Dagskrána ásamt fyrirliggjandi tillögum að lagabreytingum má sjá hér.
Aðalfundur F4x4
Dagskrána ásamt fyrirliggjandi tillögum að lagabreytingum má sjá hér.
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
||||
Menu |
Sjá nánari upplýsingar hér.
Það vantar 2-4 fríska félaga til að aðstoða við girðingarvinnu á bóndabæ undir Eyjafjöllum á laugardaginn kemur. Þeir sem eru til í þetta, vinsamlegast senda tölvupóst á olafurmag@gmail.com eða hringja í 844 4247.
Kv. Óli
Borist hefur tölvupóstur frá vettvangsstjórninni undir Eyjafjöllum. Ekki er þörf fyrir sjálfboðaliða í hreinsunarvinnu á svæðinu um þessar mundir, en haft verður samband við okkur ef þörf verður síðar. Það verður því ekkert af hreinsunarstarfi um helgina.
Reiknað er með að Ferðaklúbburinn 4×4 fái beiðni um aðstoð við hreinsunarstarf um helgina. Sett hefur verið upp skráningarform, þar sem hægt er að skrá sig til þáttöku, hvort sem er á laugardag eða sunnudag. Allir sem geta eru hvattir til að mæta, það er mikil þörf fyrir okkar aðstoð bæði við hreinsunarstarfið sjálft og eins til að sýna okkar stuðning.
Félagar athugið
Búið er að hafa samband frá vettvangsstjórninni undir Eyjafjöllum og vegna mikils öskufalls á svæðinu hefur öllu hreinsunarstarfi um helgina verið frestað um óákveðinn tíma. Talið er að þau séu nú komin á byrjunarreit varðandi öskumagn og hreinsunarstarf.
Heimamenn undir Eyjafjöllum vilja geta átt hauk í horni í klúbbnum okkar og vilja geta leitað til okkar með aðstoð þegar það verður mögulegt aftur. Þessvegna hafa verið sett upp ný skráningarform vegna hreinsunarvinnu um næstu helgi.
Íbúar undir Eyjafjöllum eru þakklátir að vita til þess að þeir standa ekki alveg einir í þeim miklu hremmingum sem þeir eru að lenda í og að eiga að góða aðila eins og Ferðaklúbbinn 4×4 er ómetanlegt.
Ég hvet fólk að leggja aðrar áætlanir til hliðar með það í huga að aðstoða við hreinsunarstarf um næstu helgi.
Sælir félagar
Okkur hefur borist hjálparbeiðni austan undan Eyjafjöllum. Óskað er eftir aðstoð okkar við að sinna hreinsunarstarfi á laugardaginn kemur, 1. maí , en ekki er óskað eftir aðstoð á sunnudag.
Það er þörf á ca. 30 manns frá okkur, nú þegar eru skráðir 9 í 7 bílum svo ljóst er að einhverjir geta tekið farþega ef þörf er á því.
Vinnan á laugardag er fyrst og fremst fólgin í hreinsun ösku við bæina. Vinsamlegast takið afstöðu sem fyrst, við þurfum að skila frá okkur upplýsingum um fjölda í hádeginu á morgun, föstudag.
Sett hafa verið upp tvö skráningarform vegna hjálparstarfs um helgina, annað fyrir laugardag og hitt fyrir sunnudag.
Eldra skráningarformið hefur verið fellt niður og nú hvetjum við menn sem geta og vilja aðstoða við hreinsunar- og lagfæringarstarf undir Eyjafjöllum að skrá sig á þann dag sem fólk getur komið. Þeir sem hafa skráð sig áður þurfa að skrá sig aftur ef það kemst annanhvorn daginn. Þeir sem vilja mæta báða dagana skrá sig tvisvar, einusinni á hvort form.
Okkur hafa enn ekki borist nánar upplýsingar frá vegvangsstjórninni, en gera má ráð fyrir að þörf verði á aðstoð og því hefjum við skráningar strax. Við biðjum aðeins þá sem geta komist að skrá sig svo við vitum þann fjölda sem er í boði hvorn daginn fyrir sig.
Félagsmenn athugið!
Aðgerðarteymi hafði rétt í þessu samband við formanninn og er óskað eftir liðsinni félagsmanna við hreinsunarstörf vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, klukkan 10 í fyrramálið.
Þeir sem hafa tök á að mæta með svo skömmum fyrirvara, er bent á að skrá sig á skráningarformi klúbbsins. Gert er ráð fyrir að hópar mæti í Heimaland (ca. 20 km. fyrir austan Hvolsvöll) kl. 10:00 og verði til kl. 16:00 eða eftir samkomulagi. Sveinbjörn mun síðan hafa samband við hvern og einn til að staðfesta skráninguna og um leið veita nánari upplýsingar.
Ath nýjustu upplýsingar koma á spjallþráðinn: Vegna hreinsunarstarfs hérna til hægri.