FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Félagsfundur Vesturlandsdeildar 14. október

13.12.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Félagsfundur í Jónsbúð á morgun kl 20.00
Video frá ferð sem farin var með fatlaða í vor ásamt video frá björgun úr Steinsholtsá síðasta laugardag.

Einnig verður rætt hvert fara á í ferð milli hátíða.

Boðið verður uppá skonsur, kökur og kaffi.

 

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Sunnudagurinn 6. desember kl 13:00 – Jónsbúð

04.12.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Eins og talað var um á síðasta fundi var ákveðið að breyta dagsetningunni á „fundinum“ þar sem við bjóðum öllum sem komu með okkur í Ferð með fatlaða í vor. Venjulega hefur þessi fundur verið seinnipart mánudags þann dag sem við höfum verið með félagsfundinn okkar í desember.

En eins og var rætt á síðasta fundi, var ákveðið að breyta þessu og var ákveðið að bjóða þeim núna á sunnudaginn 6. desember kl 13:00 í Jónsbúð.
Að vanda bjóðum við uppá heitt súkkulaði, smákökur og skonsur :) Einnig verður sýnt myndband sem tekið var upp í ferðinni.

Í lokin langar okkur að biðja þá sem mögulega geta mætt fyrr og aðstoðað við að hita upp súkkulaði og gera allt klárt að mæta um 12 leytið. Það væri mjög vel þegið þar sem það þarf að raða borðum, hita súkkulaði, hella uppá kaffi og bara hafa allt klárt :) 

Hægt er að hafa samband við Helgu Björg í s. 699-8955 eða Gísla í s. 863-0071.

Hlökkum til að sjá ykkur næsta sunnudag kl 13:00 í Jónsbúð!! Endilega látið þetta berast! :)

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur Vesturlandsdeildar 9. nóvember

06.11.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Mánudaginn 9. nóvember verður félagsfundur í Jónsbúð sem þú vilt ekki missa af!!!!
Emil frá Arctic Trucks mætir og ætlar að sýna okkur myndir og segja okkur frá Suðurpólsferðinni sem farin var síðasta vetur.

Það er mæting kl 20:00 eins og venjulega.

Hlökkum til að sjá sem flesta! Höfum heyrt að þetta sé virkilega flott myndasýning!

Kveðja
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Bjórkvöld næsta föstudag

14.10.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Föstudaginn 16. október ætlum við að hafa bjórkvöld á Kirkjubraut 11.
Það er ekki alveg búið að negla niður tímasetninguna en það verður líklega í kringum 21:00.

Það verður eitthvað af bjór í boði og vonumst við auðvitað til að sjá sem flesta félagsmenn og maka :)

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kv.
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur Vesturlandsdeildar 12. október

11.10.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Félagsfundur Vesturlandsdeildar verður haldinn í Jónsbúð annað kvöld, mánudaginn 12. október kl. 20:00.

Dagskrá:

– Skyndihjálp
– Dagsferð og flr.

Kv.
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Hætt við haustferð

06.10.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Hætt hefur verið við haustferðina sem fara átti um næstu helgi þar sem skráning í ferðina var ekki nægilega góð.

Næsti fundur verður haldin mánudaginn 12. október eftir tæpa viku og þar verður rætt hvort ekki sé meiri áhugi fyrir dagsferð fljótlega í október.
Fundarboð verður sent út í tölvupósti og mun einnig birtast hér á síðunni.
Endilega látið félagsmenn vita að við séum farin að nota þessa síðu!

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar.

Filed Under: Vesturlandsdeild

Haustferð 9-11 október

23.09.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Á síðasta fundi var ákveðið að fara í haustferð fyrstu helgina í október, því miður þarf að breyta þeirri dagsetningu og seinka ferðinni um eina viku. Ferðin yrði þá farin 9-11 október og var ákveðið að fara Hveravelli – Laugafell – Sprengisand. Nákvæmari leiðarlýsing mun bæði verða send í vefpósti og einnig munum við héðan í frá nýta okkur þetta svæði.

Nánari upplýsingar varðandi leiðina og verð mun birtast hér á næstu
dögum.

Skráning fer fram hjá Óla Elí í s. 869-3965 og Bjössa Valdimars í s. 867-2241

Kv.
Stjórnin

Filed Under: Vesturlandsdeild

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.