FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Ferð með fatlaða 12. júní – Vesturlandsdeild

08.06.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Ferðaáætlun

09:00 frá Borgarnesi, 09:30 frá Akranesi – Hafnarfjörður – Bláfjöll – Pípuvegur – Grafningur og svo endað í grilli á Þingvöllum milli 12.30 til 14.30.

Hringt verður í alla bílstjóra þegar búið er að raða endanlega niður í bíla.
Ef það eru einhverjar spurningar hafið þá samband við Helgu Björgu í s.  699-8955

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Ferð með fatlaða – Vesturlandsdeild

26.05.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Laugardaginn 12. júní er komið að árlegri ferð okkar hjá Vesturlandsdeild þar sem við bjóðum skjólstæðingum Svæðismiðlunar á rúntinn á jeppunum okkar og endum á góðum stað og grillum og höfum gaman.

Öllum er farið að hlakka mikið til og er skráning hjá þeim komin upp í 60 manns sem segir allt sem segja þarf um áhugann hjá þeim! Þetta er tilhlökkunarefni allt árið!

En við þurfum auðvitað að fá jeppa með í þessa ferð og það marga þar sem við höfum ekki verið með fleiri en tvo til þrjá farþega fyrir utan bílstjóra í hverjum bíl.

Ef þú hefur áhuga á að taka þá í þessari ferð þá endilega hafðu samband við Helgu Björgu í s. 699-8955 sem fyrst.

Með fyrirfram þökk

Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Aðalfundur Vesturlandsdeildar 10. maí

09.05.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Aðalfundur félagsins verður mánudaginn 10. maí kl 20:00 í Jónsbúð.

Dagskrá:
– Farið verður yfir það sem hefur verið gert í vetur
– Farið yfir ársreikning
– Kosið í nýja stjórn
– Breytingar á fundum á næsta ári og flr.

Endilega hafið samband við Gulla ef þið hafið áhuga á að komast í stjórn og eins ef einhver vill taka að sér formanninn, gjaldkera eða ritarastarfið :)
Gulli er í s. 698-8640

Vonumst til að sjá sem flesta!!!

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur Vesturlandsdeildar mánudaginn 19. apríl

18.04.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Félagsfundur Vesturlandsdeildar verður haldinn í Jónsbúð mánudaginn 19. apríl kl 20:00

Sýndar verða myndir frá Vatnajökulsferð og einnig einhverjar myndir frá fyrra gosinu.

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundi Vesturlandsdeildar 12. apríl frestað

12.04.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Félagsfundi Vesturlandsdeildar 12. apríl verður frestað þangað til á morgun eða næsta mánudag þar sem Vatnajökulsfarar hafa ekki skilað sér heim sökum veðurs. En þeir eru á heimleið núna og koma heim í nótt.

Sent verður sms og fólk látið vita nánar varðandi fundinn.

Kveðja
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Vatnajökulsferð Vesturlandsdeildar

28.03.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Minnum á Vatnajökulsferðina sem farin verður helgina eftir páska, 9-11. apríl.
Frekari upplýsingar og skráning er hjá Flemming. flemming@fva.is

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur þriðjudaginn 16. mars

15.03.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Þar sem það er fundur í Reykjavík í kvöld vegna ferðarinnar „I hjólför aldamótanna“ hefur verið ákveðið að hafa fundinn á morgun, þriðjudaginn 16.mars.
Farið verður yfir kassann okkar góða sem inniheldur allt björgunardótið okkar. Bjössi og Óli ætla að fara yfir kassann og kenna okkur nokkur atriði sem gætu gagnast okkur ef eitthvað kemur upp á.
T.d. hvernig á að fara í beltið sem fylgir sigbúnaðinum og ýmislegt fleira.

Einnig verður rætt um Vatnajökulsferðina og ýmis félagsmál.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Þorrablótinu aflýst

16.02.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Sökum lélegrar þátttöku hefur verið ákveðið að hætta við árlegt þorrablót félagsins. Hugsanlega verður tekinn rúntur þennan dag. Það verður sent sms og póstur ef af því verður. 

Kv. Stjórnin

Filed Under: Vesturlandsdeild

Þorrablót Vesturlandsdeildar

01.02.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Þorrablót Vesturlandsdeildar verður haldið í Hólaskógi 19-21 febrúar.

Svæðið í kringum Hólaskóg er mjög svo skemmtilegt því hægt er að finna ferðir fyrir allar stærðir jeppa þannig að allir ættu að geta farið í ferð á laugardeginum!

Það var virkilega skemmtilegt síðast. Lenntum í smá ævintýri í ferðinni sem farin var á laugardeginum og eins var maturinn um kvöldið og félagsskapurinn auðvitað frábær.

Farið verður í ferð á laugardeginum eins og síðast og svo komið í Hólaskóg fyrir kvöldmat.

Verðið er:
5000 kr pr mann fyrir eina nótt og mat
7500 kr pr mann fyrir tvær nætur og mat
Það verður eitthvað ódýrari maturinn fyrir börn en þetta verður uppfært þegar sú tala kemur. 

 

Vonumst til að sjá sem flesta.

Skráning og frekari upplýsingar eru hjá:
Bjössa s. 867-2241
Óla s. 869-3965
Sigga Hafsteins s. 893-0922

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur Vesturlandsdeildar 11. janúar

10.01.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Félagsfundur Vesturlandsdeildar verður haldinn í Jónsbúð mánudaginn 11. janúar kl 20:00.

Efni:
– Sýndar verða myndir frá ferðinni á Langjökul 2. janúar
– Þorrablótið. Hvar og hvenær???
– Vatnajökulsferð. Hvenær verður farið og þá jafnvel skráning.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Kv.
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.