FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Fyrirlestur Leo M. Jónssonar á síðasta mánudagsfundi

09.02.2011 by Óskar Erlingsson

Menn komu að máli við Leó í kaffihléinu eftir fyrirlesturinn og höfðu spurningar varðandi efnið sem fjallað var um. Eins hvar hægt væri að nálgast efnið á vefnum.

Hér fyrir neðan eru link-ar á greinarnar sem Leó kom inn á í erindinu sl. Mánudagskvöld: (sjá undir Nánar… neðst í fréttinni )

Filed Under: Stjórn

BJÓRKVÖLD Á HÖFÐANUM

08.02.2011 by Logi Már Einarsson

Filed Under: Stjórn

Stórferð 2011- SPRENGISANDUR – KJÖLUR

08.02.2011 by Óskar Erlingsson

Stórferð Ferðaklúbbsins 4×4 verður farinn 24. – 27. mars 2011

Sjá nánar hér fyrir neðan

Undirbúningsnefnd

Filed Under: Stjórn

Félagsfundur 4×4

31.01.2011 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Næsti félagsfundur 4×4 verður mánudagskvöldið 7. febrúar., kl. 20:00, fundarstaður er Icelandair Hótel Loftleiðir  (http://www.icelandairhotels.is/hotels/loftleidir), salur Þingsalur 5

Dagskrá

  1. Innanfélagsmál.
  2. Erindi um nútíma tölvustýrðar bensín og diesel vélar. Leó M. Jónsson véltæknifræðingur kynnir. 
  3. Kaffi.
  4. Skipulag Stórferðarinnar 24 – 27 mars næstkomandi.
  5. Myndasýning frá fyrstu stórferð félagsins.

Filed Under: Stjórn

Félagsfundur 4×4 10. janúar

08.01.2011 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Fyrsti félagsfundur ársins verður mánudagskvöldið 10. janúar og hefst að venju kl. 20:00.  Fundarstaður er Mörkin 6.

 Dagskrá:

  • Innanfélagsmál
  • Kynning á drögum að breytingum á Náttúruverndarlögunum, Guðmundur G. Kristinsson sér um kynninguna
  • Kaffi
  • Ofurjeppar, kynning í umsjá Snorra Ingimarssonar og félaga

Stjórnin

Filed Under: Stjórn

Félagsfundur 4×4 10. janúar

28.12.2010 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Fyrsti félagsfundur ársins verður mánudagskvöldið 10. janúar og hefst skv. venju kl. 20:00.  Fundarstaður er Mörkin 6.

Dagskrá verður auglýst fljótlega, en áreiðanlegar heimildir herma að Snorri Ingimarsson og félagar verða með kynningu á ofurjeppum. 

Stjórnin 

Filed Under: Stjórn

Jóla og áramótakveðja

24.12.2010 by Bergur Pálsson

Jólakveðja

Ferðaklúbburinn 4×4 sendir félagsmönnum og þeirra fjölskyldum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með þakklæti fyrir árið sem er að líða.
Stjórn F4x4

Filed Under: Stjórn

Jólafundur F4x4

03.12.2010 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Jólafundur F4x4 verður mánudagskvöldið 6. desember í Mörkinni 6.

Dagskrá.
 
Garðar Sigurðsson Jeppavinafélaginu Keflavík segir frá öræfaferðum síðan um miða síðustu öld, í máli og myndum.
Kynning á vörum frá Bílasmiðnum á Bíldshöfða.
Kaffi og með því.
Innanfélagsmál
Gengjakynning, Sterarnir kynntir.
 
Fundurinn hefst að venju kl. 20:00.
 
Stjórn F4x4.

Filed Under: Stjórn

Fyrirspurn til frambjóðenda til stjórnlagaþings

20.11.2010 by Ásgeir J. Sigurðsson

Ágæti frambjóðandi

Ferðafrelsisnefnd er vinnuhópur á vegum Ferðaklúbbsins 4×4, Skotvís, Skotreyn, Slóðavina, Jeppavina og fleiri aðila sem tengjast ferðalögum og útiveru.

Í ljósi aukinnar ferðamennsku og vaxandi samkeppni um nýtingu landsins á ýmsa lund, þá finnst mörgum landsmönnum að hætta sé á að verulega verði þrengt að frjálsri för landsmanna um óbyggðir landsins.

Í III grein laga um náttúruvernd (1999 nr. 44 22. Mars ) er kveðið á um almannarétt, þ.e. rétt  almennings til ferðalaga og nýtingar. Ákvæði um almannarétt er reyndar að finna í fornum lagabálkum, svo sem Grágás og Jónsbók.

Ferðafrelsisnefnd hefur íhugað hvort ekki væri rétt að binda í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands rétt almennings til ferða um landið og nýtingu á svipaðan hátt og tilgreint er í lögum um náttúruvernd. 

Á þjóðfundinum sem haldinn var þann 6.nóvember 2010 kom fram vilji fundarins til að binda í stjórnarskrá ákvæði um almannarétt. Jafnframt kom fram sá eindregni vilji fundarins  að almannahagsmunir væru ávallt í fyrirúmi og að stjórnarskráin skyldi vera fyrir fólkið í landinu. Við teljum að skýr ákvæði um almannarétt falli vel að þessum sjónarmiðum.

Því viljum við spyrja þig, ágæti frambjóðandi, um afstöðu þína til þessa.

1.    Finnst þér rétt að binda í stjórnarskrá ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar?

2.    Munt þú beita þér fyrir því að ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar verði sett í stjórnarskrá?

Svör óskast send til ferðafrelsisnefndar á póstfangið, ferdafrelsi@f4x4.is

Virðingarfyllst

Filed Under: Stjórn

Félagsfundur 1. nóvember 2010

26.10.2010 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Dagskrá

– Innanfélagsmál.
– Áhrif hlýinda á ferðamöguleika hér á landi, Sigurður Þ. Ragnarsson eða Siggi Stormur eins og hann er oft kallaður kynnir.
– Kaffi.
– Fyrirhugaðar ferðir í vetur ræddar ásamt því að sýndar verða myndir úr síðustu ferð Litlunefndar.
– Gengjakynning – Túttugengið í máli og myndum.
– Og til að kaupa miða á árshátíðina, þá verðum við með posa á staðnum.
– Fundurinn hefst að venju kl. 20:00 og verður í Mörkinni 6.

Stjórn F4x4.

Filed Under: Stjórn

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • …
  • 8
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.