Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.03.2007 at 13:50 #586460
Var að skoða þessar Kenwood stöðvar, þvílik snilld að geta verið með frontinn lausan frá stöð. En vantaði upplýsingar hvað kostar að fá aðgang að stöðvum félagsins og þarf að borga eitthvað ársgjald (klúbbur/póst og fjarskipta)?
Og hvað er að gerast með önnur fjarskipti t.d. Tetra er það alveg dáið, hvenær hættir NMT(2008). Er ekki Tetra allur pakkinn talstöð sími og staðsetningartæki. Er ekkert verið að berjast fyrir því að það verði áfram.
29.03.2007 at 01:33 #200018Langaði að vita var að spá í að fá mér VHF stöð í bílinn og var sagt að f4x4 myndi úthluta mér tíðni og svona. Hvað kostar þetta og er hægt að sjá dreifisvæðin. Er hægt tildæmis hægt að nota bátastöðvar?? Langaði að fá sem mestar upplýsingar um þetta er voðalega lítið inní þessum málum.
22.03.2007 at 09:11 #585390Jæjæ þá er maður búinn að rífa heddið af. Var til 1 í nótt æðislega gaman sérstaklega þar sem ég var með vitlausta viðgerðarbók. Ætlaði að reyna taka heddið af án þess að rífa nokkuð í kringum innspítinguna en það ætlaði bara ekki að ganga. Voru alltaf eitthverjar slöngur að stríða mér og plögg.Varla að maður sé að nenna setja þetta saman aftur hehe. Langar í V8
en þessi verður að duga allavegana frammá sumar.
Þakka fyrir svörinn svo er bara að sjá hvað hvað gerist í húddinu næsta sumar.
20.03.2007 at 23:13 #199967Jæjæ þá fór heddpakkning í hesthúsinu hjá mér og var nú búinn að ákveða það að keyra þessa vél hjá mér þangað til að eitthvað færi og bæta þá við stóðið. Er einhver toyotuvél sem passar nánast í staðinn fyrir 2,4 efi t.d. 3.0 úr runner þ.e. vélafestingar og svona??? Vatnskassinn gæti hann dugað og svona fleiri pælingar nenni nefnilega ekki að fara í neitt vesen allavegana ekki þessa dagana.
Endilega ausið úr viskubrunninum. Þarf nefnilega að klára þetta sem fyrst svo ég komist út fyrir borgarmörkin.
16.03.2007 at 00:51 #584572Þetta er bara díesel án olíugjalds svo er mismunandi hvað menn eru með í afslátt.
16.03.2007 at 00:16 #584568Já maður þarf að spá í þetta betur, verð samt að segja að 500lítrar sparnaður hljómar nú ekki hlutfallslega mikill á svona bát. En sparnaður samt sem áður.
vil bara þakka fyrir mig og þau svör sem maður hefur fengið.
15.03.2007 at 00:42 #584542þessi umræða átti sér stað fyrir 4 árum og það er nú oft þannig að þegar árin líða þá breytist margt svosem skoðanir og reynsla. Einnig er það þannig að þegar buddan er búin að jafna sig þá þora menn frekar að viðurkenna að hafa keypt köttinn í sekknum.
var að spá í þetta á litla bensínvél og jafnvel 650hestafla bátavél sem eyðir 50-120 lítrum/klst
15.03.2007 at 00:15 #199921Langar að vita hvernig þetta hefur verið að reynast mönnum t.d hvað hafa menn verið að setja þetta á litlar/stórar vélar, eyðslutölur og annað.
14.03.2007 at 23:38 #584534
14.03.2007 at 23:23 #199919fann einhverntíman heimasíðuna þeirra en ekki lengur eru þeir ekki með síðu??
13.03.2007 at 18:25 #584380En get ekki annað sagt að FÁRANLEGT björgunarsveitir séu að eyða milljónum í að bjarga mönnum sem klárlega eru vanbúnir og oftar en ekki allsekki í neinni hættu. Gátu bara ekki látið vita af sér útaf því þeir áttu ekki fjarskiptabúnað eða þegar menn eru villtir útaf gps leysi. Gps tæki kostar 10-15þús(göngutæki), talstöð 30þús, dekk til að koma sér í vandræði 100-250þús. Er þeirrar skoðunar að klárlega eigi að láta menn borga ef að þeir eru ekki með lágmarksbúnað bara koma á einhverri reglugerð (gps-talstöð/sími,og eflaust fatnað).
Það þarf ekkert að ræða þetta meira ef þú hefur efni á jeppa og dekkjum þá hefur efni á því að græja þig með þessum lágmarksbúnaði. Menn vaða útí hvaða vitleysu sem er því þeir vita að þeim verður bjargað frítt og einsog menn vita þá eru björgunaraðgerðir ekki hættulausar fyrir þá sem stunda þær, væri ekki sárt að vita til þess að einhver björgunarsveitarmaður færist útaf því að þú gast ekki hringt og látið vita af þér.
10.03.2007 at 22:25 #583952æi þessir kanar eiga bara að grafa holu skjóta sig í hausinn og hafa einhvern með sér til að moka yfir. Sorglegt að sjá hvað þeir geta eyðilagt bíla með rugli s.s 5-10 dempara á hjól og trukka fjaðrir. Afhverju sjóða þeir þetta ekki bara fast ætti að gefa sömu fjöðrunareiginleika.
10.03.2007 at 21:35 #583948Sé ekki neitt kemur bara villa á síðu og er þrælforvitinn
07.03.2007 at 20:57 #583712takk davíð
07.03.2007 at 20:47 #583708Er einhver möguleiki að fá þessar teikningar hjá ykkur??? Eru þetta teikningar að aftan og framan?? E-mail hjá mér er halldoreg@ru.is
05.03.2007 at 20:16 #583318Talaðu við Gunna í bílabúð benna hann getur svarað þér öllu með OME gorma og dempara.
03.03.2007 at 18:41 #583166Þannig er nú að þegar búið að sjóða í dekk þá á ekki að vera hleypa úr því. Því vírlit er í sárinu og því mikil hætta á að dekkið hvellspringi eftir úrhleypingu, þó svo að menn hafi komist upp með þetta þá eru víst fleiri í umferðinni sem þetta varðar.
21.02.2007 at 18:46 #199755Bíllinn hjá mér tók uppá því að fara ganga 3000 snúninga í hægagangi (kaldur). Pústið er ónýtt en hefur samt ekki látið svona áður. Kannast einhver við hvað þetta er, gékk 1700-2000 (kaldur) 1000 heitur.
17.02.2007 at 21:04 #580758Fórum í dag kaldadal uppí langjökul og það var nánast autt í Skjaldbreið og í kring þ.e. ekkert keyrslufæri. Leiðin á kaldadal var bara blautur snjór og pittir. Fínt færi hinsvegar á jöklinum.
11.02.2007 at 00:56 #579956Er svona stór spurt eða svona fátt um svör??’
-
AuthorReplies