FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Félagsfundur 1. september

30.08.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Fyrsti félagsfundur vetrarins verður haldinn á Hótel Natura (Loftleiðum) kl. 20:00  mánudaginn 1. september.

Á dagskrá verður meðal annars kynning frá IB bílum, Stórferðin 2015, innanfélagsmál og húsnæðismál (Síðumúlinn).

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og kynna sér starfið framundan.

Kveðja
Stjórnin

Filed Under: Fréttir, Stjórn, Tilkynningar

Könnun

10.07.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Ágætu félagsmenn, stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 biður ykkur vinsamlegast um að svara könnun sem þessi linkur bendir á (P Question).  Í könnun þessari er verið að kanna eldsneytiskaup félagsmanna.

Með fyrirfram þökk
Stjórnin

 

Filed Under: Stjórn

Könnun

10.07.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Könnun

Ágætu félagsmenn, stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 biður ykkur vinsamlegast um að svara könnun sem þessi linkur bendir á ().  Í könnun þessari er verið að kanna eldsneytiskaup félagsmanna.

Með fyrirfram þökk
Stjórnin

 

Filed Under: Fréttir, Stjórn

Afmæli Ferðaklúbbsins 4×4

11.03.2014 by Sveinbjörn Halldórsson

Í tilefni 31 árs afmælis Ferðaklúbbsins 4×4 býður klúbburinn félagsmönnum að koma upp á Höfða á föstudagskvöldinu frá kl. 19:00 – 24:00. Boðið verður upp á Búlluborgara meðan þeir endast og gos frá Vífilfelli.  Þeir sem vilja eitthvað sterkara geta nýtt sér það að um leið og afmælisveislan verður mun skemmtinefndin verða með bjórkvöld með hefðbundnu sniði.

Hvet alla sem þátt tóku í stórferðinni að kíkja við og fara yfir ferðina og segja öðrum frægðasögur af sér og bíl sínum í ferðinni.   Hver dreyf best, hver fékk besta dráttinn og oftast, hverjir voru óheppnastir og hverjir voru skemmtilegastir. Það er af nógu að taka eftir frábæra ferð nú er að setja saman góðar ferðasögur og muna að það er hægt að eyðileggja góða sögu með sannleikanum…

Kveðja
Stjórn og Skemmtinefnd.

Filed Under: Fréttir, Skemmtinefnd, Stjórn

Fyrsti félagsfundur 13. janúar 2014 fundarefni:

12.01.2014 by Sveinbjörn Halldórsson

Fyrsti félagsfundur ársins 2014 verður haldinn á Hótel Natura (Hótel Loftleiðir) mánudaginn 13. janúar 2014 kl. 20:00.

Fundarefni verður:

Innanfélagsmál: Stutt yfirlit frá stjórn. Ungliðanefndin kynnir fyrir okkur hugmyndir að ferðum og ýmsu sem á döfinu verður hjá þeim. Nýliðaferðin sem farinn verður 17. – 19. janúar. Litlanefndin kynnir ferð sem farinn verður 18. janúar. Skemmtinefndin kynnir fyrirtækjaheimsókn sem farinn verður 17. janúar 2014. Birkir í Fastir og félagar kynnir Þorrablótsferðina sem farinn verður 31. janúar – 2. febrúar 2014.

Gréta Guðjónsdóttir kynnir ljósmyndun og þá tækni sem notuð er við myndatöku.

Hjalti Magnússon kynnir myndbandið af ferð hans og Snorra Ingimarssonar á Jeppamótið sem hét “Croisiere Blanche”  sem haldið var í “Orcières-Merlette” sem er í frönsku Ölpunum nálægt Grenoble árið 1993.

Kaffi

Stórferð Ferðaklúbbsins verður kynnt og mun skráning hefjast á fundinum.

Filed Under: Fréttir, Stjórn

Eyjafjarðardeild félagsfundur

02.03.2013 by Björn Pálsson

Félagsfundur Eyjafjarðar verður haldinn þriðjudagskvöldið 5. mars kl.20.00 í húsnæði Bjsv Súlna við Hjalteyrargötu.

Dagskrá:

Erindi nefnda

Fræðsluerindi

Myndasýningar

Kaffiveitingar

Önnur mál

 

Stjórn Eyfjafjarðardeildar

Filed Under: Stjórn

30 ára afmæli Ferðaklúbbsins 4×4

25.02.2013 by Óskar Erlingsson

Afmælsfundur verður haldinn í stað hefðbundins félagsfundar mánudaginn 11. mars 2013.

Fundurinn verður haldinn að Hótel Reykjavik Natura (Loftleiðum) kl. 20:00

Fundurinn verður með öðru sniði en félagsfundur. Boðið verður upp á afmælisveitingar, myndasýningar og fleira skemmtilegt.

Stjórnin

Filed Under: Stjórn

Ferðaklúbburinn 4×4 og Ferðafélag Íslands í samstarf um Nýjadal

25.10.2012 by Samúel Þór Guðjónsson

Samningur Ferðafélags Íslands og Ferðaklúbbsins 4×4: Klúbburinn fær afnot af skálum FÍ í Nýjadal

Ferðaklúbburinn 4×4 og Ferðafélag Íslands hafa undirritað samning þess efnis að Ferðaklúbburinn hafi afnot af skála FÍ í Nýjadal næstu 10 árin, aðstoði við endurbætur skálans og sjái um rekstur hans yfir vetrartímann eða frá 1. október til 15. Apríl. Markmið samningsins er að efla og bæta aðstöðu fyrir ferðamenn í Nýjadal að vetri til og greiða þannig fyrir öruggari og ánægjulegri vetrarferðalögum á svæðinu.

Í samningnum er kveðið á um að Ferðaklúbburinn 4×4 aðstoði FÍ við uppbyggingu á skálunum í Nýjadal og að sú aðstoð verði í formi kunnáttu og reynslu af byggingu og rekstri vetrarskála. Nýjidalur er í 800 m hæð og er áhugaverður áfangastaður að vetrarlagi.  Þar standa tveir gistiskálar sem samtals rúma 110 manns sem er mesta gistirýmið á hálendinu. Núverandi hús eru byggð á árunum 1965 og 1975 og voru einkum hugsuð til sumarnota. Góð vetraraðstaða krefst hins vegar töluvert meiri aðstöðu, einkum er varðar vatn, salerni og upphitun.

„Hér er um tímamótasamning að ræða og afar ánægjulegt að þessi tvö félög skuli ná saman um uppbyggingu og bætta nýtingu skálanna í Nýjadal. Við fögnum því að fá afnot af Nýjadalsskálunum og munum einhenda okkur í að gera þá vistlegri og framkvæma þar nauðsynlegar endurbætur,“ segir Hafliði S. Magnússon, formaður Ferðaklúbbsins 4×4.

„Við hjá Ferðafélagi Íslands treystum félagsmönnum í Ferðaklúbbnum 4×4 til að taka þessi hús okkar í fóstur. Við vitum að þeir jeppamenn, sem mikið ferðast um hálendið að vetrarlagi, vita manna best hvernig best er að ganga frá hlutum þar sem veður eru válynd. Jafnframt teljum við að með þessu samkomulagi megi búast við aukinni nýtingu á skálunum yfir vetrartímann. Það er fagnaðarefni,“ segir Þórður Höskuldsson, stjórnarmaður í FÍ sem undirritaði samninginn fyrir hönd félagsins.

Nánar verður farið yfir samninginn á næsta félagsfundi Ferðaklúbbsins 4×4. Hann verður mánudaginn 5. nóvember næstkomandi.

Filed Under: Stjórn

Félagsfundur F4x4 3. september

29.08.2012 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Fyrsti félagsfundur vetrarins verður mánudagskvöldið 3. september. kl. 20:00

Dagskrá

  • Innanfélagsmál
  • Róbert Marshall segir frá gönguferð um Vonarskarð í mál og myndum og verður með hugleiðingu um sambúð göngufólks og jeppafólks
  • Einar Jónsson frá Skipulagsstofnun fjallar um skipulagsmál á miðhálendi Íslands

Kaffi verður um kl. 21:00

Fundarstaður er Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir).

Filed Under: Stjórn

Setrið, blað um jeppamennsku og ferðafrelsi

08.03.2012 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Í dag fimmtudaginn 8. mars dreifðum við blaðinu okkar Setrinu í 90.000 eintökum í hvert hús á höfuðborgarsvæðinu og til áskrifenda Moggans um land allt.   Að auki fá allar deildir samtals um 5.000 eintök til eigin dreifingar.

Setrið er 8 bls. í dagblaðsbroti og fjármagnað með sölu auglýsinga. Fjölmargir sinntu kalli ritnefndar og sendu okkur greinar og vil ég fyrir hönd klúbbsins hér með þakka kærlega fyrir þær. Sakir plássleysis komust þær þó ekki allar fyrir í blaðinu að þessu sinni en bíða birtingar í næsta blaði.

Í Setrinu er að finna fjölbreytt efni m.a. kynningu á klúbbnum, sagt er frá samstarfi við Landgræðsluna og sjálfboðavinnu félagsmanna varðandi náttúruvernd og sagt er frá starfi Ey4x4.  Þá er að finna ítarlega grein um Hvítbók og aðra grein um baráttuna fyrir ferðafrelsi í Vatnajökulsþjóðgarði.  Þá eru greinar um skálann okkar Setrið, Litlunefnd og leiðarlýsing um Þingmannaheiði á Vestfjörðum.

Ég vona að félagsmenn kunni að meta þetta framtak okkar en stjórn Ferðaklúbbsins telur afar mikilvægt að efla kynningar- og áróðursstarf út á við, ekki síst um baráttumálin sem á okkur brenna þessa stundina.

F.h. stjórnar,

Hafliði S. Magnússon formaður

Filed Under: Stjórn

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • …
  • 8
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.