FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Stórferð F4x4 í mars 2012

14.02.2012 by Óskar Erlingsson

vetur

Fyrirhugað er að efna til stórferðar 22. – 25. mars 2012. Meiningin er að fara nokkuð krefjandi leið eins og venja er, en leiðin hefur þó ekki verið valin en nokkrir möguleikar eru til skoðunar. Enn má senda inn hugmyndir varðandi ferðina á stjorn@f4x4.is,  (sérstakt netfang vegna ferðarinnar verður kynnt þegar nær dregur).

Sjá meira með því að smella á „Lesa nánar:“ fyrir neðan myndina.

 

 

Filed Under: Stjórn

Fundur með nefndum 22. júní, kl. 19:00

21.06.2011 by Óskar Erlingsson

Fundur stjórnar með nefndum verður haldinn í félagsaðsöðunni Eirhöfða næsta miðvikudag þann 22. júní, kl. 19:00 – 20:30.

Efni fundarins verður:

1.  Afhending skipunarbréfa
2.  Nefndir geri grein fyrir verkaskiptingu innan nefndar og starfinu á komandi starfsári.
3.  Önnur mál

Menn eru beðnir um að koma upplýsingum um símanúmer og netföng nefndarmanna til skrifstofunnar. Best að senda á mailið okkar f4x4@f4x4.is

Stjórnin

Filed Under: Stjórn

Fundagerð aðalfundar F4x4

10.06.2011 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Ágætu félagsmenn.
Fundagerð aðalfundar F4x4, sem haldinn var 23. maí síðastliðinn, er komin inn á vefinn undir þráðinn „Innanfélagsmál“, sjá https://old.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=viewtopic.php&f=20&t=28322.  
 
Stjórn félagsins hefur skipt með sér verkum:

  • gjaldkeri er Arnþór Þórðarson,
  • ritari, og jafnframt varaformaður er Óskar Erlingsson,
  • meðstjórnendur eru Árni Bergsson og Samúel Þór Guðjónsson.  

Hafliði Sigtryggur Magnússon var kjörinn formaður félagsins á aðalfundinum.
Varamenn í stjórn eru Ágúst Birgisson og Ásgeir Sigurðsson.

Stjórn mun hitta fulltrúa nefnda félagsins á næstunni þar sem erindisbréf einstakra nefnda verða afhent og starfið framundan tekið til umræðu.

Ath. það er búið að gera smá leiðréttingu á fundargerðinni, eitt föðurnafn hjá nefndarmanni Litlu nefndar leiðrétt.

Filed Under: Stjórn

Aðalfundarboð

10.05.2011 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Aðalfundarboð

Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn mánudagskvöldið 23. maí 2011 og hefst hann kl. 20.00.

Fundurinn verður haldinn í sal félagsins að Eirhöfða 11, skemmu 3.

Réttur til setu á fundinum hafa allir skuldlausir félagsmenn og skulu þeir framvísa gildu félagsskírteini við innganginn.

Dagskrá er skv. 3 gr. laga félagsins.

  1. Setning fundar og dagskrá kynnt.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  4. Umræður um skýrslu stjórnar.
  5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
  6. Umræður um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
  7. Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
  8. Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
  9. Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
  10. Kjör skoðunarmanna.
  11. Önnur mál.
  12. Fundarslit.

Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 

Filed Under: Stjórn

Fundur vegna ferðar Sprengisandur-Kjölur

17.03.2011 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Ágætu félagar, fundur vegna ferðarinnar verður næst komandi mánudagskvöld (21. mars) kl. 20:00 í húsnæði Klúbbsins, Eirhöfða 11, Skemmu 3.

Á fundinum verður dreift efni, farið yfir dagskrána, drukkið kaffi og spurningum svarað.

Meðfylgjandi er uppfærð útgáfa af lista yfir hópa og þátttakendur.  Endilega lesið yfir skrána og sendið allar leiðréttingar á skraning@f4x4.is sem fyrst því á morgun rennur út fresturinn sem við höfum til að leiðrétta listann fyrir prentun.

Undirbúningsnefnd

Filed Under: Stjórn

Til hamingju með daginn

10.03.2011 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

afmæliStjórn ferðaklúbbsins 4×4 óskar öllum félagsmönnum til hamingju með 28 ára afmæli klúbbsins.

Filed Under: Stjórn

Verndaráætlun í beinni kl.16

04.03.2011 by Bragi Þór Jónsson

bein-uts-verndar

Filed Under: Stjórn

Auglýsing eftir ritstjóra fyrir vef klúbbsins

03.03.2011 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Stjórn og vefnefnd klúbbsins auglýsir eftir ritsjóra fyrir vef klúbbsins. 

Áhugasamir vinsamlega sendið póst á stjorn@f4x4.is

Stjórnin

Filed Under: Stjórn

Yfirlýsing vegna verndaráætlunar

01.03.2011 by Ólafur Magnússon

Vikrafellsleið

Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna staðfestingar á verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.  Yfirlýsingin er svohljóðandi: 

Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur að skrifa undir og samþykkja þá gerræðislegu ákvörðun stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að takmarka verulega aðgengi almennings að þjóðgarðinum. 

Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 telur að stjórn þjóðgarðsins hafi hunsað allar ábendingar og tillögur sem hefðu getað stuðlað að sátt um málið. Að stofna til stærsta þjóðgarðs í Evrópu án samráðs við þá aðila sem hafa hvað mest nýtt náttúru landsins sér til ánægju og yndisauka eru forkastanleg vinnubrögð og ekki sú stjórnsýsla sem á að sjást á Íslandi nútímans.

Öll undirbúningsvinna að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs er fráfarandi stjórn garðsins til vansa og hefði ráðherra án tafar átt að senda málið til nýrrar stjórnar garðsins og óska eftir að málið yrði unnið í sátt þá fjölmörgu útivistarhópa sem nýta vilja garðinn svo sem jeppamenn, vélsleðamenn, hestamenn, skotveiðimenn, stangaveiðimenn, ferðaþjónustuaðila og fleiri. 

Það er skoðun stjórnar Ferðaklúbbsins 4×4 að það ferli sem viðhaft hefur við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sé ámælisverð og standist ekki stjórnsýslulög  Ferðaklúbburinn 4×4 mun því kæra meðferð þessa máls.

Öll svona mál á að vinna í sátt og samlyndi. Ferðaklúbburinn 4×4 er nú sem áður tilbúinn að vinna að sátt um þjóðgarðinn, ef raunverulegur vilji er til slíks samráðs hjá stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og Umhverfisráðherra.

Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4

Filed Under: Stjórn

Skráning í Stórferð 2011- SPRENGISANDUR – KJÖLUR

11.02.2011 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Búið er að opna fyrir skráningar og er hægt er að skrá sig undir Klúbburinn>Skráning í ferðir.

Undirbúningsnefnd

Filed Under: Stjórn

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • …
  • 8
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.