Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.04.2014 at 17:39 #456950
Það er motor á stykkinu sem og 2 sólskyggni. Bara allur pakkinn! Hélt að þetta væri mikið meira virði þar sem svona gott stykki er sjaldséð, held ég.
11.04.2014 at 11:32 #456376Var að eignast gluggastykki með rúðu og er þetta stykki í toppformi. Þetta er í willys cj5 og 7. Hvað er svona stykki verðlagt á þessa dagana?
KV Eggert.
30.11.2013 at 21:19 #440542Er erfitt að rétta dana 60 afturhásingu sem er aðeins bogin? Ef ekki er hægt að rétta hana, lumar einhver á svona hásingu tómri til kaups?
KV EGGERT
22.08.2013 at 22:06 #736677aftan á þessum bíl er 14 bolta minni hásingin en framhásingin er líklega10 bolta stærri, getur það verið rétt?
Hef ekki hugmynd um hvaða framhásingar voru undir þessum bílum eftir að það var hætt að nota Dana 44 um og eftir 1976.
KV Eggert.
31.07.2012 at 23:54 #756261HMM!! Gaman að sjá svipinn á fólkinu á afgreiðslukassanum þegar maður kemur askvaðandi með nokkrar birgðir af vaselini í fanginu! 😀 En líklega nokkuð til í þessu með ryðvörn.
31.07.2012 at 23:48 #756215Knastásskynjurum!
31.07.2012 at 00:17 #755649Tók öryggið fyrir klukkuna úr og þá virkar mælaborðið eðlilega! Furðulegt!!
31.07.2012 at 00:13 #756211einkver????
27.07.2012 at 23:45 #223970Hverjir eru með mesta og besta úrvalið af skynjurum hér á fróni fyrir fólksbíla og jeppa?
eggert
22.07.2012 at 18:08 #755647Það hlýtur eitthvert rafmagnsverkstæði að ráða við svona hluti hér á landi, þau ráða við tölvuviðgerðir sem er miklu flóknara fyrirbæri, er það ekki?
14.07.2012 at 17:28 #755645engin fyrirtæki hér á landi sem geta höndlað svona ?
08.07.2012 at 22:33 #755639Þannig að ég er nauðbeygður til að skifta um það ef alternatorinn reynist í lagi?
05.07.2012 at 22:44 #755635Nei það hef ég ekki gert. Hann hefur alltaf verið auðveldur og léttur í gang þannig að mér datt það ekki í hug. Mér var tjáð að mælaborðið væri oft að fara svona í þessari árgerð og tegund og væri þá skift um mælaborðið sem kostar 150 þús. Ég er ekki alveg að gleypa það svo hrátt. Þetta breytist ekki þó að ég keyri hann á mjög grófum vegi eða sléttum.
05.07.2012 at 14:06 #223840er með skoda oktavia árg 2000 sedan sem er farin að bila í mælaborðinu. Þessi bilun lýsir sér þannig að mælarnir, allir mælar með vísisnál, detta oft út og mismunandi lengi í senn. teljarinn og klukkan haldast alltaf inni. Setti nýjan rafgeimir í hann í vor og hætti þá þetta flökt í mælunum í tæpa 2 mánuði en er byrjað aftur. Hreinsaði pólana um daginn og setti leiðnifeiti á þá og hreinsaði alla mínusvírendana frá geimirnum og í boddy en það breittist ekkert. Er einhver með hugmynd um hvað getur verið að?
18.01.2012 at 22:51 #746979[quote="eddim":qf62p56f]Á nýja keflinu stendur 12 volt svo þá hlýtur það að þola 12 volta straum, ekki satt? Ég held að það sé erfitt að finna HEI kveikju fyrir sexu hér á landi svo ég ætla að nota keflið og gömlu kveikjuna.[/quote:qf62p56f]
Setti keflið í en enginn neisti kemur ($#%&$ og fleira bölv). Hvernig er hægt að finna út hvort IGNITION MODULE er bilaður? Verð að koma þessu í lag svo ég geti látið hann frá mér.
15.01.2012 at 11:54 #746975Veit kannski einhver um HEI kveikju fyrir sexu GM?
13.01.2012 at 22:19 #746973Á nýja keflinu stendur 12 volt svo þá hlýtur það að þola 12 volta straum, ekki satt? Ég held að það sé erfitt að finna HEI kveikju fyrir sexu hér á landi svo ég ætla að nota keflið og gömlu kveikjuna.
12.01.2012 at 17:48 #222068Er að setja svona vél í willys og vantar vitneskju um kveikjukerfið. Háspennukeflið er ónýtt og er engin mótstaða hjá keflinu. Sumir segja að það eigi að vera mótstaða og aðrir segja að það eigi ekki að vera. Nú er ég kominn með nýtt kefli í hendurnar og vil vera öruggur á þessu. Hver veit þetta?
kveðja
Eggert.
23.10.2011 at 12:32 #740193Ojá, það kemur margt trúlegt og ótrúlegt frá þeim "snillingum". Einn þeirra sagði mér á síðasta vetri að ef maður blandaði saman rauðum og bláum þá myndaðist sterk sýra sem eyðilegði vélina á skömmum tíma.
eggert
21.10.2011 at 22:12 #220905Er rauði frostlögurinn sem shell selur blöndunarhæfur við þann rauða frá esso?
eggert
-
AuthorReplies