Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.12.2003 at 18:53 #481754
Takk fyrir þetta Agnar, ekki veitir af að geta fundið eitthvað að til að pína verðið niður! 😉
-haffi
02.12.2003 at 21:32 #481872Þú veist eflaust að LC80 afturhásing er með kúluna ekki í miðjunni, þ.a. þú þarft væntanlega líka þá þannig millikassa.
Gæti undið soldið upp á sig, ekki hásingin, heldur verkefnið
En gangi þér vel engu að síður.
-haffi (sem getur bara látið sig dreyma um LC80)
02.12.2003 at 09:25 #481856Mér var einusinni bent á eitthvað sem heitir Áliðjan í Kópavogi.
-haffi
01.12.2003 at 14:10 #481750Þakka þér kærlega fyrir ráðin Bjartur.
Sennilega er þetta ekkert alvarlegt með hljóðið í bínunni, þarf bara að fá einhvern sem þekkir þetta til að hlusta.
-haffi
30.11.2003 at 21:28 #193248Ég var að taka í Patrol 94, 38″ og langar að leggja nokkrar spurningar fyrir þá sem þekkja þessa bíla.
Læsingin að aftan virkar ekki. Hvað gæti valdið því? Er þetta eitthvað algengt og eru dýrir varahlutirnir í þetta? Einhvern tímann heyrði ég að þetta væri vacuum stýrt, fyllist þetta af vatni eða hvað?
Ég hafði aldrei keyrt svona bíl áður og mér fannst heyrast soldið mikið í túrbínunni við inngjöf, er það „eðlilegt“? Mér sýndist hann ekkert hitna, tók vatnskassalokið af með hann í gangi eftir hálftíma akstur og sá engar loftbólur.
Snúningshraðamælirinn hoppar og skoppar, var aldrei neitt að marka hann sýndist mér, hvað gæti valdið þessu?
Mér fannnst hann leita aðeins, eins og hjólalega væri ekki nógu hert eða slitin, hvað kosta legur í þetta? Get ég notað Toyotu naflykilinn minn á þetta?
þakkir,
-haffi
28.11.2003 at 13:00 #481592Ath. eftirfarandi er bara mín skoðun, en vonandi annara.
Mér finnst að ef einhver breytir einhvern þessara jeppa fyrir 38", þá eigi hreinlega að loka hann inni. Hver fengi sig til að klippa boddy á nýjum Porsche jeppa t.d?
Ef ég væri trúaður myndi ég segja: GUÐLAST!
-haffi
27.11.2003 at 15:34 #481610Gamalt og ódýrt trix er að lengja fjaðrahengslin, en kannski ekki málið ef fjaðrirnar eru orðnar mjög signar.
-haffi
27.11.2003 at 14:41 #481570[url=http://homepage.mac.com/jsewell/:zup7cu1u]linkur[/url:zup7cu1u]
26.11.2003 at 08:29 #481548Sæll, og takk fyrir svarið. Er 38" þá ekki nóg fyrir LC60 til að fljóta fullhlaðinn eins og þú lýsir?
Ég er solítið veikur fyrir þessum bílum, Þessi vél togar nefnilega helvíti mikið, ca. 315Nm. Er hún aðalástæða þyngdarinnar?
takk,
-haffi
25.11.2003 at 19:47 #193228Hvað er LC 60 (8?-88) þungur? Munar miklu á honum og 89-97 Patrol? (í þyngd)
-haffi
22.11.2003 at 23:32 #481200Ég legg til að þessar 4-5 linkar á spjall/auglýsingar
verði teknir af aðalsíðunni, bara 2 linkar, Spjall og
Auglýsingar sem vísa á sitthvora síðuna sem hvor um sig
sýnir 5 síðust færslur í hverjum flokki.Mér finnst að þannig verði minna tilefni til að misnota þetta (þeas að senda sömu auglýsinguna inn á marga flokka).
-haffi
17.11.2003 at 13:56 #480660Heyr Heyr!
-haffi
14.11.2003 at 11:03 #480562Nú er ég að fara að taka í Patrol 38", 1994, hverju á ég að líta eftir helst í þeim? Fyrsta spurningin verður náttúrulega "Er búið að skipta um hedd?", en er einhver leið að meta ástandið, hvort heddið "sé að fara" ? eru einhverjir aðrir algengir kvillar í þessum bílum?
takk, Haffi
13.11.2003 at 17:27 #193170Sælir, eftir nokkurra ára legu á Langar-að-vera-á-nýjum-bíl deildinni hef ég náðu fullum bata eftir langan VAXTA-hormónakúr.
En þá er annar kvilli farinn að hrjá mig, nefnilega jeppasýkin, á talsvert háu stigi, og afleiðingarnar eru augljósar. Óratíma er eytt á old.f4x4.is, http://www.bilasolur.is, http://www.smaauglysingar.is, http://www.frett.is í leit að „besta“ bílnum án þess þó að komast að nokkurri niðurstöðu, bensín eða dísel Togaogýta eða Pattrolla, ég get ekki ákveðið mig.
En það er ekki spurning mín til ykkar, heldur, HVENÆR er best að kaupa sér bíl? Lengi hefur verið talað um að á vorin fyllist bílasölur af jeppum og að núna (nóv/des) sé ekki besti tíminn.
Endilega tjáið ykkur!
-haffi
13.11.2003 at 15:11 #193169Sælir, er vitað hvenær nýja bókin kemur út? Maður er farinn að hlakka til!
-haffi
12.11.2003 at 14:22 #480320Eitt skil ég ekki í sambandi við þessar síur sem eiga að auka loftflæði um XX% (K&N ofl.)
Mér skilst að þær sé oftast bara gisnari, þ.e. stærri agnir (og meira loft) komast í gegnum þær.
Getur maður ekki bara fengið sér stærri pappasíu, etv. þarf að stækka síuhólfið eitthvað, en ætti maður ekki að fá "aukið flæði", en semt jafn hreint loft og áður?
Svona hlutir eins og þessar síur og HiClone og fleira hef ég miklar efasemdir um. Er ekki ástæða fyrir því að þessir hlutir koma ekki standard í bílum í dag?
-haffi
12.11.2003 at 12:56 #478012Hef aðeins lesið um þetta í tengslum við toyotu og hvernig margir í usa gera þetta.
Toyota millikassi er í raun í tveimur einingum, fremri hluti sér um háa/lága, aftari hlutinn um tengingu við framskaft.
Það sem menn gera er að bæta einni svona frameiningu á milli gírkassa og millikassans sem er fyrir í bílnum, möo eru með tvær frameiningar og svo eina aftari einingu.
Mynd af þessu ætti að vera ca. [url=http://www.marlincrawler.com/dual_mc07.html:2b4bi82z]hér[/url:2b4bi82z] eða http://www.marlincrawler.com/dual_mc07.html ef linkurinn virkar ekki.
Það sem er lykilatriði í þessu er stykkið á milli þessara tveggja frameining, það er einmitt það sem Marlin (sjá linkinn) býr til. Mig minnir að einhverjir hér heima hafi gert eitthvað svipað.
Þessi leið kostar náttúrulega styttingu/lengingu skafta, veit hversu vel þetta hentar í bíla þar sem afturskaftið er mjög bratt fyrir.
Svo er hægt að fá lægri lægri gír í hann líka, 1:4 eða álíka.
-haffi
10.11.2003 at 15:29 #480096Þetta með lokurnar hlýtur að vera grín.
-haffi
04.11.2003 at 13:19 #479638Eik,
veistu um einhver sniðug forrit á Linux sem geta notað kortin
sem eru í gangi og spjallað við Garmin?gracias,
-haffi
23.10.2003 at 16:44 #193056Hvernig er það með LC80 og 38/44″ hækkun, þarf
að snúa framdrifskúlunni upp á við með tilheyrandi
skurði/suðu eða hvernig gera menn þetta?(á ekki svona bíl, nema náttlega í draumi)
-haffi
-
AuthorReplies