FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 2,101 through 2,120 (of 2,171 total)
← 1 … 105 106 107 … 109 →
  • Author
    Replies
  • 03.04.2002 at 09:03 #460076
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það væru að mínu viti mikil mistök ef klúbburinn ætlaði að láta eins og sér komi framtíðar notkun á hálendi Íslands ekki við. Eftir því sem ég best veit er þetta heldur ekki raunin, ég veit t.d. ekki til þess að það sé ágreiningur um það í stjórn og umhverfisnefnd að við ætlum að gera kröfu um fulltrúa í ráðgjafarnefnd vegna væntanlegs Vantajökuls þjóðgarðs.

    Það er í gangi virk umræða um það hversu langt út fyrir jökulinn þjóðgarðurinn eigi að ná. Það hefur verið talað um að hann tengist þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum. Eins kemur til greina að svæðið umhverfis Lakagíga og Langasjó verði gert að þjóðgarði.

    Ef við viljum láta taka okkur alvarlega, verðum við því að vera undir það búnir að taka þátt í umræðum um það hvernig eigi að vega náttúruverðmæti þegar taka þarf afstöðu til hugsanlegra framkmæmda.

    Varðandi Káranjúkavirkjun skiftir þetta ekki máli þessa stundina, vegna þess að ekki hefur fundist kaupandi sem tilbúinn að borga raunverulegt kostnaðarverð, hvað þá meira. Þetta gæti breyst hvenær sem er, þó það sé ekkert sem bendi til þess að það verði á allra næstu missirum.





    02.04.2002 at 21:43 #460128
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Myndin sem vísað er á hér að ofan var tekin af Sigurði Einarssyni.
    http://um44.klaki.net/la02/se/dscf2584.jpg





    31.03.2002 at 18:20 #460122
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í nýliðaferðinni í Janúar voru teknar nokkrar myndir af Þursaborg.
    http://um44.klaki.net/la02/m1.html

    Þessi mynd sem Gunnar Norðdhal tók, sýndir geilina:
    http://um44.klaki.net/la02/gn/dscf2584.jpg





    29.03.2002 at 22:46 #460072
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það hafði lítið gerst á spjallrásunum undanfarna daga svo mér fannst tímabært að reyna að lífga aðeins upp á þær. Það virðist hafa tekist.

    Ég hef alls ekki almennt verið á móti virkjunum. Ég vann um það bil áratug á Orkustofnun, og sé ekkert eftir því. Ég er á móti þeim virkjunum þar sem íslenskur almenningur er skattlagður beint eða óbeint til að kosta framkvæmdir sem ekki er efnahagslegur grundvöllur fyrir. Gott dæmi um slíka virkjun er Blönduvirkjun, sem var byggð meira en 10 árum áður en not fundust fyrir rafmagnið sem hún framleiðir, og þá var það selt á útsöluverði.

    Besta prófið á það hvort slík verkefni eru arðbær eða ekki, er það hvort hægt er að fá einkaaðaila til framkvæma það án sérstakra styrkja eða niðurgreiðslna. Kárahnjúkavirkjun hefur ekki staðist það próf.
    Ef hún hefði staðist það, þá þyrfti að meta það hvort efnhagaslegi ávinningurinn sé slíkur að menn vilji fórna þeim náttúrufyrirbærum sem um er að tefla. Ef þetta væri staðan, þá veit ég ekki hvaða afstöðu ég myndi taka. Það færi vætanlega eftir því hversu mikið framkvæmda aðilinn væri tilbúinn til að greiða fyrir aðstöðuna.





    29.03.2002 at 22:17 #460118
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Samkvæmt RUV
    http://www.textavarp.is/110/
    þá óku þeir ofan í geilina við Þursaborg. Þessi geil er ekki jökulsprunga. Það er stundum hægt að keyra ofan í geilina að norðanverðu, Ég hef gengið eftir henni endilangri.





    29.03.2002 at 08:57 #191416
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þá eru norðmenn í annað sinn á jafn mörgum árum búnir að forða Íslendingum frá því að eyðaleggja einstæð og óbætanleg nátúruverðmæti vegna stundarhagsmuna fárra. Ennfremur er orðið openbert að forsvarsmenn téðra fræmkvæmda eru berir að lygum, bæði gagnvart hver öðrum og íslensku þjóðinni, sem ætlað var að borga brúsann.

    Ef umræddar framkvæmdar væru arðbærar, óháð náttúruverndar sjónarmiðum, þá hefði ekki þurft að fara í mestu ríkisvæðingu Íslandssögunnar, til þess að fjármagna dæmið. Það er nefninlega þannig að ef verkefni er raunverulega arðbært, þá er nóg til af einkafjármagni í heiminum sem er sífellt að leita góðum fjárfestingarkostunum.

    Það hefur alltaf legið fyrir að ríkisábyrgð væri forsenda fjármögnunar Kárahnjúkavirkjunar (sem almenningur hefði greytt fyrir með hærri vöxtum á öðrum skuldum íslendinga).
    En það hefur ekki farið jafn hátt, að síðastliðin 30 ára hafa almennigsveitur greitt næstum þrisvar sinnum hærra verð að jafnaði fyrir raforku en stóriðja. Með öðrum orðum, almenningur og almennur atvinnurkstur, er látinn niðurgreiða orkuna handa stóriðjunni.





    27.03.2002 at 12:14 #460060
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það frysti allstaðar til fjalla a sunnudagskvöldið og hefur verið frost síðan. Það er ekkert sem bendir til hláku í veðurspánum. Því fer færið batnandi dag frá degi.





    26.03.2002 at 14:40 #459934
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það væri hægt að auðvelda mönnum að skila skálagjöldum með hafa blokk með miðum með kennitölu og reikningsnúmeri. Eins ættu þessar upplýsingar að vera á aberandi stað á vefsíðunni.
    Ég hef komið í skála þar sem búið var að brjóta upp bauk sem ætlaður var til að safan skálagöldum, ég myndi aldrei segja verðmæti í slíkan bauk. Ég held að það sé óþarfi að vera að eyða peningum í að kaupa gíróseðla.





    26.03.2002 at 14:19 #460022
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég myndi tengja við lögnina frá túrbínu að soggrein, helst milli millikælis og soggrreinarinnar. Ég hef verið að hugsa um að gera gat á millikælinn, við úttakið og setja einstefnuloka þar og síðan slöngur að dekkjunum, gjarnan með smá kút eitthversstaðar. Ég er með "Big Red" dælu sem ég myndi láta dæla á sama kútinn til að fá loft fyrir læasingu og til að geta sett meira en 12 psi í dekkin. Hjá mér er millikælirinn fyrir framan vatnskassann, það eru langar og sverar slöngur til og frá millikælinum.





    25.03.2002 at 16:53 #191411
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Hefur einhver prófað að nota túrbínuna sem er dælir lofti inn á flestar díselvélar nú til dags, til þess að koma lofti í dekkin? Ég hef ekki mælt þrýstinginn hjá mér, en ég held að hann sé um 12 psi, afköstin á 2000 snúningum á mínútu ættu að vera 2500 lítrar +a mínútu. Þar sem eitt 38″ dekk inniheldur innan við 200 lítar af lofti, er þetta nóg af loft til að fara með 4 dekk í c.a. 10 pund í nokkrum sekúndum, ef slöngur eru nógu sverar.





    25.03.2002 at 13:47 #459848
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það hefði verið hægt að breyta tilkynningunni, bæta því
    við að hætt hefði verið við ferðina þó upphaflegi textinn hefði verið látinn halda sér.





    25.03.2002 at 09:40 #459844
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þegar var hætt við Grímsfjallsferðina, þá hefði mátt leiðrétta (eða fjarlægja) tilkynninguna á forsíðunni. Það er ekkert flóknara að lagfæra eða fjarlæga svona tilkynningar en að segja inn nýjar. Þessi er í nafni stjórnar.
    -Einar





    22.03.2002 at 09:15 #459834
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það heyrist ekki annað frá þeim en að þeir ætla að fara aftur. Ætli þeir hafi skilið eitthvað eftir? Annars sýnist mér veðurspáin vera þessleg að það verði ekki slyddujeppa færi á Vatnajökli á morgun.





    21.03.2002 at 17:10 #459764
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég gisti í húsinu við Nautöldu í gönguferð sumarið 2000. Ef menn er forvitnir að sjá hvernig þessar slóðir líta út að sumri til, þá eru myndir á http://klaki.net/3f/aug00/index.html

    http://klaki.net/3f/aug00/p8060083.jpg
    sýnir pallinn á Nautöldu húsinu.





    19.03.2002 at 15:14 #459804
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég gerði þetta í haust, reyndist ekki mikið mál. Ég keypti grunn og svarta málningu á spreibrúsum, ef ég man rétt þá keypti ég þetta í "Bílalökk-Orka" að Bíldshöfða 8. (þar sem bifreiðaeftirlitið var).





    16.03.2002 at 00:20 #459698
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það eru miklar líkur að þetta gangi. Ég hef tvisvar farið í Landmannalaugar á 31" dekkjum að vetrarlagi. Ef veður verður skaplegt er líklegt að það verði mikil umferð og slóðirnar vel troðnar.





    13.03.2002 at 15:21 #459676
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég gerði þetta síðast fyrir rúmu ári. Þegar pakkinn kom þá borgaði ég Íslandspósti fyrir að fylla út tollskýrslu meðan ég beið. Þetta er orðið miklu einfaldara nú en áður var Ég held að það sé lagt vörugjald á flesta varahluti, og svo VSK. Vörugjaldið leggst ofan á flutningskostnað og VSK á allt saman. Það þarf ekki mikinn flutningskostnað að flutningskostnaður, vörugjald, VSK og skýrslugerðin verði talsvert hærri upphæð en upphaflega verðið, ef vörugjaldið er t.d. 30%.





    13.03.2002 at 13:39 #459558
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    11. grein reglugerðar um Þjóðgarð í Skaftafelli er svohlóðandi:

    Umferð á vélknúnum ökutækjum í þjóðgarðinum er
    ferðamönnum aðeins heimil á vegum og bílastæðum
    neðan við Skaftafellsbrekkur.

    Grímsfjall og Grímsvötn eru innan þjóðgarsins.
    Oræfajökull ekki innan garðsins en Hermannaskarð er það.

    Ég sá ekki í fljótu bragði neitt ákvæði sem gefur kost á
    frávikum frá þessu akstursbanni.

    -Einar





    12.03.2002 at 08:46 #459550
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Eftir næstu mánaðmót verður hafst handa við að smíða reglur um akstur á Snæfellsjökli. Mér hefur verið lofað að það verði gert í samráði við okkur. Ég vænti þess að þá verði til almennar reglur sem verði m.a. birtar á vefsíðu umhverfsinefndar. Ég hef ekki ekki lært jafn mikla lögfræði og Björn Þorri og þekki ekki hvernig réttarheimildar eru skilgreindar.
    Einu sinni sat ég þó eins dags námskeið sem Viðar Már Matthíasson kenndi. Þar lærði ég það að munlegir samningar væru jafngildir öðrum samningum, ef hægt væri að sannreyna efni þeirra. Ég hef ekki minnstu ástæðu til að ætla Þjóðgarsverði að hún færi að afneita því fyrir rétti að hafa sagt mér að akstur á jöklinum væri leyfður. Því trúi ég því að akstur á Snæfellsjökli sé leyfilegur, svo framarlega sem hann brýtur ekki í bága við þær reglur sem almnennt gilda. Þegar þetta breytist ætla ég að setja tilkynningu á vefsíðuna.





    11.03.2002 at 20:41 #459546
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þjóðgarðsvörður segir mér að akstur á Snæfellsjökli sé leyfður. Ég hef komið þeim skilaboðum á framfæri.
    Ennfremur komst ég að því að forsvarsmenn Snjófells hafa verið að dreifa ósannindum um þetta. Þeir virðast vera hættir því, í bili a.m.k.
    Vinnusímanúmer þjóðgarðsvarðar er ofar í þessum spjallþræði.
    Heimasími og GSM númer eru í símaskrá.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 2,101 through 2,120 (of 2,171 total)
← 1 … 105 106 107 … 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.