Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.02.2008 at 21:48 #614322
Bókin Bíllinn svarar mörgum grundvallarspuningum
19.01.2008 at 00:06 #610650Fyrir 12-13 árum keypti ég allkraftmikla borvél af Verkfærasölunni sem þá var inn í Skeifu.
Sæll og glaður byrjaði ég að bora fyrir hillufestingum í
skúrnum með 8 mm.steinbor Á 6. gati gaus upp gífurleg
lykt og aflið datt niður.
Við fyrsta tækifæri fór ég í Vekfærasöluna,hóflega bjartsýnn og hitti þar mann er kallaður var Benni.
Hann hlýddi á hrakfarasögu mína og sagð svo. " Þú ert
utan af landi og það tekur tíma að skoða,gera við og senda borvélina.Ef þú samþykkir taktu þá bara aðra
nýja eins borvél."
Ég gerði það og sú vél er í fínasta lagi enn í dag og hefur þó á ýmsu tekið.
Árið 1997 vantaði mig 115 mm. slípirokk (nefnist brettaskífa á Akureyri) Benni sagði mér að eftir
vikutíma fengi hann slípirokka á verði innan við tvö
þúsund krónur.Ég spurði um endingu og hann sagði að ef hann entist 3 fyrstu skífurnar gæti hann enst mjög
lengi.Hann er í fínu lagi í dag eftir einhver hundruð af
skurðar og slípiskífum.Eftir þetta hef ég aðallega keypt
verkfæri í Verkfærasölunni og þau hafa reynst þannig að ég hef ekki þurft að kvarta,og hafi ekki verið teknir upp nýrri og verri samskiptasiðir hyggst ég
halda því áfram. Eins er vert að geta,að starfsmenn
hafa verið góðir að leiðbeina hvaða styrkleikaflokk
af verkfærum ég þurfi,miðað við fyrirhugaða notkun, en þeir eru með mikið úrval í
ýmsum styrkleikaflokkum.Birgir Ingólfsson
Blönduósi
19.10.2006 at 10:57 #198762Veit einhver hvernig færð er yfir Kjöl fyrir óbreytta
jeppa.
05.10.2006 at 08:29 #562230Þetta er vel þekkt mál í Toyota. Í flestum tilfellum
er snertan sem +kapallinn tengist í á startaranum
brunnin. Það er auðvelt að skipta um þessar snertur
þegar búið er að taka startarann úr, og lokið sem er
framan á segulrofanum af.
Það er fest með þremur skrúfum.
Kv.Birgir
16.06.2006 at 13:18 #554676Athugaðu lagnirnar í frambrettinu ofan við plast-
hlífina ofan við hjólið.
Það hefur stundum gefið sig.
Kv,
Birgir
02.03.2006 at 11:34 #545316Láttu athuga súrefnisskynjarann sem er í lögninni frá lofthreinsaranum.Þeir hafa svolítið verið að fara.
Kveðja
Birgir
18.02.2006 at 12:54 #542884Toyota 2H túrbínulausa 4 l.vélin er með forsprengihólfum og glóðarkertum en org. túrbínuvélin
4.l. sem heitir 12 H er með beinni innspýtingu og
þar af leiðandi aðra stimpla og þarfnast ekki glóðarkerta.
Þar er hinsvegar hitaelement í sogreininni.
28.10.2005 at 23:49 #530238Eru ekki 17 v. í hærri kantinum Elli minn.
14.7 volt er góð hleðsluspenna á 12 v.
kerfi.Ef spennan hækkar í 17 v. eða meira
fara perur og fleira að gefa sig fljótlega.
Kveðja
Birgir
24.09.2005 at 10:21 #527752Það er fínsía þar sem inntakið frá síu er í olíuverkið
og það gæti verið eitthvað í henni. Einnig ef þessi
bíll er með skynjara á sogloftinu, gæti bilun þar verið orsökin.
Kveðja
Birgir
13.09.2005 at 21:29 #526726Kúplingin gæti valdið þessu ef hún slítur ekki alveg,
þá nær hún að slíta þegar olían er þykk og þyngra að snúa kassanum.Veit um dæmi þar sem búið var að leita mikið að ástæðunni,sem var sprunga í
festingu fyrir kúplingspedalann svo að ástigið nýttist ekki að fullu.
Kv.
B.I.
18.04.2005 at 22:09 #521096Það versta er að ef síðan heldur áfram að vera
svona þung og óvirk að hluta, þá hætta menn að nenna að skoða og reyna að nota hana.
"Þá er verr farið en heima setið".
Ég hef mikið reynt að koma inn auglýsingu en fæ
bara runu af villumeldingum.
Kveðja
Birgir
12.04.2005 at 21:41 #520970Það virkar ekki hjá mér að setja inn auglýsingu,
kemur bara runa af einhverjum villuboðum.
Kveðja
Birgir
03.02.2005 at 21:26 #515734Til að auka við olíumagnið er stilliskrúfan skrúfuð inn
og ekki meira en 1/4 – 1/3 úr hring í einu og prófa svo.
Stilla getur þurft hægagang upp á nýtt.
Kveðja
Birgir
30.11.2004 at 20:52 #510038Eyðslan á mínum bíl er 10-11 l.á langkeyrslu ef ekki
er mikill mótvindur en það eru ekki sprækir hestar sem
eru undir húddinu.
Í snatti og blönduðum akstri kemur hann vel út með
12-15l. eftir hitastigi.
Kv.
Birgir
19.11.2004 at 12:58 #508978Skiljuglasið skilur olíu og raka úr loftinu.
Þessi tvö glös stundum seld saman í setti, en
þá er smurglasið venjulega á eftir rakaskilju-
glasinu til að smyrja loftverkfæri.
Kveðja
B.I.
18.11.2004 at 21:46 #508974Fáðu þér lítið loftdælu smurglas í Landvélum – Íselco eða
öðrum sem selja þennan búnað. Settu þetta sogmegin á
dæluna.Settu svo skiljuglas og pressostat(þrýstistilli)
á lögnina frá dælu að kút.Láttu pressostatið stýra rely
sem gefur straum á AC dæluna.Muna setja öryggi á straumleiðluna.
Kveðja
B.I.
13.11.2004 at 18:59 #508592Uppsetningin virkar á mig frekar þung og leiðinlegri en
sú gamla, þó er gott að fá nýjungarnar ræddar.
Birgir
18.04.2004 at 22:43 #194226Vantar 38″ kanta fyrir Landcruiser HJ60 ‘ 87
Lengdur á milli hjóla.Birgir sími 8948242 birab@simnet.is
05.04.2004 at 13:41 #496037Þetta gæti verið loftstýrði búnaðurinn á lokunum í framhásingunni.Læsingin hefur ekki haldið nógu vel í mörgum þessara bíla og í nýja 7 bílnum er kominn rafmótor í staðinn fyrir loftið.
05.04.2004 at 13:41 #503359Þetta gæti verið loftstýrði búnaðurinn á lokunum í framhásingunni.Læsingin hefur ekki haldið nógu vel í mörgum þessara bíla og í nýja 7 bílnum er kominn rafmótor í staðinn fyrir loftið.
-
AuthorReplies