FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Yfirlýsing vegna náttúruspjalla að Fjallabaki

22.11.2011 by Sæbjörg Richardsdóttir

Ferðaklúbburinn 4×4, Útvistar og Skotvís fordæma harðlega umhverfisspjöll af völdum ólöglegs aksturs utanvega sem fréttir hafa borist af í dag og í gær á samskiptavefnum Facebook.

 

Hópur frá Útivist á leið í Dalakofann að Fjallabaki sá á leið sinni um Fjallabaksleið syðri verulega ljót umhverfisspjöll eftir utanvegakstur.  Þær skemmdir sem þarna hafa verið unnar eru víða óbætanlegar. Athæfið ber með sér algjört virðingaleysi við náttúru svæðisins og tillitsleysi við aðra ferðamenn sem vilja njóta þess að ferðast um okkar fallega land. Háttarlag sem þetta er algerlega ólíðandi og til skammar fyrir þá sem þarna hafa verið á ferð.

 

Það er ríkjandi viðhorf meðal félagsmanna okkar og meginþorra ferðafólks á hálendinu að náttúruna beri að umgangast af virðingu og varkárni og gæta þess að fremsta megni að skilja hvergi eftir sig ummerki.  Þetta á við um langflesta, án tillits til tilgangs ferðanna eða ferðamáta og þetta er eitt af megin gildum þeirra félagasamtaka sem við stöndum fyrir.  Í samfélagi okkar eru alltaf einhverjir sem sýna af sér óábyrga hegðan hvar sem þeir koma og því miður birtist það einnig í umgengni þessara einstaklinga á hálendinu.

 

Félögin berjast fyrir hagsmunum ferðafólks sem sýnir ábyrgð í umgengni við náttúru Íslands. Þeir ökumenn sem lítilsvirða landið á þann hátt sem myndirnar sýna hafa með gerðum sínum spillt fyrir málstað þeirra sem ferðast um landið með ábyrgum hætti. Félögin vilja að það komi skýrt fram að svona umgengni er með öllu ólíðandi og hvetur félagsmenn sína til að berjast gegn ólöglegum utanvegaakstri hvenær sem þeir verða vitni að slíku.

 

Nánari upplýsingar:

Þórarinn Eyfjörð, formaður Útivistar, sími 893 9879

Hafliði Sigtryggur Magnússson, formaður Ferðaklúbbsins 4×4, sími 896 7477

Elvar Árni Lund, formaður SKOTVÍS, sími 693 3518


FacebookTwitter

Filed Under: Fréttir

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.