FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Kjartansson

Einar Kjartansson

Profile picture of Einar Kjartansson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 2,041 through 2,060 (of 2,171 total)
← 1 … 102 103 104 … 109 →
  • Author
    Replies
  • 05.12.2002 at 15:52 #461624
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Sumir hafa talið það einkenni alvöru jeppa að vera á hásingu bæði framan og aftan. Jeep Cherokee (XJ) og Grand Cherokee (ZJ) eru með heilar hásingar bæði framan og aftan, það er hægt að kaupa allar tegundar af læsingum fyrir bæði drifin og niðurfærslan í lágadrifinu er 1/2.72.
    Samt eru þetta bara jepplingar samkvæmt skilgreiningu Vals. Sannleikurinn er að með "unibody" hönnun verður bíllinn um 200kg léttari miðað við sambærilegan styrk. Þetta munar álíka í floti og að fara upp um eina stærð í dekkjum.





    04.12.2002 at 22:12 #464764
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    2.5 Diesel vélin er með AX-15 gírkassanum. Novak framleiðir milliplötur fyrir þennan kassa og GM (chevy) kúplingshús. Því getur þú notað orginal kassana með GM vél, V8 eða V6.
    Samkvæmt Novak þá er þetta eini orginal gírkassinn í XJ sem dugir með V8 vél. Það er hætt við að það verði þröngt um V8 vél í vélarrúmina á XJ, það er alla vega ekki mikið laust pláss í kringum VM díselvélina.





    04.12.2002 at 10:08 #464784
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    [url=http://um44.klaki.net:1lhollu1]Umhverfisnefnd 4×4[/url:1lhollu1] skipulagði tvær nýliðaferðir í fyrra, farið var á [url=http://um44.klaki.net/jokh01:1lhollu1]Grímsfjall[/url:1lhollu1] milli jóla og nýjárs og á [url=http://um44.klaki.net/la02/:1lhollu1]Langjökul[/url:1lhollu1] í Janúar. Hvort framhald verður á þessu fer m.a. eftir eftirspurn.





    04.12.2002 at 09:49 #464756
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það hellingur af upplýsingum um það sem til þarf til að setja stærri vélar í Jeep á [url=http://www.novak-adapt.com/catalog/kit_gmax15.htm:49monb8u]vef Novak.[/url:49monb8u]





    04.12.2002 at 09:47 #464754
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það hellingur af upplýsingum um það sem til þarf til að setja stærri vélar í Jeep á [url=ttp://www.novak-adapt.com/catalog/kit_gmax15.htm:382pa773]vef Novak.[/url:382pa773]





    03.12.2002 at 09:03 #464208
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þegar ég keypti 35" BFG dekk hjá Bílabúð Benna gaf framleiðandi upp felgubreidd á bilinu 8-11 tommur. Fyrir algengustu breiddir af 36 og 38 tommu dekkjum virðist hinsvegar aðeins vera gert ráð fyrir 10 tommu breiðum felgum.





    29.11.2002 at 09:09 #464676
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Eins og verðurspárnar líta núna út, þá er alveg möguleiki að það snjói til fjalla á sunnudaginn. Eftir það lítur út fyrir áframhaldandi úrkomu og kólnandi veður.





    28.11.2002 at 18:14 #191829
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég var að rekast á lýsingar á skriðgír, Klune-V Extreme underdrive (http://www.klunev.com/) sem sem passar við flesta millikassa sem hafa verið notaðir í Ameríska jeppa. Hægt er velja milli tveggja gerða, með niðurfærslu um 1/2.72 eða 1/4. Verðið er rúmlega kr.150.000 fyrir utan tolla og þess háttar.(Flugfar með netklúbbi flugleiða kostar um 35.000 fram og aftur).

    Hefur einhver prófað þessar græjur hér?
    Hver er dæmigerður kostnaður við að gera skriðgír úr notuðum millikassa?





    26.11.2002 at 15:21 #464654
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það sem mestu skptir er að það sé hægt að tengja tölvu við tækið. Síðast þegar ég gáði átti þetta við um öll tæki frá Garmin, en ekki Magellan. Það skipir ekki öllu máli hversu mikið pláss er fyrir leiðir og punkta, það mun fyllast, þess vegna þarf tölvutengið!





    21.11.2002 at 15:24 #464450
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Í hvert sinn sem farið er með bíl í skoðun er virkni hemla mæld. Ef ég man rétt. er þess krafist að samanlagður hemlakraftur allra hjóla sé minnst hálf þyngd bílsins. Þessi mæling tekur með áhrif stærri hjóla. Flestir bílar eru með það öflugar bremsur að þeir uppfylla þessar kröfur þó hjólin séu stækkuð, en ekki allir. Þá þarf að efla bremsurnar, t.d. með því að setja stærri dælur.
    Af þessari ástæðu á bíllinn að vera á stærstu hjólum sem notuð eru, þegar hann er færður til skoðunar.





    21.11.2002 at 04:14 #464442
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Mér sýnist það mjög varhugavert ef það verða settar reglur um breytingar sem fara eftir bíltegundum. Ég vil skora á tækninefnd að fara ekki fram með slíkar tillögur fyrr en eftir rækilega kynningu og umræðu meðal félagsmanna.

    Það er mikil hætta á að slíkar reglur verði til þess að í reynd megi aðeins breyta tilteknum tegundum bíla og að einungis útvaldir aðilar geti framkvæmt breytingarnar. Slíkt væri stórkostlet skref aftur á bak.





    19.11.2002 at 12:56 #464408
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef ég man rétt, þá var rigning og hiti í 2 vikur fyrir jól, þá frysti og kom smá snjóföl, sem dró í skafla sem hægt hvort sem er, að krækja fyrir eða spóla í.





    19.11.2002 at 10:31 #464400
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hélt að þú værir búinn að fara nýliðaferð í Jökulheima á snjólausu, Valdi. Þá dugði að fara aðeins lengra til að finna snjóinn.
    -Einar





    19.11.2002 at 09:24 #464288
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Tölurnar sem Sigg_F er með, segja söguna varðandi flotið. Ég er sjálfur á 10 tommu felgum. (36×14.5 dekk). Við að breikka í 13" stækkar mögulegur snertiflötur um ca. 7%. Þetta þýðir að ég gæti hengt spil framan á bílinn og haldið svipuðu floti. Þessi felgubreikkun myndi færa miðju snertiflatar hjólanna út um 1.5" sem eykur álag á legur (öxul að aftan), hættu á að hásingin bogni og gefur leiðinlegri aksturseiginleika. Það má vel vera að ég eigi eftir að láta breikka felgurnar en ég stefni á að efla framhásinguna áður. Sjá:
    https://old.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=697#4060





    13.11.2002 at 09:36 #464170
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég lét nýlega skipta um hlutföll og setja læsingu að framan.
    Bílaverkstæði G K, Flugumýri 16c, 270 Mosfellsbær s. 566-6257 , gerðu þetta fyrir mig. Ég fékk ekki betri verð annarsstaðar og eftir því sem ég fæ best séð var ekkert út á vinnuna að setja.





    12.11.2002 at 08:47 #464152
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það má kannske til sanns vegar færa að það bili "allt". En tilfellið er að mjög stór hluti af þeim bilumn sem menn eru að lenda í tengjast veikleikum eða göllum í hönnun. Þetta á til dæmis við um 7.5 framdrifin í Toyota, heddin á 6cyl 4runner, hrútshornin í Hilux, stýrisvélar í Patrol, gírkassa í MMC og hilux, stangarlegur í LC-80, og svo mætti lengi telja.
    Stundum er þetta hlutir sem eru til friðs í óbreyttum bílum en gírkassa- og vélarbilanir hafa sjaldnast neitt með breytingar að gera. Það væri mjög þarft ef t.d. tækninefndin tæki sig til og byggði upp gagnagrunn á vefsíðunni um svona hluti.





    09.11.2002 at 15:09 #464060
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Toyota Tundra er amerískur pallbíll "full size pick-up truck". Stærð, þyngd og vélarafl er sambærilegt og hja Ford F-150, Chevrolet og Dodge pallbílunum. Það er alveg hægt að nota svona bíla á fjöllum, þetta er fyrst og fremst spurning um smekk. Fyrir minn smekk, þá eru minni bílar með einu rými praktískari til að ferðast á. Þessi skoðun virðist vera í "tísku" núna, a.m.k. sést miklu minna af breyttum pallbílum á fjöllum en var fyrir svona 5 árum.
    Raunar held ég að mest af pallbíla innflutningi Íslendinga hafi byggst á fáránlegum tolla reglum sem búið er að hringla með fram og aftur í gegnum árin.
    Ég veit um einn vel breyttan "fisksalabíl" sem er til sölu á góðu verði:
    http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.p … 9&offset=0





    31.10.2002 at 07:29 #463940
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ef ný dekk eru sett á hreinar (ekki verra að þær séu ný málaðar) felgur, þá límast dekkin mjög föst með tímanum. Á þeim 11 árum sem ég hef stundað að hleypa lofti úr jeppadekkjum, hef ég lent í því að affelga tvisvar, í annað skipti við að aka í litla jökulsprungu, hitt skiptið við að rekast utan í stein. Ég hef alltaf notað 15 tommu "white spoke" stálfelgur. Ég hef oftast sett dekkin af og á felgurnar sjálfur.
    Aðferðin sem ég nota til að losa dekkin frá köntunum er að leggja dekkið flatt á jörðina, setja drullutjakkinn á dekkið og tjakkinn undir dráttarbeislið á bílnum. Með þessari að ferð hefur kanturinn alltaf losnað áður en bíllin tókst á loft.





    29.10.2002 at 10:25 #463886
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það var örlítil snjóföl í 1100 metra hæð við Hrafntinnusker og á Pokahrygg um helgina, annars var snjólaust á Fjallabaki. Sjá myndir úr baggaferð á vefsíðu umhverfisnefndar:
    http://um44.klaki.net/b02myndir.html





    26.10.2002 at 00:59 #463806
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Lang besta lausnin sem ég hef prófað er aircondition dæla. Ég notaði slíka dælu í 6 ár, gaf henni smá olíu annaðslagið. Ég gleymdi henni nokkrum sinnum á, einu sinni yfir hálfan Vatnajökul en dælan hikstaði aldrei. Þessi dæla var original í bílnum, ég aftengdi hana frá miðstöðinni og þéttinum og tengdi við hana plastslöngu sem kostaði nokkra hundraðkalla í Húsasmiðjunni.
    Á fyrsta jeppanum sem ég átti notaði ég 6 kg kolsýru kút. Þá kostaði hleðslan ekki nema 500 kr. (áður en Ísaga keypti Eim).
    Á núverandi jeppa er ekki pláss fyrir aircondition dælu þannig að ég er með "big red" dælu sem er um 4 mín að dæla í dekkið (air condition dælan var rúma mínútu). Það er allt í lagi þegar maður er með hóp því oftast eru eitthverjir í hópnum með rafmagnsdælur líka.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 2,041 through 2,060 (of 2,171 total)
← 1 … 102 103 104 … 109 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.