Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.12.2007 at 07:36 #604432
Ég er búinn að setja inn nýjar útgáfur af ferlum á [url=http://klaki.net/gutti/strutur/gps.html:26dwtdmj]vefsíðu ferðarinnar[/url:26dwtdmj]. M.a. bætti ég inn tíma upplýsingum, nú er því hægt að sjá hvar við vorum hvenær. Þannig má t.d. sjá hvar við vorum þegar tiltekin mynd var tekin. Myndirnar sem ég setti inn eru merktar með tíma, ennfremur má nota [url=http://www.sentex.net/~mwandel/jhead/:26dwtdmj]jhead forritið[/url:26dwtdmj] til að sjá hvenær mynd var tekin, svo framarlega sem klukkan í myndavélinni var rétt stillt.
-Einar
03.12.2007 at 07:26 #605244Minn bíll er XJ 1995, þar inngjöfin mekanísk (vír) en bíltölvan hefur áhirf á tíma flýtingu í olíuverkinu. Þessar leiðbeiningar eiga við bíl sem 2-3 árum yngri, þar er að ég held komin rafstýrð inngjöf, en flest annað er mjög líkt eða eins. Mér finnst líklegt að tannhjólin sem tengja olíuverkið við vélina (knastás) séu eins.
Hjá mér virðist vélin geta gengið án bíltöðvunnar, a.m.k gekk hann þegar skynjarinn á svinghjólinu var bilaður, þá logaði "check engine" ljósið og bíllinn var hávær í lausagangi kaldur.-Einar
02.12.2007 at 20:30 #605240[url=http://klaki.net/tmp/EXJ_14A.PDF:224y5f18]Hér[/url:224y5f18] eru upplýsingar um olíverk í Jeep XJ
-Einar
30.11.2007 at 14:14 #605078Það er mjög auðvelt að miða út sendingar á VHF, allt sem þarf er handstöð og stefnuvirkt loftnet, sem t.d. er hægt að smíða úr tveim stöngum sem eru um það bil meters langar og um það bil 50 sm á milli þeirra.
Þar er brot á lögum að senda á rásum klúbbsins, án leyfis (nema í neyðartilfellum). Því er hægt að finna þá sem brjóta þessar reglur og kæra þá.-Einar
30.11.2007 at 13:50 #604418Ef vafrinn á að ræsa mapsource sjálfvirkt, þá þarf hann að vera stilltur til þess. Það ætti að ver hægt að gera þetta í Firefox og IE, en ég hef ekki prófað að gera það, þetta er fítus sem ég myndi aldrei nota sjálfur. Í Firefox á Linux er hægt að vista skrána á disk með því að smella með hægri músartakka. Líklega er hægt að gera svipað í Windows.
-Einar
30.11.2007 at 13:36 #605072VHF kerfi 4×4 er annarsvegar tíðnir sem klúbburinn hefur fengið úthlutað og hinsvegar endurvarpar. Mest af kostnaði klubbsins liggur í endurvörpunum, sem kosta bæði mikið af tíma og peningum. Undanfarin ár hefur klubburinn fengið styrk af fjárlögum, upphæð þessa styrkst er svipuð og gjaldið sem Póst og Fjarskiptastofnun rukkar fyrir afnot at tíðnum, en mest af því er vegna endurvarpanna.
Ég held að það sé ekki ágreiningur um það að viljum að þetta kerfi komi félagsmönnum að sem mestu gagni, bæði til þess að tala milli bíla, og sem öryggiskerfi sem dregur lengri vegalengdir. Til þess að kerfið nýtist félagsmönnum, þar að koma í veg fyrir misnotkun þess.
Yfir 95% af kostnaði klúbbsins er vegna endurvarpanna, en mest af notkuninni er á beinu rásunum.
Það er því ástæða til þess að velta því fyrir sér hvort við eigum að standa í rekstri endurvarpanna. Verði svarið játandi, hljóta öryggissjónarmið að vega þar þyngst. Því fleiri sem geta hlustað, því meiri líkur eru á að eitthver heyri neyðarkall. Því þjónar það okkar hagsnumun að hlustun á kerfinu sé sem mest, bæði á endurvarps og beinum rásum. Sú aðferð að reyna að stjórna notkun kerfisins gegnum tækjalöggu Póst og Fjar, vinnur gegn þessu markmiði, reyndar skiptir það þó ekki öllu máli, vegna þess að aðferðin virkar ekki. Hver sem vill, getur komist að upplýsingum um tíðnir og sítóna. Um það bil helmingur VHF stöðva í umferð eru þannig að notandinn getur sjálfur sett þessar upplýsingar inn í minni stöðvanna.Af þessu leiðir þó ekki að kerfið þurfi að vera öllum opið og stjórnlaust. Með því að taka upp notkun kallmerkja getum við sjórnað því sjálfir hvernig kerfið er notað, án þess að treysta á tækjalöggu Póst og Fjar, með þeirri gjaldtöku og kostnaði sem því fylgir.
Kerfið er og verður opið í þeim skilningi að hver sem kærir sig um getur hlutstað og notað það til sendinga í neyðartilfellum. Önnur notkun er háð ákvörðun félagsins, að því tilskyldu að við tökum upp kallmerki. Ef ekki verða tekin upp kallmerki þá verður kerfið stjórnlaust, hvort sem okkur líkar betur eða ver, sama hvað mikið fulltrúar félagsins hamast á Póst og Fjar.
-Einar
30.11.2007 at 11:08 #604278[url=http://www.vedur.is/um-vi/frettir/2007/nr/932:2s15zuz7]Hér er skýrsla[/url:2s15zuz7] þar sem greint er frá veðurathugunum á umræddu vegarstæði.
-Einar
30.11.2007 at 10:42 #604410Er hægt að lesa [url=http://klaki.net/gutti/strutur/strutur7b.plt:3aw76oxg]þessa skrá inn í ozi[/url:3aw76oxg] ?
Eða [url=http://klaki.net/gutti/strutur/strutur7b_1.gpx:3aw76oxg]þessa skrá sem gpx[/url:3aw76oxg] ?-Einar
30.11.2007 at 10:05 #604406Ég gerði tilraun til þess að búa til [url=http://www.klaki.net/gutti/strutur/strutur7b.gpx:m290zn9q]gpx skrá með ferlinum[/url:m290zn9q] úr ferðinni. Ég hefði gaman af að heyra hvernig mönnum gengur að lessa þessa skrá, og með hvaða forritum.
-Einar
28.11.2007 at 03:48 #604398Ég hef sett nokkrar myndir frá mér og Þrándi á vefinn. [url=http://klaki.net/gutti/strutur/myndir.html:2thqlpg2]Hér eru tenglar[/url:2thqlpg2] á þær og aðrar myndir sem ég veit af. Endilega látið mig vita af villum í myndatextum og ef fleiri setja myndir á netið.
-Einar
26.11.2007 at 23:57 #604390Það gætir nokkurs misskilnings hjá Snorra varðandi fjarskiptamálin. Ég var með talstöð og loftnet til fjarskipta á tíðnum frá 1.8 MHz. Ég kveikti aldrei á þessari stöð, einfaldlega vegna þess að það var nóg annað að gera, m.a. við að basla við að koma hita í skálann, aðstoða menn við að koma bílnunum síðustu 200 metrana að skálanum og að grilla kvöldmatinn.
Við Dagur prófuðum HF fjaskipti frá Strútsskála síðastliðið sumar með ágætum árangri, þannig að það var búið að sannreina að HF fjarskiptin virka á þessum stað (eins og öllum hinum sem Dagur prófaði í sumar).
Ég náði endurvarpanum fyrir rás 42 með 1.5 Watta handstöð inni í skálanum. Í skálanum er VHF stöð sem því miður er aðeins með tveimur af 4×4 rásunum (44 og 46).
Það yrði stór framför ef klúbburinn gæti hundskast til þess að hætta að standa í vegi fyrir því að rásir klúbbsins séu settar í minni talstöðvum, þar sem þær nýtast félagsmönnum. Það ætti að vera heimilt að setja þessar upplýsingar í allar talstöðvar, gegn því að þeir sem það gera gangist undir að virða þær reglur sem klúbburinn setur um notkun þeirra. Forsenda þess að hægt sé að framfylgja þessum reglum, er að gengið verði eftir því að menn noti kallmerki.-Einar TF3EK
23.11.2007 at 21:57 #602194Veðurhorfur hafa lítið breyst síðan í gærmorgun, á sunnudag lítur út fyrir snjókomu, þannig að þá er hætt við því að það verði lítið um skyggni á jökli, framan of morgundeginum verður hvöss norðan átt í suðurhlðum jökulssins. Ég býst við því að við reynum við jökulinn á morgun og að ef við þurfum frá að hverfa, að þá verði Öldufellsleiðin fyrir valinu
Hér eru upplýsingar um tungl og sól á morgun:
[i:3dubqvpm]The following information is provided for Strutur (longitude W19.0, latitude N63.8):Saturday 24 November 2007
SUN
Begin civil twilight 09:05
Sunrise 10:09
Sun transit 13:03
Sunset 15:56
End civil twilight 17:00MOON
Moonrise 14:29 on preceding day
Moon transit 00:22
Moonset 11:33
Moonrise 14:04
Full Moon on 24 November 2007 at 14:30 Universal Time.
[/i:3dubqvpm]-Einar
22.11.2007 at 10:47 #602186Strútslaug er í 4.3 km fjarlægð frá skálanum, það er ferluð jeppaslóð þar á milli, en það er ekki vel séð að hún sé ekin að sumri til.
-Einar
22.11.2007 at 07:46 #602180Það lítur nú út fyrir að það verði snjókoma til fjalla, bæði á föstudag og sunnudag, en þurrt og bjart sunnanlands á laugardag. Það er því líklegt að reynum að fara norður yfir Mýrdalsjökul á laugardag. Það má búast við því að það verði frekar þungt færi og nokkuð hvöss norðanátt, sérstaklega framan af degi.
Það ekki ólíklegt að skroppið verði í bað í Strútslaug.
[img:2njq2vk4]http://vegir.klaki.net/sony/07jul29/t/imgp0703.jpg[/img:2njq2vk4]
Munið að mæta nægilega snemma á Hvolsvelli til þess að eldsneytisáfyllingu og innkaupum verði lokið klukkan 9:30 á laugardagsmorgun. Það er mælt með því að menn hafi talstöðvar opnar á VHF rás 48, á leiðinni austur.
Munið að prenta út [b:2njq2vk4] [url=http://klaki.net/gutti/strutur/list.html:2njq2vk4]þátttakenda listann[/url:2njq2vk4] [/b:2njq2vk4]og að setja gps punktana inn í tækin.-Einar
21.11.2007 at 11:54 #602178Þar sem það hafa komið í ljós vandkvæði við að nota rás 49, þá verður rás 48 á VHF notuð, a.m.k. til að byrja með.
-Einar
20.11.2007 at 14:37 #604108Ég myndi frekar velja ARB en Ox sem er með skiptigaffli. Snilldin við ARB læsinguna er að allir hreyfihlutir eru inni í drifinu, smurðir af gíroliu. Það ekkert sem getur stirnað, frosið eða ryðgað fast. Ef ekki passað upp á raki safnist ekki í loftkerfinu, þá getur þéttivatn frosið í lögnum, en með réttum frágangi er auðvelt að fyrirbyggja að það gerist.
Með tíð og tíma þá safnast drulla, ryð og vatn í barka. Það getur tekið nokkur ár, en það gerist fyrr eða síðar.
-Einar
20.11.2007 at 05:00 #603932Ég held að menn ættu að hugsa sig vel um áður en þeir henda peningum í viðgerðir eða endurnýjun á þessari ljósavél. Með því að hætta að nota rafmagnshitun mætti minnka olíunotkun um c.a. 80%.
Webasto olíu kynding, svipuð og margir eru með í bílunum, skilar um 13 kW af hita og notar 4 amper á 12 voltum. Þar sem miðstðin þyrfti ekki að ganga nema brot af tímanum er meðal rafmagnsþörfin miklu minni. Þetta rafmangn er auðvelt að fá með einni vindrellu og 2 litlum sólarsellum. Svona kynding er margfalt einfaldari í notkun en bæði ljósavelin eða sóló miðstðin, aðeins þarf að þarf einn rofa til að kveikja á kyndingunni.Það er komin góð reynsla á að nota sólarsellur til þess að fá rafmagn til ljósa í fjallaskálum. Með fleiri sellum má líka fá rafmagn fyrir vatnsdælur og talstöðvar. Síðan er hægt að hafa sem varaleið að tengja kerfið við spiltengi á bíl, einn dísel jeppi í lausagangi getur framleitt hátt í 100 A, til þess að hlaða inn á geyma.
Með þessu myndi margt vinnast:
Enfaldara í notkukn, nóg að ýta á einn rofa til þess að
fá ljós og hita.
Margfalt minni rekstrarkostnaður, bæði vegna eldsneytis og viðhalds.
Enginn hávaði.
Mögulegt verður að hafa alltaf hita á skálanun, þannig að ekki frjósi i honum. Þetta myndi koma í veg fyrir raka og þannig minnka viðhald og gera aðkomu vistlegri, t.d. ef hitia er haldið yfir 5 gráðum.-Einar
19.11.2007 at 22:40 #602174Bessi hefur útbúið skrár fyrir Mapsource og Ozi Explorer.
Ef menn hafa verið búnir að sækja þessar [b:e7r6n2ty][url=http://klaki.net/gutti/strutur/gps.html:e7r6n2ty]skrár,[/url:e7r6n2ty][/b:e7r6n2ty] þá eru þeir beðnir að sækja nýja útgáfu, það munuar á einum punkti sem er á norðurbrún Kötluöskjunnar, bæði á punktunum sem eru á síðunni og í skránum.Veðurspárnar hafa verið á svipuðu rólu, snjókoma á föstudag en nokkurnveginn þurrt um helgina. Nú lítur út fyrir að það verði bjartara og minni vindur á sunnudaginn, en að það verði nokkur NA átt framan af degi á laugardag.
-Einar
19.11.2007 at 09:42 #602170Takk fyrir þetta Stefanía, það er gaman að vita að það sé einhver sem nennir að skoða þennan samtýning 😉
Nú eru komnar spár fyrir helgina á [url=http://www.belgingur.is:3kynjskb]www.belgingur.is[/url:3kynjskb]. Þær eru ennþá nokkuð óstöðugar, það er gerð ný spá tvisvar á sólarhring. Það er spáð samfeldu frosti til fjalla og talsverðri snjókomju á föstudag. Það lítur út fyrir breytilegt veður um helgina, alls ekki ólíklegt að það gefi til að fara yfir jökulinn aðra leiðina. Miðað við þessar spár má þó búast við þungu færi á jöklinum.
-Einar
18.11.2007 at 21:46 #603934Það er hellings fróðleikur um efnið á [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/199:1ptsaoj9]þessum þræði[/url:1ptsaoj9].
-Einar
-
AuthorReplies