Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.03.2009 at 16:14 #642538
Aðfararnótt síðastliðins mánudags var brotist inn í bílinn minn með því að brjóta rúðu í farþegahurð. Sem betur fer fór þjófavörnin í gang og hana stoppar ekkert, þjófurinn hljóp því strax burt en náði þó með sér i-pod og útvarpssendi, sem var það eina sem var laust. Annað var sem betur fer látið í friði, þakka það þjófavörninni.
Sama henti félaga minn í næstu götu tveimur vikum fyrr, sama rúða brotin hjá honum. Það er því vissara að geyma sem minnst af verðmætum í bílunum.
17.10.2008 at 18:09 #203077Hefur nokkur verið á ferðinni um Hungurfit nýlega? Ætli sé mikil drulla í veginum? Er að spá í að fara með óbreyttum bíl á morgun.
17.10.2008 at 18:09 #203076Hefur nokkur verið á ferðinni um Hungurfit nýlega? Ætli sé mikil drulla í veginum? Er að spá í að fara með óbreyttum bíl á morgun.
24.06.2008 at 03:33 #618500Þeir eru fáir spjallþræðirnir sem ég les á þessum annars ágæta vef, þar sem umræðan snýst ekki upp í einhverja neikvæðni. Ég hélt að tilgangurinn með þessari keppni væri að hvetja menn til dáða og reyna að fá sem skemmtilegastar og bestar myndir úr ferðalögum og öðru því sem tengist jeppamennskunni. Reglurnar voru skýrar og menn hvattir með mörgum meilum að senda inn myndir. Það er frekar leiðinlegt að nú skuli hraunað yfir þá sem það gerðu og þannig dregið úr áhuga þeirra sem gaman hafa af ljósmyndun og vilja senda inn góðar myndir á vefinn. Myndirnar hans Halldórs finnst mér einmitt dæmi um eitthvað sem er óvenjulegt og spennandi, þær gera myndasíðu klúbbsins áhugaverðari og skemmtilegri. Það væri bara óskandi að fleiri legðu sig jafn mikið fram um að taka góðar myndir og hann. Reynið nú að hafa jákvæðni að leiðarljósi, það er svo miklu skemmtilegra.
Með bestu kveðju
Benni
29.07.2007 at 21:44 #594054Var að horfa á þáttinn sem er hin besta skemmtun, þótt þar sé ekki endilega sýnt hvernig gáfulegast er að keyra. En flottar myndatökur og skemmtilegt.
En það þarf að leiðrétta misskilning sem virðist gæta um þetta ferðalag, þrátt fyrir að þeir félagar segi í upphafi að þeir ætli á Norðurpólinn þá er ferðinni heitið á Segulpólinn sem er staðsettur samkvæmt GPS tækinu þeirra N 78° 35′ 7“ W 104° 11′ 9“. Hér er sem sagt ekki farið á sjálfan Norðurpólinn enda ekki nokkur leið að koma bílum þangað. Vildi bara koma þessu til skila.
kveðja
Benni
15.06.2007 at 18:48 #200429Ég þurfti að skreppa í smá trúss leiðangur fyrir hestamenn í dag og ók leiðina upp hjá Bragabót, þar er allt orðið þurrt. Hins vegar er leiðin lokuð rétt sunnan vegamótanna við Eyfirðingaveg, austan við Skjaldborgarskála þar sem nokkrir vænir grjóthnullungar höfðu hrunið úr Skriðu og niður á veginn þar sem ómögulegt var að komast fram hjá.
Þetta eru tvö björg sem loka veginum, og það má sjálfsagt velta þeim með járnkalli, en þar sem ég var einn og án járnkalls þá snéri ég bara við.
Ef einhverjir vilja fara í grjótaglímu þá vitið þið af þessu.
GPS staðsetning er svona ca. N64 21.300 og W20 43.200
Með kveðju
Benni
25.02.2007 at 17:13 #582160Einhvern tímann keypti ég þar mottu til að klæða fíberkassa sem ég hef á afturhurðinni. Þeir áttu alls kyns efni, geta væntanlega bent þér á einhverja ef þetta er ekki til þar.
kv, Benni
24.02.2007 at 18:20 #582022Hér eru nokkrar myndir af einum flottum, njótið vel
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 5197/40180
kv, Benni
[img:f6d1covj]http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5197/40180[/img:f6d1covj]
20.02.2007 at 00:08 #581034Ég er með DC 37" á 12" álfelgum sem sumardekk og mæli sterklega með þeim sem slíkum. Hljóðlát og liggja vel.
kv Benni
26.01.2007 at 19:04 #199504Hefur einhver verið á ferðinni nýlega í Landmannalaugum sem getur upplýst um færðina þangað?
kv, Benni
20.01.2007 at 14:17 #576390Var að tala við bróður minn sem er á Langjökli núna með hópi jeppa. 38-44" bílar, basl fyrir minni bílana upp frá Jaka, voru komnir að Þursaborg, eitthvað þurfti að aðstoða suma bílana á leiðinni. Lágarenningur og skyggni ekkert of gott, allavega í hádeginu, samt bjart. Bara svona til að upplýsa þá sem ætla á morgun.
Kv, Benni sem er fastur í bænum um helgina
09.01.2007 at 00:04 #573594Ég er búinn að fylgjast með umræðunni og væri mikið til í að heyra hvernig bílunum var bjargað upp úr ísnum. Hvað er það sem menn lærðu við þessar aðgerðir sem virkaði vel, og hvað var það sem kannski olli tjóni á bílunum. Hafa menn einhverjar skoðanir á því hvernig hefði mátt ná bílunum upp á annan hátt? Ég held að það sé mikilvægt að menn deili reynslu sinni af svona aðgerðum með öðrum í klúbbnum, svona getur komið fyrir aftur og þá er gott að hafa ráðleggingar klárar.
með kveðju
Benni
09.11.2006 at 18:00 #565702Sælir, ég átti svona bíl í nokkur ár, reyndar bara á 31" en keyrði hann úr 120 þús í 230 þús. Reyndist mér mjög vel og bilaði lítið. Eina sem mér þótti leiðinlegt var afturhlerinn sem hér hefur verið nefndur að ofan, en ég skipti einmitt um sleða og mótor, þá var þetta í lagi. Bara að passa að smyrja gúmmíkantana í afturglugganum með sílikoni þegar frystir. Annars virkaði bíllinn vel og saltar örugglega flesta bíla á 38" vegna vélarinnar og hversu léttur hann er. Einhver galli var þó í heddum sumra árgerða og fór það hjá mér í 150.000 km. Toyota skipti um hedd mér að kostnaðarlausu, höfðu framlengt ábyrgðina í 6 ár eða 150.000 km. Fáið ekki betri þjónustu annarsstaðar.
29.10.2006 at 20:28 #565716Sæll, þetta var til umræðu hér á vefnum um daginn, sjá [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar%2f8231:34d6nael][b:34d6nael]hér[/b:34d6nael][/url:34d6nael]
25.10.2006 at 23:20 #565352Sæll, getur ekki verið að það séu lausar mottur inni í dekkjunum. Sum þessara 44" dekkja eru balanseruð sjálf, og ef þessar mottur losna þá er fjandinn laus og bíllinn út um allan veg. Athugaðu þetta!!
kv, Benni
14.10.2006 at 13:55 #198725Sælir þið djúpu viskubrunnar
Ég þarf að taka raflæsinguna að aftan og líma seglana fasta. Er eitthvað sem þarf að varast í þessari framkvæmd annað en að snúa seglunum eins og þeir voru. Ef þið hafið einhver góð ráð má gjarnan láta þau flakka.
Takk fyrir
23.09.2006 at 20:31 #561152Takk fyrir ábendinguna Einar,
kv Benni
23.09.2006 at 17:35 #198597Langaði að athuga hvort einhver gæti bent á vefsíður þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um eyðslumun á bensín og diesel vélum. Einnig vantar mig upplýsingar um einhverskonar meðaleyðslu bifreiða hér á landi. Þykist svo sem getað giskað á þessar tölur, en mig vantar eitthvað sem hægt er að vísa í vegna verkefnis sem ég er að vinna.
Bestu kveðjur
Benni
01.05.2006 at 01:33 #551594Hér er mynd sem ég tók í dag rétt áður en við komum upp á Kjalveg við vörðuna, sést reyndar ekki mikið hversu mikill krapi var þarna, en þetta er eina myndin sem ég er með af þessu svæði.
[img:tpsbynxn]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/4504/31606.jpg[/img:tpsbynxn]
01.05.2006 at 01:03 #551592Sæll Einar, ég var að koma heim af jökli, fórum í dag á tveimur LC90 38" bílum yfir Langjökul frá Jaka og niður hjá Skálpanesi. Færið frekar þungt á leið upp á jökulinn að vestanverðu en gekk vel eftir að upp var komið. Keyrðum í 1-2 pundum alla leið. Ekkert mál að koma niður í Skálpanes en líklega gæti færið verið þungt upp brekkurnar ef farið er upp á jökulinn frá Skálpanesi. En niðri í dældinni rétt við vörðuna á Bláfellshálsi er mikill krapi, svo þar þarf að fara varlega. Við gátum þrætt ágæta leið rétt sunnan við Skálpanesveginn upp á Kjalveg við vörðuna, en ef ekki kólnar verður þetta bara verra. Mikill drulla á Kjalvegi.
Kv
Benni
-
AuthorReplies