

    -Einar





    15.11.2007 at 15:54 #602144
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Nú er biðlistinn vegna ferðarinnar tómur. Það eru því nokkuð góðar líkur að sá sem skráir sig næstur komist með.

    -Einar





    15.11.2007 at 11:01 #602754
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er ekki einfalt svar við því hvort er betra. 5/8 loftnet gefur betri mögnun í láréttu plani, sem er kostur bæði í sendingu og móttöku, en 1/4 loftnet er fyrirferðarminna og er sennilega bandvíðara. Þar sem rásir 4×4 eru á bilinu frá 153 og upp fyrir 164 MHz, skiptir bandvíddin máli. Ég nota [url=http://www.rffun.com/catalog/hamantm/0546.html:2vkekqy2]þetta loftnet[/url:2vkekqy2] sem er lítið lengra en 1/4 bylgja. Ég hef ekkert stilt það, þannig að það er líklega komið töluvert frá "resonans" við 164 MHz.
    Þar sem ég er kominn með stöð í bílinn sem er með innbyggðum sandbylgjumæli, þá þarf ég að drífa í því að stilla það, en það virðist virka mjög vel á 4×4 tíðnunum, þó sennilega sé það stillt fyrir tíðni sem er nær 145 MHz.

    -Einar





    15.11.2007 at 00:03 #602134
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er farið að glitta í þetta í veðurspákortum. Hér er kort fyrir laugardaginn, ef þessi spá rætist ætti að viðra til þess að fara yfir Mýrdalsjökul á laugardeginum. En lægðin fyrir sunnan Hvarf er mikilúðleg.

    [img:1vtawi3m]http://klaki.net/gutti/strutur/vedur24-11-10.png[/img:1vtawi3m]

    -Einar





    14.11.2007 at 22:31 #602742
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef náð sambandi víða á höfuðborgarsvæðinu, m.a. heima hjá mér. Er ég þó að nota stöð, sem samkvæmt Tryggva nýtir ekki nema brot af uppgefnu sendiafli á 164 MHz. Ég spjallaði meðal annars við aðila sem var staddur á Álftanesi, sá notaði ekki kallmerki svo ég veit ekki hver það var.

    -Einar





    14.11.2007 at 16:08 #602122
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Eftir [url=http://klaki.net/gutti/strutur/list.html:2wamg257]skráningum[/url:2wamg257] að dæma, þá allir nema einn af þeim sem hafa skráð sig í ferðina, með vhf stöðvar en um það bil helmingur með CB stöðvar. Það er æskilegt að allir geti verið á sömu rás, því legg ég til að stefnum á að nota VHF rás 49 í ferðinni, og að ef menn hafa ekki hana tiltæka, að bætt verði úr því. Það á að vera hægt að fá lánaðar eða leigðar stöðvar hjá klubbnum. Ég stefni á að vera í opnu húsi í mörkinni annað kvöld, þar gefst tæki færi til að fara yfir og prófa virkni fjarskiptatækjanna.

    -Einar





    14.11.2007 at 09:10 #599278
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Tryggvi, þarna hittir þú naglann á höfuðið:
    [i:3fpn2tg6]Það er í þessu eins og svo mörgu öðru happasællegra að nota þann búnað sem hannaður er til þeirra nota sem maður ætlar af honum.[/i:3fpn2tg6]
    Bílarnir okkar voru ekki hannaðir til þess að aka á snjó, það hlýtur að vera happasællegast nota þá bara að til þess brúks em þeir voru hannaðir. 😉

    Staðreyndin er sú að það er um það bil helmingur jeppamanna að nota amatör stöðvar á VHF, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Þessar stöðvar eru mjög öflugar og vandaðar, þær eru hannaðar til þess að gera marga hluti vel, en ekki bara einn eins og "commercial" stöðvarnar.
    Það er eins með þessar stöðvar eins og önnur tæki, það þarf kunnáttu og færni til þess að nýta þar, oft reynir því meira á færnina, því öflugra sem tækið er.

    -Einar

    p.s. FT-8800R stöðin er bæði með VHF (137-174 MHz) og UHF.
    Meðal annars getur hún virkað sem endurvarpi milli banda. Þannig mætti nota ódýra PMR446 stöð inni í skála til þess að tala á VHF í gegnum stöð úti í bíl.





    14.11.2007 at 03:21 #602120
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þeir sem skráðu sig í ferðina fyrir hádegi í gær (13/11) hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um greiðslur. Þeir hafa þangað til á hádegi n.k. föstudag til að ganga frá greiðslu.

    -Einar





    14.11.2007 at 02:49 #599272
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þetta er nú ekki alveg rétt hjá Triggva. Það eru fjölmargir félagar í 4×4 að nota svona stöðvar með góðum áragnri, þótt það stangist á við reglur Póst of Fjar.
    Þú þarft að setja rásirnar i þessa stöð sjálfur, þjónustu aðilarnir virðast ekki kunna á þær, þótt þeir hafi verið að selja amatör stöðvar í stórum stíl, t.d. í skipaflotann. Þú getur a.m.k sett inn rás 45 sem er á 153,100 MHz.
    [b:2kxh7m7w][url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/8598:2kxh7m7w]Hér eru upplýsingar[/url:2kxh7m7w][/b:2kxh7m7w] sem gætu gagnast.
    [b:2kxh7m7w][url=http://www.yaesu.com/indexVS.cfm?cmd=DisplayProducts&ProdCatID=106&ProdID=873&DivisionID=65&isArchived=0:2kxh7m7w]Hér er hægt að sækja handbókina fyrir þessa stöð.[/url:2kxh7m7w][/b:2kxh7m7w]

    -Einar





    13.11.2007 at 11:58 #602116
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Nú er fullbókað í ferðina. Þeir sem skrá sig hér eftir verða því á biðlista. Ef eitthvað er að marka reynsluna, má búast við afföllum, því er mjög líklegt eitthverjir komist með af biðlistanum.

    -Einar





    13.11.2007 at 06:26 #602104
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Magnús, ég skráði þig á [b:35pmcxt5][url=http://klaki.net/gutti/strutur/list.html:35pmcxt5]listann[/url:35pmcxt5][/b:35pmcxt5], en þar sem mig langar í meiri upplýsingar, þá væri gott ef þú lagaðir skráninguna, á [b:35pmcxt5][url=http://klaki.net/gutti/strutur:35pmcxt5]síðu ferðarinnar[/url:35pmcxt5][/b:35pmcxt5]

    -Einar





    12.11.2007 at 09:04 #602870
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Tek undir með Lellu, samkvæmt lögum félagsins á að auglýsa fundi í dagblöðum, þær eiga alls ekki heima undir lás og slá í innanfélagsmálum.

    Væntanlega verður fjallað um yfirvofandi nýliðaferðir á þessum fundi ?

    -Einar





    11.11.2007 at 13:42 #602734
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Eftir þessu að dæma er klúbburinn búinn að skuldbynda sig til að greiða um 130 þúsund á ári til Póst og Fjar, vegna þessarar endurvarpa rásar. Ég hef ekki orðið var við umræður um forgangsröðun og þess háttar í þessu semhengi t.d. á félagsfundum.
    Eru rásir númer 55, 56 og 57 skilgreindar á vegum klubbsins?

    -Einar





    09.11.2007 at 15:07 #602542
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er hægt að finna innblástur á þessari síðu:
    [b:2n3m4f1o][url=http://www.hengill.nu/:2n3m4f1o]http://www.hengill.nu/[/url:2n3m4f1o][/b:2n3m4f1o]

    Baráttukveðjur

    -Einar





    09.11.2007 at 10:57 #602090
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Terrano á 35" dekkjum er gjaldgengur í ferðina, að því tilskyldu að ökumaður treysti sér til þess að aka með 3 psi í dekkjum (samkvæmt loftmæli fararstjóra). Það er um að gera að [b:lxlmqnqs][url=http://klaki.net/gutti/strutur:lxlmqnqs]skrá[/url:lxlmqnqs][/b:lxlmqnqs] sig, ef menn langar til að koma með.
    Það er rétt að benda á, að ætlast er til þess að þáttakendur fylgi fyrirmælum fararstjóra varðandi loftþrýsting í dekkjum.

    -Einar





    09.11.2007 at 07:55 #602086
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Mín hugmynd er að það verði ekki rukkað fyrir börn.

    [b:387y7i5n] [url=http://klaki.net/gutti/strutur:387y7i5n]Skráning og upplýsingar.[/url:387y7i5n][/b:387y7i5n]

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 241 through 260 (of 2,171 total)
← 1 … 12 13 14 … 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.