Nú styttist í að skráningar í Stórferðina hefjist – en þær hefjast 5. febrúar kl 21:00
Verðið í ferðina hefur verið ákveðið 12.000 kr á haus.
Innifalið í því verði er:
- Gisting í skála á aðfararnótt laugardags
- Kvöldmatur á Hótel Höfn
- Gisting á Hótel Höfn aðfararnótt sunnudags
- Morgunmatur á Hótel Höfn
Auk þess dekkar skráningargjaldið annan kostnað, svo sem undirbúning, vöktun á bílaplani á Höfn og fleira smálegt.
Eins og áður hefur komið fram eru eftirfarandi skilyrði fyrir skráningu:
- Skráning í hópum sem ferðast sjálfstætt og á eigin ábyrgð
- Miðað við tvo saman í bíl og gistingu
- Hópar meta sjálfir hvort bílar séu nógu vel búnir (Undirbúningsnefnd áskilur sér þó rétt til að gera athugasemdir við búnað)
- Að minnsta kosti einn í hverjum bíl sé meðlimur í 4×4 og búinn að greiða félagsgjald 2013
Sjá má eldri frétt um ferðina Hér
Nefndin