Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.03.2009 at 10:20 #643962
Völsun á felguköntum
Þessi aðferð við að koma í veg fyrir að dekk affelgist eða snúist á felgum hefur reynst mjög vel. Kostir valsins umfram hefðbundna suðu er fyrst og fremst að valsinn stækkar ummál kantsins og sætisins en með ásuðu þá hækkar kanturinn en sætið gerir það ekki og jafnvel minkar sætið vegna þess að suðan dregur sig saman.Valsin breytir halla sætisins og hægt er að ráða hæð kantsins að vild en við höfum fundið út ýmis mál sem eiga við ákveðin dekk.. Við reynum að ráðleggja mönnum varðandi dekk sem ekki er búið að valsa felgur fyrir áður og hefur það gengið áfallalaust.
Kveðja Davíð
upplýsingar fengnar af http://www.gjjarn.com undir felgur fyrir jeppamenn
20.03.2009 at 10:09 #643960Sælir.
Ég hef heyrt að kantsuða sé ekki málið, en vals sé algjörlega málið út af því að þá eiga felgurnar að stækka aðeins. Afsakið fávisku mína að þessu sinni en ég fékk mjög góða ræðu um þetta um daginn en man hana ekki allveg
Takk fyrir
en annars er ég bara reynslulaus nýliði, hvað veit ég!
17.03.2009 at 11:32 #643778það var einmitt þetta sem ég var að leita að
þakka þér kærlega fyrir
Kveðja Davíð
17.03.2009 at 10:04 #204048Halló.
Hvað hét aftur videóið sem þú linkaðir inn á myndasafnið hjá þér með willysnum sem var með 540 chevy og var að fræsa upp brekku á youtube
Takk Fyrir
Kveðja Davíð
11.03.2009 at 14:32 #643270ég held að arctic trucks séu með þau. Ég held að ég hafi séð þau inn á arctic síðunni
kveðja Davíð
11.03.2009 at 14:25 #204016hvar fær maður mudderinn og hvað kostar hann
kveðja Davíð Valdimar Vallson
10.03.2009 at 09:36 #203995hver er standard gatadeilingin á d44 undan scout?
kveðja Davíð
09.03.2009 at 09:44 #642662við vorum komnir út á malbikið á leiðinni heim rétt hjá geisi. Allt hafði gengið vel nema þá brotnaði krossliður á afturskaftinu hjá mér og drifskaftið hrundi í jörðina og gataði þar með vinstra afturdekkið. Ég kippti skafinu undan og við settum tappa í dekkið og þurftum að gera það svona 3svar á leiðinni af því það var alltaf að leka. Ég hélt að skiptingin væri farin en svo uppgvötaði ég að ég gat sett í framdrifið og keyrt þannig. Svo vorum við komnir að selfossi og þá brotnuðu 3 af 4 boltum á stýrismaskínuni þannig að hún var laflaus þannig að ég þurfti að skilja bílinn eftir í hveragerði
Kveðja Davíð Valdimar Valsson
25.02.2009 at 13:26 #641964ég er með slitna 38 swampera og það er bara skorið í miðjunni en ekki á köntunum. ÉG var að pæla hvort ég ætti að klára verkið, þau voru negld á köntunum svo tók ég naglana út.
Takk fyrir
kveðja Davíð
25.02.2009 at 13:06 #641962hvað kostar að láta gera þetta fyrir sig?
takk fyrir
25.02.2009 at 12:53 #203909Hvernig er þetta gert, getur maður gert þetta sjálfur, þarf maður sérstaka vél í þetta?
Takk fyrir
10.02.2009 at 13:51 #637574get ég teki einn með mér semsagt
Davíð Valdimar Valsson+1 hópur 5
09.02.2009 at 09:40 #640372Fer náttúrulega alltaf eftir hver er að keyra, hversu gamall bíllinn er, hvernig dekkjum hann er á o.s.frv
en miðað við grand cherokee 4,7L þá eru þeir óhækkaðir minnir mig að fara svona 18 lítra á hundraðinn innanbæjar, en það er náttúrulega ekki gott að segja en þetta er það sem ég hef heyrt frá 2000 grand cherokee eiganda
02.02.2009 at 08:17 #637518Ég er á 38" breyttum Chevrolet s10 Blazer
mig langar með.
Kveðja Davíð Valdimar Valsson
S:8460999
28.10.2008 at 08:44 #203126Góðann daginn
ég var að rúnta í snjónum á veginum sem liggur út af krýsuvíkur leið og týndi símanum
semsagt ef þú keyrir krýsuvíkurveginn allveg þangað til að þú kemur að stóru brekkunni sem liggur að kleifarvatni og beygir til hægri út á einhvern slóða sem er með 4×4 skiltinu um að það megi ekki keyra utan vegar.
Ef þú eða þið rekist af einhverri fáránlegri tilviljun á sony ericsson síma þá væri vel þegið að fá hann aftur, ég er ekki vongóður af því að þetta var í snjó en maður veit aldrei. Takk fyrir
kveðja Davíð sími 8460999
08.10.2008 at 11:11 #630728Er sniðugt að smíða þetta úr rustfríu… er það ekki alltof veikt fyrir svona nokkuð?
16.09.2008 at 20:08 #629472Nú jæja þá hafa mínar heimildir ekki verið allveg réttar en já í sambandi við afhverju hann setti grindina undir. Hann var í jeppaferð og braut stýrisenda og eins hress og hann var eða svo segir sagan þá skellti hann sér bara að næstu girðingu og reif gaddavír og batt stýrisendann. Svo var hann bara rúntandi í bæinn og fann ekkert fyrir þessu og fannst hann einmitt liggja svo vel (væntanlega af því að hann var svo óendanlega langur) þá var hann kominn á 80 km hraða og þá slitnaði þetta einmitt og hann endaði út í skurði og þannig komu grindarskiptin til.
Vonandi að einhver eigi myndir. En veistu nokkuð hvað var langt á milli hásinga?
kveðja Davíð
16.09.2008 at 15:14 #202922Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver ætti gamlar myndir af þessum bíl.
Þetta var semsagt Chevrolet K5 blazer ’77 ef mig minnir rétt. En þetta var enginn venjulegur blazer. Hann var lengdur og var með pickup skúffu aftan á sér.
Mig minnir að ég hafi heyrt að það hafi verið 4-6 metrar á milli hásinga. Hann var á 44 tommu dekkjum með dana 60 hásingum með 11 lítra 6 cyl dísel línuvél úr bens vörubíl og túrbínu sem blés 21 pundi og var 3-400 hestöfl og togaði 760 nm og þar af leiðandi vó hann einhver 4 tonn ef ég hef rétt fyrir mér, mig minnir að vélin hafi verið 1 tonn ein og sér.Það getur verið að þessar heimildir séu ekki allveg réttar hjá mér en þetta hef ég heyrt frá gömlum vinum hans Týra.
Þessi bíll dreif allt og var ótrúlega langur og spólaði á 44 tommunni í 4hjóladrifinu á malbiki, slíkt var aflið og togið.Svo eftir að hann var búinn að keyra út af tók hann upp á því að setja ford f350 grind undir hann og þá dreif hann ekki eins mikil lengur og varð heldur þyngri.
Þessi bíll er ekki til lengur og mig langar ótrúlega að sjá hann. Ef einhver á gamlar myndir af honum þætti mér mjög gaman að sjá þær.
Kveðja Davíð
28.08.2008 at 14:38 #202839Mig langar soldið að útbúa cruise control í blazerinn.
hann er með 350 blokk úr 82 chevy van og svo einhvern hrærigraut og rafstýrða innspýtingu.
Ég á gamal cruise control úr gamla blazernum sem var með 2.8L v6 og einhverjar leifar af öðru cruise controli fyrir 4.3 l v6. get ég mixað það einhvernmeginn eða á ég að rífa cruise control úr einhverjum bíl með 350 original? svo sem k5 blazer eða chevy van eða suburban eða eitthvað?
Kveðja Davíð
28.08.2008 at 13:38 #628000Blazerinn hjá mér sem er með 350 mótor og rafstýrðri inspýtingu eyðir 18 í langkeyrslu en svona 25-30 innanbæjar. En mér maður lætur sig samt bara hafa það, ég meina ef þetta er gaman (sem það er) þá er það bara gott mál og þá hugsar maður ekkert út í þetta eða allavega ekki ég. Ég lít bara niður á þessa prius eigendur, ég er kemst hraðar yfir og flottar sound :).
Reyndar í gamla blazernum var 4.3L v6 vortec mótor og hann eyddi svona 18 til 20 lítrum. Þetta eyðir allt 20 lítrum + – 😉Ps: það kostar líka að fara til spánar nema hvað að þetta er skemmtilegra
-
AuthorReplies