Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.10.2011 at 21:05 #736675
Fást þessir tímaliðir ennþá, og ef svo, hvar?
01.10.2011 at 17:42 #736669Þeir í vélum vissu ekkert. það er hætt að framleiða 9G og 11G kertin svo það eina sem er á boðstólum hér á landi eru 60G kerti, sem þurfa lengri hitunartíma. Sjálfvirki hitarinn er að hita í 4,7 sek,slær út í 4 sek, hitar í 1,5 sek, slær út í 4 sek og svo framvegis. Hentar vel fyrir 9G og 11G sem þurfa stutta tíma til að hitna en 60G þurfa 8-10 sek til að hitna. Ekki gott!! Veit einhver hvernig maður lengir hitunartímann með auka tengingu og getur leitt mig í gegnum það ferli?
KV
Eggert
22.09.2011 at 22:38 #736665Er að hugsa um glóðakertin, samkvæmt blaði sem fylgdi surbanum þá er talað um glóðakerti sem nefnd eru 9G sem eiga að vera í honum en samkvæmt grein á netinu í Ameríkuhreppi þá er sagt að endingarbestu kertin séu AC delco # 80G í 6,2 GM Diesel. Ég er bara "venjulegur" landsbyggðar púki og veit lítið um þessa hluti.
KV
Eggert
20.09.2011 at 11:21 #736661Er einhver sérfróður hér á landi um Dieselvélar í eldri kantinum, sérstaklega um 6,2 D ? Þyrfti að ná tali af þeim manni! Endilega bendið mér á þann mann.
Eggert
18.09.2011 at 22:24 #736653Hann er með TH400 skiftingu sem nýlega var tekin í gegn, samhvæmt fyrri eigenda, en skiftir sér hræðilega hart í gír nr2 og nr3 og er þá komin á háan snúning þegar hann skiftir sér upp.
Eggert
12.09.2011 at 17:32 #736649áfram
06.09.2011 at 22:31 #736647Eru enn framleidd dekk í 16,5 stærðinni? Mér var tjáð að það væri hætt. Hann er á 35" og á 16,5.
Eggert
04.09.2011 at 22:29 #220274Var að eignast Chevrolet Surburban k20 árg 82. Hann er á 8 gata felgum og mig langar að vita hvort 8 gata felgur undan öðrum árgerðum og tegundum passa undir þennann klett? Hann er á 16,5 en langar að setja undir hann 16 eða 17 tommu.
Eggert
23.08.2011 at 13:07 #735457Rétt er það. þakka þér fyrir Gísli. Þetta mun létta mikið fyrir mér að fá aukahluti á og í vélina.
eggert.
21.08.2011 at 21:32 #735453Á myndir en kann ekki að setja þær inn á síðuna. Smíðakóðinn á vélinni er 112C09 og segir mér ekkert. Keypti mér HAYNES manual um Jeep CJ 48-86 og þar er ekkert um þessa blöndunga né hvernig þekkja skal sexurnar í sundur. Ég er strand.
eggert
18.08.2011 at 21:28 #220087Er með orkubolta sem er Jeep laredo árg 84. Í honum er 6 strokka línuvél sem ég ber ekki kennsl á. Hún er með Webber 2ja hólfa blöndung. Vantar upplýsingar um þessi mál.
Eggert.
07.07.2011 at 11:54 #696556Gæti verið. Ég mun rífa kassann í sundur á næstunni í frumeindir og skoða allt saman. Athuga hvort skekkja sé á kúplingsöxlinum og endaslagið á gíröxlunum. Óskið mér velfarnaðar
Eggert
X-761
06.07.2011 at 16:05 #696552Kúplingshúsið er að vísu breitt vegna chevrolet vélar og jeep T-176 gírkassa en vandamálið var ekki til staðar fyrir kúplingsskiftin svo ekki er það húsið. Ég passaði sérstaklega að enginn aðskotahlutur eða neitt annað væri á milli við hersluna við leguna og það er bara hægt að setja olíuna í einn tappa á kassanum. Ég held, af því að kúlurnar skemmast bara en ekki ytri eða innri sleðinn, að þvingun sé milli neðri og efri gírtromlunar vegna slits á tönnum, ég held það! það gæti verið rangt hjá mér. Hvað haldið þið??
Eggert
X-761
05.07.2011 at 20:53 #696548Jæja!! 6 legum síðar er vandamálið enn til staðar, hrynja innan við 1500 km múrinn. Ný fóðring var sett í á síðasta ári í sveifarásinn þó svo lítið slit var merkjanlegt í þeirri gömlu. VANDAMÁLIÐ er enn til staðar. Málin á legunni er 45x85x19, sem er ágætis hlúnkur!! Hvað er meinið????????
16.03.2011 at 12:20 #723680Gísli bóndi á Uppsölum var merkur maður, það er satt. Hefði verið fróðlegt að hitta hann.
21.02.2011 at 12:01 #720622Gott mál. Næst á dagskrá er að moka inn Jeep-mönnum á síðuna.
24.12.2010 at 16:36 #714338Ég óska öllum félögum og velunnurum Gleðilegra jóla og gleðilegt nýtt ár!!
Eggert
X-761
07.08.2010 at 00:32 #699414Ég þakka fyrir svörin og vind mér í þetta.
Takk fyrir
Eggert
X-761
06.08.2010 at 00:59 #699410Það er nefnilega belgurinn í stýrinu sem ég er hræddur við að springi fram.
04.08.2010 at 21:23 #213835Þarf að rífa bílstjórasætið úr trooper árg 2000. Er hætta á að líknarbelgurinn springi fram ef ég aftengi geimana og ríf síðan sætið úr og set það síðan aftur í og tengi geimana? Verð endilega að vita þetta.
hafið gott kvöld
eggert
-
AuthorReplies