FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Xenonperur í plastljósker

by Ágúst Úlfar Sigurðsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Xenonperur í plastljósker

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Stefán Stefánsson Stefán Stefánsson 15 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.12.2009 at 11:04 #209274
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant

    Er einhver sem veit hvort hætta sé á að skemma framljósker sem eru úr plasti (acryl ?) ef maður skiptir út gömlu H4-halogen perunum og setur Xenon perur í staðinn ?

    Mér dettur helst í hug hvort það kunni að vera einhver útfjólublá geislun frá xenon perunum sem plastið þolir illa og einnig er spurning hvort hitamyndun sé meiri eða staðbundnari með þessum perunum þannig að plastinu geti verið hætt við skemmdum.

    Loks er það spurning hvort það varði við einhverjar reglugerðir að gera svona breytingu á bílnum og geti komið í bakið á manni við næstu skoðun.

    Ástæðan fyrir því að ég er að pæla í þessu er ábending sem kom fram við síðustu skoðun á bílnum um að ljósmagn aðalljósa væri ekki nema rétt yfir lágmarki.

    Ágúst

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 21.12.2009 at 11:52 #672572
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Veit ekki neitt um geislun, en hitamyndun af Xenon ljósum er miklu minni en af venjulegum glóperu ljósum. Orkan í Xenoninum fer í búa til ljós ekki hita. Liggur við að vera vandamál í vondu verði þar sem ljósin rétt svo ná að bræða af sér snjóin.

    Rúnar.





    21.12.2009 at 13:14 #672574
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Það er mun meiri útfjólublá geislun af Xenon perum heldur en venjulegum halogen og með tímanum þá grillar það allt plast. En þar sem tíminn er afstæður og bílar verða ekkert sérstaklega gamlir þá er sjálfsagt ekkert til fyrirstöðu að nota Xenon í staðin fyrir H4. Reyndu bara að fá peru með hlíf fyrir háageislan svo þú blindir ekki alla sem þú mætir í myrkrinu. Einhvarstaðar sá ég líka svona hlíf til að smella á peruna til að taka háa geislan út.





    21.12.2009 at 13:23 #672576
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Kannast nú ekki við að þetta skemmi út frá sér, það var sú tíð að þetta gerði það samt sem áður. Bílabúð Benna og fl. seldu sett sem voru ekki nógu góð og voru að skemma út frá sér og enn má finna svona vandræða sett á markaðinum.

    "Loks er það spurning hvort það varði við einhverjar reglugerðir að gera svona breytingu á bílnum og geti komið í bakið á manni við næstu skoðun."

    Það er ekki sjálfgefið að þú fáir skoðun með Xenon ljós í hjá þér. Ef skurður er ekki réttur þá ertu í vondum málum. Það kannast eflaust margir við að hafa mætt bílum með svona ljós sem lýsa meira upp í loftið en niður á jörðuna (með drasl xenon, fókus ekki í lagi) veit að margir slíkir hafa verið stoppaðir bæði út á götu og í skoðun. Þau ljós sem Kaupfélag 4$4 hefur flutt inn hafa verið vandræða laus algerlega hvað þetta varðar og í raun algerlega vandræða laus fyrir utan eina sendingu af nýjum spennum sem við prufuðum fyrir ef ég man rétt 3 árum en þeir áttu það til að trufla útvarp og fleira í ákveðnum gerðum af bílum. Í dag þá eru til gríðalega vönduð og góð sett sem bæði endast og eru algerlega truflana frí en það er ekki nóg að vera með Digital spennir, þeir geta truflað líka og ég hef selt mönum spenna sem voru í vandræðum með m.a Tetra og VHF hjá sér en þeir versluðu þá hér heima eins veit ég að m.a TnT er með stafræna spenna sem eru að gera allt vittlaust hjá honum , blikka öll ljós í mælaborðinu ef ég man rétt og hann er bara með gamlan góðan LC80 (ekki verslað heldur hjá mér) þannig að það er ekki sálfgefið að þetta virki vandræða laust. Þannig að áður en menn fara af stað og versla þá er vissara að kynna sér þetta vel og vandlega burt séð frá því hvar menn versla ljósin sín.





    21.12.2009 at 13:25 #672578
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    "Reyndu bara að fá peru með hlíf fyrir háageislan svo þú blindir ekki alla sem þú mætir í myrkrinu. Einhvarstaðar sá ég líka svona hlíf til að smella á peruna til að taka háa geislan út."

    Þessi umrædda hlíf myndar skurðin m.a og kemur með öllum H-4 sem dæmi, ef hún fylgir ekki með skallt þú gleyma því strags að versla þær perur/sett.





    21.12.2009 at 18:44 #672580
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Xenon perur gerfa frá sér margfalt meiri UV geislun en halogen perur og eru þarafleiðandi best geymdar í ljóskeri sem er úr gleri eins og linsur á nýjum bílum. Það er ekki af ástæðulausu að bílaframleiðendur notast bara við þannig búnað þegar þeir bjóða uppá Xenon, fyrir utan einstaka Cadillac og Lincoln. En hvort að plastljósin verði að kornflexi áður en bíllinn drepst er annað mál. Eflaust duga nýleg ljós ótrúlega lengi með svona perum og sjálfsagt ekkert til að hafa teljandi áhyggjur af, það eiga að vera til perur húðaðar með einhverju efni sem stoppar útfjólubláa geislun upp að einhverju marki. Bara versla við Benna og þá er þetta ekkert vesen ef einhverju þarf að breyta eða skipta út, það er nefnilega styttra norður en til kína þó það séu ekki allir sammála því. :)





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.