Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.02.2006 at 00:25 #544520
Sendi aðstandendum hins látna mínar dýpstu samúðarkveðjur og óska hinum slasaða skjótum bata.
Kveðja
Ásgeir
R-3543
25.02.2006 at 23:14 #544484Félagar
Þetta er ferlega erfið bið en við verðum að bíða eftir fréttum frá Landsbjörg eða öðrum sem með málið fara. Þangað til getur maður bara vonað það besta og beðið fyrir mönnunum og fjölskyldum þeirra.
Baráttukveðjur
Ásgeir
25.02.2006 at 18:02 #544382Er eitthvað vitað hverjir þetta voru? Eru einhverjir á vegum klúbbsins þarna á ferð?
Kv.
Ásgeir
13.02.2006 at 22:42 #542568Mig langar að hrósa Palla fyrir að byrja með þennan þráð. Það var kominn tími á jákvæðan og uppbyggjandi þráð.
Einnig vil ég hrósa íslenskum jeppamönnum fyrir áræðni við að kom sér og sínum dósum á fjöll
Kv.
Ásgeir
09.02.2006 at 18:54 #542166Sæll.
Síminn setur ný númer í NMT síðast þegar ég vissi. Ertu búinn að tala við þá?
Kv.
Ásgeir
06.02.2006 at 00:03 #541660Sælir
Fyrirgefðu að ég haldi mig ekki við efnið en ég átta mig nú ekki alveg á myndinni en mér sýnist hann vera að dæla bensíni og þá er um að gera að vera með nagla í munnvikinu. Maður verður að passa kúlið:)
Kveðja
Ásgeir
03.02.2006 at 21:17 #541368Ég styð ákvörðun klúbbsins 100%. Þessi lokun verður kannski öðrum víti til varnaðar, þegar menn sjá að þeir komast ekki upp með hvað sem er snúa þeir sér kannski annað. En batnandi mönnum er best að lifa og vona ég að þessir aðilar nýti "fríið" í eitthvað uppbyggilegt.
Kveðja
Ásgeir
03.02.2006 at 21:17 #541366Ég styð ákvörðun klúbbsins 100%. Þessi lokun verður kannski öðrum víti til varnaðar, þegar menn sjá að þeir komast ekki upp með hvað sem er snúa þeir sér kannski annað. En batnandi mönnum er best að lifa og vona ég að þessir aðilar nýti "fríið" í eitthvað uppbyggilegt.
Kveðja
Ásgeir
16.01.2006 at 01:18 #538806Sælir
Fyrst að 4.0l vélin er svona agalega mögnuð og ódrepandi. Er sama vélin í Grandinum og í venjulega bílnum? Er óhætt að skoða bíla sem eru eknir 200 þús. og upp úr?
Eins og þið sjáið veit ég ekki mikið um þessa bíla svo allar uppl. eru vel þegnar (kostir/gallar)?Kv.
Ásgeir
14.01.2006 at 00:02 #538788Svo það er þá Frakki í Cherokee!!! Veit einhver afhverju það er Peugeot í Cherokee?
Varðandi skiptinguna, þá er ég svo skrítinn að mér finnst bara skemmtilegra að keyra beinskipt.
Kv.
Ásgeir
13.01.2006 at 20:57 #538782Sælir.
Eftir hverju ætti maður að leita sérstaklega í þessum bílum?
Hvernig stendur á því að það eru til svona fáir beinskiptir 4,0l HO. bílar? Mig langar heldur í 4cyl bílinn því hann er beinskiptur. Ef einhver veit um beinskiptan 6cyl. til sölu bíl má hann láta mig vita.
Kveðja
Ásgeir
13.01.2006 at 01:39 #538766Sælir og takk fyrir skjót viðbrögð.
Það stendur ekki til að breyta honum neitt mikið (mestalagi að lyfta og kannski 32") eða fara í einhverjar stórar vetrarferðir, mest verður ferðast á sumrin. Það er til hellingur af Cherokee á sölum og 2,5 bíllinn er yfirleitt ódýrari miðað við árg. og akstur, og þar sem ég er ekki að elta kraftinn var ég að spá hvort 2,5 væri ekki nóg. Ég er að aðallega að spá í áreiðanleika og hvort erfitt sé að verða sér úti um helstu varahluti hér heima, þó maður myndi sjálfsagt kaupa mest að utan.
Kveðja
Ásgeir.P.s. Takk fyrir myndirnar Kristinn
13.01.2006 at 01:07 #197044Sælir.
Ég hef verið að skoða „gamla“ Cherokee svolítið til kaups og er jafnvel að spá í 4cyl. bílnum. Ég var að velta fyrir mér muninum á 4cyl og 6cyl bílunum fyrir utan skiptingar (bsk/ssk). Eru þetta ekki að mestu sömu bílarnir með sitthvorri vélarstærðinni? Eru hásingar og millikassar þeir sömu? Eru 2,5l vélarnar eitthvað síðri en þessar stærri?
Með von um góð viðbrögð.
Ásgeir
23.12.2005 at 01:02 #536436Sælir.
Ég held að þetta sé Ladan sem Ofsi var að tala um. Þessi er allavega á Bronco grind. http://skagafjordur.net/4×4/?p=3&fID=1&mID=7
Svo er hérna önnur mynd af Mjallhvíti.
http://skagafjordur.net/4×4/?p=3&fID=10&mID=84Afsakið, ég kann ekki að gera svona linka eða setja myndina inn í textann.
Kveðja
Ásgeir
20.12.2005 at 20:51 #536690Sæl veriði
Ég fór lauslega yfir hvernig raðað er í flokka. Mér finnst það nokkuð varasamar flokkanir
Dæmi:
Dodge Ram Van: Jeppi
Ford Econoline: Jeppi
Ford Aerostar: Jeppi
Kia Grand Sportage: Jepplingur
Suzuki Grand Vitara: Jeppi
Suzuki Ignis: Jepplingur
Og það sem mér sárnaði mest:
Lada Niva: Jepplingur?Í þessum lista er auðsjáanlega ekkert samræmi. Hversvegna er Kia jepplingur en Vitara jeppi? Afhverju eru allir þessir sendibílar flokkaðir sem jeppar?
Einhverntíman var þráður á síðunni þar sem verið var að rökræða það hvaða skilyrði bifreið þyrfti að uppfylla til að mega kallast jeppi, og fannst engin pottþétt niðurstaða á því. Hinsvegar geta ákveðnir bíla stækkað uppí það að vera kallaðir jeppar, sbr. heimsmeta-Fordinn hans Gunna (engum dettur í hug að segja að það sé ekki jeppi), en óbreyttur Ford Econoline er enginn jeppi og ætti ekki að flokka sem slíkan í svona könnun.
Það er alltaf viðkvæmt efni að fara að flokka bíla, en þetta er með eindemum slæm flokkun.Kveðja
ÁsgeirP.s. Lada er víst jeppi og jólasveinninn er til!!!
10.12.2005 at 15:34 #533494Sæl veriði.
Hvernig stendur á því að það er ekki meira fjallað um þessa ferð í íslenskum fjölmiðlum? Ein skitin grein á mbl.is er ekki merkileg umfjöllun. Hefði ekki verið hægt að útbúa svona "dagbók" eins og gert var fyrir Ungfrú alheim, þar sem hægt hefði verið að fylgjast með þessu á íslensku, og jafnvel fegnið að heyra skemmtilegar sögur af ferðinni frá Gunna? Hafa íslenski fjölmiðlar kannski ekki áhuga á jeppum og jeppamennsku nema þegar verið er að keyra ólöglega utanvegar? Ég hef ekkert séð né heyrt um þetta nema það sem kemur fram hér og svo á Icechallenge síðunni.
Kveðja
Ásgeir
07.12.2005 at 23:37 #534928Sæll.
Talaðu við Neytendasamtökin. Það er ótrúlegt hvað þau hafa mikil áhrif. Ég hef nokkrum sinnum þurft að leita til þeirra og alltaf fengið góð viðbrögð. Stundum hefur líka verið nóg að nefna það að maður sé meðlimur í Neytendasamtökum til að fólk skjálfi á beinunum.
Kveðja
Ásgeir
24.11.2005 at 23:08 #531308Sælir.
Ég sendi póst í apríl á þessu ári og bað um að vera skráður í klúbbinn. Það var síðan ekki fyrr en í september að ég fæ gíróseðil, sem ég greiddi í heimabankanum og geymdi auðvitað kvittunina. Í byrjun nóvember hef ég hinsvegar ekki ennþá fengið neitt félagsnúmer svo ég sendi fyrirspurn í gegnum síðuna og hef enn ekkert svar fengið. Ætli ég fái nokkuð svar fyrr en í maí? Hvað er að gerast ef það tekur 6-8 mánuði að verða meðlimur?Kveðja
Ásgeir
20.11.2005 at 18:54 #530956Sælt veri fólkið.
Bara að halda þessu uppi. Er eitthvað að frétta af þessu bíl?
Hvernig fer það ef bíllinn finnst ekki? Borga tryggingar?Kveðja
Ásgeir
10.11.2005 at 22:02 #531812Sæl variði.
Er þá búið að fá það staðfest að þetta var eigandi bílsins sem ók svona glannalega? Ef svo er, er þá eitthvað því til fyrirstöðu að birta nafn hans? Hvað svo? Hvað ætlið þið að gera við það?
Kv.
Ásgeir
-
AuthorReplies