- Að standa vörð um ferðafrelsi.
- Að ná til sem flestra sem áhuga hafa á ferðalögum um landið á fjórhjóladrifsbifreiðum.
- Að gefa gott fordæmi um umgengni og verndun landsins með jákvæðri eftirbreytni og umræðu um náttúruvernd.
- Að gæta hagsmuna félagsmanna varðandi búnað fjórhjóladrifsbifreiða og annað er lýtur að fjórhjóladrifsbifreiðum og ferðalögum í samráði við viðkomandi yfirvöld.
- Að efla þekkingu félagsmanna á öllu því er við kemur útbúnaði fjórhjóladrifsbifreiða og ferðalögum um byggðir og óbyggðir landsins.
- Að efla tengsl og kynni félagsmanna.