- Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á vefsvæði Ferðaklúbbsins 4×4, f4x4.is.
- Skilmálarnir geta breyst án fyrirvara ef þörf þykir.
- Notkun vefsvæðisins skal vera í samræmi við hlutverk klúbbsins eins og það er skilgreint í lögum hans.
- Brot á skilmálum þessum getur valdið tafarlausri brottvikningu af vefsvæði klúbbsins og síendurtekin brot geta varðað brottvísun úr klúbbnum.
- Notendur skulu gefa upp rétt nafn og kennitölu við nýskráningu, sem og heimilisfang og tölvupóstfang. Skráningum sem ekki uppfylla þetta skilyrði verður tafarlaust eytt.
- Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána öðrum aðgangsorð sitt, nota kennitölu eða félagsnúmer annarra, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn sem tilheyra öðrum.
- Óheimilt er að nota aðganginn til að að brjótast eða reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. Ferðaklúbburinn 4×4 ber ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.
- Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur eru ekki liðnar. Þursar, sem hafa það eina markmið að koma af stað rifrildum, eru ekki umbornir og mun slíkum þursum verða meinaður aðgangur að síðunni í skemmri eða lengri tíma. Vefnefnd metur það hverju sinni hvort viðkomandi notandi sé að þursast eður ei og getur lokað aðgangi hans tímabundið. Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 í samráði við Vefnefnd ákveður hvort lokun skuli vera varanleg.
- Notendum skal vera ljóst að þeir bera sjálfir persónulega ábyrgð á öllu sem þeir skrifa eða senda á vefinn. Þeir skulu því haga notkun sinni á vefnum með þeim hætti að ekki sé brotið á friðhelgi persónu né einkalífi annarra. Vefnefnd mun fjarlægja slík skrif án nokkurs fyrirvara.
- Óheimilt er að nota upplýsingar af vefsvæðinu til að senda óumbeðnar fjöldasendingar.
- Auglýsingar frá notendum skulu vera á auglýsingasvæði, ekki í myndasafni eða spjalli. Fyrirtækjum er óheimilt að auglýsa á vefsvæðinu nema gegn greiðslu.
- Óheimilt er að birta efni á f4x4.is sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi, þar með talið ærumeiðandi efni.
- Forsvarsmenn Ferðaklúbbsins 4×4 munu eftir fremsta megni reyna að tryggja öryggi þeirra gagna sem geymd eru á vefsvæðinu. Klúbburinn ber þó ekki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af notkun vefsvæðisins eða ef vefsvæðið er ekki aðgengilegt af einhverjum ástæðum. Einnig ber klúbburinn ekki ábyrgð á gögnum sem geymd eru á búnaði vefsvæðisins ef þau tapast eða skemmast.
- Ferðaklúbburinn 4×4 áskilur sér rétt til þess að nota allt efni sem notendur vefsvæðisins birta á vefsíðunum, s.s. myndir, texta eða skrif á spjallið, í þágu starfsemi Ferðaklúbbsins, hvort sem það er til birtingar annars staðar á vefsvæðinu, í félagsritum eða öðrum vettvangi í nafni Ferðaklúbbsins. Önnur nýting á efni því er birtist á vefsvæðinu er óheimil án heimildar stjórnar klúbbsins og höfunda viðkomandi efnis.