Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.03.2014 at 12:18 #453597
Já flott, við verðum að vera duglegir að nota alla möguleika á þessari síðu. Ég er að læra á hana og mér finnst hún batna eftir því sem ég kynnist henni betur.
03.03.2014 at 10:03 #453594Kæra vefnefnd.
Mig langar að benda á að það væri til bóta (að mínu mati) að þurfa ekki að skruna neðst niður fyrir síðasta innslag til að komast að tökkunum þar sem hægt er að velja síðuna með t.d. næstu 15 innslögum. Það væri til bóta að hafa þessa takka líka fyrir ofan efsta innslag á hverri síðu.kv. A.S.
16.10.2011 at 21:57 #738067Hverjir eru að selja Pitbull dekkin og á hvaða verði eru þau. Mér finnst þau áhugaverður kostur , sérstaklega eru stærðirnar fjölbreyttar. Super Swamper stendur líka fyrir sínu. Verð skiptir náttúrlega máli, það kostar sjálfsagt hátt í hálfa millu að fá nýjan gang undir jeppa í dag. [quote="Bragi":3awy3u3x]Interco (SuperSwamper) framleiða margar tegundir en [url=http://www.intercotire.com/tires.php?id=9&g=1:3awy3u3x]SSR[/url:3awy3u3x] sem og [url=http://www.intercotire.com/tires.php?id=6&g=1:3awy3u3x]Irok[/url:3awy3u3x] henta kannski best sem snjódekk. Reyndar eru Irok dekkin nánast þau einu sem framleidd eru bæði sem snjó- og grjótdekk. Þau eru t.d. til í 39,5" bæði Radial sem og Diagonal (Nylon). SSR er m.a. til í 38" og hafa menn verið nokkuð ánægðir með þau. Ég (og fleiri) mælum með radial ef þess er kostur.
Ég hefði viljað sjá Pitbull með sín [url=http://pitbulltires.com/growler.php:3awy3u3x]Growler[/url:3awy3u3x] dekk í 38-44" en þau eru víst bara til í upp að 35" og svo 47". Dágott bil þar á milli. Þá er það bara [url=http://pitbulltires.com/rocker.php:3awy3u3x]Rocker-inn[/url:3awy3u3x] sem uppfyllir þær stærðir sem upp á vantar en mér finnst hann aðeins of groddaralegur en það mætti s.s. skera hann til að auka snjógripið.[/quote:3awy3u3x]
01.05.2011 at 21:47 #729431Kærar þakkir fyrir þetta.
DFNDR
01.05.2011 at 18:14 #729427Kærar þakkir fyrir góð og skjót svör.
Vegna þess að ég bý á Austurlandinu góða þar sem ekki snjóar í maí er ég ekki á leiðinni í Nesradíó langar mig að vitahvort ég get ekki farið með stöðina í N1 á Egilsstöðum til að láta snillingana þar forrita stöðina?Kveðja DFNDR
01.05.2011 at 16:39 #218841Sælir félagar.
Ég er með talstöð í höndunum sem heitir TAIT T2000 og er með lausum front.
Talstöðin er ekki með 4×4 rásunum og mig langar til að láta forrita þær inn í rásalistann en ég sé ekki að það sé neitt tengi fyrir tölvu.
Hefur einhver reynslu af þessum stöðvum og veit einhver hvernig þær eru forritaðar?Kv DFNDR
25.04.2010 at 18:38 #691764Til hamingju með að hafa sett upp þessa "random" mynd aftur. Maður fór oft inná myndasöfn af forvitni ef einhver myndanna fangaði athygla manns. Mér finnst hins veger að það þurfi að færa modulinn með handahófsmyndinni uppfyrir modulinn með auglýsingunni. Ramminn með myndinni lenti fyrir neðan sýnilegt svæði á skjánum mínum þannig að ég vissi ekki lengi vel hvað menn voru að tala um þegar farið var að tala um handahófsmyndirnar.
02.04.2010 at 08:31 #688884Er ekki hægt að eyða svona þráðum.
23.03.2010 at 11:05 #687668og?????? ertu að vonast til að komast hraðar???? Þetta er nú bar hælúx….ekki reikna með kraftaverkum.
28.02.2010 at 21:30 #684550Ég held að það borgi sig varla að fara breikka 12 tommu felgur fyrir bar 2 ja tommu breikkun. Það er miklu praktískara að skipta við einhvern eða kaupa 8 tommu felkgur og breikka þær, vinnan er sú sama
30.03.2009 at 12:58 #644730Það er kannski spurning hvort hásingar undan ROCKY væru kostur því þær eru með fimm gata nafi eins og VITARA. Svo held ég að þær séu styttri (mjórri sporvídd) en Hi Lux hásingar en er þó ekki viss. Gæti fundið svona hásingu handa þér ef þú villt:)
09.09.2008 at 08:47 #629078Fyrst skal ég viðurkenna fúslega að ég hef ekki farið um það svæði sem áformað er að spilla. Það skiptir samt ekki ekki máli. Eða kannski samt vegna þess að þá á ég eftir að skoða eitthvað og því lengur sem það verður ósnortið hef ég lengri tíma til að skoða það. Það sem ekki hefur komið fram er stærð virkjunarinnar en hún á að gefa skítin 46 megawött sem er engan veginn nógu mikið til að réttlæta þau náttúruspjöll sem fyrirhuguð eru.
12.04.2008 at 20:47 #620100Er ekki algert möst að hafa Hrollinn og Þóri á svona sýningu :=) [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=cars/5492/43152:24pqrarx][b:24pqrarx]Hrollur er glæsilegur[/b:24pqrarx][/url:24pqrarx]
21.02.2008 at 07:32 #614514Að losa millikassann frá.
Boltarnir sem halda kössunum saman eru losaðir og svo þarf að slá reksplitti úr stöngunum sem ganga aftur í millikassann og þá er Björninn unninn.
Annars er fræðilega mögulegt að setja saman tvo svona millikassa með því að taka keðjuna fyrir framdrifið af fremri kassanum og öxulinn þar úr smíða millistykki sem tengir tvo millikassa saman, stytta öxulinn sem gengur fram úr seinni millikassanum og lengja öxulinn úr aftari kassanum fyrir framdrifið þannig að hann komi í gengnum legusætið fyrir framdrifsöxulinn á fremri kassanum.Eða þannig.
12.02.2008 at 12:17 #613496Er ekki alveg að fatta hvaða ástæður eru fyrir því að Síminn getur ekki verið aðili að þessu langdræga kerfi Vodafóns. Það hlýtur að vera viðskiptalegs eðlis. Mér hefði samt fundist eðlilegt að báðir aðilar hefðu gert gagnkvæman samning um reiki á milli dreyfikerfa. Nú hlýtur aðeins að vera farið að jafnast samkeppnisstaðan hjá báðum aðilum. Spurning hverjir eru bestir að þrýsta á þetta???
Annars er ekkert stórt vandamál að vera með frelsiskort sem maður notar þega farið er inn á svæði Vódafóns og jafnvel hægt að láta hringinguna elta sig til að þurfa ekki að vera að vandræðast með of mörg símanúmer.
31.01.2008 at 11:48 #612236Á það að kallast Þorrablót???
Miklu nær væri að kalla það Góublót eða bara vorfagnað.
Nei annars, þetta er í góðu lagi. Meiri tími til að gera það sem þarf að gera fyrir fararskjótana.
08.01.2008 at 09:19 #609324Það að herða á flexitorum á klafabílum er yfirleitt tiltölulega einföld aðgerð. Flestir sem kunna á skiptilykil geta gert þetta sjálfir. Þess vegna er ekki alveg víst að breytingaverkstæði hafi gert það þó að bíll sé merktur því.
Mér hefur hins vegar fundist að utanvegaraksturshæfileikar klafabíla batni mjög við það að verða aðeins stífari að framan.
Það er hins vegar eitthvað sem er heldur ekki óframkvæmanlegt að síkka drifkúlu og stýrisgang en virðist aldrei vera gert.
05.12.2007 at 07:25 #605706Ef ég man rétt eru kantarnir fyrir 38" 15 cm breiðir. Ég breikkaði 35" kanta og endaði í ca. 18 cm breidd sem er sennilega bara algert lágmark fyrir 44" og jafnvel 38". Mótin fyrir þessa kanta eru alveg eins nema bara mismunandi breiddir. Til samanburðar er hér
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 4281/36332hægt að sjá þessa þrjá höfðingja sá í miðjunni er með "original" köntum en sá til vinstri er með breiðari kanta og sá gamli er með gömlu kantana sem er með skrúfunrnar utan á köntunum.
Kveðja DFNDR
19.11.2007 at 20:28 #604018Er aðeins að velta fyrir mér hvaða reynslu menn hafa af notkun nospin lása í bílum sem eru með sídrifi. Hef einhvern vegin á tilfinningunni að þeir hljóti að vera soldið erfiðir ef ekki er hægt að taka læsinguna úr samabandi td. í hálku. Samt kostur að þurfa ekki að vera með slöngur og barka sem frjósa og skemmast. Nospin lásar virðast líka vera heldur ódýrari en loftlæsingar og barkalæsingar.
Endilega að miðla af reynslubrunnum ykkar.
27.05.2007 at 08:22 #591268Einu sinni lenti ég í þessu (á gamla Pajero 1988 árg)og gat engan veginn fundið hvað var að. Var að gefast upp þegar ég uppgötvaði að legan sem er utan á framdrifinu (minnir hægra megin) var farin. Þetta er ósköp venjuleg, ómerkileg kúlulega með pakkdós og sjálfsagt getur farið vatn inní ef verið er að sullast í vatni. Ef ég man rétt var ekkert stórmál að skipta.
-
AuthorReplies