FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 201 through 220 (of 2,171 total)
← 1 … 10 11 12 … 109 →
  • Author
    Replies
  • 14.12.2007 at 10:50 #606550
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þetta hefur verið rætt oftar en einusinni á félagsfundum. Þar fékk sú skoðun að þetta boðaði endalok íslenskrar jeppamensku ekki mikinn hljómgrunn, en Freysi hefur ekki legið á þessari skoðun sinni, og veit að þetta hefur verið Arctic Trucks mönnum mikið hjartansmál. Þeir hjá Arctic Trucks hafa þó ekki haft samband við Tækninefndina, heldur við fyrrvarandi formann, sem mun hafa notað sambönd sín til þess að fá gildistöku ákvæðisins frestað, án þess að blanda tækninefndinni inn í málið.
    Skoðun tækninefndarinnar hefur verið að það sem máli skipti hér er það hvernig þetta ákvæði verður útfært.

    -Einar





    13.12.2007 at 21:45 #606538
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það var fjallað um þessi reglugerðar ákvæði í [b:4wb201s8][url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar%2f9723:4wb201s8]þessum þræði.[/url:4wb201s8][/b:4wb201s8]

    -Einar





    13.12.2007 at 11:16 #606456
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Hjörtur, þú getur farið á vefsíðu [url=http://www.dickcepek.com/FC_Radial.html:1w1bvoqv]Mickey Thompson/Dick Cepec,[/url:1w1bvoqv] þar eru upplýsingar um þyngd dekkja. 38" radíal dekkin eru næstum því jafn þung og gömlu FC 44" dekkin, þau dekk voru hönnuð áður en Mickey Thompson eignaðist merkið.

    -Einar





    13.12.2007 at 11:05 #606452
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Lýsing Hjartar passar við það sem ég sagði að ofan. Radial dekk sem heita Dick Cepec FC-II, eru Mickey Thompson, með öðru nafni og öðru mynstri. Þessi dekk eru fræg fyrir að spóla á felgunum, eru massív og stíf en eigendur dásama hversu góð þau eru á malbiki. Ef ekki er hleypt úr þeim, þá endast þá án efa von úr viti.

    -Einar





    13.12.2007 at 08:36 #606448
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    AT 405 og Mudderinn eru einu radial dekkinn sem ég tel koma til greina í snjóakstur. Það er smekksatriði hvort menn vilja hafa gróft eða fínt mynstur, grófa mynstrið er betra í krapa og lausum snjó meðan fína mynstrið er betra á malbiki og í hálku.
    Gúmíið í GrounHawg dekkjunum harðnar í frosti, sem gerir þau hál, og þau þola ekki vel að að ekið sé greitt á þeim linum. Önnur radial dekk eru stíf og rúm á felgum sem veldur því að þeim er hætt við affelgunum og að felgurnar eiga það til að spóla í dekkjunum. Stífleikinn dregur úr floti og étur upp afl, orku og eldsneyti og getur stuðlað að ofhitnun sem eyðileggur dekkin. Parnelli Jones og TrXus eru dæmi um það síðasttalda.

    -Einar





    13.12.2007 at 00:36 #606390
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Varðandi spurgningu Baldurs, þá geta allar amatör HF stöðvar hlustað á 2790, þegar þær hafa verið opnaðar þá geta þær líka sent. Það er löglegt að opna stöðvarnar, t..d. gætum við ekki notað 60 m bandið eins og leyft er, án þess að opna stöðvarnar.

    Að mínu viti er það óforsvaranlegt hvernig öll fjarskipti í hinu miðstýrða openbera öryggis og almannavarna kerfi Íslendinga eru háð innviðum hátækni samfélagsins. Það er t.d. nóg að það fari sundur ljósleiðarar á tveimur stöðum til þess að kerfin verði óvirk. Sama á við ef aðstaðan í Skógarhlíðinni eða Múlastöð símans verða óvirkar, þá standa menn uppi menn bjargarlausir. Annars staðar þá gegna radíó amatörar mkikilvægu hlutverki í almannavörnum, einmitt vegna þess þeirra fjarskipti eru óháð viðkvæmum innviðum hátæknisamfélagsins. Nýleg dæmu þar sem þetta hefur skipt sköpum voru eftir fellibylinn í New Orleans, jaðskjálftann á Indlandshafi og illviðri sem urði í Norvestur ríkum Bandaríkjanna fyrir nokkrum vikum.
    Það er rétt að skilyðri fyrir HF fjarskipti eru breytileg, samt er það sjaldgjæft að þau verði svo slæm að flugvélar yfir úthafinu verði sambandslausar. En það er einmitt út af breytilegum skilyrðum sem það er mikilvægt að hafa aðgang að fleiri en einu tíðnibandi.

    -Einar TF3EK





    12.12.2007 at 07:49 #603358
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í æsku minni var á heimilinu bíll af gerðinni Skoda 1202. Þessi bíll var með svo öflugan mótór fyrir rúðuþurkkurnar að eitthverjum varð það á að reyna að kveikja á þurrkunum þegar blöðin voru frosin föst við framrúðuna, þá brotnaði eitthvað.
    Ég lít svo á að vandamálið með hilux stýrisganginn sé hliðstætt, vökvastýrið er of öflugt.
    Ég býst við því að ef ég hefði átt svona bíl, að þá hefði mín reynsla verið svipuð og hjá Rúnari og Ólsaranum. Ég er nefninlega svo sérvitur að ég reyni aldrei að snúa stýrinu, nema bíllinn sé á hreyfingu. Ég lærði að aka bíl ( og jeppum ) áður en vökvastýri urðu almenn, þessvegna veit ég hversu mikið átak þar til þess að snúa stýri á kyrrstæðum bíl. Flest hrútshorn brotna á bílastæðum. Ég veit ekki hvort menn gera sér almennt grein fyrrir því að átakið sem þarf til þess að snúa stýrinu á kyrstæðum bíl fer eftir loftþrýstingi í dekkjum en ekki eftir stærð dekkjanna.

    -Einar





    12.12.2007 at 01:01 #606366
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Til fjarskipta innanlands þá virkar 80 m bandið (3633 kHz) oft vel, en stundum eru skilyrðin betri á 160 m (1849 kHz) eða 60 m (5 MHz). Því er gott að vera með loftnet fyrir þessi þrjú bönd. Það er erfitt að ná betri nýtingu en c.a. 5% með bílstöng á 80 metrunum, á 160 metrunum er líklega gott að ná 1% nýtingu í sendingu með bílstöng. Því er mikil kostur að geta notað langan vír (a.m.k 40 m langan fyrir 160 m) eða V tvípól. Einn af kostum V tvipólsins er að þar þarf ekki tuner.
    Ég hef pælt í því að tengja þétti yfir spóluna á bílstönginni til þess að fá hana til að vera í resonans á tveimur böndum, t.d. 80m og 60m, en á eftir að prófa þetta.
    Ég hef notað MFJ-945E handvirkan túner, hef hug á að fá mér sjálfvirkan tuner, LDG túnerar eru ódýrir og fá yfirleitt mjög góða dóma, t.d. mun betri dóma en túnerar frá Yaesu.

    -Einar R-292 / TF3EK





    11.12.2007 at 21:05 #605988
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Jökulárnar eru óaðskiljanlegur hluti af náttúru Þórsmerkur og Goðalands. Það er eðli jökulánna að hlaða undir sig og að skifta um farveg reglulega. Þar sem land er friðað fyrir sauðfjárbeit, gróa gömlu farvegirnir mjög fljótt upp. Með þessum vanhugsðuðu aðgerðum er verið að grípa inn í þetta ferli, misskilin gróðurvernd er notuð sem yfirskin til þess að raska náttúru sem er annars að ná sér eftir aldalanga ofbeit sauðfjár.
    Síðastliðið sumar mátti sjá í Goðalandi ummerki eftir flóð sem urðu í desember 2006. Þá urðu víða á suðurlandi mestu vatnavextir síðan 1968. Slík flóð eru hluti á náttúru Íslands.
    Það eru ekki nema rúmlega 15 ár síðan Goðaland var friðað fyrir rollunni. Ef svæðið fær að þróast eftur lögmálum náttúrunnar, án vanhugsaðra inngripa eins og hér er um að ræða, þá verða aurarnir að mesu skógivaxnir, þrátt fyrir að Krossáin flæmist um þá Birkið er nefnilega ótrúlega fljótt að festa rætur í gömlu farvegunum, þegar árnar hafa flutt sig.

    -Einar





    11.12.2007 at 15:40 #603352
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég kalla þetta hiklaust galla vegna, m.a. vegna þess að vandamálið er alls ekki takmarkað við breytta bíla. Átakið á hornið breytist lítið þótt bíllinn sé hækkaður um eitthverja sentimetra á fjöðrum.
    Ég held að það sé ekki tilviljun að bílar með þessum búnaði voru teknir af Ameríkumarkaði 1985, þótt haldið hafi verð áfram að selja þá hingað í áratug eftir það.

    -Einar





    11.12.2007 at 15:02 #603348
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þetta er vel þekktur hönnunargalli í Hilux/4runner með hásingu að framan, vökvastýrið er of öflugt miðað við styrkinn á stýrisgangnum. Menn hafa reynt að komast fram hjá þessu með því að setja stýristjakk.

    -Einar





    11.12.2007 at 14:16 #605006
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Éf ég skil rétt það sem Heiðar segir hér að ofan, þá endurspeglar þetta kort

    [img:2l5av4qh]http://www.112.is/media/tetra/large/120_Tetra_sendar_12sept2007_70_2.JPG[/img:2l5av4qh]
    ekki raunveruleikann eins og hann er í dag. Það væri ekki í fyrsta sem sölumenn þessa fyrirbæris hafa farið framúr því sem hægt er að standa við.
    Hvernig ætli standi á því að talsmenn Tetra neita að viðurkenna tilvist stutt- og miðbylgju fjarskipta, sem virka [b:2l5av4qh]ALLSSTAÐAR?[/b:2l5av4qh]
    Ætli þeir hafi aldrei flogið vestur um haf?

    -Einar





    11.12.2007 at 11:41 #605982
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Hver stendur fyrir þeirri framkvæmd? Hefur farið fram umhverfismat?
    Það er eðli vatnsfalla eins og Krossár, að breyta farvegi sínum reglulega. Ef Krossá fær ekki að renna óbeisluð þarna innfrá, fær nokkuð að vera í friði? Ég vona að formaður umhverfisnefndar 4×4 hafi beitt áhrifum sínum til þess að forða þessari óhæfu.

    -Einar





    11.12.2007 at 10:06 #604988
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef útbreiðslan væri í raun eins og sýnt er á kortinu sem Íris linkaði á, þá væru björgunarsveitarmennirnir varla að kvarta. Þetta kort, sé það ekki hreint hugarfóstur, er væntanlega miðað við bestu hugsanlegu aðstæður, 10 W bílstöð með 5/8 loftneti á miðjum toppi, hvergi ísingu eða rafmagnsleyisi á fjallstoppum o.s.frv.
    Þeir sem vilja vera öruggir um að geta alltaf náð sambandi, skella sér á [b:74hrje7k][url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/10897:74hrje7k]námskeið[/url:74hrje7k][/b:74hrje7k].
    Í þessu sambandi er vert að minna á að samskipti við flugvélar, þar sem ekki sést til lands, byggja alfarið á stutt- og miðbylgju fjarskiptum, með mjög svipaðri tækni og radíó amaötrar nota. Þar er ekki heimilt að treysta á gervitungla eða sjónlínu fjarskipti.

    -Einar R292 / TF3EK





    11.12.2007 at 06:41 #598616
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Takk Stefanía fyrir ábendinguna, ég hef klikkað á því að prófa linkinn. Vonandi virkar [url=http://www.rffun.com/catalog/hamantm.html:2ec95jxy]þessi[/url:2ec95jxy] betur.
    Ég nota sjálfur VHF útgáfu af [url=http://www.rffun.com/catalog/hamantm/0434.html:2ec95jxy]þessu loftneti.[/url:2ec95jxy] Reyndar eru flest þess loftnet gerð bæði fyrir VHF (146 MHz) og UHF (440 MHz), þannig að það mætti nota sama loftnetið bæði fyrir VHF og Tetra (þó ekki í einu).

    -Einar





    10.12.2007 at 23:50 #598612
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þessar tölur minna mig á fréttir sem koma reglulega af hvernig birgjar bandaríska hersins verðleggja hluti. Kannske ekki tilviljun því kúnninn í þessu tilfelli eru "viðbragðsaðilar" (herinn hans Björns Bjarnasonar). Tíðnin á Tetra er aðeins lægri en á NMT, með smá lengingu á toppnum þá ætti NMT loftnet að virka fínt. 440 MHz (70 sm) amatör bandið er á nánast sömu tíðni og Tetra[url=http://www.rffun.com/catalog/hamantm.html":1yqxy6bj]hér er úrval af loftnetum[/url:1yqxy6bj], sem flest kosta um tíunda þess sem tertra loftnetið á að kosta.
    -Einar





    10.12.2007 at 04:39 #606212
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Um þessa helgi náði ég Hlöðufilli ekki, þótt ég prófaði á stöðum þar sem ég hafði náð því áður, m.a. fyrir utan húsið heima hjá mér, og á Háhrygg við Nesjavelli. Á Háhrygg náði ég bæði 46 (Bláfjöllum) og 44 (Bláfelli).
    Spurning hvort það er ekki allt komið á kaf í ísingu uppi á Hlöðufelli.
    Gallinn við sjónlínu-fjarskiptakerfi eins og Tetra og VHF, er að til þess að þekja hálendið að eitthverju gagni, þarf að koma stöðvum og endurvörpum upp á fjallstoppa. Á veturna gerir gríðarlega vond veður á þessum fjallstoppum. Þessum veðrum fylgir oft mikil ísing, sem er langmest á sjálfum fjallstoppnum. Ísingin kemur veg fyrir að hægt sé að nota vindrellur til rafmagnsframleiðslu og hylur sólarsellur stóran hluta vetrarins. Ísingin truflar einnig virkni loftnetanna.
    Þetta veldur því að það er hæpið að treysta á svona búnað á veturna, þótt hann geti virkað fínt á öðrum árstímum.

    -Einar





    06.12.2007 at 09:36 #605696
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Líklega voru andlátsfregnirnar eitthvað ýktar, því það tók ekki langan tíma að gera bílinn ökufæran.
    [url=http://vegir.klaki.net/sony/07may08/2007_0419_111112.jpg:2iqsnrty][img:2iqsnrty]http://vegir.klaki.net/sony/07may08/t/2007_0419_111112.jpg[/img:2iqsnrty][/url:2iqsnrty]
    Þessi mynd er tekin á sumardaginn fyrsta. Fleiri myndir úr sömu ferð eru á [url=http://www.4x4offroads.com/off-road-first-day-of-summer.html:2iqsnrty]www.4x4offroads.com[/url:2iqsnrty]
    -Einar





    04.12.2007 at 03:49 #605082
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Eftirlit, byggt á kallmerkjum, hefur virkað á öðrum hlutum tíðnirófsins. Ég efast um að þess gerist oft þörf að miða út þá sem misnota kerfið, en ef til þess kemur þá er það tiltölulega einfalt í framkvæmd. Þeir sem brjóta reglurnar vita aldrei hver heyrir í þeim.
    Sú misnotkun sem ég hef heyrt kvartað undan er af aðilum sem gera það í atvinnuskyni, t.d. trillusjómönnum og ferðaþjónustu aðilum. Slík misnotkun leynist ekki. Það má líka segja að brot á reglnum sem enginn verður var við, teljast varla mikið áhyggjuefni.
    Ég held að við höfum tvo valkosti, að taka upp kallmerki, og að ganga efitir því að þau verði notuð, eða óbreytt ástand, sem þýðir reynd að kerfið verður stjórnlaust, því það hefur sýnt sig að græjulöggan virkar ekki.

    -Einar





    03.12.2007 at 23:03 #601890
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef eingöngu notað 10" breiðar felgur, bæði með 36×14.5 og 35×12.5 dekkjum. Breiðari felgur gefa möguleika á að fara aðeins neðar í loftþrýstingi, og þar með að ná lítið eitt betra floti. En innvíðar felgur sem eru hóflega breiðar, valda minna álagi á legur, stýrisgang og drifbúnað, sérstaklega með læstu framdrifi.

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 201 through 220 (of 2,171 total)
← 1 … 10 11 12 … 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.