Opnaður hefur verið vefurinn www.ferdafrelsi.is Þetta vefsvæði á eftir að stækka og eflast, en til að byrja með verða á vefnum kynnngarupplýsingar um landssamtökin Ferðafrelsi. Í framtíðinni er stefnt á að hafa á vefnum öflugt upplýsingaumhverfi með ítarefni um ferðafrelsi og náttúru íslands. Allar ábendingar um vefsvæðið eru vel þegnar og hægt að senda okkur hugmyndir og tillögur á ferdafrelsi@gmail.com. Landssamtökin Ferðafrelsi voru stofnuð 1. desember 2010 og nýr vefur hinna nýstofnuðu samtaka fer í loftið 1. janúar 2011.
Guðmundur G. Kristinsson