FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 2,141 through 2,160 (of 2,171 total)
← 1 … 107 108 109 →
  • Author
    Replies
  • 17.02.2002 at 07:42 #459172
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef á að nota bílinn í snjó, þá myndi ég mæala með því að skipta út sjálfvirkum driflokum fyrir handvirkar. Gallinn við sjálfvirku lokurnar er að þeim hættir til að afgengja þegar verið er að rugga fram og aftur í snjó. Þegar þær tengja aftur heyarast stundum háværir smellir sem eru ekki traustvekjandi.

    Annar stór ókostur er að maður þarf að stoppa til að setja í framdrifið. Þetta skiptir ekki miklu máli á fjöllum, þá hefur maður bílinn í framdrifinu, en innanbæjar þá er ég stoðugt að skipta úr og í framdrifinu. Á bílum með hefðbundum millikassa (ekki sídrifi) reynir gríðarlega á drif, öxla og drifsköft að keyra í framdrifinu á auðu malbiki.

    -Einar





    14.02.2002 at 22:36 #459002
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég er að nota orginal drifskaft og loftpúða með 36" dekkjúm og loftpúðum. Ég hef ekki orðið var við titring frá drifrás með loftpúðana rétt stillta. Langstífurnar eru næstum samsíða drifskaftinu þannig að það ætti að vera mjög lítil hreyfing á dragliðnum.

    Þegar fjaðrirnar eru ofan á hásingunum, þá hreyfist hásingin fram og aftur þegar fjaðrirnar svigna. Þetta eykst ef hækkað er með klossum. Ég geri ráð fyrir að þetta sé ástæðan fyrir þeirri útbreyddu skoðun að það þurfi að setja fastan flans á millikassann og fá skaft með draglið, þegar Jeep bílum er breytt.

    -Einar





    14.02.2002 at 10:35 #458968
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef það á að nota jeppann til að aka á snjó, þá skiptir
    þyngdin mestu máli. Stóru Land Cruserarnir og nýjustu
    Patrolarnir eru of þungir fyrir 38 tommu dekk, og
    kramið er tæplega nógu sterkbyggt fyrr 44 tommu dekkin.
    38 tommu dekk duga oftast fyrir bíla sem eru um 2 tonn
    (tómir) eins og Musso, Trooper eða LC-90.
    Því léttari sem bíllin er, því betra.





    13.02.2002 at 11:42 #458994
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég er sammála því að það þurfi að færa framhásingu ef á
    setja stærra en 36", það er á mörkunum með 36 tommuna.
    Ég held að það þurfi ekki að færa afturhásingu fyrir
    38. Ef á að færa eitthvað að ráði, þá er kúlan komin mjög
    nærri bensíntanknum.

    Ég missti loft úr púða á Langjökli í Nýliðaferð
    http://um44.klaki.net/la02/m1.html
    Eftir að ég kom heim tókst mér að koma lofti í hann, og nú
    virðist ekkert vera að. Sú skýring sem ég dettur helst í hug
    er að gúmíið hafi frosið við neðra sætið og dregist til
    að ofan, við hafi loftið sloppið út. Þetta er alveg hliðstætt
    við það þegar dekk losnar frá felgubrún.
    Það væri gaman heyra hvort aðrir hafi lent í svipuðu.

    Líkleg ástæða fyrir þessu er að ég á eftir að ganga frá
    pústinu. Milli þverstífu, samsláttarpúða, loftpúða dempara
    og eldsneytistanks er lítið pláss fyrir púströr. Ég á eftir
    að fara á pústverkstæði og heyra hvernig fagmönnum líst á.





    13.02.2002 at 05:04 #458990
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Algengast er að þessir bílar séu hækkaðir að aftan með aukablöðum og klossum. Ég vildi ekki nota aukablöð þar sem þau gera fjöðrunina stífari. Mín reynsla er sú að ef maður vill komast vel áfram á snjó, þá skiptir góð fjöðrun oft meira máli en vélarafl. Orginal blaðfjaðrirnar fjaðra þokkalega vel, en þær voru farnar að slappast verulega.
    Þessum fjöðrum hættir til að bogna, og hættan á því eykst
    þegar settir eru klossar og stærri dekk. Af þessum ákvað ég að nota ekki orginal fjaðrirnar.
    Þeir kostir sem ég taldi koma til greina voru að
    nota OME fjaðrir (fást hjá Benna), eða smíða stífur og
    setja gorma eða loftpúða.
    OME fjaðrirnar hafa reynst mjög vel undir Toyótum, bæði
    4 runner og LC-60. Til að hækka bílinn ætlaði ég að
    síkka festingarnar frekar en að nota klossa. Ég fékk mér lengri hengsli með smurkoppi til þessa.
    Kosturinn sem ég valdi á endanum var að fara í Loftpúða. Þeir hafa þann kost að hægt er að stilla þá eftir hleðslu bílsins sem gefur kost á mýkri fjöðrun en annars væri mjöguleg án þess að fórna burðargetu bílsins. Loftpúðarnir eru það mjúkir að við að fylla endsneytistankinn og setja 3×20 lítra brúsa skottið, þá sígur aftur endinn um næstum 10 cm.





    13.02.2002 at 04:36 #459066
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Frá 1994 – 2000 fór ég margar ferðir á jökla,
    allt á 35 tommum. Fyrstu árin voru ferðafélagar mínir
    flestir á 35 tommum líka, m.a. langur 6 cyl. pajero.
    Við höfum farið yfir Vatnajökul, Langjökul, Höfsjökul,
    Mýrdalsjökul, Torfajökul og Kaldaklofsjökul.
    Á Vatnajökli höfum við farið upp eða niður Dyngjujökul Köldukvíslarjökul, Tungnárjökul, Skaftárjökul, Skeiðarárjökul,
    Breiðamerkurjökul og Skálafellsjökul og ekið uppá
    bæði Bárðarbungu og Öræfajökul. Það sem skiptir mestu
    er að vita hvað maður er að gera og að taka mark á
    veðurspám. Í snjókomu getur færi orðið það
    þungt að það sé nánast ófært fyrir alla bíla, en
    yfirleitt bætnar færið fljótt þegar veðrinu slotar.
    Veður á Jökli getur verið miklu verra en utan þeirra,
    en það getur líka verið betra.





    08.02.2002 at 19:01 #458890
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Start spray, ether.

    Ég hef einusinni horft á þetta gert, það varð bölvað

    klúður og tók langan tíma, og þeir sem í þessu stóðu
    voru heppnir að slasa sig ekki. Allar þær affelganir
    sem ég eða mínar ferðafélagar hafa lent í hafa verið
    leyhstar með aircondition loftdælum eða kolsýrukútum.





    08.02.2002 at 08:58 #458828
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég er nýbúinn að skipta úr bensín yfir í dísel.
    Báðir bílarnir eru álíka þungir (1600kg eigin þyngd breyttir)
    með álíka stórar vélar 2.3l vs 2.5l. Árlegur akstur er
    milli 10 og 15 þúsund km. Meðan þungaskatturinn er eins
    og hann er núna, er dýrara að aka á löglegum hraða til Akureyrar
    og innanbæjar er kostnaðurinn svipaður. Ástæður þess
    að ég valdi díselinn eru:

    1. Fjallaferðir verða ódýrari. Meðan maður spólar ekki því
    meira veit ökumælirinn ekki af því þegar færið þyngist.
    Hann fattar það heldur ekki þegar maður kitlar pinnann
    aðeins.

    2. Maður kemst mun lengra á því eldsneyti sem maður hefur pláss
    fyrir. Þagar skilyrði versna og ferðahraðinn dettur niður
    rýkur eyðslan per km ekki upp úr öllu valdi eins og á
    bensínbílum.

    3. Díselvélin togar miklu betur á lágum snúningi, sem gerir
    mun þægilegra að keyra þegar þarf að fara mjög hægt
    eða hjakka.

    4. Díselvélin er sprækari (116 hö vs 97). Munurinn sem
    einu sinni var á afli milli bensín og diselvéla er
    mikið til horfinn. Einnig hefur einbunu tæknin
    (common rail) gert díselvélarnar næstum eins þíðgengar
    og bensínvélar.

    Helsti ókostur díselvélarinnar í fjallaferðum, er að hún
    er erfiðari í gangsetningu þegar frostið er komið í 20 gráður
    eða meira. Á móti kemur að díselvélin eyðir aðeins um
    liter á klukkustund í lausagangi. Veit einhver hvað
    bensínvél eyðir í lausagangi?.





    06.02.2002 at 14:48 #458820
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Eyðslutölur BÞV passa ágætlega við fræðin. Það er tvennt
    skiptir mestu máli, það er vinnan sem er framkvæmd og
    nýtingin. Fræðileg nýting í brunavélum fer eftir hitastigi
    við brunnan, sem ræðst af þrýstingi eða þjöppun. Þjöpunar-
    hlutfall í diselvélum er um það bil tvöfalt hærra en í
    bensínvélum, þetta veldur um 30% betri nýtingu í
    díselvél við hægstæð skilyrði. En bensinvél sem ekki
    þarf að skila nema hluta því átaki sem hún getur, vinnur
    við enn lægri þrýsting. Þetta veldur því að nýting
    bensínvélar við létt álag versnar miklu meira en í
    diselvélinni sem alltaf vinnur undir fullum þrýstingi.
    (Inngjöf hefur ekki áhrif á loftmagnið sem díselvélin fær)
    Í fjallaferðum þegar meðalhraðinn er oft ekki mjög hár,
    getur hæglega munað helmingi á eyðslu bensín og díselbíla.
    Þetta skýrir það líka að stærð véla hefur miklu meiri
    áhrif á eyðslu í bensínbílum en díselbílum.

    Hærra þjöppunarhlutfall í bensínvélum gefur bæði meira
    afl og betri nýtingu, en kallar á besnín með hærri
    oktantölu sem er oft talsvert dýrara.





    04.02.2002 at 09:28 #458744
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þegar ég átti MMC, þá var reynslan sú að varahlutir sem
    fengust annarsstaðar voru á samkeppnishæfu verði hjá
    Heklu, en það var okrað á öðru. En hvort þeir okra meira
    en Ingvar Helgason (Bílheimar) eða Toyota, það er ég ekki
    viss um.

    Eg hef aðeins pælt í breytingum á Pajero og Galloper.
    Kostir eru m.a.
    að það virðist vera auðveldara að fá pláss fyrir stærri
    dekk, sérstaklega að framan en, en hjá flestum
    keppinautunum, orginal drifhlutföllin eru frekar lág,
    læsing að aðftan er staðalbúnaður, og bílarnir fjaðra vel.
    Ókostir eru takmarkað framboð á drifhlutföllum og lítill
    munur á háa og lágadrifi. Það ætti að vera hægt að
    taka á þessu með auka millikassa, mér var sagt að það
    ætti ekki að vera sérlega erfitt og hefði verið gert
    einusinni, við bílinn sem var spilaður upp á Eríksjökul
    vorið 1994.





    04.02.2002 at 09:15 #458802
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þvermál og breidd dekkja skipta hvorutveggja máli.
    Stærð og breidd felgu gera það líka. Ef felgustærðin
    er látin liggja milli hluta, þá gefur margfeldi af
    þvermáli og breidd góða vísbendingu um mestu stærð
    snertiflatar dekksins við jörð.
    Ástæðan fyrir vinsældum 38 tommu dekkjanna er fyrst og
    fremst að það eru stærstu radial dekkin sem fást.
    35 tomman er stærsta fjöldaframleidda dekkið.
    Því er talsvert stökk í verði frá 35 í 36.
    Einnig er minna um galla í fjöldaframleiddu dekkjunum.
    36 tommu dekkið gefur c.a 20% stærri snertiflöt en
    35 tomman. 38 tomm er með ca 15% stærri flöt en 36 dekk





    29.01.2002 at 15:33 #458654
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Vitið þið hver selur Gas DOAP101JH dæluna ?





    25.01.2002 at 16:29 #458616
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég myndi giska á að færið hafa frekar skánað frá síðustu helgi,
    Það hefur lítið snjóað þessa viku og færið batnar oftast með
    tímanum þegar ekki bætist mikill nýr snjór við.
    En þetta kemur í ljós á morgun :-)





    25.01.2002 at 13:54 #458528
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef grun um að talsverðan fjölda slysa, sérstaklega
    útafkeyrslna, megi rekja til þess að ekið er í hálku í
    afturdrifi eingöngu, á bíl með sjálfvirka driflæsingu. Ég held að
    þetta gildi bæði um diskalæsingar (stundum kallaðar tregðu-
    læsingar) og 100% læsingar eins og No-spin og LockRight.

    Margir, kannske, flestir nýjir jeppar sem eru fluttir hér
    inn, eru annaðhvort með handvirkri 100% læsingu eða
    diskalæsingum. Flestar Toyotur og Pajero ’91 og yngri
    eru með handvirkum læsingum.

    Það mætti prófa þessa tilgátu með því að bera saman
    tíðni hálkuslysa hjá bílum með og án sjálfvirkra læsinga, t.d.
    Pajeoro ??-90 (sjálfvirk) og Pajero 91- (handvrik)
    eða Trooper 98- (sjálfvirk) og LC90 (handvirk).

    Ef þessi tilgáta reynist rétt, þá getur verið að það sé
    ranglega verið kenna breytingum, um slys sem þar sem
    röng notkun sjálfvirkra læsinga er meðal orsakaþátta.





    25.01.2002 at 08:54 #458598
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef hækkað er á boddýi þarf ekki að hugsa um stífur,
    bremsuslöngur, hjöruliði, drifsköft, dempara, stýrisstangir
    og allt annað sem fylgir hækkun á gormum.
    Þyngdarpunktur hækkar munn mynna
    þegar hækkað er á boddy sem þýðir betri aksturseginleika
    og minni hættu á að bíllinn velti.





    25.01.2002 at 08:39 #458546
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er ekki rétt sem ég skrifaði í gær, að ekki mætti
    nota VHF innan hópa í ferðinni Reykjavík 101. Ég veit
    ekki hvort minnið hefur brugðist mér, eða hvort reglunum
    hefur verið breytt.

    Fyrir rúmu ári keypti ég CB stöð og loftnet með segulfæti
    í Radío Shack í USA. Stöðin kostaði 30 eða 40 dollara,
    og loftnetið 20. Radio Shack er mjög stór keðja með búðir
    út um allt.

    Í fríhöfninni kostar CB stöð af gerðinni President Harry
    kr. 14250 (http://www.dutyfree.is). Ég spurðist nýlega
    fyrir um verð á loftnetum í búðum í Reykjavík.
    Það reyndist vera um 6000 kr.
    Mér finnst að það eigi að tilheyra fortíðinni að menn
    sætti sig við margfalt hærra vöruverð hér á landi en
    erlendis. VSKurinn skýrir ekki þennan mun. Það má heldur
    ekki gleyma því að verðin erlendis eru smásöluverð.





    24.01.2002 at 05:04 #458510
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er vandamal að i umferðinni er blandað saman olikum
    ökutækjum. Ef misþung ökutæki rekast saman fara farþegar i
    lettara tækinu yfirleitt verr ut ur arekstrinum.

    Sviðað gildir þegar mishair bilar rekast saman eins
    og þegar smabill ekur aftan a vörubil.

    Breytingar a jeppum hafa ahrif a aksturseiginleika,
    yfirleitt til hins verra.
    Hversu mikil, fer mikið eftir þvi hvernig staðið er að
    malum.

    Það yrði ekki einfalt að greina a milli þessara þatta i
    svona könnun. Það er skoðun að ef vel er að breytingum
    staðið þa vegi siðast atriðið ekki þunkt i samanburði við
    aðra þætti eins og t.d. færni og reynslu ökumanns.

    Annar hef eg grun um að sjalfvirkar driflæsingar eins hafa
    verið staðalbunaður i mörgum jeppum, komi við sögu i
    mörgum slysum, serstaklega utafkeyrslum og veltum.
    Slikir bilar eru varsamir ef þeir eru keyrðir i aftturdrifi
    i halku.





    24.01.2002 at 04:43 #458538
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Allar CB stöðvar seldar í usa eru AM og senda á 4 wottum
    Hér gilda evrópskar reglur sem leyfa bara 2.5 á am en 4
    wött í FM. Vegna þess hve Evrópski markaðurinn fyrir CB
    stöðvar er miklu minni, eru evropu stöðvar um 3 sinnum
    dýrari þær amerísku.
    Sjá http://um44.klaki.net/bunadur.html
    Vegna þessa er erfitt að senda amerískar stöðvar í póst
    (þegar ég reyndi það stal pósturinn stöðinni).

    Sæmkmæmt skraningum a postlista vegna nylðaferða
    umhverfisnefndar eru um 15% bila með VHF, þannig að
    það er langt i að hægt se að ætlast til að slikt se i
    öllum bilum.

    I ferðinni 101 Reykjavik er bannað að nota VHF milli hopa
    svo að þeir sem eru eingöngu með VHF komast ekki i
    þa ferð.

    Fyrir suma, en ekki alla, skiftir mali hvort talstöð kostar
    6000 kr eða 50000 kr. Er það skoðun formannsins að þeir
    fyrrnefndu eigi ekki erindi a fjöll?





    23.01.2002 at 15:50 #458298
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef leikið mér vísitölu fyrir dekkjastærð sem fæst með
    því deila eigingþyngd bíls í kg með þvermáli og breydd
    dekks í tommum.

    Nokkur dæmi:

    Bíll þvermál breidd vísitala
    Cherokee 2.5. tdi 1540 36 14.5 2.95
    Patrol ’92 2.8l 2150 38 15.5 3.65
    Hilux 1800 38 15.5 3.05
    Suzuki sidekik 1280 33 12.5 3.10

    Nú er patrol á 38 tommum almennt talinn boðlegur í ferðir
    svo ef þessi vísitala er undir 3.5, ætti flotið að vera í lagi.

    Varðandi bronco II, þá er sá bíll með veikari drif, a.m.k.
    að framan, en Cherokee og Wrangler Hann er líka stuttur
    milli hjóla sem stundum er ókostur, mig minnir að þegar ég bjó í USA hafi þessir
    bílar haft orð á sér fyrir að vera valtir.
    Í þeim Bronco II bílum sem ég kannast við er búið að
    skifta út næstum öllum vél og drifbúnaði.

    Einn af kostum Cherokee og Wrangler er framboð af læsingum
    í drifin, lægstu hlutföll eru 4.88, sem passar fyrir 36-38
    tommu dekk.

    Allar vélar sem bjóðast í þessum bílum hafa meira en
    nóg afl til vetrarferða.
    Eldsneytiseyðsla fer fyrst og fremst eftir þyngd bíls
    sé stilling vélarinnar í lagi.
    Bensín vélar eyða þó ca. 30% meira end díselvélar, þessi
    munur eykst með vélarstærð.





    21.01.2002 at 10:30 #458470
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Besta lausnin væri setja upphitun í húsið. Þetta væri
    t.d. hægt að gera með því að láta kælivatn frá vélinni
    fara um óeinangrað rör í pallhúsinu.
    Ef ég ætti svona bíl
    myndi ég líklega fjarlæga framrúðuna á pallhúsinu og
    afturrúðina á farþega húsinu, og setja sveigjanlega
    pakkningu á mill.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 2,141 through 2,160 (of 2,171 total)
← 1 … 107 108 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.