Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.01.2004 at 21:04 #484108
Hér: http://www.jeeptech.com/
er ýmis fróðleikur: http://www.jeeptech.com/convtrans/Þessi NV4500 virðist nokkuð massífur, 5 gíra.
-haffi
12.01.2004 at 20:40 #483942Athugaðu að kaupa dekk sem er með réttu load range fyrir þina bílþyngd. Of hátt load range m.v. þyngd bíls þýðir að dekkin fletjast ekki nóg út. Ef þú skiptir við fagmenn þá þarftu örugglega ekki að hafa áhyggjur.
-haffi
09.01.2004 at 01:35 #483700Er þetta nokkuð út af boddýhækkun? rekst stöngin í í lága? bara hugmynd…
-haffi
09.01.2004 at 00:58 #483542Nú hefur manni sýnst menn lítið verið að lækka hlutföll í þessum sjálfskiptu LC80 bílum, kann þó að vera rangt hjá mér, en gæti það spilaði eitthvað inn í? Bara hugmynd ekki að dissa!
-haffi
07.01.2004 at 15:18 #483478Góður punktur Rúnar, alls ekki algengt að gormarnir séu sérstaklega festir.
-haffi
07.01.2004 at 15:03 #483474Það er rétt að gormur er spenntur saman, en það sem ég átti við var að gormur hefur miðjustöðu (ekkert hvílir á honum) og ef maður reynir að teygja á honum vill hann toga aftur í miðjustöðu. Það var þessi eiginleiki sem ég átti við loftpúði hefði ekki. Það kann þó að vera rangt hjá mér. En svo er spurning hvort sundurslagið á demparanum er ekki löngu komið inn áður en gormurinn er orðinn lengri en í miðjustöðu.
vona að þetta skiljist…
-haffi
07.01.2004 at 09:04 #483470Gormar taka miklu meiri þátt í að stöðva sundurslagið heldur en loftpúðar.
-haffi
05.01.2004 at 16:58 #483384Fékk mína hjá Benna (Bílabúð Benna) fyrir nokkrum árum.
-haffi
05.01.2004 at 14:52 #193392Nú hefur maður heyrt um einhverja sem nota 38 um vetur og 35 um sumar. Las einhvers staðar að þeir sem eru á mæli þurfi að láta tilkynna einhverju skrifræðisbatteríi til þess að útreiknaður akstur sé réttur.
En hvernig er það með hraðamælinn sjálfan, er hægt að hafa tvær stillingar á þessum hraðamælabreytum?
-haffi
05.01.2004 at 12:59 #483234[url=http://www.marlincrawler.com/3rd.html:3bklg3ln]http://www.marlincrawler.com/3rd.html[/url:3bklg3ln]
-haffi
31.12.2003 at 11:30 #483094Einnig var eitt sinn hægt að fá Oldsmobile Cutlass Sierra (eða eitthvað álíka) með 4.3L deisel V6, framhjóladrifinn í ofanálag, þ.a. þeir hafa slegið tvær flugur í einu höggi hjá GM þegar þeir klúðruðu þessu.
En um 4.2 vélina frá Nissan, þá sýnist mér hún vera mjög algeng í Ástralíu, einnig fáanleg í nýja bílnum. Örugglega til nóg af þessu þar, spurning um flutningskostnað
Hún er að ég held að toga um 330-340Nm meðan 2.8TD orginal er að toga ca 270 (skv. 4×4 bókinni frá 1994). Þessi vél virðist ekki algeng í þýskalandi m.v. framboð á http://www.mobile.deÞað sem við köllum gamla boddy (89-97) heitir í ástralíu GQ (gékú) en nýja boddýið heitir GU (géu).
-haffi
31.12.2003 at 00:25 #483074Flott, þetta hljómar vel. En þegar þetta "fer", erum við þá um að tala um hvissbang eða fer að seytla út og vélin að skemmast smátt og smátt?
-haffi
30.12.2003 at 23:58 #483070Sæll Glanni, takk fyrir þetta. Hvað geta menn gert til að lágmarka skaðann? Forðast að drepa á fljótlega eftir áreynslu?
Er hægt að sjá einhvern forboða með því að taka heddið af og skoða?-haffi
30.12.2003 at 23:12 #483064Eiginþyngd skv. skr.skírteini er ca. :
2.8L: 2150
4.2L: 2250-haffi
30.12.2003 at 22:42 #193367Jæja, enn spurningar um Patrol, og þá sérstaklega heddin.
Hvað er það sem kemur fyrir þau sem gerir það að verkum að þeim er skipt út. Er þetta eitthvað sem gerist kvissbang eða er þetta eitthvað sem hægt er að koma í veg fyrir með því kannski að bæta við nákvæmari hitamæli, smurþr.mæli og kannski afgashitamæli og fylgjast vel með?
Hvað segja menn?
Annars tók ég í 4.2 patrol í dag, og það er mjög greinilegur munur á afli, hafa heddin í þeim líka verið að fara eða er kannski ekki nógu mikið til af þeim á klakanum til að reynsla sé komin á?
gracias,
-haffi
22.12.2003 at 21:31 #482674Það er eins og staðurinn sem hýsir myndina sé eitthvað að stríða. Ég setti hana ekki inn í albúmið mitt því þá skalast hún til og verður ólæsileg.
Þeir sem hafa áhuga á að fá þessa mynd skulu bara senda póst á hafsteinn@nervus.is
-haffi
22.12.2003 at 14:53 #193325Rakst á þessa mynd um daginn, hún lýsir nokkuð nákvæmlega hvernig læsingin virkar í Patrol.
Ef linkurinn virkar ekki þá vistaði ég myndina ef menn vilja prenta hana út.
-haffi
13.12.2003 at 00:55 #482624Þú veist að það er desember og snjór á fjöllum?
Ég hef eiginlega verið á bílasölurúnti síðan í haust og það er áberandi lítið framboð af DC og 36/38/… breyttum jeppum yfirleitt eins og er.
-haffi
10.12.2003 at 15:26 #482480Verð nú bara að segja að þetta er mjög smekkleg fjöðrun.
-haffi
04.12.2003 at 21:11 #482112Ekki veit ég um hvort hægt sé að nota þessi kort með Navtr. eða Ozi, en ég prufaði að tengja minn Garmin garm við VisiT forritið (sem landm. selja) og það "trakkaða" fínt, bara gert til gamans, getur ekki gagnað manni mikið í 1:250000, spurning með nýja settið 1:100000. Mér finnst 4þkall ekki mikið fyrir það, ódýrara en Ozi (sem ég reyndar var að kaupa). Ef LMI gera svipaða útgáfu með 1:50000 í þessum gæðum þá er það mjög spennandi, en auðvitað vantar miklu meiri fídusa í VisIT forritið, til að vinna almennilega með trökk, rútur, og hvað þetta allt heitir.
Flott forrit samt.
-haffi
-
AuthorReplies